Tíminn - 06.02.1980, Blaðsíða 5

Tíminn - 06.02.1980, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 6. febrúar 1980 5 Siii'lil" Miðstjómarfundur SUF: Stefnuraótun í fjðlskyldupólitfk i brennidepli á næstu árum HEI— „Sú óvissa sem rikt hef- ur i pólitikinni setti mark sitt á þennan miðstjórnarfund SUF sem haldinn var s.l. laugar- dag”, sagði Eirikur Tómasson formaður SUF i gær. Hann sagöi að þessvegna hefði ekki þótt rétt að gera neina ákveðna ályktun að svo stöddu. En afstaða manna til þess stjórnarsamstarfs sem nú er mest rætt hafi hinsvegar komið ljóslega fram hjá fundarmönn- um. Allir hafi verið á þvi máli að ganga ætti til samstarfs við Dr. Gunnar Thoroddsen og Al- þýðubandalagið. Eirikur sagði mikla bjartsýni hafa komið fram hjá ungum framsóknarmönnum á fundin- um. Menn teldu að efla ætti flokksstarfið i kjölfar kosninga- sigursins i desember. Rætt hafi Eirlkur Tómasson, form. SUF. verið um að ungir framsóknar- menn tækju forystu i stefnumót- um I ýmsum mikilvægum mála- flokkum. Flokkurinn þyrfti t.d. að mynda sér einarðari stefnu I málum eins og stjórnarskrár- málinu, sem nú hlyti að koma á dagskrá fljótlega. Þvi hefði ver- ið ákveðið að efna til fundar með svokölluðu hugarflugssniði um stjórnarskrána seinna i vet- ur. Þá væri fyrirhuguð ráðstefna um stóriðju, sem halda ætti á Akranesi um miðjan mars n.k. Þar yrði unnið að stefnumótum i þeim málaflokki sem hlyti að verða mjög til umræðu á næst- unni. Einnig hefði verið samþykkt að efna til ráðstefnu um hlut- verk fjölskyldunnar i nútima þjóöfélagi, i vor. Þó að það mál væri kannski ekki i brenni- depli akkúrat nú, þá álitu ungir framsóknarmenn að það hljóti, áður en liður, að verða eitt aðal- málið i islenskum stjórnmálum á næstu árum og áratugum, hvernig þjóðfélagið bregst við I nýjum viðhorfum I atvinnumál- um, t.d. þeim að sifellt fleiri konur hópuðust út á vinnumark- aðinn, öfluðu sér betri menntun- ar og annarrar stöðu i þjóð- félaginu yfirleitt. Þar með hlytu hlutverk innan fjölskyldunnar að breytast. Ungir framsökn- armenn teldu þvi timabært að fara að lita til framtiðarinnar og móta stefnu um fjölskyldupóli- tik. Þarna kæmi til athugunar styttur og breyttur vinnutlmi, virkara jafnrétti kynjanna en er i dag, breyttur skóli, breyttar dagvistarstofnanir, spurningin um að styrkja foreldra til að vera heima hjá sinum börnum og margt fleira I þessu sam- bandi. límið sem límir alltaðþví allt! FÆST I BYGGINGA- OG JÁRN- VÚRUVERSLUNUM UM LAND ALLT. HEILDSÚLUBIRGÐIR: XÆKNIMIÐSTÖDIN HF S. 76600 Munið árshátið félagsins i Hreyfilshúsinu við Grensásveg föstudaginn 8. febrúar. Miðasala og upplýsingar á staðnum, eftir kl. 15 árshátiðardaginn simi 85520. Páll Eirlksson geðlæknir hjá einu af verkum myndhóps. Tfmamynd G.E. Geðdeild Borgarsjúkrahússins: Tengslin við fjölskylduna oglífið nauðsynleg — ýmsir byrjunaröröugleikar dagdeildarinnar að baki „Dagdeildin hér á Hvitaband- inu Skólavörðustig 37 býöur upp á fjölbreytta meðferð geðsjúkl- inga,” sagöi Páll Eiriksson geð- læknir i samtali við Timann er við hittum hann i húsnæði dagdeild- arinnar. „Deildin var stofnuö I nóv. 1979 og fram að áramótum hafa 55 sjúklingar komið I 250 við- töl á deildina, en þetta er skipu- lagt sem hver önnur vinna, menn koma á morgnana og fara siðdeg- is, og geta þvi eytt miklum tima með fjölskyldu sinni og haldið tengslum við daglega lifið. En þessi tengsl eru eitt mikilvægasta atriöi I starfsemi deildar sem þessarar.” „Hér stendur geðsjúklingum margs konar félagsleg þjálfun til boða, en það má ekki lita á þetta sem sjúkrahús. Viö vinnum þvert á móti gegn þvl aö fólk I meðferö hjá okkurverði aðkrón- iskum sjúklingum eins og algengt er, ef þeim er komiö eins og pakka á sjúkrahús og verða að vera þar I langan tima.” I dag eru tveir sjúklingahópar starfandi innan Dagdeildarinnar og er stefnt að þvi að þeir verði þrir þegar fram liöur og starfslið- ið verður fullskipað. En þrátt fyrir að ýmislegt vanti enn hvað starfskraft og starfssviö snertir má samt sem áður segja að nýtt blað sé brotið i sögu geð- lækninga á íslandi við tilkomu þessarar geðdeildar. Má þegar sjá árgangur af starfseminni. Við höfum trú á aö þessi starf- semi bjóði upp á marga meöferö- armöguleika sem frekar tryggi Landsspilda, Sumarbústaður eða bújörð óskast til kaups í nágrenni höfuðborgarinnar. Upp- lýsingar i simum 27055 (vinnusimi) og 27001. það, að einstaklingurinn fái þá meöferð sem honum hæfir best, hvort sem þaö er einstaklings- meöferð, hópmeðferð eða fjöl- skyldumeðferð. Auglýsið í Tímanum WESTFALIA MIALTAKERFI WESTFALIA mjaltakerfi eru mest seldu mjaltakerfi í Þýskalandi og víðar um lönd. WESTFALIA mjaltakerfum er viðbrugðið fyrir gæði. WESTFALIA mjaltakerfi eru nú í notkun víða um land og hafa þegar sannað ágæti sitt við íslenskar aðstæður. WESTFALIA mjaltabásar og kælitankar eru einnig á boðstólum. Getum að jafnaði afgreitt kerfi með stuttum fyrirvara. Góð varahlutaþjónusta. Komið, hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum. FALKIN N SUOURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.