Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 14

Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 14
R eyklaust kaffihús er óheppilegur við- talsstaður. Sérstak- lega á góðviðrisdegi á Laugaveginum. Mæður með barna- vagna í eftirdragi og hávaðinn eins og fuglabjarg, allt stappað og til að ná borði þarf að standa eins og hrægammur yfir fólki sem er hugsanlega að klæða sig í vettling- ana sína. Af tillitssemi við Þorstein var beiðni hans þó tekin til greina og beðið þess sem koma skyldi. Brynja Björk hafði aldrei komið inn á Kaffitár og horfði undrandi í kringum sig á mergðina sem þarna sveiflaði ungbörnum á milli sín með snuð í munni meðan hrært var í kaffi latte með tánni. Þorsteinn er fjögurra barna faðir og því vel kunnugur aðstæðum þarna inni en Brynja Björk á kött. Þrátt fyrir ólíkar fjölskyldu- aðstæður eiga þau þó það sam- eiginlegt að hafa bæði alist upp í Fossvoginum og um æðar þeirra rennur íslenskt blóð. En hvernig kemur hinn venjulegi Íslendingur þeim fyrir sjónir? Brynja: Ég er orðin þreytt á þeim klisjukennda Íslendingi sem sýnd- ur er í bíómyndum, skáldskap og auglýsingum frá flugfélögum. Ég held að Íslendingar séu talsvert siðmenntaðari en sá náungi. Við erum ekki alltaf full, alltaf með læti og vesen eða berserkir. Þorsteinn: Ég er svolítið sammála þessu. Ég geri mikið af því að fara og hitta Íslendinga í alls konar ástandi þegar ég er að skemmta. Það er undantekning ef eitthvað kemur upp á. Fólkið fylgist vel með öllu, er vel upplýst og mennt- að og hefur húmor. Íslendingar fá bara ansi háa einkunn hjá mér. Þetta er góð þjóð. Það eina sem kannski er, er að það er svolít- ið þungt yfir sumum, þeir mættu vera glaðari. Brynja: Mig hefur einmitt alltaf langað til að vera þessi harðgeri Íslendingur sem getur farið út í 10 stiga frosti og hengt upp jólaseríu. En ég er frekar mikil veimiltíta og þegar ég er erlendis trúir því eng- inn að ég sé frá Íslandi. Þorsteinn: Það er stórskrítið og ógeðslega leiðinlegt að vera í þess- um kulda og myrkri lengi. Ömur- legt að komast ekki út og krakk- arnir geta ekki leikið sér nema í geimverubúningum. Ég er líka veimiltíta. Telja þau það veimiltítuhátt að fárast yfir því að Spaugstofan not- aði nýverið þjóðsönginn til að gera grín og að ung stelpa sneið sér bik- iní úr þjóðfánanum? Þorsteinn: Mér finnst þetta allt í lagi og gott mál að fólk taki sig ekki of hátíðlega. Hins vegar var þjóðin sett á lista yfir stríðandi þjóðir í Írak og mér finnst það vera meiri glæpur en brjóstahald- arar. Brynja: Ég er svo mikill þjóðernis- sinni að fánalögin skipta mig miklu máli. Ég var meira fúl yfir bikin- ínu en þjóðsöngnum. Þetta er bara uppeldið, maður mátti ekki missa 17. júní fáninn einu sinni í gólfið þannig að mér krossbrá þegar ég sá appelsínugula stelpu töltandi um á bikiníi úr þjóðfánanum í feg- urðarsamkeppni. Nú er einmitt tími þeirra keppna, fegurðarsamkeppna, að fara að renna upp. Eruð þið á móti þessum keppnum? Brynja: Ég leit alltaf mjög upp til þessara stúlkna hér áður. Þetta var allt svo stórkostlegt og þær svo fínar og sætar, sprangandi um í kjólunum sínum. Svo fór glans- inn af þessu þegar maður frétti að sumar hverjar voru með ónýtan glerjung og vélinda eftir átrask- anir. Það er engin spurning að þessar keppnir hafa áhrif á ungar stelpur og ekki viljum við að heit- asta ósk tólf ára dætra okkar sé að vera með rakaðar lappir og brún- an húðlit. Þetta meikaði allt í einu engan sens lengur eftir að maður vitkaðist. Það er auðvitað líka stórundarleg og úrelt hugmynd að hægt sé að keppa í fegurð. Þorsteinn: Málið er .... “ (Þorsteinn er truflaður í miðri fegurðarsam- kepnisumræðu þar sem Helga Braga dúkkar upp með hausinn yfir borðinu, horfir djúpt í augun á Brynju og blaðamanni og hvísl- ar: „Passið ykkur á honum, hann er ógeðslegur perri. Ég vildi bara koma þessu að.“ Svo kemur hún sér fyrir á næsta borði með ferða- tölvu og hafa skal í huga að það sem eftir lifir viðtals eru svör Þor- steins lituð af þrúgandi nærveru leikkonunnar.) Þorsteinn: Já, hvar var ég. Það sem ég vildi segja er að þetta er í höndum kvenna. Það eru konur sem taka þátt í þessu, konur sem reka keppnirnar, konur sem horfa á þær. Það er hreinlega ímyndun að það sé pressa frá karlmönnum að þessar keppnir haldi áfram. Brynja: Ég þekki ekki einn ein- asta karlmann sem horfir gríðar- spenntur á Ungfrú Ísland. En þekkið þið marga fræga? Heilsið þið mörgu frægu fólki og hverjum þykir ykkur merkilegast að heilsa? Þorsteinn: Ég þekki svolítið margt frægt fólk út af vinnunni og ég heilsa mörgum frægum og það eru fáir sem heilsa ekki á móti. Ég á nokkra vini sem eru þekkt- ir á Íslandi og er stoltur af að heilsa þeim. Allra stoltastur er ég af Helgu Brögu. Hún er greind og skemmtileg og með stórt hjarta (innskot blm: og hún situr á næsta borði). Ég hefði að vísu sagt Helga Braga þótt hún sæti ekki þarna. Brynja: Ég myndi segja að Björg- vin Halldórsson væri mesti töffar- inn sem ég hef heilsað. Hann er sá eini sem ég hef fengið gæsahúð við að taka í höndina á. Eðli máls sam- kvæmt þekki ég mikið af frægu fólki, starfandi sem blaðamaður. En það er eitt sem mér finnst svo- lítið fyndið og það er það að fræg- ir heilsa frægum. Það er svolít- ið eins og frægir séu í risastór- um klúbbi. Að þú sért kominn inn í einhverja klíku. Það virðist aldrei neinn þora að tala um það þannig að ég ætla að opna umræðuna um þetta núna. Vinur minn sem er þekktur tónlistarmaður var eitt sinn með mér á skemmtistað þar sem var samankominn nokkur fjöldi þekktra einstaklinga. Þar heilsaði mér þekkt söngkona sem ég hafði aldrei talað við á ævinni og ég horfði á vin minn eins og eitt spurningarmerki í framan. „Þetta er svona frægur heilsar frægum. Nú ertu komin í klíkuna,“ sagði hann og ég skellti bara uppúr, mér fannst þetta svo fyndið. Þorsteinn: Þetta er svona eins og Brynja lýsir. Sigurjón Kjartans lýsti þessu mjög vel þegar ég var að byrja að vinna með honum og spurði hann hvernig það væri að vera frægur. Hann sagði að það væri svolítið eins og að búa á Ísa- firði. Það vita allir hver þú ert, kinka kolli til þín og það er allt fínt. Það reyndist rétt hjá honum. Annars fer ég lítið út að skemmta mér, því fólk á það til að breytast í glasi. En annars er það auðvelt að vera frægur á Íslandi. Ef það er auðvelt að vera fræg- ur – hvernig halda þau að það sé að vera ríkur? Nú eru skattframtölin nýfarin úr húsum eða af netinu og brátt kemur í ljós hverjir það eru Eigum besta ríka fólk í heimi Þorsteinn Guðmunds- son segir að flestir þeir frægu sem hann heilsi heilsi sér til baka. Brynja Björk Garðars- dóttir segir Björgvin Halldórsson vera merki- legasta fræga einstakl- ing sem hún hafi hitt. Júlía Margrét Alexanders- dóttir hitti þau skötuhjú á reyklausu kafxfihúsi sem Þorsteinn heimtaði undir viðtalið og beitti þar nýbura í barnavagni fyrir sig.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.