Tíminn - 11.12.1979, Side 12
12
Þriöjudagur 11. desember 1979.
Þriðjudagur 11. desember 1979.
13
Öm og Örlygur
Vesturgötu42 s 25722
Við bjóðum góðar bækur við allra hæfi
Öm og Örlygur
Vesturgötu42 s25722
11. bindi bókaflokksins
ÞRAUTGÓÐIR Á RAUNASTUND
eftir Steinar J. Lúðvíksson
Bókin fjallar um árin 1907—10.
Þetta er tími hinna opnu róðra-
skipa, vélbátarnir eru að koma til
sögunnar og skúturnar gegna
stóru hlutverki. Meðal atburða:
er Kong Tryggve fórst, póstskip-
ið Laura strandaði, uppskipun-
arslys í Vík og strand Premiers.
Jörn Riel
FYRR EN DAGUR RÍS
Þetta er skáldsaga um einangr-
aöa eskimóabyggð á Grænlandi
og fyrstu kynnum hennar af hvíta
manninum og þeim örlögum
sem byggðinni eru búin vegna
þeirra kynna. Þýdd af dr. Friðriki
Einarssyni lækni.
Jón Bjarnason frá Garðsvík:
BÆNDABLÓÐ
Það er þjóðlegur fróðleikur,
kraftur og kitlandi kímni í bók
þessa norðlenska bónda. Hann
segir forkostulegar sögur af fólki
og fénaði og varpar skemmtilegu
Ijósi á það líf sem lifað var í
landinu til skamms tíma.
Joe Poyer:
ÓGNVALDUR ÓPÍUMHRINGSINS
Sagan er frá upphafi til enda
spennandi eltingarleikur og átök
við óbilgjarna smyglara sem
hiklaust ryðja öllum fyrirstöðum
úr vegi. Ógnvaldur smyglar-
anna, Cole Brogan, lætur sér þó
ekki allt fyrir brjósti brenna.
Geir Hansson
MISJÖFN ER MANNSÆVIN
Átakanleg lífsreynslusaga um
eldskírn drengs á æskuárum,
lýsir atburðum af miskunnar-
lausu raunsæi og hreinskilni.
Ólík öðrum minningabókum.
Þriðja bindi bókaflokksins Her-
námsárin.
Hannes Pálsson frá Undirfelli
VOPNASKIPTI OG VINAKYNNI
Andrés Kristjánsson skráði
Hannes rekur misvirðasama og
margþætta lífssögu sína af mik-
illi ósérhlífni, opinskáu hrein-
lyndi, glöggskyggni og heiðar-
leik — og án feluleiks eða tæpi-
tungu um menn og málefni —
einnig um sjálfan sig.
Grétar Birgis:
SKELLUR Á SKELL OFAN
Raunsæissaga úr Reykjavík,
saga um sambúöarslit og upp-
lausn heimilis, saga um sorg og
gleði ást og hatur og heiftarleg-
um, illvígum átökum.
Roy Hattersley:
NELSON
flotaforinginn mikli
Nelson er einn af mestu sæ-
görpum allra tíma. Þrír miklir
sigrar hans í orrustunum við Níl,
Kaupmannahöfn og Trafalgar
tryggðu honum frægð og þakk-
læti föðurlandsins. Áhrif
Nelsons á gang veraldarsög-
unnar eru ótvíræð.
Per Sundböl:
ÍSLANDSPÓLITÍK DANA
1913-18
Þessi bók varpar nýju Ijósi á
sjálfstæðisbaráttu islendinga og
kallar marga stjórnmálamenn
fram á sjónarsviðið. Þetta er þörf
bók sem á erindi við alla sem
unna íslenskri sögu. Jón Þ. Þór,
sagnfræðingur, þýddi.
Metsölubókin:
UPPREISN FRÁ MIÐJU
Frá því að bók þessi kom út í
Danmörku í febrúar 1978 hefur
hún vakið óskipta athygli víða
um heim og selst í metupplög-
um. Höfundar hennar lýsa nýrri
þjóðfélagsgerð og skilgreina þá
þróunarleið ýtarlega og undan-
þragðalaust. Ólafur Gíslason
þýddi.
Sigurgeir Magnússon:
ÉG BERST A FÁKI FRÁUM
Fjörhestar- og menn
Þetta er bók um fjörmikla hesta
og fjöldann allan af hestamönn-
um frá fyrri og seinni tíð. Hvað
stílbrögð snertir hefur þessi bók
á sér öll einkenni þeirra ritverka
úm hesta sem minna á bók-
menntir um konur. Höfundurinn
er fullur aðdáunar og einlægni
en um leið gagnrýnin og opin-
skár.
Guðrún H. Sederholm:
TVÆR SÖGUR AF STEFÁNI
Gefin út f tilefni barnaársins.
Til hvers eru börnin okkar? Eru
þau leikföng, auðsuppsprettur,
vopnabirgðir, ellitryggingar, til
viðhalds kynstofninum, hlekkir,
þrælar eða dásamleg? Þetta er
bók sem býr yfir miklu en lætur
lítið yfir sér.
Litlu matreiöslubækurnar:'
Tvær nýjar:
Kökur og Kjúklingar
Litlu matreiðslubækurnar eru nú orðnar
sex talsins og fást í gjafapakka.
Gjafapakkar með umtalsverðum afslætti
Fyrir jólin 1978 tókum við upp
þá nýbreytni að gefa fólki
kost á að kaupa sérstaka
gjafapakka með umtalsverð-
um afslætti. í hverjum pakka
voru nokkrar eftirsóknar-
verðar bækur, sem fólk gat
auðvitað skipt í margar gjafir
ef svd bar undir. Þessi ný-
breytni mæltist mjög vel fyrir
og því höfum viö ákveðið að
halda þessu áfram og bjóða
nú þessa gjafapakka:
í leit að horfnum heimi:
Fjórða og síðasta bókin í
þessum fallega, fróðlega og
spennandi bókaflokki nefnist
HIN TÝNDA BORG INK-
ANNA. Fyrri bækur voru:
LEYNDARDÓMAR FARAÓ-
ANNA, FALL OG EYÐING
TROJU og HIN SAGN-
FRÆGU ÆVINTÝRI VÍKING-
ANNA. Loftur Guðmundsson
þýddi allar bækurnar, sem
varpa skemmtilegu Ijósi á
liðna tíð og eiga sér enga
hliðstæðu hérlendis. Þetta
eru bækur fyrir alla fjölskyld-
una. ( gjafapakkanum kosta
þær kr. 7.245.00 en ella
9.660.00
Litlu matreiðslubækurnar:
Þessar bækur eru samdar af
Lotte Havemann en Ib Wess-
man þýddi og staðfærði. Það
er litmynd á hverri síðu. Nú
bætast við tvær bækur,
KÚKUR og KJÚKLINGAR en
fyrir voru ÁBÆTISRÉTTIR,
POTTRÉTTIR, KARTÖFLU-
RÉTTIR og ÚTIGRILL OG
GLÓÐARSTEIKUR. í gjafa-
pakkanum kosta þær allar
sex kr. 15.987.00 en ella kr.
19.984.00.
Lönd og landkönnun:
Þennan bókaflokk þýðir
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum. Við höfum þegar
gefið út fjórar bækur, sem
allar eru prýddar litmyndum,
litkortum og uppdráttum. Hér
kemur það skýrt í Ijós að
mannkynssagan er meira
heldur en morð og dráp undir
stjórn kónga og keisara.
Saga landkönnunar er þró-
unarsaga mannsins, litríkari
og skemmtilegri en flestar
aðrar. í flokknum eru nú fjór-
ar bækur: FRUMHERJAR í
LANDALEIT, LANDAFUND-
IRNIR MIKLU, HANDAN VIÐ 0
SJÓNDEILDAHRING og g
KÖNNUN KYRRAHAFSINS. I
gjafapakkanum kosta þær kr.
16.452.00 en ella kr.
21.936.00
Litlu litmyndabækurnar
TVEIR PAKKAR:
[ fyrra gáfum við út fjórar
bækur í Litla litmyndabóka-
flokknum. Þær voru um hann
SÆFINN SJÓRÆNINGJA og
hétu Sæfinnur og nýja skipið,
Sæfinnur og gimsteinninn,
Sæfinnur og fíllinn og Sæ-
finnur og fjársjóðurinn.
Nú höfum við bætt við fjórurh
bókum hann PADDING-
TON, þennan dæmalausa
Perúbjörn sem gengur um í
úlpu og með hatt og er sífellt
að lenda í allskonar klandri.
Við höfum búiö um þessa
heiðursménn í sinn hvorum
gjafapakkanum og kosta þeir
kr. 1.440.00 í stað kr.
1.920.00 ef bækurnar eru
l-eyptar stakar.
Sígildar sögur með litmynd-
um:
Þessum bókaflokki er ætlað
það hlutverk að kynna börn-
um og unglingum það besta
úr heimsbókmenntunum. Við
höfum útbúið gjafapakka
með fjórum þeirra, þ.e.a.s.
Skyttunum þremur, Róbín-
son-fjölskyidunni, Gulleyj-
unni og Tuma Sawyer. Þann-
ig kosta þær kr. 5.940.00 í
stað 7.920.00.
Við bjóðum aðeins það besta
í gjafapökkunum okkar og
viljum með þessum hætti
koma til móts við fólk á
margan hátt
Kjörgripur ábókamarkaöinum
Ferðabók þessi er prýdd eitthundrað pennateikningum,
tuttugu og einni vatnslitamynd og tveimur olíumálverkum.
Fæstar þessara mynda hafa birst á prenti áður og er að
þeim stórmikill menningarsögulegur fengur. Má með
sanni segja að þær fylli bilið milli Ferðabókar Eggerts og
Bjarna og bóka þeirra Mackenzies og Gaimards.
STEINGRÍMS SAGA
Steingríms saga — stórsaga
Sjálfsævisaga Steingríms Steinþórssonar forsætisráðherra
Brýtur í blað í íslenskri ævisagnaritun
Bækur um kvenlega fegurð og tísku
^V/vVEL Oy'
SStf
oskxbók
■•-íSSSKl'