Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 2
Lykill að fortíðinni
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Sjálfstæð sendiskrif-
stofa Færeyja verður fljótlega
opnuð í Reykjavík. Frá þessu
greindi Jóannes Eidesgaard, lög-
maður Færeyinga, í samtali við
Fréttablaðið.
Nýja sendiskrifstofan verður í
eigin húsnæði í miðborg Reykja-
víkur, fjarri danska sendiráðinu,
og þar verður aðeins flaggað með
færeyska fánanum. Sendifulltrú-
inn verður þó hluti af dönsku
utanríkisþjónustunni, enda gæti
hann ella ekki haft formlega
stöðu sendierindreka. „Þetta er
alveg nýtt fyrirkomulag sem
ekki hefur verið prófað áður,“
segir Eidesgaard. Færeyskir
sendifulltrúar séu í Lundúnum
og Brussel,
en í báðum
borgum hafi
þeir aðsetur í
sendiráði Dan-
merkur.
Eidesgaard
segir annars
að opnun ís-
lensku aðal-
ræðisskrif-
stofunnar sé
staðfesting
á því gagn-
kvæma mati
að Hoyvíkursamningurinn svo-
nefndi, sem tók gildi í nóvem-
ber síðastliðinn og gerir Færeyj-
ar og Ísland að einu samræmdu
markaðssvæði, sé báðum lönd-
um mikilvægt. Færeyingar álíti
samninginn „fyrsta raunveru-
lega skref okkar út í hinn hnatt-
vædda heim,“ segir lögmaður-
inn. „Þegar Ísland opnar aðal-
ræðisskrifstofu sína í Þórshöfn
þá segir það okkur að Íslend-
ingar meti þetta samband einn-
ig mikils.“
Opnun skrifstofunnar verður
fagnað með dagskrá í Norður-
landahúsinu í Þórshöfn í dag, en
meðal viðstaddra verða Eides-
gaard lögmaður, Valgerður
Sverrisdóttir utanríkisráðherra,
nýi aðalræðismaðurinn Eiður
Guðnason og fulltrúar úr utan-
ríkismálanefnd Alþingis.
Eidesgaard boðar færeyska
sendiskrifstofu í Reykjavík
Ráðist var á tæp-
lega tvítugan mann á Skólavörðu-
stíg aðfaranótt laugardags og
slegnar úr honum framtennur. Að
sögn lögreglu er ekki vitað hverj-
ir árásarmennirnir voru, en þeir
voru farnir af vettvangi áður en
lögreglu bar að garði. Fórnar-
lambið var flutt á slysadeild til
aðhlynningar.
Þá lenti tveimur mönnum
saman á skemmtistaðnum Play-
ers í Kópavogi með þeim afleið-
ingum að annar skallaði hinn og
braut í honum tönn. Árásarmað-
urinn gaf sig fram við lögreglu
þegar hún kom á staðinn og telst
málið upplýst að fullu.
Framtennurnar
slegnar úr manni
Íbúar í Kristjaníu í
Danmörku hafa samþykkt tillögur
stjórnvalda um að koma aukinni
reglu á húsnæðismál hverfisins
til að stuðla að frekari uppbygg-
ingu. Stofnuð verður deild sem
mun annast rekstur bygginganna
í hverfinu og leigja út íbúðir. Vilja
stjórnvöld með þessu laða almenn-
ing til Kristjaníu og gera hverfið
opnara en það hefur verið.
Þrátt fyrir að hafa samþykkt til-
löguna ætla íbúar Kristjaníu ekki
að hætta við málaferli sín gegn
stjórnvöldum varðandi eignarrétt
á sumum byggingum í hverfinu.
Hverfið opnað
almenningi
Listasafn í New
York hefur hætt við sýningu þar
sem súkkulaðihöggmynd af Jesú
Kristi hefur verið til sýnis.
Ástæðan er áköf mótmæli kaþ-
ólsks trúarhóps í landinu, sem
taldi ekki við hæfi að sýningin
væri haldin um páskana, stærstu
trúarhátíð kristinna manna.
Kiera McCaffrey, talsmaður
trúarhópsins, sagði sýninguna
árás á kristna menn.
„Þeim myndi aldrei detta í
hug að sýna súkkulaðistyttu af
Múhameð spámanni nöktum á
meðan á Ramadan stæði,“ sagði
hún og vísaði þar í trúarhátíð
múslima.
Höfundur verksins, Cosimo
Cavallaro, er þekktur fyrir að
nota mat í verkum sínum.
Þakti hann eitt sinn veggi
hótelherbergis með mozzarella-
osti.
Súkkulaði-Jesús
veldur deilum
Stofnendur Ice-
land Express segja að vangeta
Samkeppniseftirlitsins hafi orðið
til þess að þeir hafi þurft að selja
félagið frá sér í október 2004.
Ólafur Hauksson, talsmaður fyrri
eigenda, segir að þeir hafi marg-
beðið samkeppnisyfirvöld um
bráðabirgðaúrskurð vegna ofríkis
Icelandair á markaðinum en ekk-
ert hafi gerst. „Við boðuðum sam-
keppnisyfirvöld á fund í ágúst
2004 og sögðum þeim að ástand-
ið væri grafalvarlegt og að við
gætum ekki haldið rekstrinum
áfram við þessar aðstæður. Við
sýndum þeim öll gögn um það. En
þeir ákváðu að gera ekki neitt.“
Í kjölfarið seldu stofnendurn-
ir þeim Pálma Haraldssyni og Jó-
hannesi Kristinssyni, sem voru þá
báðir stórir hluthafar í Icelandair,
89 prósenta hlut sinn í Iceland Ex-
press á einungis fimmtán milljónir
króna. „Það sem er andstyggilegt
í þessu er að þessir menn koma
þarna inn nánast eins og hræ-
gammar og björguðu okkur frá
aðgerðum sem þeir höfðu sjálfir
stjórnað. Það er það sem við erum
sárir yfir, að þessir menn sátu í
stjórn Icelandair á sama tíma og
þeir voru í sambandi við okkur og
vildu fá að kaupa fyrirtækið. Þetta
eru mjög óeðlilegir viðskiptahætt-
ir.“ Ólafur segir stofnendurna
vera að íhuga að leita réttar síns
gagnvart samkeppnisyfirvöldum.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segist ekki
geta tekið undir ásakanir fyrri
eigenda Iceland Express. „Sam-
keppnisyfirvöld tóku afstöðu til
kvartana sem komu fram á árinu
2003 og komust að þeirri niður-
stöðu að Icelandair hefði misnot-
að markaðsráðandi stöðu sína á
þeim tíma. Síðan liðu ekki nema
átta mánuðir frá því að kvörtunin
sem núna var endanlega tekin af-
staða til, þangað til að félagið var
selt öðrum kjölfestufjárfestum.
Það var fullkomlega óraunhæft
að ætlast til að afstaða til kvörtun-
arinnar sé tekin á þeim tíma sem
leið þar á milli. Eina leiðin til þess
hefði verið að taka bráðabirgða-
ákvörðun í málinu, sem undir viss-
um kringumstæðum er heimilt.
Samkeppnisyfirvöld höfðu hins
vegar ekki forsendur til að taka
hana á þessum tíma.“
Páll segir að málsmeðferð-
in hafi tekið jafn langan tíma og
raun ber vitni vegna þess að örð-
ugt hafi reynst að afla mikilvægra
gagna í málinu. „Svo verður ekki
litið framhjá því að á sama tíma
hafa verið til umfjöllunar mörg
stór mál sem hafa auðvitað líka
áhrif á hraða málsmeðferðarinn-
ar.“
Neyddust til að selja
félagið á 15 milljónir
Stofnendur Iceland Express segja að vangeta samkeppnisyfirvalda hafi leitt til
þess að þeir neyddust til að selja félagið á 15 milljónir króna. Segja nýja eigendur
hafa stundað óeðlilega viðskiptahætti. Samkeppniseftirlitið neitar ásökunum.
Sverrir, viltu þá ekki bara
koma þér aftur til Taílands?
Lögreglan á Blöndu-
ósi handtók þrjá menn á þrítugs-
aldri á föstudagskvöld vegna
gruns um fíkniefnamisferli. Menn-
irnir, sem eru af höfuðborgar-
svæðinu, voru á norðurleið þegar
lögreglan stöðvaði þá við afleggj-
arann að Hvammstanga.
Fljótlega vöknuðu grunsemd-
ir um að ökumaðurinn væri undir
áhrifum örvandi efna og var því
tekið staðarpróf á honum. Niður-
staða þess staðfesti grunsemd-
ir lögreglunnar, sem sendi hann í
blóð- og þvagprufu. Við leit í bif-
reiðinni fundust 24 e-töflur og
rúmt gramm af amfetamíni. Menn-
irnir hafa allir komið áður við sögu
lögreglu vegna fíkniefnamála.
Með 24 e-töflur
og amfetamínFjöldaslagsmálurðu milli hópa Íslendinga og
Pólverja fyrir utan skemmtistað-
inn Yello í Reykjanesbæ aðfara-
nótt laugardags.
Slagsmálin voru yfirstaðin
þegar lögreglan á Suðurnesjum
kom á vettvang en að hennar sögn
var enn talsverður hiti í mönnum
þrátt fyrir það.
Áður hafði lögreglan þurft að
fara að heimili í Vogum þar sem
unglingasamkvæmi hafði farið
úr böndunum.
Vel gekk að koma veislugest-
um út úr húsinu.
Þá var einn ökumaður stöðv-
arður á Sandgerðisvegi á 139
kílómetra hraða, en hámarks-
hraði þar er 90 kílometrar á
klukkustund.
Íslendingar slóg-
ust við Pólverja
Bandarísk yfirvöld ætla ekki að semja við
Írana um skipti á fimmtán breskum sjóliðum sem
voru handsamaðir af Írönum í Persaflóa í staðinn fyrir
fimm Írana sem Bandaríkjamenn handtóku í Írak.
Íranarnir fimm voru handteknir þegar bandarískir
hermenn réðust inn í hús í Írak og gerðu upptækan
ýmsan búnað. Segja Bandaríkjamenn augljós tengsl á
milli mannanna og íraskra hryjuverkamanna.
Bretar hafa neitað ásökunum Írana þess efnis að
sjóliðarnir hafi verið á írönsku yfirráðasvæði þegar
þeir voru handteknir hinn 23. mars. Sendiherra Írans í
Rússlandi er ekki á sama máli frekar en írönsk stjórn-
völd og segir að þeir verði hugsanlega leiddir fyrir
dómstóla fyrir að hafa brotið alþjóðleg lög. Evrópu-
sambandið hefur krafist þess að Íranar sleppi bresku
sjóliðunum án tafar og varar við því að gripið verður
til „viðeigandi aðgerða“ verði óskum þess ekki fram-
fylgt.
Írönsk stjórnvöld hafa fordæmt afskipti ESB og Sam-
einuðu þjóðanna af deilunni og segja tilraunir Breta til
að fá þriðja aðila inn í málið ekki hjálpa til.
Engin fangaskipti við Írana