Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 1

Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 1
Sextíu milljarðar | Novator, fjár- festingafélag Björgólfs Thors, átti 85 prósenta hlut í búlgarska síma- félaginu BTC sem gengið var frá sölu á í síðustu viku. Söluhagnað- ur Novators nam 55 til 60 milljörð- um króna. Óheimilt samstarf | FME skorar á FL Group og tengda aðila í Glitni að sækja um heimild fyrir aukn- um virkum eignahlut. Um 45 pró- sent hlutafjár eru í höndum FL og tengdra aðila. FL Group er ósam- mála FME. Ágæt starfslok | Bjarni Ár- mannsson hagnaðist um 564 millj- ónir króna þegar Glitnir keypti eigin hlutabréf af félögum hans, Landsýn og Sjávarsýn, sama dag og hann lét af störfum sem for- stjóri Glitnis. Ekkert Merck | Actavis hefur dregið sig út úr slagnum um sam- heitalyfjahluta þýska lyfjafyrir- tækisins Merck. Vænt söluverð var hærra en stjórnendur töldu skynsamlegt. Lyfjafyrirtækin Teva og Merck standa eftir. Gott uppgjör | Landsbankinn hagnaðist um 13.760 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi. Arð- semi eigin fjár var 45,2 prósent. Uppgjörið var vel yfir meðaltals- spá bankanna upp á 11.215 millj- ónir króna. Össur tapar | Össur skilaði 2,7 milljóna Bandaríkjadala tapi á fyrsta fjórðungi þessa árs. Það jafngildir um 184 milljónum króna. Á sama tímabili í fyrra nam hagn- aðurinn 571 þúsund dala. Frönsk kaup | Bakkavör Group hefur keypt franska salatfram- leiðandann 4G sem sérhæfir sig í framleiðslu á ferskum tilbúnum salötum fyrir franskan markað. Kaupverð fyrirtækisins var ekki gefið upp. NBA Rekstrarlögmálin gilda ekki alltaf 13 Sparisjóðirnir Í sjöunda himni 6 Sögurnar... tölurnar... fólkið... F R É T T I R V I K U N N A R Í aðdraganda alþingiskosninga Formenn flokkanna hlutgerðir 8-9 Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Íslensk NýOrka vinnur nú að undirbúningi þess að setja vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátinn Eldingu við Reykjavíkurhöfn og gera tilraunir með hana á hafi úti á sjómannadaginn á næsta ári. Heildar- kostnaður nemur um 40 milljónum króna. Hönnunin er að öllu leyti íslensk að því undanskildu að efna- rafallinn er keyptur erlendis frá. Að verkefninu kemur fjöldi innlendra fyrirtækja auk nemenda við Listaháskólann en þeir hanna sýningarrými í Eld- inguna. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Ný- Orku, telur þetta vera í fyrsta sinn í veröldinni sem gerðar hafi verið tilraunir með efnarafal á sjó. Vetnisljósavélin er næsta skref NýOrku á sviði vetnisvéla í samgöngutækjum og segir Jón að velheppnað tilraunaverkefni NýOrku með notkun vetnisstrætisvagna í Reykjavík síðastliðin þrjú ár hafi rutt brautina fyrir því að fleiri aðilar koma til samstarfsins nú en áður. „Þetta hefði ekki hvarflað að mörgum áður,“ segir hann. Nokkrum vandkvæðum er bundið að setja vetnisvél um borð í báta og segir Jón að til öryggis hafi verið ákveðið að byrja á að nota vetni í ljósavél Eldingarinnar. „Efnarafalar eru viðkvæmir fyrir seltu og sjávarumhverfi,“ segir hann en það getur truflað rafkerfið. Jón segir að talsverðar fyrirspurnir hafi borist um nýtingu vetnisvéla frá ferðabátageiranum auk þess sem erlendir fjölmiðlar, svo sem sjónvarps- stöðin Discovery, hafi sýnt verkefninu áhuga. „Menn sjá fyrir sér að nota umhverfisvæna orku í stað olíu í báta, ekki síst við hvalaskoðun. Við slíka skoðun er siglt út á aðalvél skipsins en drepið á henni þegar komið er á hvalaslóðir. „Þá tekur ljósavélin við. Með efnarafalnum verður hvorki mengun út frá vélinni né titringur frá bátnum, sem verður hljóðlaus,“ segir Jón. „Við teljum að við séum þarna að fara mjög ótroðnar slóðir og gerum ráð fyrir að þekking á þessu geti orðið mjög verð- mæt vara í framtíðinni. Upplýsingar sem koma úr verkefninu verða hvergi annars staðar til en hér,“ segir Jón. Fyrstu vetnistilraun- irnar á sjó að hefjast Íslensk NýOrka setur vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátinn Eldingu á næsta ári. Tilraunaverkefni með notkun vetnis- strætisvagna ruddi brautina, segir framkvæmdastjórinn. www.trackwell .com Flotaeftirlit – tækjanotkun og aksturslagsgreining FORÐASTÝRING Hópur Eyjamanna, sem á meiri- hluta hlutafjár í Vinnslustöðinni, birtir í dag opinbert yfirtökutilboð í félagið þar sem boðnar eru 4,6 krónur fyrir hvern hlut. Hópur- inn, sem samanstendur af Haraldi og Kristínu Gíslabörnum og Sigur- geiri Brynjari Kristgeirssyni, for- stjóra félagsins, hyggst sitja við sinn keip, jafnvel þótt að síðasta viðskiptagengi Vinnslustöðvarinn- ar hafi verið 8,3 krónur á hlut. Gengið 8,3 er sjötíu prósent yfir tilboðsverði að teknu tilliti til þrjá- tíu prósenta arðgreiðslu fyrir síð- asta ár. Eins og komið hefur fram í Mark- aðnum eru hluthafar í Vinnslu- stöðinni ekki á eitt sáttir um verð- mæti „síðasta móhíkanans“, eins og síðasta útgerðarfélagið á Að- allista Kauphallar hefur verið kallað. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, sem fer fyrir ríf- lega þrjátíu prósenta hlutafjár í Vinnslustöðinni, hefur lýst því að yfirtökutilboðið sé of lágt. Lands- bankinn keypti mikið magn af bréfum í gær en talið er líklegt að Guðmundur standi á bak við þau viðskipti. Samkvæmt heimildum Mark- aðarins er talið ólíklegt að sam- komulag náist með stærstu hlut- höfum Vinnslustöðvarinnar að svo stöddu. Meirihluti hluthafa óskar jafn- framt eftir því við stjórn Kaup- hallarinnar að Vinnslustöðin verði afskráð úr Kauphöll sam- hliða yfirtökutilboði. Væntanlega verður félagið afskráð úr Kaup- höll miðað við óbreytta stöðu. Ætla má að smáir hluthafar selji bréf sín áfram ef núverandi kjör bjóð- ast og gæti því eignarhaldið í fé- laginu þrengst enn meira. Greiningardeildir Glitnis og Kaupþings meta markgengið í Vinnslustöðinni til tólf mánaða á 4,7-4,8 krónur en markaðsvirðið er að allra mati hærra ef aflaheimild- ir yrðu seldar. Vinnslustöðin hagn- aðist um 765 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi sem var mikill viðsnúningur þegar félagið tapaði 213 milljónum króna. Hlutabréf í Vinnslustöðinni hafa sýnt mesta hækkun skráðra félaga á árinu, eða um 84 prósenta ávöxtun. - eþa Meirihlutinn situr við sinn keip Síðasta viðskiptagengi Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum var 70 prósentum fyrir ofan yfirtökutilboð. Pattstaða kann að vera komin upp. Hagnaður Teymis nam 1,6 millj- örðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Um er að ræða birtingu uppgjörs annars ársfjórðungs fyrirtækisins eftir skiptingu Dagsbrúnar í tvö félög, 365 sem tók yfir fjölmiðla- hlutann og svo Teymi sem tók yfir fjarskiptahluta, upplýsingatækni og aðra starfsemi. Afkoman er nokkru yfir spám greiningardeilda viðskiptabank- anna sem gerðu ráð fyrir allt frá einum til tæplega 1,5 milljarða króna hagnaði á tímabilinu. Rekstrarhagnaður fyrirtæk- isins (EBITDA) fyrir afskriftir og gjöld, nam 785 milljónum króna en hagnaður fyrir vexti og skatta (EBIT) nam 382 milljón- um króna. Teymi seldi eignarhlut sinn í Securitas á fjórðungnum en sölu- hagnaður nam 535 milljónum króna. - jab Afkoma Teymis er yfir spám

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.