Tíminn - 18.11.1979, Blaðsíða 21
Sunnudagur 18. nóvember 1979
21
Bob Marley &
the Wailers —
Survival
ísland / Fálkinn
★ ★ ★ ★ +
Nýlega sendi jamaiska
reggae-stjarnan Bob Marley og
hljómsveithans The Wailers frá
sér hljómplötuna „Survival”,
en þessi piata hefur af mörgum
veriö talin besta plata Marleys
fró upphafi. Erfitt er þá aö al-
Hsefa eitthvaö i bessum efnum
enda smekkur manna misjafn,
en fyrir mina parta get ég full-
yrt aö „Survival” gefur piötum
eins og „Exodus” og „Rasta-
man Vibration” ekkert eftir.
Höfuöstyrkur „Survival”
liggur i því hvaö hún er jöfn. Fá
lög skera sig úr aö ráöi, en ef
nefna ætti einhver sem bestu lög
koma upp i hugann nöfn eins og
„Ambush”, „Survival”, „So
much trouble”, „Zimbabwe” og
„Africa unite”. Þaö siöast
talda felur reyndar i sér megin
boöskap plötunnar, þ.e.a.s. boö-
skap Marleys um sameinaöa
Afriku, sem siöan yrBi höfuBvigi
þeldökka kynstofnsins. I þessu
lagi syngur Marley: Africa
unite/ ’cause we ’re moving
right out of Babylon/ and we ’re
going to our fathers land. — En
Marley gerir sér grein fyrir þvi
aB meira þarf aB koma til og i
þvi sambandi vitnar hann á
plötuumslagi til Marcusar
Garvey: Fólk sem er sér ómeB-
vitandi um uppruna sinn og
sögu, er eins og tré án róta. —
ÞaB vekur einnig athygli aö
„Survival” felur i sér mun
minni trúarboöskap en margar
af fyrriplötum Marleys og e.t.v.
bendir þaö til þess aB Marley
hafi nú breytt um baráttuaö-
feröir. „Survival” er ein póli-
tiskasta plata Bob Marley frá
upphafi og boöskapurinn er ein-
faldur —LátiBhart mæta hörBu,
auga fyrir auga og tönn fyrir
tönn. — Vera má aö siBustu at-
buröir i' Afriku, nánar til tekiö i
Zimbabwe Ródesiu hafi oröiö til
þess aB Marley hefur tekiB upp
þessa harölinuafstööu, sem
kemur skýrast fram i laginu
„Zimbabve”: Every man gotta
right/ todecidehis own destiny/
and in this judgement/ there is
no partiality/ so arms in
arms, with arms/ we will fight
this little struggle/ ’cause that’s
the only way.
Þó aBMarley kveöihér fast aö
orBi þá er ekki þar meö sagt aö
trúmálin séu gleymd. Haile Se-
lassie heitinn Eþlóplukeisari er
ein n helsti spámaöur Rastafari
trúarbragBanna og guBinn Jah
er á sinum staB.
Þetta kemur allt saman fram
á plötunni, eins og á fyrri plöt-
um, en eins og áöur segir þá
leggur Marley aöaláhersluna á
veraldlegri hluti aö þessu sinni.
— ESE
Glámur og
Skrámur - í
sjöunda himni
Hljómplötuútgáfan
h.f.
Þá er blessaö barnaáriö senn
á enda og þvi vel viö hæfi aö út
sé komin hljómplata meö ævin-
týrum bræöranna Gláms og
Skráms, sem skemmt hafa ung-
um sem öldnum meö uppátækj-
um sfnum i Stundinni okkar á
undanförnum árum. Þaö eru
Þeir bræöur Halli og Laddi
ööru nafni Haraldur og Þórhall-
ur Sigurössynir sem bregöa sér
I gevi Gláms og Skráms, en höf-
undar tónlistar eru Ragnhildur
Gisiadóttir og Þórhallur Sig-
urðsson. Höfundur texta er
Andrés Indriöason og sögumaö-
ur er Róbert Arnfinnsson.
„1 sjöunda himni” nefnist
þessi plata og veröur þaö aB
teljast sannmæli, þvl aö bræB-
urnir Glámur og Skrámur fara
á kostum á plötunni og ekki má
gleyma kúnni Ljómalind, kett-
inum Guttormi, Faxa flughesti,
litlu prinsessunni og tannlausa
kónginum i Sælgætislandinu,
Pésa pjáturkarli og öllum hin-
um furöufuglunum sem fram
koma á plötunni. Þar væri varla
sanngjarnt aö rekja söguþráö-
inn á plötunni hér, en þess má
geta aö ævintýriö fjallar um
ferö Gláms og Skráms um
ókunna heima og meöal viö-
komustaöa eru Sælgætisland,
Þykjustuland, Pjáturland, Ölfk-
indaland, Umferöarland og
landiö þar sem allt er einum of
mikiö. „1 sjöunda himni” er
bráöskemmtileg barnaplata
fyrir börn á öllum aldri, frá
tveggja til hundraö og tveggja
áraog trúlega er þetta ein vand-
aBasta barnaplata sem gefin
hefur veriB út hérlendis.
- ESE
Blondie — Eat
to the Beat
Chrysalis / Fálkinn
★ ★ ★
Breska nýbylgjuhljómsveitin
Blondie meö ljóskuna Deborah
Harry I broddi fylkingar, sendi
nýlega frá sér sina fjóröu
hljómplötu og nefnist hún „Eat
to the Beat”. Er þessari plötu
ætlaö aö taka upp þráöinn þar
sem frá var horfiö á plötunni
„Paraiell lines”, en sú haföi
m.a. aö geyma lögin „Heart of
glass”, „Picture this” og
„Hangin’on the telephone”.
Þó aö „Eat to the Beat” sé
mjög sannfærandi og góö plata
ná Blondie þvi þó ekki aB bæta
um betur frá „Paralell lines”.
Sú plata bauö einfaldlega upp á
breiösiBu af góöum og grlpandi
lögum og þrátt fyrir aB Debby
Harry syngi eins og engill og aö
öBrum liösmönnum hljóm-
sveitarinnar hafi fariö mikiö
fram frá þvi slöasta er árangur-
inn ekki eins góöur. Reyndar er
ekki sanngjarnt aö dæma
Blondie einvöröungu út frá
þeirri metplötu sem „Paralell
lines” var og ef þeirri viömiöun
er sleppt, þá held ég að hljóm-
sveitin geti veriö sæmilega
ánægö meö plötuna. Titillagiö
„Eat to the Beat” á örugglega
eftir aö spjara sig á vinsældar-
listum og þóað 4 lög af plötunni
komist ekki á topp 10 eins og
geröist slöast, þá er engin
ástæöa til aö örvænta. Þess má
aölokum geta aö nú semja allir
meölimir Blondie aö trommu-
leikaranum Clem Burke undan-
skildum, þaulög sem á plötunni
eru og aö venju á dúettinn
Harry og Stein (Chris Stein
gitarleikari) flest lögin. Upp-
tökustjóri á plötunni var Mike
Chapman sem þekktur er fyrir
verksInmeBTheKnack o.fl., en
honum tekst jafnan best upp
þegar úr minnstu er aö moöa.
—ESE
Jethro Tull —
Stormwatch
Chrysalis / Fálkinn
★ ★ ★ ★ +
Ein samhentasta og rótgrón-
asta rokkhljóms veit veraidar
veröur aö teijast breska hljóm-
sveitin Jethro Tull. Mjög óveru-
legar breytingar hafa oröið á
skipan hljómsveitarinnar igegn
um árin og meölimir hljóm-
sveitarinnar hafa margsinnis
lýst þvi yfir aö þeir kunni ein-
faldlega ekkert annaö en aö
spila meö Jethro Tull og þvi úti-
lokað fyrir þá aö leika meö öör-
um hljómsveitum. Þaö hefur
þvi jafnan vakiö athygii þegar
mannabreytingar hafa oröiö i
Jethro Tull og svo vill til aö nú
hefur ein slik átt se'r staö. A nýj-
ustu plötu Jethro Tull „Storm-
watch” leikur John Glascock
sitt sföasta sem bassaleikari
hljómsveitarinnar, en hann var
á dögunum látinn hætta i hljóm-
sveitinni af heiisufarsástæöum.
Reyndar leikur Glascock ekki
nema i þrem lögum á plötunni,
en hijómsveitarstjórinn, hinn
gamalreyndi kappi Ian Ander-
son hleypur f skaröiö i öörum
lögum, sem jafnframt eru tón-
smiðar hans.
Því skal ekki neitaö hér, aö
JethroTull hefur undanfarin ár
veriö ein af mlnum uppáhalds
hljómsveitum og e.t.v. hef ég
ekki sterkari taugar til nokkurr-
ar annarrarhljómsveitar. Éger
einnig einn af örfáum aödáend-
um hljómsveitarinnar, sem hef
haldið þvi' fram statt og stööugt
aö sá stiD sem hljómsveitin tók
upp meö plötunni „Song from
the wood” árið 1977 og fylgdi
slöaneftirmeð „Heavy Horses”
áriö eftir, sé hinn eini sanni og
þar greinir sem sagt á meö mér
ogflestum öðrum Tull aödáend-
um. Éghef áöur látið þáskoöun
mlna í ljós aö ég telji fáar plötur
jafn hrifandi og þessar tvær og
sérstaklega á þaö viö um
„Songs from thewoods”,sem er
I einu oröi sagt kyngimögnuö.
En þetta er aðeins mitt álit og
vel má vera aö töfrarnir hrifi
ekki aðra.
Svo aö vikiö sé aö nýjustu
plötu Ian Anderson og félaga,
„Stormwatch”, þá veröur ekki
annaö sagt en aö hér sé á ferö-
inni afbragös plata.
Efniö á „Songs from the
woods” var sótt aftur I gráa
forneskju og „Heavy Horses”
var tileinkuö breska hestinum,
en nú fæ ég ekki betur heyrt en
Ian Anderson sé farinn að deila
á lifsgæöakapphlaupiö og þann
heim sem þaö hefur aliö af sér.
Kemurþetta berlega fram i lag-
inu „Flying Dutchman”, en þar
segir m.a.:
So come on you lovers of the
goodlife / on your supermarket
run /set a sail of your on devis-
ing / and be ther- when the
Dutchman comes......og siöar 1
laginu: Look around you, can’t
you see? / staring ghostly in the
mirror / it’s the Dutchman you
will be / ...floating slowly out to
sea / in a misty misery.
Svo mörg voru þau orö og
meöal þesssem Anderson syng-
ur um til viöbótar er Noröur-
sjávar ollaiv og þær vonir sem
við hana eru bundnar, náttúru-
öflin, lifið og tilveruna.
Eins og á fyrri Tull plötum,
situr afbragðs hljóöfæraleikur I
fyrirrúmi og um hæfni Ian
Anderson sem lagahöfundar
þarf ekki aö efast. Reyndar á
hljómborös- og syntheziser-
leikarinn David Palmer eitt lag
á plötummi, hiö gull fallega lag
„Elegy” og geri ég þaö hér meö
að tillögu minni aö þaö veröi
gert aö kynningarlagi þáttarins
„Aö kvöldi dags” I sjónvarpinu,
þegar „Theme from the Deer
Hunter” hefur runniö sitt skeiö
á enda.
— ESE
Tíminn
er
peningar
Mmi
tLtÍLLL
LL-LLL
Fatasaumur —
Starfsþjálfarar
löntæknistofnun Islands vill ráða 2 starfs-
menn með starfsreynslu við saumaskap eða á
skyldum sviðum vegna hagræðingarverkefnis
i tatnaiðnaði.
Starfsmennirnir munu fá þjálfun erlendis og
aðstoða síðan finnska sérfræðinga við starfs-
þjálfun í fataverksmiðjum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður
Guðmundsson,
Iðntæknistofnun Islands, Skipholti 37, sími
81533.
Aðalkosningaskrifstofa
Framsóknarf 1 okksins í
Reykjavík
Rauöarárstíg 18, sími 24480
Allar almennar upplýsingar eru veittar í
sima 24480. Stuðningsmenn látið skrá ykkur
til sjálfboðastarfa. — Framlög í kosninga-
Sjóðinn eru þegin með þökkum, skrifstofan
er opin frá 8 til 22.
SIMAR EFTIRTALINNA
KJÖRSVÆÐA ERU:
Álftamýrarskóli 18379
Árbæjarskóli 18679
Austurbæjarskóli 19197
Breiðagerðisskóli 18410
Breiðholtsskóli 19168
Fellaskóli 19425
Langholtsskóli 19053
Laugarnesskóli 18675
Melaskóli 18912
Miðbæjarskóli 19583
Sjómannaskóli 19092
Ölduselsskóli 19356
B-LISTINJI í REYKJAVÍK
2