Tíminn - 02.12.1979, Blaðsíða 2
2
Sunnudagur 2. desember 1979
„Enn tími til að
koma í veg fyrir
valdatöku
viðreisnaraflanna’ ’
— segir Gylfi Kristinsson kosningastjóri
Framsóknarflokksins í Reykjavík
„Þetta hefur veriö stuttur slag-
ur, en snarpur”, sagöi Gylfi
Kristinsson, kosningastjóri
Framsóknarflokksins I Reykja-
vfk er viö litum inn hjá honum
fyrir helgina og spuröum hann aö
þvl hvernig kosningaundribún-
ingurinn heföi gengiö.
„Viö höfum oröiö vör viö mjög
mikinn áhuga fólks fyrir þessar
kosningar og viöbrögö almenn-
ings viö framboöi okkar hér i
Reykjavik hafa veriö mjög já-
kvæö”, sagði Gylfi „og kemur i
fyrsta lagi til framboö Olafs Jó-
hannessonar, sem nýtur greini-
lega mikils trausts kjósenda og i
öðru lagi er málefnastaöa flokks-
ins mjög sterk. Framsóknar-
flokkurinn hefur einn flokka sett
fram ákveðna stefnu i efnahags-
og atvinnumálum, en grund-
vallaratriði þessarar stefnu er að
ná verðbólgunni niöur I áföngum,
án þess aö atvinnuöryggi sé stefnt
i tvisýnu.”
— Nú hafa skoðanakannanir
siðdegisblaöanna leitt I ljós aö
Ólafur Jóhannesson er sá maður
sem kjósendur treysta best til
þessaömynda nýja rikisstjórn.
Hafiö þiö oröiö varir viö þennan
vilja kjósenda?
„Þaö er enginn vafi á þvl að
Olafur Jóhannesson nýtur al-
mennrar hylli kjósenda, en þaö
hefur nokkuð borið á þeirri þver-
sögn i þessum skoðanakönnunum
að menn vilji fá Ólaf fyrir for-
sætisráöherra, en ætli jafnframt
að kjósa aöra flokka en Fram-
sóknarflokkinn i kosningunum.
Við þessu er aöeins eitt ráð og þaö
er aö kjósa Framsóknarflokkinn i
kosningunum nú um helgina”.
Magnús Ingólfsson
— Er kosningabaráttan nú frá-
brugðin þvl sem þú átt aö venj-
ast?
„Þessi kosningabarátta hefur
veriö háö á allt annan hátt en áö-
ur hefur tiökast. I fyrri kosning-
um hefur megin áhersla veriö
lögö á pappirsvinnu, en nú hefur
áherslan veriö lögð á beint sam-
band frambjóðenda við kjósend-
ur. Þetta hefur veriö gert meö
heimsóknum á vinnustaöi og
heimili og einnig höfum viö haft
opiöhús fyrir kjósendur, þarsem
þeir hafa átt þess kost að hitta
frambjóðendur flokksins aö máli.
Sá sem boriö hefur hitann og
þungann af skipulagningu þess-
ara funda er Daði Ólafsson og ég
held að ég megi fullyrða aö þessi
hluti kosningabaráttunnar hafi
gefist mjög vel.”
— Hvernig leggjast
kosningarnar I þig?
„Ég hef heldur litla trú á þeim
skoðanakönnunum sem siödegis-
blööinefna til annars lagiö, en þvi
er ekki aö neita þær hafa gefið á-
kveöna visbendingu um úrslit
Guömundur G. Þórarinsson ræöir viö nokkra af starfsmönnum
Framsóknarflokksins og stuöningsmenn B-Iistans.TImamyndir
Tryggvi
„Þetta hefur allt saman gengiö
mjög vel, enda mjög mikill hugur
I mönnum fyrir þessar kosn-
ingar”, sagöi Magnús Ingólfsson
kosningast jóri Framsóknar-
flokksins I Kópavogi er viö
inntum hann eftir þvl hvernig
kosningarundirbúningurinn heföi
gengiö aö þessu sinni.
„Það hefur mikið af nýju fólki
lagt okkur liö I þessari kosninga-
baráttu”, sagöi Magnús „og sér-
staklega er þaö áberandi hvaö
margir gamlir Samtakamenn
hafa gengið til liös viö Fram-
sóknarflokkinn aö undanförnu”.
— Er kosningabaráttan nú frá-
brugöin þvi sem þú átt aö
venjast?
„Ekki get ég sagt það, nema aö
þvi undanskildu að frambjóö-
endur flokksins hafa verið á stöð-
ugum ferðalögum um kjördæmið
undanfarnar vikur og hitt kjós-
endur aö máli. Þessir vinnustaöa-
fundir og heimsóknir á heimili
hafa gefist m jög vel og við höfum
ekki orðið varir viö ar.naö en aö
okkar mönnum hafi alls staöar
verið mjög vel tekið”.
— Er i ráöi aö halda þessum
heimsóknum áfram eftir kosn-
ingar?
„Þaö hefur komið til tals af hálfu
frambjóðenda aö halda þessum
heimsóknum áfram, og ef það
sýnir sig aö almennur vilji er
fyrir hendi, þá mun ekki standa á
okkur aö koma þessum fundum I
kring og skipuleggja heimsókn-
irnar”.
— Hvernig leggjast svo kosning-
arnar I þig?
„Það er ekki hægt að segja annaö
en að þær leggist vel I mig.
Baráttan kemur til meö aö standa
á milli Jóhanns Einvarössonar,
efsta manns á lista Framsóknar-
flokksins og fjóröa manns á lista
Sjálfstæðisflokksins og i þeirri
baráttu munar um hvert einasta
atkvæði. Ég vil þvi nota tækifæriö
hér og skora á kjóséndur i
Reykjaneskjördæmi aö greiöa
Framsóknarflokknum atkvæði
sitti kosningunum nú um helgina
og stuðla þannig aö kjöri Jóhanns
Einvarössonar”, sagöi Magnús
Ingólfsson, að lokum.
kosninga. Aö þessu sinni sýna
þær svo aö ekki verður um villst
að Framsóknarflokkurinn er i
sókn, en ekki nægilega mikilli til
þess að hindra valdatöku við-
reisnaraflanna. Þaö væri sannar-
lega mikiö slys, ef þau kæmust i
meirihlutaaðstöðuog ég bendi þvi
á að enn er hægt að koma I veg
fyrir að svo verði, einfaldlega
með því aö kjósa Framsóknar-
flokkinn,” sagöi Gylfi Kristinsson
að lokum. —ESE
————————— Gylfi-Kristinsson
„Baráttan stendur á milli
Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins,,
— segir Magnús Ingólfsson, kosningastjóri
Framsóknarflokksins i Kópavogi
Upplýsinga- og þjónustumiðstöð
fyrir utankjörfundarkosningu
★ Miðstöðin er til húsa að Rauðarárstig 18 I
Reykjavik og er opin alla daga vikunnar frá kl.
9 til 22.
★ Starfsmaður fyrir Vestfirði, Suðurland og Norð-
urland vestra hefur sima 18302.
★ Starfsmaður fyrir Vesturland, Reykjanes og
Norðurland eystra hefur sima 18303.
★ Starfsmaður fyrir Austurland og Reykjavik
hefur sima 18304.
i / ★ Starfsmaður með kjósendur, sem staddir eru
erlendis hefur sima 18305.
★ Áriðandi er að miðstöðin fái sem fyrst i hendur
upplýsingar um stuðningsmenn flokksins sem
verða að heiman þegar kosning fer fram.
Sfmar: 18302 - 18303 - 18304 - 18305