Tíminn - 18.11.1979, Qupperneq 15

Tíminn - 18.11.1979, Qupperneq 15
14 Sunnudagur 18. hóvember 1979 Sunnudagur 18. nóvember 1979 15 C Texti: FI } Við bregðum aðeins á leik í þessu viðtali við ólat ólafsson landlækni og förum út i heimspekilegar vangaveltur um heilbrigðiskerfi í neytendaþjóðfélagi. Hvert stefnir þaðá Islandi? ólafur heldur sig við jörðina og margar upplýsingar frá hon- um koma á óvart. Megininntakið er# að heilbrigðiskerfið nýtist ekki þeim/ sem mest þurfa á því að halda.... ólafur sendi velferðarþjóðfélaginu einnig nokkrar vel valdar kveðjur» en mitt í velferðinni verða börn og gamalmenni illa úti. „Ekki komið svo langt að hver og einn hafi eigin sérfrœðing” Hlýtur heilbrigðiskerfið ekki að draga dám af neytendaþjóO- félaginu, sem viO lifum i? — Jú, ef þú átt viö, að neyt- andi sé sá, sem notar þjónust- una. Hvaö ræöur „neyslu” fólks á heilbrigöisþjónustu I alls- nægtaþjóöfélagi? Leitum viö læknisþjónustu og heimtum heilbrigöi á sama hátt og viö öfl- um okkur neysluvara og nú- timaþæginda? Tiðni sjúkdóma, en margt fleira kemur til sem hefur áhrif á „neyslun”. Niðurstöður kannana meðal karla á Stór-Reykjavikursvæö inu, er stunda vinnu að stað- aldri, leiöa I ljós, að sá hópur er býr viö bestu efnin og menntun- ina leitar oftar til lækna og sjúkrahúsa gengur frekar undir aögeröir og neytir frekar lyfja '<v k ■ " - .. f'' ...... ■••• /,/■/"'' • ' • • .. *:■• ,;<ý' ■ • .. ; ' • - - ' ^ • * > >4. _. /'/ '. .. ' ' _ , ■ >/'■ . '■■■+** ; C. ý* '* ■•• •"■• • . 'V ,. •' > > „Innlögnum barna gæti stórlega fækkaö viö ákveðnar pólitiskar aö- gerOir”, segir Ólafur ólafsson, en á þessari mynd eru fjörug börn aö fá þaö út úr „Móöurástinni”, sem þau mögulega geta. en þeir er siður eru úr garði búnir hvað menntun og efni snertir. Almennt heilbrigðisástand fyrra hópsins er þó betra en sið- ara hópsins, nema að meira ber á streitu og hjartasjúkdómum i fyrri hópnum. Fyrri hópurinn er þurfta- frekastur varðandi hýbýla-þæg- indi og bifreiöaeign. í háþróuðum þjóðfélögum i sumum hverjum stórborgum erlendis nær „neyslan” há- marki. Hver og einn hefur eigin sérfræðing, heimilistannlækni, sálfræöing og 3-4 bifreiöar i bil- skúrnum. Hér á landi leitar þéttbýlisfólk meira til iækna en dreifbýlis- fólk. Með tilkomu heilsugæslu- stöðva virtist þessi munur minnka. „Fólk með skerta starfsorku býr við rgrari þjónustu” Einn er sá hópur I þjóöfélag- inu sem ekki fellur inn I þetta mynstur en þaö er fólk með skerta starfsorku. Þessi hópur býr yfirleitt við rýrari þjónustu en aörir. Þjónustuna við þetta fólk veröur að auka. Við upplifum örar breytingar i þjóðfélaginu. Nú leitar fólk til lækna i vaxandi mæli vegna allskonar óþæginda og streitu- einkenna, sem orsakast m.a. af félagslegum vandamálum. Dæmi eru mörg svo sem: Ungt fólk fær ekki að vera i friði viö uppbyggingu heimilis. ört vax- andi verðbólga knýr það til stööugra fjárfestinga. Af- leiðingin er, að bæði hjónin starfa utan heimilis, oft myrkr- anna á milli. Heimilishaldið og umsjá barna er þvi oft ekki sinnt sem skyldi. Læknar á heilsugæslustöðvum hafa bent á aö algeng orsök fyrir innlögn barna á sjúkrahús er órói, lystarleysi og margskonar ein- kenni sálræns eölis. öllu geigvænlegra er, aö niðurstööur samnorrænnar „Viö hvaö skal miðað? Staðreynd er, aö viö veröum aö veita svipaöa þjónustu og gert er meðal nágrannaþjóöa á flestum sviöum”. „1 háþróuðum þjóðfélögum nœr „neyslan ” hámarki ” 7-------------------------------------a — segir Olafur Olafsson landlæknir , en í þessu viðtali leiðir hann okkur um heilbrigðiskerfið og um réfilstigu velferðarþjóðfélagsins „Gifurlegt vinnuálag á konum ekki sist” könnunar á tiðni og orsökum slysa i heimahúsum leiddu i ljós, að slys á ungbörnum eru lang algengust hér. Skortur á eftirliti og umhyggju skapar börnum öryggisleysi. Það er verðugt verk fyrir sparnaðar- nefnd varöandi rekstur heil- brigðisþjónustu að koma með tillögur um bættan aðbúnað for- eldra, svo aö þeir gætu sinnt betur börnum sinum. Innlögn- um barna gæti fækkað við ákveðnar pólittskar aðgerðir. Engan skal undra, að gömlu fólki er hér ekiö á ellivistunar- stofnanir I rikara mæli en gerist meðal nágranna okkar. Fólk hefur ekki tima né aðstöðu til þess aö sinna þvi. Að visu skort- ir Reykvikinga rými fyrir sjúkt gamalt fólk en þaö stafar af deilum milli „býrókrata”. Fleiri dæmi mætti nefna. 1 mörgum útgerðarbæjum er vinnuálag gifurlegt. Húsbændur stunda sjóinn af slikri hörku aö þeir komast ekki heim milli túra, en konur sjá alfariö um heimili og börn og reka auk þess frystihúsin. Þessi gifurlega vinna skapar margs konar erfiöleika, og engan undrar þótt fólk leiti til læknisins og biðji um róandi lyf eöa svefnlyf á stund- um. Það fer aö verða nauösynlegt að setja i lög ákvæði um há- marksvinnutima fyrir fullorðna fhúsmæöur) ekki sföur en börn. Enginn vafi er á, að félagsleg vandamál eru mjög oft orsök læknisleitar og innlagna á sjúkrahús. Þessi vandamál veröur að lagfæra með félags- legum aðgerðum en ekki meö einhliða niðurskuröi á starfsliði sjúkrahúsa eða auknum stofn- anabyggingum. Eru læknar ekki alveg jafn opnir fyrir neysluhugsjóninni og aðrir? Heldur þú ekki t.d., að þá dreymi fiesta um að breyta litlu lækningastofunni I visindaund- ur? Læknar eru neytendur og mótast af þvi umhverfi er þeir alast upp i. Vitaskuld taka þeir þátt i lifsgæðakapphlaupinu likt og aðrir. Sjálfsagt dreymir suma lækna um aö veröa heims- þekktir visindamenn enda ná sumir þeim árangri. A litlum lækningastofum hafa orðið visindaundur. Hafa ber i huga, að sá læknir sem temur sér visindalega hugsun hefir góðar forsendur til þess aö veröa góður læknir — en ekki er þar með sagt aö honum auðnist það hlutskipti i þessu lifi. Sá læknir, sem ekki temur sér nákvæmni og gagnrýni i verki, hefur litla möguleika á að verða góður læknir. „Menntun lækna þarf að bregta samfara þjóðfélags- þróuninni” Er núverandi menntun lækna tsland Danmörk Finnland Noregur Svfþjóð 1. Heildarútgjöld til heilbrigðismála 1976 sem hlutfall af þjóðartekjum 6,7 7,9 6,7 8,4 11,1 h- m.v. Island = 100 2. Hlutfall þjóðartekna á mann 100 117 100 125 166 m.v. ísland = 100 3. Hlutfall heilbrigðisútgjalda á 100 123 92 117 137 mann m.v. Island = 100 100 145 93 146 226 J heppileg miðað við þá þjónustu, sem þeir eiga aö veita? Menntun lækna er af ýmsum talið ábótavant. Staðreyndin er þó, að þegar Bandarikjamenn könnuðu árangur prófa er út- lendir læknar þreyta til þess að fá starfsleyfi i Bandarikjunum, þá kom i ljós, að islenskir og breskir læknar skiluðu bestum árangri. Læknar sinna i vaxandi mæli ýmsum kvörtunum fólks, sem ekki stafa beinlinis af sjúkdóm- um. Menntun lækna þarf að breyta, svo að þeir verði betur i stakk búnir til þess aö sinna slikum vekefnum. Milli 80-90% allra islenskra lækna sækja framhaldsmenntun til góöra sjúkrahúsa erlendis, m.a. vegna þess að skipulagöa framhaldsmenntun er ekki að fá hér og fjárveitingar rýrar. Þó mætti auka þennan þátt læknis- menntunar mjög hér. Náms- ferðir islenskra lækna til út- landa eru merkur kapituli. Mennn taka upp með fjölskyld- urogveljastfjarriættingjum og vinum i 5-10 ár á eigin kostnaö og flestir skila sér heim aftur. Hafa læknar áhrif á lyfja- neyslu fólks? Hvaða augum lit- ur þú vaktþjónustu lækna I þétt- býli? Almenningur trúir um of á lyf og vissulega eru margir læknar sama sinnis. Læknar virðast i rikum mæli fara að vilja fólks. Yngri læknar virðast þó um- gangast lyf með meiri varúð en margir eldri læknar. Hafa ber i huga, aö upp úr siðustu heim- styrjöld urðu stórstigar fram- farir I tæknivæöingu og lyfja- málum. Ýmis lyf hafa valdið gerbyltingu, t.d. hafa mörg geð- veikrahæli nær tæmst, m.a. vegna tilkomu nýrra geðlyfja. Ýmsum sjúkdómum hefur næstum verið útrýmt vegna fúkkalyfjanotkunar, s.s. sumum farsóttum, beinabólgu, berkl- um, hjartaiokugalla vegna gikt- ar og nýrnasjúk^ómum. Þessi árangur hefur e.t.v. valdið oftrú manna á lyfjum, meö aukinni upplýsingu og fræðslu hefur dregið úr þessari oftrú, og þá um leiö úr neyslunni. Um vaktlæknaþjónustu vil ég segja, að sú þjónusta hefur bæði kosti og galla. Æskilegast er, að heilsugæslulæknar sinni vakt- þjónustu, en i þéttbýli verður þvi seint komið við. Meö fjölgun heilsugæslu- stööva má i auknum mæli reka vaktþjónustu frá þeim. Borgar- læknir i Reykjavik hefur tekiö upp þá þjónustu, að senda heimilislæknum skýrslur um ferðir vaktlækna til sjúklinga þeirra og er það til fyrirmynd- ar. Svipuð tilhögun er i Hafnar- firöi og Garðabæ. Mörg vanda- mál, er koma upp á bæjarvökt- um, þarfnast ekki úrlausnar há- lærðra sérfræöinga. Borgin ætti einnig að ráða hjúkrunarfræð- inga til þess að sinna næturvökt- um. Hafa ber i huga, að valct- þjónusta utan sjúkrahúsa er mjög ódýr lausn. Baráttuglaðir stjórnmálamenn og kerfisskríbentar tala órökstutt” Ofneysla I heilbrigðiskerfinu og vaxandi kostnaður er sam- hjálpinni, sem við öll viljum njóta, dýr biti i hálsi. Er það ekki allra hagur, að fólk læri að treysta á frumheilsugæsluna, sem er ódýrust? Mér finnst sem þú sláir þvi föstu, að fólk ofnoti heilbrigðis- þjónustuna. Vissulega má benda á dæmi um óheppilega notkun þjónustunnar, en al- mennt virðist ekki vera um of- notkun að ræða. Sumir hópar i þjóðfélaginu fá rýra þjónustu. Erfitt er aö sanna eitt eöa annað i þessu efni, en athyglisvert er, að kostnaöur við þjónustuna er minni hér en I flestum ná- grannalöndum. Þegar litið er á heildarútgjöld til heilbrigðismála á Norður- löndum á árinu 1976 i hlutfalli við vergar þjóðartekjur kemur i ljós, að Finnar og Islendingar eru lægstir. Hlutfall þjóöartekna á hvern Ibúa er lægst i Finnlandi og á ís- landi. Hlutföll milli heilbrigðis- útgjalda á mann er nokkuö svip- uö þjóöartekjuhlutföllum, að Sviþjóð undanskilinni. Staðhæfing ýmissa baráttu- glaöra stjórnmálamanna og kerfisskribenta um, að hér sé sóað á sviöi heilbrigðismála, er meö öllu órökstudd. En við hvað skal miöað? Staöreynd er, að við veröum að veita svipaða þjónustu og gert er meðal ná- grannaþjóða á flestum sviðum. Við lifum ekki einangraðir leng- ur. Islendingar ferðast i rikum mæli til annarra landa og kynn- ast nýjungum jafnóðum þar. Ef stjórnmálamenn vilja draga aö ráði úr kostnaði við þjónustuna verða þeir einfaldlega að segja fólkinu aö leita minna til lækna. Vissulega rhá lengi koma við ýmis konr hagræöingu i kerfinu, ekki trúi ég að að umtalsveröur sparnaður hljótist þar af. Flest sjúkrahús verður að manna með tilliti til þess að þau geti sinnt bráðaþjónustu. Vinnu- hraði og álag á sjúkradeild er sinnir slikum vöktum má helst likja við ákvæðisvinnu i frysti- húsi. Ég er þér sammála um, að frumheilsugæslu beri að efla og þá um leiö félagslegar umbæt- ur. Kostnaöur við heilbrigðis- þjónustu fer þó trúlega vaxandi, ekki sist vegna þess að öldruöu fólki fer nú ört fjölgandi og kröf- ur fólks um heilbrigði aukast, m.a. vegna bættrar menntunar og efnahags. Auknar fyrirbyggjandi að- gerðir gætu þó hamlað að ein- hverju leyti á móti þessari þró- un. Ennþá þekkjum viö ekki nægjanlega raunveruleg áhrif slikra aðgeröa. Myndir GE „Læknar virðast I rikum mæli fara að vilja fólks”

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.