Tíminn - 11.11.1979, Side 16
16
Sunnudagur 11. nóvember 1979
Fyrir skömmu kom Ut hjá
Steinum h.f., hljómplatan
„Ljúfa llf” meö söngdúóinu
Þú og ég. Hefur plata þessi þó
jafnan veriö kennd viö Gunnar
Þóröarson og nefnd diskóplat-
an hans Gunna Þóröar manna
á milli.
Aö sögn Utgefanda hefur
„Ljdfa Hf” selst meö miklum
ágætum og er nú fyrsta upp-
lag, 1700 eintök á þrotum, en
næsta upplag er væntanlegt i
verslanir efUr helgi. Á meö-
fylgjandi mynd sem Róbert
tók I Hollywood á dögunum
sjást allir helstu aðstandendur
plötunnar, en þeir eru (f.h.)
Gunnar Þórðarson, SigfUs
Halldórsson, sem á lagiö
„Vegir hggja til allra átta”,
Helga Möller söngkona, Jó-
hann Helgason söngvari og
Egill Eövarösson, en hann á
eitt lag á plötunni.
Þess má geta, aö jafnvel er i
ráöi aö semja enska texta viö
lögin á „Ljúfa llf” með dreif-
ingu á Bretlandi og á Noröur-
löndunum i huga, en hvort
grundvöllur er fyrir þessu er
ekki gott aö segja. —ESE
Þursaflokkurinn, Svan-
fríöur og Hljómar á tónlist-
arkvöldi S.A. T. T. í vetur
stofnfundur samtakanna verður haldinn n.k. þriðjudag
Formlegur stofnfundur
Samtaka alþýöutónskálda- og
tóniistarmanna (S.A.T.T.),
veröur haldinn aö Hótel Esju
næst komandi þribjudags-
kvöld og hefst hann klukkan
20.
Aö undanförnu hafa fjórar
nefndir starfaö á vegum sam-
takanna og undirbUiö vetrar-
starfiö, en i ráöi er aö samtök-
in gangist fyrir tónlistarkvöld-
um a.m.k. hálfs mánaöarlega
i vetur. Reyndar hefur eitt
slikt tónlistarkvöld þegar ver-
iö haldiö og sóttu þaö rúmlega
500 manns. Næsta tónlistar-
kvöid veröur siöan haldiö
sunnudaginn 18. nóvember og
mun þá Þursaflokkurinn troöa
upp i fyrsta sinn I vetur, en
aörar hljómsveitir sem koma
munu fram eru Amon Ra og
hljómsveitin Svanfrföur, sem
veröur sérstaklega endurvak-
in fyrir þetta eina tækifæri.
Þess má aö lokum geta aö á
tónlistarkvöldi 2. desember,
þ.e. á kosningadaginn fyrri,
þá munu Hljómar úr Keflavík
troöa uþp meö þá Gunnar
Þóröarson og Rúnar JUIiusson
I broddi fylkingar.
—ESE
J
Ljúft skal það vera — hið ljúfa líf
Hattur og
Fattur
bregða
á leik
- fyrir lesendur
Nútímans
Umsjón:
Eiríkur S. Eiríksson
NÚ TIMINN
Jazz í Aústurbæjarbíói
George Adams og Don Pullen kvartettinn með hljómleika 1 kvöld
Sunnudaginn 11. nóvember
nk. kemur kvartett George Ad-
ams/ Don Pullen fram á tón-
leikum Jazzvakningar I Austur-
bæjarbiói. Hefjast tónleikarnir
kl. 22 og standa i u.þ.b. tvær
stundir.
Kvartettinn skipa þeir George
Adams (saxófónar), Don Puilen
(pianó), Dannie Richmond
(trommur) og Cameron Brown
(bassi).
George Adams, annar leiötogi
hópsins er 39 ára aö aldri, Hóf
hann upphaflega pianónám 9
ára gamall, en sneri sér aö
saxófónleik nokkru siöar.
George Adams þótti snemma
efnilegur tónlistarmaöur og
vann til verölauna fyrir góöa
frammistööu sem saxófónleik-
ari á skólaárum sinum. George
Adams hóf aö stunda hljóöfæra-
leik af alvöru 16 áraaö aldri og
lékum tima m.a. meö blúsleik-
urunum Howlin’ Wolf og
Lighnin’ Hopkins. Sföar lék
hann meö djassleikurunum Roy
Haynes, Gil Evans og Art Blak-
ey. Ariö 1973 réöst hann til
starfa i hljómsveit Charles
Mingus og kynntist hann þar
þeim Don Pullen og Dannie
Richmond, sem skipa sæti i
kvartett hans nú.
Ðon Pullen er tæplega 45 ára
aö aldri. Hann er af tónlistar-
fólki kominn og lá þvi beinast
viö aö hann næmi tónlist ungur
aö árum. Stundaöi hann nám
sitt hjá einkakennurum svo og i
tónlistarskólum. Pullen vakti
fyrst verulega athygli er hann
lék i kvartetti Giuseppi Logan
upp úr 1960. Siöan starfaöi hann
meöeiginhljómsveit frá 1965 til
1970. Eftir þaö lék hann meö
söngkonunni Ninu Simone i eitt
ár, en þvi næst meö Jazzmess-
engers Arts Blakey. Ariö 1974
réöst hann til starfa I hljómsveit
Charles Mingus. Hófst þar meö
samstarf þeirra þriggja Pullen,
Adams og Richmond og hefur
þaö veriö nær óslitiö siöan.
Trommuleikarinn Dannie
Richmond er tæplega 44 ára aö
aldri og þekktastur þeirra fé-
laga. Hann réöst til starfa til
Charles Mingus áriö 1956 og
George Adams
starfaöi I hinum ýmsu „jazz-
smiöjum” hans til ársins 1974.
Richmond er eini hljóöfæraleik-
arinn sem starfaö hefur meö
Mingusi i svo langan tima og
segir þaö þó nokkra sögu. Ariö
1974 breytti Richmond til og brá
sér meö blúsrokk tónlistar-
mönnunum Mark og Almond á
feröalag. Starfaöi hann meö
þeim um þriggja ára skeiö, en
auk þess vann hann meö mönn-
um eins og John Mayall, Joe
Cocker og Elton John. 1977 hóf
Richmond aftur störf meö sin-
um forna vini Charles Mingus
og starfaöi meö honum allt til
dauöadags.
Minnst þekktur þeirra félaga
er bassaleikarinn Cameron
Brown. Hann hefur lengst af
starfaö meö saxófónleikaranum
Archie Shepp viö góöan oröstir .
Brown er heldur hógvær maöur
og hefur litiö veriö ritaö um
hann opinberlega. Eru þvi ýmis
atriöi um hann enn á huldu en
bassaleikari er hann góöur eins
ogheyra má af þeim hljómplöt-
um sem hann hefur leikiö inná.
Er ekki aö efa aö tónleikar
kvartettsins veröur hinn besti
þvi aö þeir fjórmenningarnir
eru ákaflega virtir meðal djass-
leikara og leikmanna hvarvetna
um heiminn og leikni þeirra
mjög rómuö.