Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 67
kardimommu og engifer. Besti matur ferðarinnar. Azimy held- ur langa ræðu um þakklæti sitt til þeirra sem starfa að uppbyggingar- starfi í Afganistan og halda talí- bönum í fjarlægð. Seint um kvöldið rekst ég á varnarmálaráðherrann þar sem hún er að koma sér fyrir í næsta gámi. Hún brosir breitt þegar ég kynni mig sem íslenskan blaða- mann og leyfir mér að taka af sér nokkrar myndir, en er dauðþreytt eftir daginn og ferðalagið og ég læt hana í friði. Heimsækjum Dani. Þeir eru hér með farandratsjár tvær, sem fram- leiddar voru við lok kalda stríðsins. Þær skorti síðan hlutverk í breyttri heimsmynd. Ein slík kostar um 200 milljónir og þarf fjóra menn til að reka hana. Þessar afgangsratsjár skipta sköpum við rekstur flug- vallarins, því dönsku ratsjárnar eru þær einu sem hér eru. Fer til höfuðstöðvanna aftur og býst við hertri öryggisgæslu í þessari ferð, vegna árásarinnar í gær. Ónei. Í þetta sinn er ferð- ast í einum jeppa. Fylgdarmenn eru einungis tveir. Afar hold- ugir mótorhjólaþjóðverjar með prússnesk yfirvaraskegg. Þeir spila Rammstein og keyra ósköp rólega. Alles klar. Heyrði sögu af norska hernum. Ein herdeilda hans heimsótti í vik- unni þorp norður í landi. Öldung- ur þorpsins kom að og skoðaði þá hátt og lágt. Muldraði „Noregur?“ Gekk svo að túlknum og heilsaði honum forvitinn. „Segðu mér, eru Rússarnir farnir?“ Sagan segir margt um hvers vegna Rússar gáfust upp og fóru árið 1989. Hér er allt afskekkt nema fjöllin. Þau liggja þétt saman; fjall í fjall. Þorpin eru svo einhver- staðar þar sem lækur rennur milli fjallanna. Aðra sögu og dapurlegri hef ég einnig frá Norðmönnum, um grafreit sem var fylltur með jarðsprengjum. Flugáætlun hefur enn verið breytt. Heim með hollenska hernum á morgun. Manntal í hollenska félagsheimil- inu klukkan 6.30. Yfirmaður gelt- ir upp ómstríð nöfn manna sinna í stafrófstöð. Þeir gefa sig fram og sýna vegabréf og borgaraleg klæði í aukatösku. Nema einn. Sá er ekki með borgaraleg klæði, en þau eru skilyrði þess að þessi her- flugvél fái að lenda í Dubai. Þeir mega ekki ganga um í einkennis- búningum þar. Þessi eini er skil- inn eftir. Í vélinni sit ég við hlið ungs hermanns, sem hefur verið sjö ár í hernum. Nú er hann hættur. „Afganistan kenndi mér að þetta er ekki málið,“ segir hann og talar með hryllingi um bardaga í eyði- mörkinni. Lendum svo ekki í Dubai, held- ur í Sharjah, sem er annað fursta- dæmi. Á flugvellinum er moska karla hjá karlaklósettunum en bænahús kvenna hjá kvennaklós- ettinu. 6.900 kílómetrar heim. Lendum ekki á Kýpur, heldur Krít. Þar eiga hollensku hermenn- irnir að fá tveggja daga útrás áður en þeim er hleypt til Hollands, því þeir hafa ekki drukkið bjór í fjóra mánuði. „Þeir segja að það sé okkur fyrir bestu,“ segir sessu- nautur minn. Hoppum út á Krít og hermenn- irnir fara að drekka, en við fljúgum áfram til Eindhoven. Ferðin heim til Evrópu tók nærri 23 tíma og enn eru 2.000 kílómetrar eftir. you, where are you mate?“ kall- ar hann í talstöð örvæntingarfull- ur á bílinn týnda. „Come in mate, please.“ Úr talstöðinni heyrist ein- ungis suð. Lenti bíllinn í bílslysi eða einhverju verra? Ice Baby spyr hvaða viðvaningur sé eigin- lega að keyra vörubílinn, sem við verndum nú ein. Sá keyrir ýmist of hratt eða hægt, eða stoppar, sem virðist vera stranglega bann- að. Að læðist grunur að bílstjórinn sé ef til vill með talíbönum í liði, en honum er bægt frá. Á endanum róast Baby þegar hann nær sam- bandi eitthvað og síðan finnum við hinn jeppann við hliðið að herstöð- inni. Batteríslaus talstöð og mis- skilningur. Ice biðst afsökunar að hafa misst stjórn á sér. Grátt og blautt og dauft yfir. Sunnudagur er hálfgildings frí- dagur hér. Þó eru tveir íslenskir friðargæsluliðar á fullu. Þeir eru í sjálfboðavinnu að koma upp bíla- lyftu hjá tékkneska spítalanum. Mikið þarfaverk, segja þeir. Verk- takafyrirtækið, sem annars sér um svona framkvæmdir, sé svo gráð- ugt að það geri ekki neitt nema fá fyrir það greitt aukalega. Meðal íslensku friðargæslu- liðanna leynast hugsjónarmenn. Einn gæti lifað góðu lífi af eignum sínum, en vill samt starfa „fyrir þjóðina“, eins og hann orðar það. Það er samfélagsleg skylda hans að leggja sitt af mörkum til vest- rænnar samvinnu. „Við ætlumst til þess að NATO verndi okkur og við eigum að gefa eitthvað í staðinn.“ Verslanir eru opnar í dag og í annað sinn í ferðinni sé ég íslensk- ar bækur til sölu. Það er kannski ekki að undrast að í bókabúðinni í Osló hafi Snorri Sturluson verið til sýnis á sértilboði, eða að Arnaldur Indriðason hafi átt þar nokkra titla. Það er hins vegar nokkuð sérstakt að finna téðan Arnald, þýddan á þýsku, inni í filippseyskri fríversl- unargámabúð í Afganistan. Við hlið hans Flateyjargáta Viktors Arnars. Anna-Grete Strøm-Erichsen, sá geðþekki varnarmálaráðherra Noregs, er í skreppiheimsókn á vellinum, að heilsa upp á strákana sína. Það þýðir að við fljúgum ekki heim með Norðmönnum á morg- un. Hún og fylgdarlið fylla vélina. Árás á bílalest bandaríska sendi- ráðsins. Sjálfsmorðssprengjumað- ur keyrði inn í hana og sprengdi sig í loft upp. Margrir aðrir særð- ust og einn alvarlega. Þetta var samskonar bílalest og við ferðuð- umst í daginn áður, á sama vegi. Um kvöldið býður forsvars- maður íslensku friðargæslunnar í Kabúl í mat, að hætti innfæddra. Íslendingar og vinir þeirra sitja veisluna. Azimy er afganskur at- hafnamaður sem hefur tengst Ís- lendingunum. Þeim er stundum leyft að lauma honum inn á kamp- inn til að halda veislur fyrir góða gesti. Azimy og konan hans elduðu glás af kjúklingi og hrísgrjónum og einhverjum pastalegum kjöt- fyllum, ásamt grænmeti og af- bragðs naan-brauði. Ilmur af Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 Gleðilega páska Sevilla leðursófasett 3+1+1 Verð áður: 228.000,- Verð nú: 136.800,- -40% Stóll Iona Verð áður: 13.500,- Verð nú: 9.450,- Einnig til í brúnu og svörtu -30% Leðurstóll Bonn Verð áður: 16.800,- Verð nú: 14.280,- -15% Cube leðurstóll Verð áður: 19.800,- Verð nú: 16.830,- Einnig fáanlegur í svörtu leðri -15% Leðurstóll Richmond Verð áður: 15.500,- Verð nú: 13.175,- Einnig til í brúnu leðri -15% Stóll Mona Verð áður: 12.500,- Verð nú: 8.750,- Einnig til í hvítu -30% Manhattan leðurtungusófi Stærð: 290x170 Verð áður: 198.000,- Verð nú: 138.600,- -30% -20% Stækkanlegt borð stærð: 160(248)x100 Einnig fáanlegt í stærð: 200(288)x110 140(230)x140 Verð frá: 116.000,- Leðurstóll Paris Verð: 17.500,- Borðstofuborð og 6 stólar saman Verð: 198.900,- Borðstofuborð og 6 leðurstólar saman stærð: 180x100 Verð áður: 183.800.- Tilboðsverð: 137.850,- -10%-25% Stólar 3+1+1 Verð áður: 249.000,- Verð nú:199.200,- 3+2 Verð áður: 220.000,- Verð nú:176.000,- Milano leðursófasett
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.