Tíminn - 18.11.1979, Síða 25

Tíminn - 18.11.1979, Síða 25
Sunnudagur 18. nóvember 1979 25 Blöðog tímarit Út er komiö 5.-6. tölublaö Dýra- verndarans. Meöal efnis i blaö- inu er ársskýrsla Sambands dýraverndunarfélaga Islands fyrir slöasta ár, grein um svart- bakinn og kynning á fóöurfram- leiöanda. Þá er frásögn um hunda I svelti, grein um haga- mýs og sagt frá fundi um dýra- vernd, sem haldinn var á Eyrarbakka. Loks má nefna þáttinn vinsæla „Börnin skrifa” og Föndurhorniö. Nýtt sveitarstjórnar- mannatal JSS —Sveitarstjórnarmannatal fyrir 1978-1982 er nú komiö út. Er I þvi aö finna margvislegar upplýsingar um skipan embætta isveitarfélögum landsins og eru þær nokkru viötækari en i siö- asta sveitarstjórnarmannatali. Þannig er tilgreint viö nafn hvers sveitarfélags númer þess og nafnnúmer, einnig póstárit- unarnúmer, heimilisfang og simanúmer oddvita eöa skrif- stofu sveitarfélagsins. 1 hreppum eru taldir upp allir hreppsnefndarmenn, oddvitar, sýslumenn, endurskoöendur ITAR )RNAR MANNA TAL Fyrstu vetrartónleikar Kammersveitar Reykjavíkur FI — Fyrstu tónleikar Kammersveitar Reykjavikur á nýbyrjuöu starfsári veröa sunnudaginn 18. nóv. kl. 17 á Kjarvalsstöðum. Haldnir veröa fernir tónleikar í vetur eins og undanfarin ár og flutt verk, sem sjaldan eöa aldrei hafa heyrst hér á tónleikum áöur. A fyrstu tónleikunum gefst reykviskum tónleikagestum færiáaö heyraungan pianóleik- ara, sem aldrei hefur leikiö opinberlega i höfuöborginni áður, en þaö er Anna Málfriöur Siguröardóttir frá Isafiröi. HUn er kennari viö Tónlistarskóla Kópavogs. Verkin sem Anna Málfriöur leikur meö Kammer- sveitinni, veröa septet eftir Hummel og Pianókvintett eftir Shostakovich, en auk þess Sex- tett eftir Janacék. Fólki gefst kostur á aö kaupa áskriftarkort aö öllum tónleik- um Kammersveitarinnar I vet- ur og veröa þau seld viö inn- ganginnaö tónleikunum á Kjar- valsstööum á sunnudaginn. Ennfremur er hægt að kaupa miöa á hverja tónleika fyrir sig. Starf Kammersveitarinnar er áhugastarf, og eru tekjur af tón- leikum sveitarinnar notaðir til aö mæta kostnaöi af tónleika- haldinu. Jólakort Ásgrimssafns KammersveitReykjavikurásamtönnu Málfriöi viö pianóiö. Jólakort Asgrimssafns á þessu ari er prentað eftir vatnslita- myndinni ,,A ferö yfir Kaldadal”. Myndin er máluð árið 1922, og þykir ein af öndvegismyndum safnsins. Sýnir hún hvernig As- grimur Jónsson ferðaðist þar sem voru vegleysur einar. Kortið er i sömu stærö og hin fyrri listaverkakort safnsins meö islenzkum, dönskum og enskum texta á bakhlið, ásamt ljósmynd af listamanninum viö vinnu. Grafik sá um prentun þessa korts, en Eirikur Smith listmálari valdi myndina til prentunar, en hann hefur verið ráöunautur As- grimssafns frá fyrstu tiö, þegar ákvörðun um val mynda til korta- gerðar hefur átt sér staö. Eins og undanfarin ár hefst sala jólakortanna snemma til hægðarauka fyrir þá sem langt þurfa að senda jóla- og nýárs- kveðju, en þessar litlu eftir- prentandir af verkum Asgríms Jónssonar má telja góða land- kynningu. Ennþá eru fáanleg hin ýmsu kort sem safnið hefur látiö prenta undanfarin ár. Agóði af kortasölunni er notaður til viö- halds listaverkum safnsins. Listaverkakortin eru aöeins til sölu I Asgrimssafni, Bergstaöa- stræti 74 á opnunardögum, og i verzlun Rammagerðarinnar i Hafnarstræti 17. Safnið er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30-4. 1978 -1982 hreppsreikninga og hrepps- stjóri. í þéttbýlishreppum eru auk þessa taldar upp helstu nefndir og helstu embættis- og trúnaðarmenn hrqjpsins. I kaupstööum eru tilgreindir forseti bæjarstjórnar og vara- forsetar, bæjarráö, bæjarstjóri, auk allra nefnda og embættis- manna bæjarins. Aftan viö hiö eiginlega sveita- stjórnarmannatal er birt yfirlit yfir sveitarstjórnarkosningar á seinasta ári og mannf jöldatölur i einstökum sveitarfélögum, sýslum og kjördæmum hinn 1. des. 1978. Þá eru i bókinni skrár yfir landshlutasamtök sveitar- félaganna, framkvæmdastjóra þeirra, heimilisföng, sima- númer og póstáritun. Hliðstæð- ar upplýsingar eru einnig um fræöslustjóra landshlutanna og sýslumenn. Handbókin er 128 bls. að stærð. út er komiö 5. tbl. timaritsins Skinfaxi. Meðal efnis er greint frá 31. þingi UMFÍ, viötal viö Pálma Glslason nýkjörinn for- mann UMFl, viötal viö fráfar- andi formann Hafstein Þor- valdsson, greint frá iþrótta- manni UMSS, sagt frá ung- mennavikunni og greint frá héraösmótunum I frjálsum iþróttum 1979. Ritstjóri Skinfaxa er Gunnar Kristjánsson. Ef Jónni bjó I þessum dal, hlýtur skýliö hans aö vera hellir... Sennilega meö yfirsýn yfir gildrurnar. ©1979 King Features Svndicaie. Inc. World rights reserved.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.