Tíminn - 06.02.1980, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.02.1980, Blaðsíða 8
8 Mi&vikudagur 6. febrúar 1980 Jónas Guðmundsson MYNDLIST i austursal Kjarvalsstaða, stendur sýning á verkum meistarans. Viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, og smám saman læðist sá grunur i brjóstið á okkur, hvort svona löng og niðurnegld sýning sé þessum ævintýramanni is- lenskrar myndlistar ekki ofviöa? t Finnagaldri, afganskri inn- rás Rússa i Finnland rétt fyrir heimsstyrjöldina sföari, greip ,islenska útvarpið til þess ráðs 'aö spila Finnlandiu Sibeliusar upp á hvern dag og hið mikla hljómverk var byrjað aö gefa sig á saumunum, rétt i þann mund er Finnar voru neyddir til landaafsals. Hiö beinsterka tónverk þoldi ekki daglegan söng. Eitthvað á þessa leið hugsar maður um Kjarval núna, hvort veriö sé þarna að eyöileggja fögnuð, afmá yndi, eða faðma sorg sem ekki er lengur til? Og máliö snýst ekki einu sinni um það hvort eða hver er snillingur, heldur hversu reyna má á þolin- mæöi almennings út af einum og sömu myndum. Að visu má segja sem svo, aö annað gildi um þá sem eru eins og gráir kettir i listasölum höfuöborgarinnar. Annað mál gildi um þá sem koma sjaldan. Nauösynlegt sé aö hafa þessa sýningu handa grunnskólunum, handa sveitamönnum sem koma i bæinn og handa útlend- ingum, sem vilja sjá munaö þessarar borgar á einum stað. En hvaö um það. Þessi sýning eraöminumati að geraútaf við vissan þátt I ævi hins mikla málara. Þaö má benda á, að myndirn- ar á Kjai;valsstöðum eru I eigu Reykjavikurborgar, og þótt þar séu margir dýrgripir, er það einnig ljóst að margar af bestu myndum Kjarvals vantar þarna: þannig séö, er meistar- inn sýndur talsvert undir raun- verulegum styrkleika sinum, vægast sagt. Hver var Kjarval? — Hver var Kjarval? Þetta kann aö þykja einkenni- leg spurning, en við skulum þá i leiðinni gera okkur grein fyrir þvi, að hann tilheyrir ákveöinni kynslóö. Kjarval var fæddur áriö 1885 og hann andaöist árið 1972. Nýjar kynslóðir eru aö vaxa úr grasi, og þær þekkja ekki þann Kjarval er við á miöjum aldri þekktum, persónulega eða sem frægan mann i landinu og þjóösögu i senn. Kjarval setti svip á samtiö sina. Það gerði hann meö töfr- andihætti. Allir voru jafningjar hans, jafningjar hins mikla snillings með barnshjartað. Reykjavikurborg kýs þó aö kynna llfsverk hans meö þess- um einfalda hætti, aö hafa stöð- uga sýningu á sömu myndunum ánafláts, en aðrir þættir viröast gleymast. Það gegnir nefnilega öðru máli, þegar myndir eftir menn hanga á listasafni, innan um aragrúa mynda. Þá vita allir aö veriö er fyrst og fremst að gera myndlistinni skil. Maðurinn bak viö mydina er að öðru leyti ekki kynntur. Þetta er staöreynd, sem allir vita, og þeir fara á listasöfn til að sjá myndir, þar með búiö. Kjarvalsstaöir eru á hinn bóg- inn stofnun, er kennir sig viö einn ákveðinn mann, og þaö er hrein fölsun aö halda þvi aö inn- lendu fólki ( sem ekki veit sögu hans) og útlendingum, aö Kjar- val hafi aöeins málað myndir, en það litur svo út, ef öörum þáttum eru el.ki gerð mikil skil i sömu andrá. Við getum nefnt margt: Til dæmis var Kjarval skáld. Hann gaf út smábækur: Grjót (1930), Meira grjót (1937), Fornmannasaga. Enn grjót (1938) Einn þáttur. Leikur (1938). Ljóðagrjót (1956). Hvalasagan frá átján hundruö nitiu og sjö (1956) (2. Útg. 1957). Fleira gaf hann út. Meira að minningunni skil Fáein orð um Kjarval segja listatimarit, sem ég man nú ekki i svipinn hvað hét. Þá ritaði hann mikið i blöð og ýmsir hafa gefiö út bækur um Kjarval og veriö er aö vinna aö miklu riti um hann, þar sem fjallsjóir af heimildum koma fram,þvimiklu af bréfum og handritum hefur verið til skila haldið, það er þvi liklegt að ævi hans veröi gerð itarleg skil i bók innan tiöar. Þaö er mikil sorg fyrir land aö missa hæfan listamann, lika fyrir borgir og bæi, er glata við það töfrum. En minningarvinna er vandasamt verk. Og þótt það sé góðra gjalda vert að sumu leyti aö láta myndir hanga uppi árum saman, þá má ekki gleyma þvi aö þarna er aðeins veriö að gera skil litlu broti af mikilli sögu Kjarvals.listasögu og skáldsögu 1 senn. Breytum til Ef meiningin er að koma mynd af þessum manni, eða Kjarval, til.skila meö þessum hætti, erum við á rangri leið. Niðurneglda sýningin mun rlða honum að fullu, fyrr eða siöar. En hvaö á þá til bragðs að taka? kunna menn að spyrja. Ég held að vænlegast væri að hafa sýninguna heldur minni, og breyta ofurlitiö til. Með sam- vinnu við önnur söfn og ein- staklinga mætti skapa nægjan- lega tilbreytingu og sýna fleiri hliöar á málverki Kjarvals en nú er gert. Nefni ég sem dæmi þá hrifandi stund er Frimúrara- reglan lánaði Haustveöur á Skagaströnd á Kjarvalsstaði, ógleymanlegt málverk. Þannig eru viða dýrgripir a næstu grösum eftir Kjarval. Þá mætti einnig hafa til sýnis ritverk Kjarvals, og þær bækur er um hann er ritað I. Málverka- bækur og annaö. Þaö er til dæmis mikill fengur aö ljósmyndum Rafns Hafnfjörð núna, er hann tók af vinnustofu Kjarvals um það leyti er Kjar- val hætti að mála. Þetta eru fallegar myndir og ógleymanleg heimild lika. Ekki þar( t.d. annaö en aö sjá hvaö á veggjunum hangir, hjá listamanninum, hvað vakti eftirtekt þessa manns, á sinum tlma, svo dæmi séu nefnd. Þá ætti aö hafa á staönum eitt- hvað af merkilegum greinum er Kjarval ritaöi i blöð. Þetta voru oft stuttir en innblásnir pistlar um margvíslegustu efni, og svo mætti sýna eitthvað af þeim aragrúa ljósmynda, sem teknar hafa veriö af Kjarval og varö- veittar hafa veriö. Þóra Kristjánsdóttir, fram- kvæmdastjóri listráðs Kjar- valsstaða, hefur sagt mér, að til standi að nota Austursalinn til aösyngja I og jafnvel dansa, og Hugarkvöl. til að halda þar litla tónleika. Myndirnar veröa samt áfram uppi. Þetta list mér lika vel á. því öll nýbreytni dregur úr þvl máttleysi og dvala er nú er yfir salnum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.