Tíminn - 18.11.1979, Blaðsíða 8
8
Sunnudagur 18. nóvember 1979
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson og Jón Sigurósson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gíslason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15 sími
86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.90: 86387. Verð I lausasölu kr. 200.00. Áskriftargjald kr.
4000 á mánuði. Blaðaprent.
J
Athafnir I stað orða
í málum fatlaðra
Helztu samtök fatlaðra hafa lagt fyrir forustu-
menn stjórnmálaflokkanna nokkrar spurningar
um afstöðu þeirra til hagsmunamála fatlaðra og
öryrkja.
1 svari Steingrims Hermannssonar, formanns
Framsóknarflokksins, er fyrst minnt á, að i sam-
þykktum 17. flokksþings Framsóknarflokksins,
sem haldið var i marz 1978, segi m.a., að Fram-
sóknarflokkurinn vilji ,,að öllum þegnum þjóð-
félagsins gefist jöfn tækifæri til að þroska og nýta
hæfileika sina við nám og starf og að öllum sé
tryggt öryggi i veikindum og vegna örorku,elli og
áfalla af völdum náttúruhamfara.”
Siðan segir i svari Steingrims Hermannssonar:
,,í anda þessarar samþykktar hefur
Framsóknarflokkurinn beitt sér fyrir ýmsum að-
gerðum til þess að bæta hag fatlaðra.
Á siðasta löggjafarþingi lögðu þingmenn
Framsóknarflokksins fram tillögur i málefnum
fatlaðra, s.s. til breytinga á tollskrá varðandi bila-
kaup öryrkja, sem var samþykkt sem lög. Enn-
fremur um heildarendurskoðun laga um almanna-
tryggingar með það markmið fyrst og fremst, að
tryggingarlöggjöfin verndi og styðji þá þjóð-
félagsþegna sem þurfa á samfélagsaðstoð að
halda hverju sinni. Er lögð sérstök áherzla á mál-
efni öryrkja og fatlaðra. Tillagan var samþykkt og
visað til aðgerða rikisstjórnar
Framsóknarflokkurinn svarar spurningum yðar
að öðru leyti þannig.:
1. Framsóknarflokkurinn vill að fatlaðir njóti á
þessu sviði sem öðru sama réttar og aðrir til þátt-
töku i almennri stjórnmálastarfsemi og mun taka
upp baráttu fyrir þvi að svo verði.
2. Framsóknarflokkurinn telur að hæfileikar
fatlaðs fólks eigi að fá að njóta sin á Alþingi sem
annars staðar i þjóðfélaginu og mun styðja nauð-
synlegar breytingar á húsakynnum Alþingis til að
gera þetta framkvæmanlegt.
3. Framsóknarflokkurinn álitur á sama hátt og i
svari 2. að hæfileikar fatlaðs fólks eigi skilyrðis-
laust að fá að njóta sin til æðstu embætta islenzka
rikisins og vill vinna skipulega að þvi, að nauð-
synleg starfsaðstaða sé sköpuð til að gera þetta
mögulegt.
4. Framsóknarflokkurinn telur sjálfsagt að fatl-
aðir hafi sama rétt og aðrir til þátttöku i sveitar-
stjórnarmálum og telur nauðsyn að gerðar verði
aðgerðir til að skapa þá starfsaðstöðu, sem með
þarf.
5. Á siðasta þingi var lögð fram þingsálykt-
unartillaga á þingskjali 27 um málefni hreyfi-
hamlaðra, flm. þingmaður Framsóknarflokksins,
þar sem skorað er á rikisstjórnina að láta nú þegar
gera úttekt og kostnaðaráætlun um nauðsynlegar
endurbætur á opinberu húsnæði, til að auðvelda
hreyfihömluðum aðgang, og að settar verði nauð-
synlegar reglugerðir tilskipulegra aðgerða i þessu
skyni. Visast til greinargerðar með tillögunni.
Framsóknarflokkurinn mun fylgja þessu máli fast
eftir á næsta þingi og reyna að tryggja framgang
þess, jafnframt að hafa áhrif á að staðið verði i
hvivetna við ákvæði nýrra byggingarlaga á þessu
sviði. Umfram allt þarf athafnir i stað orða.”
Framsóknarflokkurinn hefur með þessu svari
Steingrims Hermannssonar, formanns flokksins,
markað afstöðu sina til málefna fatlaðra skýrt og
afdráttarlaust. Sama gildir vitanlega um aðra þá,
sem höllum fæti standa i lifsbaráttunni.
Erlent yfirlit
Meany hefur ákveðiö
að draga sig í hlé
Einn voidugasti maður Bandaríkjanna i aldarfjórðung
Eitt af þeim málum, sem
Meany hefur látiö sig miklu
varöa, er baráttan gegn
kommúnismanum. Upphaflega
mun þetta hafa sprottiö af þvi,
aö þeir höföu sig talsvert i
frammi i verkalýösfélögum á
árum fyrr og áttu Meany og
félagar hans þá í höggi viö þá.
Siöan hefur Meany haldiö uppi
sókn gegn kommúnismanum,
jafnt utan Bandarikjanna og
innan. Taliö er, aö samtök
Meanys hafi oft veitt verkalýös-
samtökum og verkalýös-
flokkum utan Bandarikjanna,
sem böröust gegn
kommúnistum, mikinn fjár-
stuöning. Innanlands beitti
Meany sér gegn þingmönnum,
sem voru taldir hliöhollir
kommúnistum.
Meany var stuöningsmaöur
Vietnamstyrjaldarinnar næst-
um tíl endaloka. Þaö skildi mest
leiöir hans og McGoverns eins
og áöur sagöi.
Meany taldi nauösynlegt, aö
embættismenn verkalýös-
hreyfingarinnar væru vel-
launaöir og þvi óháöir atvinnu-
rekendum. Árslaun hans sjálfs
voru 110 þús. dollarar. Hann
kraföist þess jafnframt, að þeir
gættu heiöarleika i hvivetna.
Þegar upplýstist, aö hiö
volduga samband flutninga-
‘verkamanna tæki þátt i ýmissi
fjárbrasksstarfsemi, gerði
Meany kröfu til þess, aö þvi yröi
tafarlaust hætt. Forustumenn
þessuröu ekki viö kröfu hans og
lét hann þá reka sambandið úr
AFL-CIO. Þetta geröist 1957.
ÞRÁTT fyrir aldurinn,
hefur Meany verið heilsu-
hraustur þangaö til á þessu ári.
Sú krafa hefur veriö uppi á
undanförnum árum, aö hann
drægi sig i hlé fyrir aldurssakir,
en hann hefur hafnaö þvi og
enginn hefur treyst sér til aö
keppa viö hann um forseta-
starfiö. Þaö mun hafa ýtt undir
þaö, aö hann hefur ákveöið aö
hætta nú, aö hann missti konu
sina i marzmánuði siöastliönum
eftir 59 ára sambúö.
I AFL-CIO eru nú um 14 millj
ónir félagsmanna. Hlutfalls-
lega mun færri launamenn
taka nú þátt i samtökunum en
þegar Meany varð leiötogi
þeirra. En áhrif þeirra eru eigi
aö siöur mikil og aö ýmsu leyti
meirien áður. Þvi veldur senni-
lega mestu, aö þau láta sig lög-
gjafarstarfiö meiru varöa en
áöur og haf a aukiö þátttöku sina
i stjórnmálabaráttunni.
Þ.Þ.
I ÞESSUM mánuöi mun
draga sig i hlé þekktasti verka-
lýðsleiðtogi Bandarikjanna,
George Meany, 85 ára gamall.
Meany hefur verið valdamesti
verkalýösleiötogi Bandarikj-
anna I aldarfjóröung.
Ahrif Meany hafa ekki aðeins
veriö mikil á sviöi kaupgjalds-
mála, heldur engu minni eöa
öllu meiri á löggjafarsviöinu.
Hann hefur komiö fram
mörgum lögum um félagsmál
og óbein kjaramal til hags fyrir
umbjóöendur sina. Hann hefur
haft nána samvinnu viö flesta
forseta Bandarikjanna á
þessum tima, einkum þó Kenne-
dy og Johnson, og áhrifamikla
þingleiðtoga.
Ahrif sin á löggjafarsviöinu
hefur Meany m.a. öölazt á þann
hátt, aö hann hefur gert verka-
lýðshreyfinguna miklu virkari á
löggjafarsviöinu en áöur var
meö þvi aö skipuleggja þátttöku
verkamanna I kosningunum.
Þeir forsetaframbjóöendur I
forsetakosningunum, sem hlutu
meömæli Meanys, gátu treyst á
að þau tryggöu þeim a.m.k.
nokkrar milljónir atkvæöa. -
Hann hefur stutt alla frambjóö-
endur demókrata i forseta-
kosningum, nema McGovern,
sem bauö sig fram gegn Nixon
1972. Þetta stafaöi af þvi, aö
hann taldi McGovern of rauöan,
m.a. vegna andstööu hans gegn
Vietnamstyrjöldinni.
Hins vegar stafaöi þetta ekki
af þvi, aö Meany væri vinur
Nixons. Meany var alltaf mikill
andstæöingur hans og varö
manna fyrstur til aö krefjast
þess aö Nixon væri vikiö frá
völdum vegna Watergate-
málsins.
A ýmsu hefur oltiö i sambúö
þeirra Meanys og Carters for-
seta, þvi aö Carter hefur ekki
alltaf viljaöfaraaö ráöum hans.
Sambúö þeirra hefur þó heldur
batnaöi seinni tiö. Liklegt þykir
að þó Meany láti af formennsku
I stærstu verkalýössamtökum
Bandarikjanna, aö hann haldi
áfram afskiptum af stjórn-
málum og þykir hann liklegur
til aö veita Edward Kennedy
stuöning.
MEANY er af Irsku bergi
brotinn. Foreldrar hans voru
báöir irskir. Hann fæddist I
New York 1894, og byrjaöi aö
vinna fyrir sér sem pipu-
lagningamaöur, þegar hann var
16 ára gamall. Fljótlega hóf
Meany og Reuther 1955.
George Meany
hann þátttöku i verkalýðs-
félagsskapnum, sem þá var aö
smá eflast. Hann vann sér strax
mikiö traust og var faliö hvert
trúnaöarstarfið á fætur ööru.
Verkalýöshreyfingin var þá
margklofin I Bandarikjunum.
Tvö verkalýössamtökin voru þó
langstærst, AFL (American
Federation of Labor) og CIO
(Congress of Industrial Organi-
sation) Meany starfaöi innan
AFL og var kjörinn forseti sam-
takanna 1952, en þau voru
aöeins fjölmennari en CIO, en
CIO færöist I aukana undir for-
ustu mikilhæfs Þjóöverja, Walt-
her P. Reuther. Eftir miklar
viöræöur náöu þeir Meany og
Reuther samkomulagi um að
sameina samtökin og hafa þessi
sameinuöu samtök siöan gengiö
undir skammstöfunum
AFL-CIO. Meany var kosinn
fyrsti forseti þeirra og hefur
veriðþaðstööugt siöan. Reuther
var kosinn varaforseti, en lézt
skömmu slöar. Eftir lát hans
hefur Meany nánast veriö ein-
valdur innan samtakanna, og
hefur aö sögn gerst stööugt ein
ráöari meö aldrinum. Hann
hefur látiö verkalýös-
hreyfinguna taka afstööu tíl
fjölmargra mála annarra en
kjaramála.
Þ.Þ.