Fréttablaðið - 09.05.2007, Qupperneq 1
Sextíu milljarðar | Novator, fjár-
festingafélag Björgólfs Thors, átti
85 prósenta hlut í búlgarska síma-
félaginu BTC sem gengið var frá
sölu á í síðustu viku. Söluhagnað-
ur Novators nam 55 til 60 milljörð-
um króna.
Óheimilt samstarf | FME skorar
á FL Group og tengda aðila í Glitni
að sækja um heimild fyrir aukn-
um virkum eignahlut. Um 45 pró-
sent hlutafjár eru í höndum FL og
tengdra aðila. FL Group er ósam-
mála FME.
Ágæt starfslok | Bjarni Ár-
mannsson hagnaðist um 564 millj-
ónir króna þegar Glitnir keypti
eigin hlutabréf af félögum hans,
Landsýn og Sjávarsýn, sama dag
og hann lét af störfum sem for-
stjóri Glitnis.
Ekkert Merck | Actavis hefur
dregið sig út úr slagnum um sam-
heitalyfjahluta þýska lyfjafyrir-
tækisins Merck. Vænt söluverð
var hærra en stjórnendur töldu
skynsamlegt. Lyfjafyrirtækin
Teva og Merck standa eftir.
Gott uppgjör | Landsbankinn
hagnaðist um 13.760 milljónir
króna á fyrsta ársfjórðungi. Arð-
semi eigin fjár var 45,2 prósent.
Uppgjörið var vel yfir meðaltals-
spá bankanna upp á 11.215 millj-
ónir króna.
Össur tapar | Össur skilaði 2,7
milljóna Bandaríkjadala tapi á
fyrsta fjórðungi þessa árs. Það
jafngildir um 184 milljónum króna.
Á sama tímabili í fyrra nam hagn-
aðurinn 571 þúsund dala.
Frönsk kaup | Bakkavör Group
hefur keypt franska salatfram-
leiðandann 4G sem sérhæfir sig
í framleiðslu á ferskum tilbúnum
salötum fyrir franskan markað.
Kaupverð fyrirtækisins var ekki
gefið upp.
NBA
Rekstrarlögmálin
gilda ekki alltaf
13
Sparisjóðirnir
Í sjöunda
himni
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
F R É T T I R V I K U N N A R
Í aðdraganda alþingiskosninga
Formenn flokkanna hlutgerðir
8-9
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Íslensk NýOrka vinnur nú að undirbúningi þess að
setja vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátinn Eldingu
við Reykjavíkurhöfn og gera tilraunir með hana
á hafi úti á sjómannadaginn á næsta ári. Heildar-
kostnaður nemur um 40 milljónum króna. Hönnunin
er að öllu leyti íslensk að því undanskildu að efna-
rafallinn er keyptur erlendis frá. Að verkefninu
kemur fjöldi innlendra fyrirtækja auk nemenda við
Listaháskólann en þeir hanna sýningarrými í Eld-
inguna. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Ný-
Orku, telur þetta vera í fyrsta sinn í veröldinni sem
gerðar hafi verið tilraunir með efnarafal á sjó.
Vetnisljósavélin er næsta skref NýOrku á sviði
vetnisvéla í samgöngutækjum og segir Jón að
velheppnað tilraunaverkefni NýOrku með notkun
vetnisstrætisvagna í Reykjavík síðastliðin þrjú ár
hafi rutt brautina fyrir því að fleiri aðilar koma til
samstarfsins nú en áður. „Þetta hefði ekki hvarflað
að mörgum áður,“ segir hann.
Nokkrum vandkvæðum er bundið að setja
vetnisvél um borð í báta og segir Jón að til öryggis
hafi verið ákveðið að byrja á að nota vetni í ljósavél
Eldingarinnar. „Efnarafalar eru viðkvæmir fyrir
seltu og sjávarumhverfi,“ segir hann en það getur
truflað rafkerfið.
Jón segir að talsverðar fyrirspurnir hafi borist
um nýtingu vetnisvéla frá ferðabátageiranum auk
þess sem erlendir fjölmiðlar, svo sem sjónvarps-
stöðin Discovery, hafi sýnt verkefninu áhuga.
„Menn sjá fyrir sér að nota umhverfisvæna orku
í stað olíu í báta, ekki síst við hvalaskoðun. Við
slíka skoðun er siglt út á aðalvél skipsins en drepið
á henni þegar komið er á hvalaslóðir. „Þá tekur
ljósavélin við. Með efnarafalnum verður hvorki
mengun út frá vélinni né titringur frá bátnum, sem
verður hljóðlaus,“ segir Jón. „Við teljum að við
séum þarna að fara mjög ótroðnar slóðir og gerum
ráð fyrir að þekking á þessu geti orðið mjög verð-
mæt vara í framtíðinni. Upplýsingar sem koma úr
verkefninu verða hvergi annars staðar til en hér,“
segir Jón.
Fyrstu vetnistilraun-
irnar á sjó að hefjast
Íslensk NýOrka setur vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátinn
Eldingu á næsta ári. Tilraunaverkefni með notkun vetnis-
strætisvagna ruddi brautina, segir framkvæmdastjórinn.
www.trackwell .com
Flotaeftirlit – tækjanotkun
og aksturslagsgreining
FORÐASTÝRING
Hópur Eyjamanna, sem á meiri-
hluta hlutafjár í Vinnslustöðinni,
birtir í dag opinbert yfirtökutilboð
í félagið þar sem boðnar eru 4,6
krónur fyrir hvern hlut. Hópur-
inn, sem samanstendur af Haraldi
og Kristínu Gíslabörnum og Sigur-
geiri Brynjari Kristgeirssyni, for-
stjóra félagsins, hyggst sitja við
sinn keip, jafnvel þótt að síðasta
viðskiptagengi Vinnslustöðvarinn-
ar hafi verið 8,3 krónur á hlut.
Gengið 8,3 er sjötíu prósent yfir
tilboðsverði að teknu tilliti til þrjá-
tíu prósenta arðgreiðslu fyrir síð-
asta ár.
Eins og komið hefur fram í Mark-
aðnum eru hluthafar í Vinnslu-
stöðinni ekki á eitt sáttir um verð-
mæti „síðasta móhíkanans“, eins
og síðasta útgerðarfélagið á Að-
allista Kauphallar hefur verið
kallað. Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri Brims, sem fer fyrir ríf-
lega þrjátíu prósenta hlutafjár í
Vinnslustöðinni, hefur lýst því að
yfirtökutilboðið sé of lágt. Lands-
bankinn keypti mikið magn af
bréfum í gær en talið er líklegt að
Guðmundur standi á bak við þau
viðskipti.
Samkvæmt heimildum Mark-
aðarins er talið ólíklegt að sam-
komulag náist með stærstu hlut-
höfum Vinnslustöðvarinnar að svo
stöddu.
Meirihluti hluthafa óskar jafn-
framt eftir því við stjórn Kaup-
hallarinnar að Vinnslustöðin
verði afskráð úr Kauphöll sam-
hliða yfirtökutilboði. Væntanlega
verður félagið afskráð úr Kaup-
höll miðað við óbreytta stöðu. Ætla
má að smáir hluthafar selji bréf
sín áfram ef núverandi kjör bjóð-
ast og gæti því eignarhaldið í fé-
laginu þrengst enn meira.
Greiningardeildir Glitnis og
Kaupþings meta markgengið í
Vinnslustöðinni til tólf mánaða á
4,7-4,8 krónur en markaðsvirðið er
að allra mati hærra ef aflaheimild-
ir yrðu seldar. Vinnslustöðin hagn-
aðist um 765 milljónir króna á
fyrsta ársfjórðungi sem var mikill
viðsnúningur þegar félagið tapaði
213 milljónum króna. Hlutabréf í
Vinnslustöðinni hafa sýnt mesta
hækkun skráðra félaga á árinu,
eða um 84 prósenta ávöxtun. - eþa
Meirihlutinn situr við sinn keip
Síðasta viðskiptagengi Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum var 70
prósentum fyrir ofan yfirtökutilboð. Pattstaða kann að vera komin upp.
Hagnaður Teymis nam 1,6 millj-
örðum króna á fyrstu þremur
mánuðum ársins.
Um er að ræða birtingu uppgjörs
annars ársfjórðungs fyrirtækisins
eftir skiptingu Dagsbrúnar í tvö
félög, 365 sem tók yfir fjölmiðla-
hlutann og svo Teymi sem tók yfir
fjarskiptahluta, upplýsingatækni
og aðra starfsemi.
Afkoman er nokkru yfir spám
greiningardeilda viðskiptabank-
anna sem gerðu ráð fyrir allt frá
einum til tæplega 1,5 milljarða
króna hagnaði á tímabilinu.
Rekstrarhagnaður fyrirtæk-
isins (EBITDA) fyrir afskriftir
og gjöld, nam 785 milljónum
króna en hagnaður fyrir vexti og
skatta (EBIT) nam 382 milljón-
um króna.
Teymi seldi eignarhlut sinn í
Securitas á fjórðungnum en sölu-
hagnaður nam 535 milljónum
króna. - jab
Afkoma Teymis
er yfir spám