Tíminn - 05.02.1980, Blaðsíða 10

Tíminn - 05.02.1980, Blaðsíða 10
Þr iðjudagur 5. febrúar 1980. 10 fffll yii M ....__ _ \S w isti 111 %S M wm • fiBflfc ’IWMwwlflp w ®W ao osrar vliff %raar VlnMb AVI ■-'WB kilo en hann er likahollur því að í honum eru öll næringarefni mjólkurinnar og flest í mun ríkara mæli. Próteiniö- iúlikanu Daglegur skammtur af því er nauðsyn- legur til uppbyggingar og viðhalds frumum líkamans. Ostur er mun pró- teinríkari en t. d. kjöt eða fiskur. Dagleg þörf af próteini er áætluð um 45—65 g en í 100 g af osti eru 27—32 g af próteini. Mjólkurostur er besti kalkgjafinn í venjulegu fæði. En kalkið á mestan þátt í myndun og viðhaldi tanna og beina. Af því þurfa börnin mikið og allir eitthvað. Auk þess er í osti sem gerir ostinn gó steinefna ogvitamina sem auka orku og létta lund Já hað er fleira en bragðið lóoan. Guðmundur P. Valgeirsson: Fréttabréf úr Árneshreppi Fyrir nokkrum dögum brá Ómar Ragnarsson fréttamaöur Sjónvarpsins sér hingaö noröur i Arneshrepp á farkosti sinum i öflun frétta. Úr fátæklegum upp- lýsingum, fengnum hér, hefur hann unniö góöan fréttaþátt um hagi okkar Arneshreppsbiía, lýst heyverkunaraöferöum okkar og skilyröum til heyverkunar á skil- merkilegan hátt, svo sem hans var von og visa.. Skal honum hér meö færöar þakkir fyrir þaö og alla fréttamennsku hans fyrir þann f jölmiöil, sem hann starfar viö. Þaö er samdóma álit manna, aö hann skeri sig úr sem góöur fréttamaöur, ekki sist þegar um er aö ræöa fréttir utan af lands- byggöinni og högum bænda. Þaö er ekki ætlun min aö bæta um þaö, sem fram kom I þessum þáttum ómars. Þó vil ég vekja athygli á, aö ef til vill gæti þaö sem hann sagöi um kostnaöarhliö votheys verkunar valdiö ein- hverjum misskilningi. — Fyrir þá, sem hafa komiö sér upp full- kominni aöstööu til þurrheys verk- unar má segja, aö mikiö kosti aö fara yfir i votheysverkun, þar sem þurheyshlööur munu henta illa til votheysverkunar og hirö- ingar i þær svo og viö fóörun á vetrum, og votheysverkun út- heimti þar aörar og kostnaöar- samar byggingar. — Fyrir þá, sem eiga óuppbyggöar hlööur og peningshús, er votheysverkunin liklege ódýrasta uppbyggingin þegar tekiö er tillit til véla og tækja, sem nauösynleg eru viö þá heyverkun. Lærdóm um þaö er auövelt aö fá hjá ráöunautum og ekki sist bændum I Stranda- sýslu, sem hafa náö miklum hraöa i heyskap sinum meö til- tölulega litlum tækjakosti, Auk þess sem félagsskapur og sam- hjálp gæti stórlega dregiö úr þeim tækjakosti, sem til þarf, og dæmi hafa veriö birt um. Til viö- bótar þvi sem fram kom I þess- um þáttum ætla ég nú aö auka nokkru viö, aö þvi er tiöarfar og afkomu okkar varöar á sl. ári. Margt hefur veriö sagt og skrifaö um afleiöingar hins kalda veöurfars s.l. vors og sumars og þaö tjón, sem þaö hefur valdiö bændastétt landsins. Þó munu ekki öllkurlkomin þar til grafar. — öllum er ljóst hvaöa áhrif þaö haföi á gróöur, grassprettu fram eftir öllu sumri og heyfeng lands- manna þó dálitiö hafi þaö komiö misjafnt niöur eftir landshlutum svo sem eölilegt er, því sjaldan er sama veöurfar ríkjandi um land allt degi lengur. Hér I Arneshreppi, sem veröur aö teljast ein kaldasta sveit landsins, kom þetta glöggt fram. Vorgróöurbrástmeööllu svo ekki var hagi fyrir sauöfé fyrr en kom fram yfir miöjan júlí og tæp- lega þá. Kýr fengu ekki fylli sina á úthaga fyrr en upp úr mánaöa- mótum júll-ágúst. Ær geltust, lömb sultu og fjöldi áa eyöilögö- ust af júgurskemmdum. Tún spruttu ekki vegna kuldanna fyrr en kom fram yfir k>k júli mánaöar þvi samfara kuldanepj- unni og næturfrostum var þurr- viörasamt seinni hluta júli. Fram úr mánaöamótunum fór aö væta nokkuö. Tóku tún þá aö spretta og spruttu meö ólikindum frá 8. ágúst fram yfir þann 20. svo viöa var ö gott gr as á túnum, og meir a en nokkur gat vænst i sllku tiöar- fari. Margir báru riflegri áburöarskammta á túnin vegna hins kalda veöurfars, minnugir ráöleggingarPáls Bergþórssonar veöurfræöings, og kom þaö nú aö gagni. Ef ekki heföi notiö viö gnægö fóöurbætis fyrir búfé franr eftir sumri og áburöar I jafn rik- um mæli og nú er, þá heföi oröiö stór fellir á fé og heyfengur sára litill eöa nær enginn. Astandiö heiöi þá oröiö likt og var sumariö 1882, eftir þvi sem elstu menn sögöu frá. Þá liföu aöeins 3 lömb til hausts á einu f járflesta búi hér i sveit, Ófeigsfiröi, og þau sem liföu annarsstaöar voru vart æt. (Þetta var innskot). — Eins og áöur sagöi spruttu tún meö ólik- indum þó seint væri, svo gras af þeim varö1 mun meira en sumariö áöur. En þá varmikiö kal i túnum hér, en ekki nú þrátt fyrir mun kaldara veöurfar. Eins og kom fram i fréttpm Ómars Ragnarssonar gekk hey- skapur vel i ágústmánuöi eftir aö byrjaö var. Voru nokkrir bændur búnir aö ljúka heyskap upp úr mánaöamótum ág.-sept. — En tún hér eru misjafnlega fljót unn- in vegna legu sinnar og annarra hluta. Þvi voru nokkrir, sem áttu nokkuö óheyjaö þegar tiö spilltist aftur nokkru eftir þau mánaöa- mót. Gekk seint og illa aö ljúka þvi vegna stööugra rigninga og snjókomu. En þvi var þó lokiö fyrir göngur. Finnbogastaöir i Trékyllisvik. 1 sliku vatnsveöri er nær óger- legt aö heyja þó i vothey sé. Bæöi er aö þaö hey veröur aldrei gott fóöur, þó gefiö sé, og auk þess sem mýrlend tún fara illa á allri umferö og eru nær ófær yfir- feröar. Hér hafa bændur ekKi notaö maurasýru viö votheysverun sina þó hún sé talin til mikilla bóta einkum i blautt gras. Bæöi er, aö óþægilegt er aö eiga viö Iblöndun hennar I heyiö svo vel sé og svo hitt, aö hUn er svo rándýr aö bændur kinoka sér viö notkun hennar. Sagteraö maurasýran sé I háum verötolli og þaö ráöi miklu um verö hennar. Þaö virö- ist fyllilega sanngjarnt aö tollar af henni til heyverkunar veröi felldir niöur svo verö hennar yröi aögengilegra til aö tryggja góöa heyverkun. Þaö gæti fylli- lega jafnast upp gæöum heyja og þar meö sparnaöi i fóöurbætis gjöf og bættu heilsufari búfjár. A s.l. vori var nokkuö rætt um þann kostnaöarauka, sem bændur uröu fyrir I auknum gjafatima og gróöurleysi og reiknaöur Ur kostnaöur viö þaö. Ég benti þá á þaö i Tfmanum, aö sá kostnaöur mundi naumast reynast nema brot af þvl tjóni bænda, sem tiöarfariö skapaöi. Þetta hefur lika ásannast. Má i þvl sambandi nefna minni fallþunga dilka um allt land, vanhöld á fullorönu fé og lömbum, svo sem dæmi hafa veriö nefnd til á N.A. landi og viöar. — Til viöbótar þvi sem fram hefur komiö ætla ég aö segja hvernig þetta hefur komiö viö okkur bændur i Arneshreppi. Ráöunautur Búnaöarfélags is- lands hafa nú reiknaö út skýrslur Sauöfjárræktarfélagsins VON i Arneshreppi. 1 félaginu eru 15 félagsmennmeö 1.934 skráöar ær Ifélaginu. Þar kemur fram, aö nú i haust skilar hver ær I félaginu 5,2 kg minna af kjöti en i fyrra. Nú er taliö aö hvert kg kjöts eigi aö skila bóndanum 1.850 kr. þegar meöertalingæraog slátur. Miöaö viö afuröir ársins 1978 nemur þetta 9.620.-kr.. minni tekjum eftir hverja vetrarfóöraöa á. Samkvæmt þessum tölum nemur tjón þessara fáu bænda samtals kr. 18.605.000,-. Þetta dæmi talar skýru máli um þá erfiöleika og afuröatjón sem þetta kalda tiöarfar hefur valdiö til viöbótar þeim aukna kostnaöi I fóörun og fyrirhöfn. Hver og einn getur svo reiknaö dæmiö fýrir sig og sitt samfélag. Þrátt fyrir þessi augljósu sann- indi eru til menn og flokkar, sem vilja nota tækifæriö og þrengja kost bænda enn meir en oröiö er. Þvilik alþýöu- og jafnaöarstefna! — Slikt væri opinber aögerö til aö svelta bændur og flæma þá frá búum sinum! —Þá opnuöust inn- flytjendum leiö til aö flytja inn frá öörum löndum matvælimeö þeim gæöastimpli, sem eitt dagblaö- anna (Visir?) geröi aö umtalsefni i morgun (30/1). Frá þvi um miöjan des. s.l. hefur tíöarfar veriö hagstætt hér á Ströndum. Löngum hægviöri og úrkomulaust aö kalla. All mikil svell voru sest á tún og láglendi um miöjan des. og þau oröin áhyggjuefni vegna kalhættu. En þann 20. des. geröi afspyrnu sunnan rok meö asa hláku. A einni nóttu leysti þvi nær allan snjó upp i hálendi og svell af tún- um. Slöan hefur ekki snjóaö svo heitiö geti, vegir veriö færir um mestan hluta sveitarinnar, og um tima var akfært til Djúpuvikur. Er þaö þó afar sjaldgæft á þess- um tlma árs. Yfir jólin og framyfir áramót voru veöur hin fegurstu og snjó- laust, eins og áöur sagöi. A Gamlaársdag og kvöld var svo bjart yfir aö flugeidar á Skaga- strönd sáust greinilega hérna noröan Húnaflóa. — Frá áramót- um hefur veöur haldist aö mestu óbreytt. Þó geröi stormakafla fyrir rúmri viku, sem nú er gengin niöur. Aöeins snjóföl á jörö.en svell hafa myndastá tún- um ogvlöar. Þráttfyrir sæmilegt veöurfar og snjóleysi er allur fénaöur á fullri gjöf. Um vetrar- beit er ekki talaö lengur. Hér er allsstaöar mannheilt og heilsufar sæmilegt. Fámennt á flestum heimilum. Allt laust fólk á skólum og I atvinnu utan sveitar. Bæ,30. janúar 1980, Guömundur P. Valgeirsson. Enduvskinsmerki á allurhílhiirðw

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.