Tíminn - 18.11.1979, Side 3
Sunnudagur 18. nóvember 1979
3
sem sé þeim, aö ávallt væri unnt
aö læra eitthvaö i skólum.
Konunglega listaakademian i
Kaupmannahöfn var engin
undantekning frá
sambærilegum stofnunum, eins
og þær gerast ömurlegastar um
allan heim, þær voru fyrst og
fremst safn einkaskóla, eöa
prófessora, sem tóku nemendur
og kenndu þeim þaö sem þeir
töldu mátulegt, og nauösynlegt.
Frelsi, eða andlegt frelsi var
heldurdræm útvigt. Var Svavar
nokkrar vikur hjá Kræsten
Iversen, en fljótt slitnaöi upp úr
og áður en varði var Svavar
kominn i vissan óaldarflokk i
danskri myndlist, sem leitaöi
nýrra leiða, sem ekki fundust
með útmælingum á frum-
formum griskrar höggmynda-
listar, eða i hollenskum
renisans, heldur i einhverju allt
öðru og nýju, en til þess þurfti
aðeins ný augu. Það var allt og
sumt.
Um þetta segir Svavar i
viðtali i timaritinu Vaki árið
1953:
,,Ég efast um, að sá væri
nokkuð bættari, þótt kynni að
mála hálfkúbistiskan kvenn-
mannsbóg, og á ég þar við hina
illræmdu módelpornógrafiu
listháskólanna. Ef ég ætti að
bæta hér nokkru við, þá væri
það, að skólarnir gæfu meiri
gaum manngerð og sérkennum,
en fyrst og fremst, að lista-
háskólarnir væru afhentir
nemendunum sjálfum til
frjálsra afnota með eða án
fyrirmynda eða húsgagna, en
einkum þó þeirrar sálarmublu,
er nefnist prófessor”.
Þetta sýnir betur en margt
annað óbilgirni hinna ungu
uppreisnarmanna, sem réðust
að danskri og evrópskri mynd-
list á fjórða og fimmta ára-
tugnum og gerðu að henni
aðsúg. Minna var þaö nú ekki.
Ár a t u g u r i
Kaupmannahöfn.
Svavar Guðnason dvaldist
heilan áratug i Kaupmannahöfn
þá. Hann fraus inni i striði
nasista, en háði auk annars
sitt eigið strið. Aðframkominn á
stundum af næringarskorti
vann hann við sitt málverk.
Hann ferðaðist dálitið um, kom
til íslands i stutta heimsókn
1937, og 1938 stansaði hann viku
1 málaraskóla Légers, en
skrapp auk þess suður á Italiu.
Um þetta leyti er Svavar i
slagtogi við menn eins og Ejler
Sannleikurinn ernii beggja vegna Lómagnúps.
Bille, Egil Jacobsen og Asger
Jorn, sem hlotið hafa Evrópu
frægð núna og sumir
heimsfrægð, eins og sá siðast
taldi.
Cobra-grúppan varð til og
Svavar varð eitt af sýningar-
númerum Haustsýningarinnar,
sem er nafntoguð stofnun.
Ekki skal rætt frekar um
alþjóölegan frama Svavars
Guðnasonar þarna ytra, en það
athyglisverða er aö strax árið
1936 er hann byrjaður að mála
hreinar abstraktsmyndir. Hann
stendur innan'i málverki sinu
sjálfur, veggirnir riða.
Upp úr þvi varð fúgustillinn
til, margar dásamlegar myndir
og verður Svavar óumdeilan-
lega að teljast okkar fyrsti
abstraktmálari, ef það skiptir
máli.
Til eru að visu abstraktsjónir
frá eldri tið, en þær voru þá
aðeins partur af lifsverki, sem
lá annars með öðrum stefnum.
Þetta er ekki sagt til þess að
kasta rýrð á neina aðra, en
dálitið er samt um það, aö
ýmsir menn telji sig hafa haft
fæðingahriöir i þessa átt og hafi
tekið út þjáningar vegna þess
arna, þótt allar myndir vanti
um svoleiðis nokkuð hjá þeim.
Hins vegar komu margir
liðtækir menn i abstraktmál-
verki fram á sjónarsviðiö, eftir
að öldurnar hafði lægt i norðan-
verðri Evrópu og i Ameriku.
Fyrsti islenski málarinn sem
helgaði sig einvörðungu
abstraktmálun verður á hinn
bóginn að teljast vera Svavar
Guðnason, hvort sem öllum
likar það eða ekki.
Heimkoman
1 striðslok kom Svavar
Guðnason til tslands. Þaö
gustaði af þessum djarfa and-
spyrnumanni. Hann sýndi
myndir i Listamannaskáianum.
Margir komu á þessa sýningu
og sumir urðu æstir og fyrir
kom að reiðir menn hentu
sýningarskránni i konu
málarans i bræði sinni, þegar
þeir hlupu út.
Dagar stofustykkjanna voru
þá þegar taldir, Hjálp i
Þjórsárdal, Þingvellir og Húsa-
fellsskógur uröu hér eftir að
deila með nýjum bróður, sem
málaði eins og api, en um
þessar mundir var það
uppáhaldsblaðaefni borgara-
stéttanna að halda að apar gætu
gjört listaverk á borö við Cobra-
fólkið og aðra viðlika menn i
norðanverðri Evrópu.
Við brosum nú.
Þó höfum við ef til vill gleymt,
að Svavar Guðnason gaf
þjóðinni miklar gjafir. Ný augu,
nýjan tón, nýjan munaö.
Sannleikurinn var nú beggja
megin við Lómagnúp og við
sjáum áhrif þessarar listar út
um allt. Abstraktmálverk i húsi
vekur ekki meiri undrun, sem
furðuverk, en til dæmis vatns
lögnin i húsinu, enda er
tilfinningalifið i viðtækara
samhengi við myndlistina, en
nokkru sinni fyrr.
Svo langt getur það gengið, að
maður veit ekki hvort þaö er
verra að missa mynd ofan af
vegg, eða hitann af húsinu i
frosti.
Svavar Guðnason
málari.
Að útskýra myndlist er ekki
gott verk fyrir þá sem skrifa.
Tónlistarmaður gæti ef til vill
lýst myndum Svavars betur en
rithöfundur. Fúgu nafnið er lika
fundið upp af manni sem bar
skynbragð á tónlist, eöa af
Erlendi i Unuhúsi, sem fann aö
sama byggingarlag var á
myndum Svavars og i fúgum
Bachs og Beethovens.
Lifsverki hans verður fyrst
og fremst lýst i þeim myndum
er hann málaði.
Þó verður að geta þess hér, að
bak við þessar myndir er
sérstæður og sterkur maður
andlega. Einhver orðhagasti
maður samtiðarinnar. Hann
hefði getað orðið skáld. Hann er
allt i senn, hreinskilinn og slótt-
ugur, öfgafullur, stórlyndur,
smámunasamur,öfundsjúkur,
umburðarlyndur, kátur og
hress, eða rétt dregur fram lifið
vegna bölsýni. En fyrst og
fremst er hann ávallt Svavar
Guðnason, einstæöur maður,
sem málað hefur betur en flestir
aðrir.
Lengst af var vindurinn i
fangið, stormurinn, regnið og
fjúkandi fönn. Vont húsnæði,
lélegur matur, stundum enginn.
Ekkert nema málverk og ein
stillt kona, Asta Kristin Eiriks-
dóttir úr Borgafirði eystra,
sem fylgir’ honum enn.
Megi þau lifa heil.
Texti: Jónas Guðmundsson Myndir Tryggvi, GE
INTERNAHONAL
IH Diesel 160 og 210 hö.
10,0 og 22,5 t heildarþyngd.
Framdrif fáanlegt.
Afgreiðslufrestur 4—5 mánuðir.
CARGOSTAR
IH Diesel 170 og 210 hö.
■ CO 1850 13,5 t heildarþyngd.
CO 1950 16,5 t heildarþyngd.
Sjálfskipting. Til afgreiðslu strax.
MJGLÝSINOASTOFA SAMBANOSINS
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900