Fréttablaðið - 01.04.2007, Qupperneq 70
Þriggja gljúfra stíflan sem
verið er að reisa austur í
Kína er verkfræðiundur
á skala sem fæstir geta
ímyndað sér. Uppistöðu-
lónið sem verður til við
framkvæmdirnar þar mun
drekkja heimilum yfir
milljón manna auk fjölda
sögufrægra minja. Áhrifa-
svæði stíflunnar er sögu-
svið tveggja kvikmynda
sem Fjalakötturinn sýnir í
kvöld kl. 20 og 22.
Stíflan í lengsta fljóti Asíu,
Yangtze-ánni, á að vera tilbúin
árið 2009 og verður þá stærsta
raforkuframleiðslusvæði í heim-
inum en um 650 kílómetra langt
stöðuvatn mun myndast við þess-
ar aðgerir. Systurmyndirnar
„Kyrrmynd“ og „Dong“ eftir kín-
verska leikstjórann Zhang Ke-Jia
eru áhrifamikið og óvenjulegt inn-
leg í umræðuna um stóriðjufram-
kvæmdir og því fengur að sýningu
þeirra hér á landi.
„Kyrrmynd“ gerist í þorpinu
Fengjie, sem hefur nú þegar orðið
fyrir miklum áhrifum af fram-
kvæmdunum, og bregður ljósi á
breytta lífshætti með því að skoða
ástarsamband í þorpinu. Myndin
vann óvænt til aðalverðlaunanna
á kvikmyndahátíðinni í Feneyj-
um í fyrra. Hin myndin er heim-
ildarmynd um listmálara sem
hefur helgað ævistarf sitt svæð-
inu sem fer undir vatn. Þó að hvor-
ug myndanna fjalli beinlínis um
stífluna bregða þær ljósi á breytta
lífshætti á svæðinu, sú fyrrnefnda
með því að skoða ástarsamband
í bæ sem er að breytast. Þær
byggja ekki á hefðbundnum sögu-
þræði heldur beinast frekar að því
að ná fram stemningunni og til-
finningunni sem fylgir söguefn-
inu og umhverfi þess.
Athygli er vakin á því að breyt-
ing hefur orðið á áður auglýstri
dagskrá Fjalakattarins, sem sýnir
aðeins þessar tvær myndir í kvöld.
Þannig flyst dagskrá Kviksögu um
frásagnarmenningu og nútíma-
borgir fram á þriðjudag sem og
sýning á erótísku kvikmyndinni
„Rauðhærða konan“ eftir Tatsumi
Kumashiro.
Annað kvöld verða tvær aðrar
myndir Kumashiro til sýninga auk
franskrar heimildarmyndar eftir
leikstjórann Jacques Debs.
Vegamynd Debs fjallar um
ferðalag um átakasvæði á leiðinni
frá Sarajevo til Jerúsalem og ber
yfirskriftina „Múslimar í Evrópu
- kristnir í Mið-Austurlöndum“.
Leikstjórinn verður viðstadd-
ur sýningu myndarinnar kl. 21 á
mánudagskvöldið. Tónlist skiptir
leikstjórann miklu máli og lætur
hann oft semja hana sérstaklega. Í
þessari mynd má hlýða á afrakst-
ur samstarfs Sverrir Guðjóns-
sonar og líbanska tónskáldsins
Ritu Ghosn sem samdi tónverkið
„Liturgy“ fyrir myndina. Sverrir
syngur á arameísku í verkinu.
Hið smæsta í hinu stærsta
Kl. 14.00
Í Listasafni Íslands stendur yfir yfir-
litssýning á verkum Jóns Engilberts
og Jóhanns Briem. Valgerður Bergs-
dóttir verður með leiðsögn um sýn-
inguna í dag. Aðgangur að safninu er
ókeypis.
æðisLEG
fermingargjöf
Miði á söngleikinn LEG eftir Hugleik Dagsson,
geisladiskur úr sýningunni og bolur á aðeins kr. 5.000!
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
Leikhúskjallarinn opinn fyrir og eftir sýningar föstudaga og laugardaga.
Upplýsingar í miðasölusíma.
HJÓNABANDSGLÆPIR eftir Erich-Emmanuel Schmitt.
Frumsýning mið. 18/4 uppselt, fim. 19/4 uppselt, fös. 20/4 uppselt, lau. 21/4 uppselt,
fim. 26/4 uppselt, fös. 27/4 uppselt, lau. 28/4 uppselt, sun. 29/4 uppselt, fim. 3/5 örfá
sæti laus, fös. 4/5 örfá sæti laus, lau. 5/5 örfá sæti laus, sun. 6/5 örfá sæti laus.
Kassinn
MJALLHVÍT Brúðusýning Helgu Arnalds.
Lau. 14/4 kl. 15:00, sun. 15/4 kl. 15:00, fim. 19/4 kl. 15:00, lau. 21/4 kl. 15:00, sun. 22/4
kl. 15:00.
GERSEMAR GÆRDAGSINS Gestasýning frá Turak leikhópnum í Frakklandi.
Mán. 16/4 kl. 20:00.
Kúlan
Hálsfesti Helenu eftir Carole Fréchette.
Frumsýning lau. 14/4 uppselt, sun. 15/4 örfá sæti laus, fös. 21/4.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Í dag sun. 1/4 kl. 14:00 örfá sæti laus, aukasýning kl. 17:00 örfá sæti laus, sun. 15/4
kl. 14:00 örfá sæti laus, aukasýning kl. 17:00 nokkur sæti laus, sun. 22/4 kl. 14:00
örfá sæti laus, aukasýning kl. 17:00, sun. 29/4 kl. 14:00. Sýningum lýkur í apríl!
LEG - söngleikur eftir Hugleik Dagsson. Tónlist hljómsveitin Flís.
Fim. 12/4 örfá sæti laus, fös. 13/4 örfá sæti laus, lau. 14/4, fim. 19/4, fös. 20/4 örfá
sæti laus, lau. 21/4 nokkur sæti laus, fim. 26/4, fös. 27/4 örfá sæti laus.
Ath. nemendaafsláttinn og hópafsláttinn. Námufélagar fá 35% afslátt ef greitt er
með Námukorti.
CYMBELINE eftir Shakespeare - gestaleikur í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.
Þri. 15/5, mið. 16/5, fim. 17/5 örfá sæti laus, fös. 18/5.
Stóra sviðið kl. 20:00
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
LEG
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
Draumalandið
eftir Andra Snæ Magnason
Strandgata 50, Hafnarfirði. Miðasala
í síma 555 2222 og á www.midi.is
Frumsýning
16.mars föstudagur kl. 20:00
22.mars fimmtud. 2.sýn kl. 20:00
23.mars föstud. 3.sýn kl. 20:00
24.mars laugard. 4.sýn kl. 20:00