Tíminn - 09.12.1979, Page 17

Tíminn - 09.12.1979, Page 17
Sunnudagur 9. desember 1979 17 Barna- stjörnur og veruleiki Frakka og ungrar amerlskrar stúlku. t verölaunamyndinni „ÞaB sem himinninn uppsker”, er þaö Linda Manz, þá 17 ára, sem fer meö hlutverk unglings- stúlku, sögumanns myndar- innar. Lætur sú fulloröna fólkiö fá ýmislegt yfir sig óþvegiö. I „Pretty Baby” er þaö Brooke Shields, sem látin er leika 12 ára gamla gleöikonu og þaö sama er uppi á teningnum i „Taxi Driver”, þar sem Jodie Forster fer meö aöalhlutverkiö. Mariel Hemingway sem er 17 ára leikur stórt hlutverk I „Manhattan” Woody Allens, en hún hóf leikferil sinn 13 ára I mynd um nauöganir. Tatum O’Neal var átta ára er hún lék i „Pappirstungli”. Viö þessar amerisku unglingsstúlkur má bæta tveim frönskum, sem aðeins eru 12 ára gamlar. Gefa eldri konum ekkert eftir Kvikmyndaframi þessara stúlkna hefur yfirleitt ekki vakið hneyksli og staöreyndin er, aö þær gefa eldri og þroskaöri konum i faginu ekkert eftir. Sérstaklega viröast þessar amerisku stjörnur veraldar- vanar, enda hafa þær stööugt viö hliö sér konur, sem eiga aö koma þeim i móöurstaö, vera þeim félagi, og sjá um fjármálin fyrir þær. Raunsæi þessara stúlkna og kunnátta þeirra I starfi kemur á óvart. Þeim finnst gaman að leika, — vilja heldur vera I kvikmyndaverinu en I skólanum, og éinu áhyggj- urnar, sem þær eiga viö aö striöa er, hvernig þær , geta þroskast án þess aö detta út af vinsældalistanum. Þær sjá fyrir sér örlög Jodie Forster, sem meö aldrinum missti fersk- leikann og er nú lltið eftirsótt. En þaö er ekki aöeins i kvik- myndum, sem unglingar hasla sér völl. Ef viö tökum Frakk- land sem dæmi, þá rignir nú bókum eftir bráöungt fólk um vandamál þess. Valérie Valere er ein hinna ungu höfunda og hún kom i sjónvarp nýlega til þess aö kynna bók sina „Malika eöa dagur eins og aörir dagar”. Otskýröi hún mjúkri röddu og róleg i fasi, aö börn væru utan- garðsmenn i þjóöfélaginu og einmanaleiki þeirra væri yfir- þyrmandi. Annar ungur höf- undur, Joanna Mogane, kom fram viö sama tækifæri og sagöi, aö fullorönum bæri aö rjúfa þögnina, sem þeir heföu komiö sér upp gagnvart börn- um. Eina bók ma' nefna aö gamni enhún heitir „Aldur til að elska” og er góölátlegt grin þar gert aö „Lolitu” Nabokovs, en þar segir frá ástum 13 ára gamallar stúlku og manns á fertugsaldri. Þjóöfélagiö er aö breytast og kvikmyndaheimurinn hefur undirstrikað þessa breytingu. 1 sjónvarpi aftur á móti eru börn og unglingar sömu englarnir og þeir hafa alltaf veriö álitnir. Þetta kemur eölilega til af þvi, aö sjónvarpskvikmynd fer inn á Lýsingarorðið nýr er tískufyrirbrgiði. Það er taiað um nýju heimspekingana, um nýlist, um nýja list í matargerð og það er talað um nýju konuna í kvik- myndum. Nýja konan í kvikmyndum er vart af barns- aldri. Hún er bæði barn og kyntákn. Hvað er orðið um „þroskaða ávexti" frá árunum 1940, 1950 og 1960? Marilyn er dáin, Rita er hálflasin og Bardot komin yfir fertugt. Lis Taylor er komin í stjórnmafin, Raquel og Ursúla eru sparar á sjálfar sig og Farrah Fawcett er gleymd um leið og auglýsingin með henni er á enda. I nútímaþjóðfélagi taka æyngri konur þátt í lífinu af fullum krafti og þetta kemur fram í kvik- myndum. Frökk og þokkafull Nýja konan er unglingur, frökk og jafnframt þokkafull. Hún á framtiöina fyrir sér og leyndardómarnir um hana eru óendanlegir. Eru þá kvik- myndaframleiðendur, sem full- gera þessa kvenimynd, nú fyrst aö gera sér grein fyrir mögu- leikum unglingsstúlkunnar, 100 árum eftir Lewis Carroll, 50 ár- um eftir Freud og 20 árum eftir Nabokov? Eru þeir fyrst nú aö gera sér grein fyrir aö litlar stúlkur eru ekki endilega litlar eöa einhverjir englar? Hvaö sem þvi liöur, þá hefur myndast dálitiö flóö af þessum ungu kvikmyndahet jum. I myndinni „I love you — Je t’aime” er Diane Lane i aöal- hlutverki, en hún var þá 13 ára. Segir i myndinni frá ástum ungs Diane Lane er I aöalhlutverki í myndinni „I love you. Je t’aime”, en hún hefur veriö á tjaldinu frá því aö hún var sex ára gömul. Faöir hennar Burt Lane er leigubilstjóri og hefur séö um dóttur slna einn siöan hún var tveggja vikna gömul. Brooke Shields varð mönnum hneyksli er hún lék i „Pretty Baby”. Sjálf segist hún helst vilja vera i kvikmyndaverinu allar stundir. Þar finni hún aö hún lifi nokkurs konar fjölskyldulffi, en foreldrar Brooke eru skilin. heimili hvers manns á hvaöa tima sem er og er þvi undir vissri ritskoöun. En börn og unglingar vita lengra nefi sinu en fram kemur i sjónvarpsþátt- unum, enda þurfa þau ekki annað en hlusta á fréttir til þess aö verða þó nokkurs visari. 13 ára hversdagshetja Sú, sem sannar þetta hvaö best er ef til vill enska stúlkan Cathy Priestly. Hún er 13 ára gömul, en vann I september sl. fyrstu verðlaun i ritgeröarsam- keppni. Ritsmiö hennar nefnist „Oll vandamál úr sögunni” og sendi Cathy hana i keppnina án þess aö þora aö sýna hana for- eldrum sinum. Dómararnir sögöu frásögnina meistaralega vel geröa og stilinn lipran. En hver er efnisþráöurinn? 1 sögunni segir frá Margréti, 18 ára, sem tekur sig upp úr foreldrahúsum og flýr meö Jóni unnusta sinum. Hann barnar hana og þau giftast. Fljótlega gerist Jón haröstjóri hinn mesti, lemur konu sina og heldur viö aöra. Margrét eignast barn meö öðrum manni. Jón tekur þátt I bankaráni en upp um hann kemst og lendir hann i fangelsi. Margrét eignast fleiri börn, og missir atvinnuna upp úr þvi. Eitt barna hennar veröur fyrir bilslysi og deyr. Sjálf þolir hún ekki álagiö, gripur svefntöflur og sofnar svefninum langa. Þessi harmsaga er eftir 13 ára gamla stúlku. Þegar hún var spurö aö þvi, hvernig hún færi aö setja slíka sögu saman, sagö- ist hún horfa á sjónvarpsfréttir og lesa dagblöb eins og hver annar. Hún bætti viö setningu, sem gæti átt viö fyrirbrigöiö „nýju konuna”: „Það er ekki til ein einasta 13 ára stúlka i heim- inum nú, sem hægt væri aö blekkja meö álfasögum eöa ævintýrum”. FI þýddi Tatum O’Neal afklæöist f fyrsta sinn á tjaldinu f nýrri mynd meö Richard Burton. Er Tatum látin tæla þann gamla. Pabbi Tatum vildi ekki aö hún léki I „Pretty Baby”, en samþykkti smá fatafellu- atriöi greinilega.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.