Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 26
Jafningjafræðsla Hins
hússins er forvarnar-
starf, unnið af ungu fólki
fyrir annað ungt fólk.
Vilmundur Sveinsson,
formaður Nemendafélags
Verslunarskólans, er einn
þeirra sem sinntu því
starfi í fyrrasumar.
„Umsækjendur um jafn-
ingjafræðsluna í fyrra voru
um 120 og ég var ánægður
með að vera einn þeirra sem
urðu fyrir valinu. Það var
góður níu manna hópur sem
náði mjög vel saman.“
-Hvað gerðuð þið?
„Þetta byrjaði á því að
við fórum á tveggja vikna
námskeið um sjálfsstyrk-
ingu, kynfræðslu, fíkn, ungl-
ingamenningu, átraskan-
ir og margt fleira. Síðan
tókum við að boða fagnaðar-
erindið og fórum í hópa á
vegum Vinnuskóla Reykja-
víkur. Töluðum við krakka
sem höfðu nýlokið 9. bekk og
vorum með hverjum hóp í
heilan dag. Við spiluðum fót-
bolta og fleira en fjölluðum
líka um allt mögulegt eins og
tölvufíkn, eiturlyf, áfengi,
siðferði, kynlíf, heilbrigðan
lífsstíl og jákvæða hugsun.“
-Tóku unglingarnir mark
á ykkur?
„Já, flestir spurðu mikið
og höfðu áhuga á umræðu-
efnunum. Ég hef fylgst með
nokkrum sem ég hitti síð-
asta sumar og sé alveg að
þetta starf hefur borið ár-
angur. Bara það að heyra
jafningja tala um kynlíf
en ekki einhvern sextug-
an kennara skiptir miklu
máli. Líka um áfengi, dóp
og tölvur. Við sem yngri
erum vitum hvernig krakk-
ar hugsa og náum betur til
þeirra en eldra fólkið.“
-En hvernig fannst þér
sjálfum starfið?
„Þetta er óneitanlega
skemmtileg vinna því hún
snýst um að rækta krakk-
ana. Ég lærði margt á þessu
tveggja vikna námskeiði
og líka um þann heim sem
krakkarnir lifa í. Þessi
reynsla á eftir að nýtast
mér áfram. Ég verð ekki í
þessu starfi í sumar en ég
mæli alveg með því.“
-Fékkstu sæmilega borg-
að?
„Já, já, það var allt í lagi.
Auðvitað hefði maður getað
farið í einhverja skrifstofu-
vinnu að stimpla inn tölur og
fengið betri laun. En það er
gaman að vera úti í sólinni
við að sinna fólki og fræð-
ast um samfélagið í leið-
inni. Það vegur bara meira
en peningar.“
Starf sem snýst um
að fræða jafningja
Nýr formaður verkalýðs-
félags Vestfjarða kjörinn.
Finnbogi Sveinbjörnsson,
ritari Verkalýðsfélags Vest-
fjarða, var kjörinn nýr for-
maður félagsins í póstkosn-
ingu sem staðið hefur yfir
meðal félagsmanna síðan
14. mars. Tveir voru í kjöri
til formanns, en Helgi Ólafs-
son, varaformaður verka-
lýðsfélagsins, bauð sig einn-
ig fram. Alls bárust 603
atkvæði, af þeim fékk Finn-
bogi 420 en Helgi 176. Sjö
atkvæðaseðlar voru auðir
eða ógildir.
Finnbogi er starfsmaður
Flugfélags Íslands á Ísa-
firði. Hann tekur við for-
mennsku af Pétri Sigurðs-
syni, en hann hefur verið
formaður Verkalýðsfélags
Vestfjarða frá því það var
stofnað árið 2002. Áður var
hann formaður Verkalýðs-
félagsins Baldurs frá árinu
1974.
Formannsskipti verða á
næsta aðalfundi félagsins,
sem haldinn verður í vor.
Afgerandi sigur