Tíminn - 02.12.1979, Side 5
Sunnudagur 2. desember 1979
5
Steingrímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins:
Enginn má liggja
á liði sínu”
Góðir Islendingar.
Við framsóknarmenn höfum
lagt áherslu á að við vorum —
og erum þvi mótfallnir að þing
var rof ið og ef nt til kosninga nii i
skammdeginu. Við teljum að
fyrristjórnarflokkum hafi borið
skylda til þess að gera sitt > tr-
asta til að ljúka þvi verki sem
þeir tóku að sér með stjórnar-
myndun. Við vildum að á það
yrði látið reyna hvort samstaða
gæti náðst um hertar aðgerðir i
efnahagsmálum.
Hins vegar erum viö fram-
sóknarmenn ánægðir með þær
undirtektir sem málflutningur
okkar hefur fengið hjá þjóðinni.
Við höfum lagt áherslu á að
gera málefnalega grein fyrir
störfum okkar í siðustu rflcis-
stjórn og þeirri stefnu sem við
viljum fylgja eftir kosningar.
Við finnum að þjóðinni er þetta
ljóst, og straumurinn liggur til
okkar.
bjóðinni er ljóst að við fram-
sóknarmenn unnum af heilind-
um og drengskap i stjórnarsam-
starfinu, og við munum vinna
þannig áfram.
Við höfum lagt áherslu á að
skýra okkar tillögur i efnahags-
málum. Kjósendur gera sér
glögga grein fyrir þvi að þar er
um andstæðu við ..leiftursókn"
Sjálfstæðisflokksins aö ræða.
Við leggjum höfuðáherslu á
samstöðuvið alþýðu manna um
aðgerðir i efnahagsmálum og
visum algerlega á bug ,,mátu-
legu” atvinnuleysi sem leið til
að vinna á verðbólgunm
Stefna okkar framsóknar-
manna i' efnahagsmálum er
eina sk\ nsamlega og færa leiðin
til áframhaldandi framkvæmda
og framsóknar á næsta áratug.
Við vörum alveg sérstaklega
við þeirri viöleitni andstæðinga
okkar að etja saman stétt gegn
stétt, þéttbyli gegn dreifbýli,
landshluta gegn landshluta og
atvinnuvegi gegn atvinnuvegi.
Við Islendingar erum allir i ein-
um bát. bannig eigum við að
starfa að okkar framleiðslu og
að þvi að jafna og bæta lifskjör
okkar.
brátt fyrir að kosningabar-
átta okkar hefur gengið með
ágætum og við finnum vaxandi
stuðning kjósenda vil ég að lok-
um leggja þyngstu áherslu á að
lokaspretturinn skiptir mestu,
um leið og ég þakka öllum þeim
sem hafa lagt okkur lið i barátt-
unni. Ég minni á það að 1934
voru örlagarikar kosningar.
sem segja má að unnist hafi
með þvi að einn dugmikill mað-
ur sundreið Héraðsvötnin i
Skagafirði með eitt atkvæði til
kjörstaðar rétl fyrir lokun.
betta atkvæði varð til þess að
Framsóknarflokkurinn vann
sigur og fyrsta vinstristjórnin
var mynduð.
bessar kosningar nil eru ekki
siður örlagarfkar fvrir islensku
þjóðina. Um það er barist hvort
leiða eigi þjóðina inn i nýja öld
atvinnuleysis og samdráttar
eða ná verðbólgunni niður i
Steingrimur Hermannsson
markvissum áföngum og halda
áfram á þeirri framfarahraut
sem við framsóknarmenn boð-
um.
bvi má enginn liggja á liði
sinu. Allir verða að taka á öllu
sinu.
Eina leiðin til þess að stöðva
..leiftursókn" Sjálfstæðisflokks-
ins er aðFramsóknarflokkurinn
endurheimti sitt fyrra fylgi, og
það er i sjónmáli.
Ólafur Jóhannesson, efsti maður á framboðslista
Framsóknarflokksins í Reykjavík:
„Sameinum kraftana
góðir Reykvíkingar”
Ólafur Jóhannesson
Góðir Reykvíkingar
Að stjórna er að sameina.
Að stjórna landinu er að sam-
einakrafta allra landsins þegna
til lausnar á vandamálum líð-
andi stundar og til að byggja
upp til betri framtiðar fyrir
börn okkar. Til að svo megi
verða þarf hver einstaklingur
að skynja að hann er jafnframt
hluti af heild, bæði í fortið. nútið
og framtið.
Að deila og drottna er slæm
stjórnvis ka.
Boðuð leiftursókn er angi af
þeirri pólitisku skammsyni,
pólitik sundrungarinnar. HUn er
krafa um hóflegt atvinnuleysi
sem mun etja stétt gegn stétt.
HUn er einnig krafa um stór-
felldan niðurskurð samfélags-
legrar þjónustu sem mun etja
hagsmunum þeirra sem betur
mega singegn þeim sem minna
bera úr býtum. bessari stefnu
verður þjóðin að hafna.
bjóðin erein.
Forsenda þess að henni takist
að leysa vandamál sin á farsæl-
an hátt er að hún brevti sam-
kvæmt þvi. þvi ef þjóðin er ein-
huga fara hagsmunir þegnanna
saman. annars ekki. Fram-
sóknarflokkurinn hetur trá
upphafi starfað samk\æmt
kiörorðinu ..Framför landsins
alls".
I anda þeirrar stefnu boðar
Framsóknarflokkurinn samráð
ogsamvinnu þjóðarinnar allrar
um lausn efnahagsvandans. Sú
stefna setur friðinn á oddinn en
hafnar ófriði.
F:g veit að Reyk\ ikingar. i-
buar höfuðborgar landsins.
skilja mikilvægi þessarar
stetnu.
ójaldan lielur þörf þjóðarinn-
ai tvrir samstillingu krafta
sinna veriö meiri. Stjórnmála-
saga sfðustu ára sýnir ljóslega
aö sterkur Framsóknarflokkur
er eina stjórnmálaaflið sem
getur samemað þjóðina til sam-
stilitra átaka.
Ég heiti á stuðning ykkar til
að svo megi veröa.
Jóhann Einvarðsson, efsti maður á framboðslista
Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi:
Tryggjum að rödd
Reyknesinga heyrist
Góðir Reyknesingar.
A kjördegi vil ég fyrst þakka
öllum þeim fjölda sem komið
hefur til liðs við Framsóknar-
flokkinn i Reykjaneskjördæmi i
kosningabaráttunni. Viö, fram-
bjóðendur flokksins, höfum
hvarvetna fundið stuðning og
fengið mjög góöar viðtökur þar
sem við höfum komið, en við
höfum farið um allt kjördæmið
til þess aö tala við k jósendur og
svara fyrirspurnum þeirra.
Idagogámorgunertilmikils
að vinna fyrir framsóknar-
menniReykjaneskjördæmi. Við
þurfum nú að endurheimta
fyrra fylgi okkar i þessu fjöl-
menna og mikilvæga kjördæmi.
Allir veröa að leggjast á eitt um
að við náum settu marki. Eng-
inn má skorast undan, vegna
þess aðbaráttan er mjög tvisýn
og hvert einasta atkvæði getur
ráöið Urslitum.
Við erum þeirrar skoðunar að
Reyknesingar eigi mikilla hags-
muna að gæta á Alþingi og að
réttur þeirrahafi á margvislega
lund verið fyrir borð borinn. Við
viljum starfa við hliö allra ann-
arralandsmanna i öllum héruð-
um landsins að atvinnuupp-
byggingu og framförum sem
eru að sjálfsögðu sameiginlegur
hagur allrar þjóðarinnar. Við
viljum standa gegn öllum til-
raunum til að stia fólki sundur
og kljUfa þjóðina i andstæðar
fylkingar.
Reyknesingar verða að eiga
fulltrúa i öllum þingflokkum á
Alþingi. Hagsmuna- og rétt-
indamál okkar eru svo mikils-
verð og snerta svo marga að
rödd okkar veröur allsstaðar að
heyrast. betta á viö um alla
málaflokka, en ég nefni aðeins
tvö augljós dæmi, annars vegar
kjördæma- og kosningaréttar-
málefni og hins vegar málefni
atvinnuveganna.
Viö höfum oröið þess greini-
lega vör að Framsóknarflokk-
urinn er i sókn. bessi sókn verð-
ur að ná til landsins alls og ekki
sist til fjölmennustu svæöanna
hér á Suðvesturlandi. Fram-
sóknarflokkurinn er og á að
vera forystuafl umbótamanna
um land allt. Andstæðingar
okkar vilja kljúfa þjóðina i and-
stæðar fylkingar. Aðeins góður
sigur framsóknarmanna getur
Jóhann Einvarðsson
komið I veg fyrir þær fyrirætl-
anir,
Góðir Reyknesingar.
Fylkið ykkur um Fram-
sóknarflokkinn til þess að
tr>'ggja framfarir, atvinnuupp-
byggingu og réttlæti.
Forusta sem fólkið treystir