Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 84

Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 84
Ég hitti einu sinni konu frá El Salvador. Hún sagði mér að landið væri sannkölluð matar- kista en samt væri eymd og fá- tækt landlæg þar, sem ætti að vera algjör óþarfi. Vegna frí- verslunarsamnings Ameríku- ríkja væri hins vegar nánast allur matur fluttur úr landinu til Bandaríkjanna þar sem landeig- endur fá betra verð fyrir hann. Í Bandaríkjunum hefur þessi sami samningur víst komið fjölda smá- bænda á vonarvöl vegna þess að þeir geta ekki keppt við ódýra, innflutta matvöru. Ég efast ekki um að þessi viðskipti hafi bætt kjör margra í báðum löndunum. Á hvorugum staðnum hafa þau þó bætt kjör þeirra bágstödd- ustu. er ekki andvígur verslunar- frelsi. Hins vegar ber að líta til þess að um þessar mundir eiga sér stað víðtækar þjóðfélags- breytingar víða um heim í kjöl- far breyttra viðskiptahátta. Því miður stuðla þær ekki allar að auknum jöfnuði og betri lífsskil- yrðum fyrir þorra fólks. Reyndar er þróunin sorglega víða einmitt þveröfug. Af þessum sökum hafa mannréttindasamtök í síaukn- um mæli beint sjónum sínum að víðtæku félagslegu og efnahags- legu óréttlæti í ríkjum sem að öðru leyti kenna sig við frelsi og lýðræði, í stað þess að einskorða sig við réttindi samviskufanga og augljós og skipulögð mannrétt- indabrot ýmissa vopnaðra hópa og harðstjóra, sem þó er líka full þörf á. áherslur voru nýlega gerðar tortryggilegar í grein í The Economist sem fjallað var um í Morgunblaðinu. Þar eru mannrétt- indasamtök sögð á villigötum, þau séu farin að skipta sér af stjórn- skipan og verslun sem eigi ekki að vera í verkahring þeirra. Þá átta menn sig ekki á þeirri einföldu staðreynd að stjórnkerfi sem neyð- ir örbirgð upp á þegna sína brýtur á þeim grundvallarmannréttindi, sama hve mikið viðskiptafrelsi og lýðræði ríkir þar að nafninu til. Fá- tækt hneppir fólk í fjötra. Mandela sagði: „Fá- tækt er eins og þrælahald og aðskilnaðarstefna að því leyti að hún er ekki náttúrulögmál. Hún er af manna völdum og það er í mannlegu valdi að þurrka hana út. Að eyða fátækt er ekki gustuka- verk, heldur er það liður í að verja grundvallarmannréttindi; réttinn til mannlegrar reisnar og boðlegs lífs.“ Fátækt er ekki lögmál Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alladaga - Lifið heil

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.