Tíminn - 11.11.1979, Qupperneq 5

Tíminn - 11.11.1979, Qupperneq 5
Sunnudagur 11. nóvember 1979 5 Frá Selárdal í Arnarfirði Drangur í Drangsuík í sumar er leið, sumarið 1979, var ég á ferðalagi vestur I Arnarfirði. Leiö min lá út i Selárdal og kom ég að sjálf- sögðu að Brautarholti, en þar átti lengi heima listamaðurinn Samúel Jónsson. Við Samúel vorum samsveitungar i mörg ár. Hann var mörgum kunnur úti um allt land. Samúel var viða þekktur fyrir sérstaka list- hneigð sina, sem hann átti i rikum mæli. Verk hans öll bera honum fagurt vitni. Landslags- myndir, sem hann málaði og húsin, sem hann byggði vitna bezt um þetta. Skólagöngu eða lærdóm i þessum efnum var ekki um að ræða. En Samúel undi glaður við sitt. Það var hans aðals- merki. Margur ferðamaður lagði leið sina út I Selárdal að Brautar- holti til þess að lita eigin augum verk Samúels, sem voru til sýnis eins og hver önnur fullgild listaverk. Eftir daga Samúels hafa Frá Selárdal f Arnarfiröi. byggingar allar gengið svo úr sér á áeinum árum, að varla er þar oröið nokkuð eftir af húsum, enda enginn, sem ber ábyrgð á húseignum þarna á staðnum eftir þvi sem ég bezt veit. Nú siðustu árin hafa velunnarar Samúels heitins reist honum minnismerki þarna i Brautarholti. Þetta finnst mér vera drengilegt framtak af mönnum, sem ekkert voru vandabundnir Samúel heitnum. En verkin sýna hlýhug og velvild, sem þessir menn báru til Samúels, er þeir báðir kynntust nokkuð. Mér kemur i hug þaö sem Hannibal Valdimarsson segir I grein sinni er hann eitt sinn ritaöi um Samúel Jónsson. Þar segir: „Hann var vissulega sérstakur maður. Og það er sannfæring min að öllum samferðamönnum hans þyki gott að minnast hans.” Undir þessi orö Hannibals tek ég heils- hugar. Meðfylgjandi mynd sýnir minnismerkið. Það er burstmyndaður steinn, em I er greypt áletruö eirplata. Mynnismerkið er látlaust en haganlega gert og fellur vel inn i umhverfið. Á eirplötunni stendur þetta: „Hér bjó lista- maðurinn Samúel Jónsson, fæddur 15.9. 1884, dáinn 5.1 1969, 85 ára gamall. Þar sem góðir fara eru guðs vegir.” Mér hefur verið tjáð að nefndur steinn hafi verið tekinn úr klettinum utan við kaup- staöinn á Bildudal, klettinum Bana. Aö framkvæmd þessa verks stóðu Jón ólafsson og Benedikt Benediktsson, báðir á Bildudal. i svo nefndri Drangsvik, sem er skammt innan viö Kópinn vestan Arnarfjarðar, var fram yfir miðja þessa öld klettur all- stór neöarlega i fjöruborðinu, eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Þessi klettur, sem kallaður var Drangur, er nú gjörsamlega fallin i sjóinn og sést ekkert eftir af honum. Fram af þessum stöðum var siglingaleiö skipa.er áttu leiö út og inn fjörðinn. Skammt var farið frá Drangsvik. Nefndur klettur hefur þvi oft verið umtalsefni sjómanna. Til gamans skal i þessu sambandi sögð sönn saga og er hún á þessa leiö. — Skip eitt frá Bildudal sigldi einhverju sinni um þessar slóðir. Ræddu skipsmenn um klettinn Drang og voru ekki sammála. Var málinu þá skotið til skipstjórans, sem um tugi ára hafði siglt um þessar slóðir. Hann var skipstjóri á skipum frá Bildudal og hefur efalaust oft veitt Drang nána athygli á þessum ferðum sinum. Þeir spuröu skipstjórann: „Hvenær fellur Drangur?” „Ætli Drangur falli ekki um svipað leyti og ég er allur!’ svaraöi skipstjóri með sinni alkunnu rósemi, en hann var Kristján Arnason, skipstjóri frá Bfldudal. Það liðu um það bil 30 ár. I febrúar 1962 bárust þær fréttir um fjörðinn aö nú væri kletturinn Drangur fallinn i hafsins djúp. Um svipaö leyti fréttist það að Kristján Arnason, skipstjóri væri dáinn. Hann átti heima i Reykjavfk siðustu æfiár sin. Kristján varð að þessu leyti sannspár hvernig sem að öðru leyti á málið er litið. L.J.G. Daihatsu Við bjóðum meðalstóran japanskan gæðabíl, DAIHATSU CHARMANT,á kr. 3.835.000 með RYÐVÖRN OG ÚTVARPI til afgreiðslu á næstu dögum. Nálægt 500 Islendingar hafa nú þegar tryggt sér bíla á þessu ÓTRÚLEGA ÚTSÖLUVERÐI og við getum enn boðið nokkurt magn af fólksbílum, en stationbílar eru uppseldir. , ^------------------------------------------------------------------------- ^RKpé^RNAÐ^^ I 1400 cc, fjögurra gira skipting < ^ 3 ogdyrnar4. Benzineyðzla 7-8 úti JH —jfT ekki verð? ■ jKÍMaHHii Um leið og viO bjóðum við- _____—I mSgmSBSMjá^t skiptavinum að skoða bilana, ( yi, t l^a .'JBBSHmetm’ kynna sér kjör, varabluta og Zb**...' *■. r ■ verkslæðisþjónuslu okkar bend- ‘ L um við þeim a að Ibuga hvers , ___ sifellt auglýsa útsölu á 1979 ár- gerö, auglýsa ekki verö. Ætli i þaö sé ekki vegna þess aö þeir , eru alls ekki samkeppnisfærir. Viö erum lika sannfæröir um aö { annaö eins tækifæri til aö eign- ast góöan bil á ótrúlega lágu veröi muni ekki gefast á næstu I árum, ef þá nokkru sinni aftur. kominn á götuna Daihatsu-umboðið Ármúla 23 - Sími 85870

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.