Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 14
R
eyklaust kaffihús
er óheppilegur við-
talsstaður. Sérstak-
lega á góðviðrisdegi
á Laugaveginum.
Mæður með barna-
vagna í eftirdragi og hávaðinn
eins og fuglabjarg, allt stappað og
til að ná borði þarf að standa eins
og hrægammur yfir fólki sem er
hugsanlega að klæða sig í vettling-
ana sína. Af tillitssemi við Þorstein
var beiðni hans þó tekin til greina
og beðið þess sem koma skyldi.
Brynja Björk hafði aldrei komið
inn á Kaffitár og horfði undrandi í
kringum sig á mergðina sem þarna
sveiflaði ungbörnum á milli sín
með snuð í munni meðan hrært var
í kaffi latte með tánni. Þorsteinn
er fjögurra barna faðir og því vel
kunnugur aðstæðum þarna inni en
Brynja Björk á kött.
Þrátt fyrir ólíkar fjölskyldu-
aðstæður eiga þau þó það sam-
eiginlegt að hafa bæði alist upp í
Fossvoginum og um æðar þeirra
rennur íslenskt blóð. En hvernig
kemur hinn venjulegi Íslendingur
þeim fyrir sjónir?
Brynja: Ég er orðin þreytt á þeim
klisjukennda Íslendingi sem sýnd-
ur er í bíómyndum, skáldskap og
auglýsingum frá flugfélögum. Ég
held að Íslendingar séu talsvert
siðmenntaðari en sá náungi. Við
erum ekki alltaf full, alltaf með
læti og vesen eða berserkir.
Þorsteinn: Ég er svolítið sammála
þessu. Ég geri mikið af því að fara
og hitta Íslendinga í alls konar
ástandi þegar ég er að skemmta.
Það er undantekning ef eitthvað
kemur upp á. Fólkið fylgist vel
með öllu, er vel upplýst og mennt-
að og hefur húmor. Íslendingar
fá bara ansi háa einkunn hjá mér.
Þetta er góð þjóð. Það eina sem
kannski er, er að það er svolít-
ið þungt yfir sumum, þeir mættu
vera glaðari.
Brynja: Mig hefur einmitt alltaf
langað til að vera þessi harðgeri
Íslendingur sem getur farið út í 10
stiga frosti og hengt upp jólaseríu.
En ég er frekar mikil veimiltíta og
þegar ég er erlendis trúir því eng-
inn að ég sé frá Íslandi.
Þorsteinn: Það er stórskrítið og
ógeðslega leiðinlegt að vera í þess-
um kulda og myrkri lengi. Ömur-
legt að komast ekki út og krakk-
arnir geta ekki leikið sér nema
í geimverubúningum. Ég er líka
veimiltíta.
Telja þau það veimiltítuhátt að
fárast yfir því að Spaugstofan not-
aði nýverið þjóðsönginn til að gera
grín og að ung stelpa sneið sér bik-
iní úr þjóðfánanum?
Þorsteinn: Mér finnst þetta allt
í lagi og gott mál að fólk taki sig
ekki of hátíðlega. Hins vegar var
þjóðin sett á lista yfir stríðandi
þjóðir í Írak og mér finnst það
vera meiri glæpur en brjóstahald-
arar.
Brynja: Ég er svo mikill þjóðernis-
sinni að fánalögin skipta mig miklu
máli. Ég var meira fúl yfir bikin-
ínu en þjóðsöngnum. Þetta er bara
uppeldið, maður mátti ekki missa
17. júní fáninn einu sinni í gólfið
þannig að mér krossbrá þegar ég
sá appelsínugula stelpu töltandi
um á bikiníi úr þjóðfánanum í feg-
urðarsamkeppni.
Nú er einmitt tími þeirra
keppna, fegurðarsamkeppna, að
fara að renna upp. Eruð þið á móti
þessum keppnum?
Brynja: Ég leit alltaf mjög upp til
þessara stúlkna hér áður. Þetta
var allt svo stórkostlegt og þær
svo fínar og sætar, sprangandi um
í kjólunum sínum. Svo fór glans-
inn af þessu þegar maður frétti að
sumar hverjar voru með ónýtan
glerjung og vélinda eftir átrask-
anir. Það er engin spurning að
þessar keppnir hafa áhrif á ungar
stelpur og ekki viljum við að heit-
asta ósk tólf ára dætra okkar sé að
vera með rakaðar lappir og brún-
an húðlit. Þetta meikaði allt í einu
engan sens lengur eftir að maður
vitkaðist. Það er auðvitað líka
stórundarleg og úrelt hugmynd að
hægt sé að keppa í fegurð.
Þorsteinn: Málið er .... “ (Þorsteinn
er truflaður í miðri fegurðarsam-
kepnisumræðu þar sem Helga
Braga dúkkar upp með hausinn
yfir borðinu, horfir djúpt í augun
á Brynju og blaðamanni og hvísl-
ar: „Passið ykkur á honum, hann
er ógeðslegur perri. Ég vildi bara
koma þessu að.“ Svo kemur hún
sér fyrir á næsta borði með ferða-
tölvu og hafa skal í huga að það
sem eftir lifir viðtals eru svör Þor-
steins lituð af þrúgandi nærveru
leikkonunnar.)
Þorsteinn: Já, hvar var ég. Það
sem ég vildi segja er að þetta er
í höndum kvenna. Það eru konur
sem taka þátt í þessu, konur sem
reka keppnirnar, konur sem horfa
á þær. Það er hreinlega ímyndun
að það sé pressa frá karlmönnum
að þessar keppnir haldi áfram.
Brynja: Ég þekki ekki einn ein-
asta karlmann sem horfir gríðar-
spenntur á Ungfrú Ísland.
En þekkið þið marga fræga?
Heilsið þið mörgu frægu fólki og
hverjum þykir ykkur merkilegast
að heilsa?
Þorsteinn: Ég þekki svolítið margt
frægt fólk út af vinnunni og ég
heilsa mörgum frægum og það
eru fáir sem heilsa ekki á móti.
Ég á nokkra vini sem eru þekkt-
ir á Íslandi og er stoltur af að
heilsa þeim. Allra stoltastur er ég
af Helgu Brögu. Hún er greind og
skemmtileg og með stórt hjarta
(innskot blm: og hún situr á næsta
borði). Ég hefði að vísu sagt Helga
Braga þótt hún sæti ekki þarna.
Brynja: Ég myndi segja að Björg-
vin Halldórsson væri mesti töffar-
inn sem ég hef heilsað. Hann er sá
eini sem ég hef fengið gæsahúð við
að taka í höndina á. Eðli máls sam-
kvæmt þekki ég mikið af frægu
fólki, starfandi sem blaðamaður.
En það er eitt sem mér finnst svo-
lítið fyndið og það er það að fræg-
ir heilsa frægum. Það er svolít-
ið eins og frægir séu í risastór-
um klúbbi. Að þú sért kominn inn í
einhverja klíku. Það virðist aldrei
neinn þora að tala um það þannig
að ég ætla að opna umræðuna um
þetta núna. Vinur minn sem er
þekktur tónlistarmaður var eitt
sinn með mér á skemmtistað þar
sem var samankominn nokkur
fjöldi þekktra einstaklinga. Þar
heilsaði mér þekkt söngkona sem
ég hafði aldrei talað við á ævinni
og ég horfði á vin minn eins og eitt
spurningarmerki í framan. „Þetta
er svona frægur heilsar frægum.
Nú ertu komin í klíkuna,“ sagði
hann og ég skellti bara uppúr, mér
fannst þetta svo fyndið.
Þorsteinn: Þetta er svona eins og
Brynja lýsir. Sigurjón Kjartans
lýsti þessu mjög vel þegar ég var
að byrja að vinna með honum og
spurði hann hvernig það væri að
vera frægur. Hann sagði að það
væri svolítið eins og að búa á Ísa-
firði. Það vita allir hver þú ert,
kinka kolli til þín og það er allt
fínt. Það reyndist rétt hjá honum.
Annars fer ég lítið út að skemmta
mér, því fólk á það til að breytast í
glasi. En annars er það auðvelt að
vera frægur á Íslandi.
Ef það er auðvelt að vera fræg-
ur – hvernig halda þau að það sé að
vera ríkur? Nú eru skattframtölin
nýfarin úr húsum eða af netinu og
brátt kemur í ljós hverjir það eru
Eigum besta ríka fólk í heimi
Þorsteinn Guðmunds-
son segir að flestir
þeir frægu sem hann
heilsi heilsi sér til baka.
Brynja Björk Garðars-
dóttir segir Björgvin
Halldórsson vera merki-
legasta fræga einstakl-
ing sem hún hafi hitt.
Júlía Margrét Alexanders-
dóttir hitti þau skötuhjú
á reyklausu kafxfihúsi
sem Þorsteinn heimtaði
undir viðtalið og beitti
þar nýbura í barnavagni
fyrir sig.