Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 2

Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 2
MARKAÐURINN 9. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R Gnúpur fjárfestingafé- lag hefur verið að auka við hlut sinn í FL Group á undanförnum vikum og fer nú með 19,55 prósenta hlut sem met- inn er á 45,8 milljarða króna. Frá áramótum hefur Gnúpur fest kaup á tæplega þriggja pró- senta hlut og stendur nú skammt frá stærsta hluthafanum, Odda- flugi Hannesar Smára- sonar, forstjóra FL, sem fer með 19,77 pró- sent. Að Gnúpi standa fjárfestarnir Kristinn Björnsson og Magnús Kristinsson auk fram- kvæmdastjórans Þórð- ar Más Jóhannessonar. Gnúpur er „þögull hlut- hafi“ í FL Group, það er að félagið er ekki með mann í stjórn fjárfest- ingafélagsins, og þarf því ekki að tilkynna um viðskipti nema þau séu flöggunarskyld. - eþa Gnúpur nálgast Hannes G E N G I S Þ R Ó U N Vika Frá áramótum 365 3% -26% Actavis 1% 23% Alfesca 1% -5% Atlantic Petroleum 17% 52% Atorka Group 1% 5% Bakkavör 1% 9% FL Group 1% 15% Glitnir 2% 16% Hf. Eimskipafélagið 2% 8% Kaupþing -1% 27% Landsbankinn 3% 34% Marel 2% -1% Mosaic Fashions 6% 12% Straumur 3% 18% Össur -6% 1% Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn Óli Kristján Ármannsson skrifar Í bígerð er að skrá breska lyfjafyrirtækið Hunter- Fleming á AIM hlutabréfamarkaðinn í Lundúna- kauphöllinni (LSE) á þessu ári, með það fyrir augum að safna hlutafé. Fyrirtækið hóf nýlega ann- ars fasa prófanir (Phase II) á lyfi við Alzheimer- sjúkdómnum. Þá hefur fyrirtækið fært prófanir á gigtarlyfi inn í bandaríska fyrirtækið Trident og á þar 17 prósenta hlut. Í hópi eigenda Hunter-Fleming eru allnokkrir Íslendingar og er Ernir Snorrason, geðlæknir og frumkvöðull í lyfjaþróun, meðal stærstu einstöku hluthafa. AIM-markaðurinn er hliðarmarkaður fyrir smærri félög, sambærilegur við First North- markaði OMX-kauphallarsamstæðunnar. Nokkrar skipulagsbreytingar hafa verið gerðar á Hunter-Fleming í kjölfar aðkomu fjárfestingar- fyrirtækisins Advent International í fyrra. Þannig var undir lok síðasta árs ráðinn nýr forstjóri að nafni Miki Capaldi og stofnandinn, Jim Murray, sem gegnt hafði starfinu gerður að forseta. Ernir átti til skamms tíma sæti í stjórn félagsins og kom á sínum tíma að söfnun hlutafjár hér á landi. Hann segist binda nokkrar vonir við Alzheimer- lyfið, en félagið sé með þrjú lyf í þróun sem lofi góðu. Hann áréttar þó að lyfjageirinn sé í eðli sínu áhættusamur fyrir fjárfesta. „Hins vegar er nokk- uð ljóst að hluthafar mega vænta nokkurrar hækk- unar á bréfunum við það eitt að félagið verði skráð. Seinast þegar ég vissi var gengi hlutarins metið á fjóra, en gæti stokkið í 10 til 20 við skráningu,“ segir hann, en kveðst þó ekki fyllilega sannfærður um að lokið verði við skráningu á árinu. „Aðstæður til skráningar á AIM voru um margt betri fyrir ári,“ bætir hann við. Á þeim tíma segir hann að einnig hafi verið tækifæri til sameiningar við annað stórt fyrirtæki sem ekki hafi verið gripið. „Upp úr því ákvað ég nú að draga mig út úr stjórninni, en er samt náttúrlega áfram inni sem hluthafi.“ Hann segir þó ljóst að bæði Advent International og MTI Partners Ltd., sem einnig á í Hunter-Fleming stóran hlut, hafi hug á því að fara með félagið sem fyrst á markað. Hunter-Fleming var stofnað árið 1999, en snemma á ferlinum var tekið að safna hlutafé. „Ég hefði getað safnað meiru hér heima, en lét nægja milli tvö og þrjú hundruð milljónir,“ segir Ernir. Nái fyrirtæki að þróa lyf er hagnaðarvon þeirra mikil, en þróunin og prófanaferlar hennar eru mjög kostn- aðarsöm. Ernir segist telja skynsamlegt fyrir hlut- hafa að bíða aðeins og sjá hvort ekki verði af skrán- ingunni því þá megi gera ráð fyrir gengishækkun. Takist félaginu svo að búa til lyf sem fer á markað gæti gengishagnaðurinn orðið margfalt meiri. Hunter-Fleming hug- leiðir skráningu á AIM Breska lyfjafyrirtækið Hunter-Fleming tilkynnti í apríl um annars fasa prófanir á nýju lyfi við Alzheimer-sjúkdómnum. Íslendingar eru meðal stofnfjárfesta í fyrirtækinu. Greiningardeild Landsbankans hefur sent frá sér nýtt verðmat á Mosaic Fashions sem Baugur Group hyggst taka yfir og af- skrá úr Kauphöll Íslands í félagi við aðra fjárfesta. Verðmats- gengið hljóðar upp á 17,9 krónur á hlut samanborið við væntan- legt yfirtökugengi upp á 17,5 og mælir bankinn með kaupum og yfirvogun í Mosaic. Landsbank- inn horfir til tólf mánaða mark- gengis í 20,2 krónum. „Við teljum þó að tilboðsgengið 17,5 (7% álag á lokagengi bréf- anna hinn 3. maí) endurspegli ekki að fullu virði félagsins,“ segja sérfræðingar hjá grein- ingardeild Landsbankans. - eþa Tilboðsverð endurspeglar ekki virði félagsins Skuldatryggingarálag (CDS) ís- lensku bankanna hefur lækkað töluvert á undanförnum vikum. Frá áramótum hefur það lækkað um 7 til 17,5 punkta. Í gær var álag Landsbankans 22,7 stig, Glitnis 27,5 stig og Kaup- þings 31 stig. Nálgast þau sömu gildi og þau voru lægst í október árið 2005, áður en óstöðugleiki og umræðuvandi herjaði á íslenskt fjármálakerfi. Hermann Þórisson, sérfræð- ingur á Greiningardeild Lands- bankans, segir að skuldatrygg- ingarálagið sé einn besti mæli- kvarðinn á þau markaðskjör sem bankarnir standa frammi fyrir á alþjóðamörkuðum. Álagið mæli hvað kostar fyrir fjár- festa að kaupa tryggingu gegn því að útgefandi viðkomandi skuldabréfs geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Skuldatryggingarálag Glitnis hækkaði snarpt þegar tilkynnt var um nýja stjórn og forstjóra hjá bankanum. Það gekk fljót- lega til baka en er þó rúmum þremur punktum hærra en það var fyrir stjórnarskiptin. „Til skamms tíma virðist vera að fjár- festar meti stöðuna svo að áhætt- an sé meiri og þeir vilji meiri ávöxtun,“ segir Hermann. „Það kom því ekki á óvart að álagið á Glitni skyldi hækka.“ - hhs Kjör bankanna batna Bandaríski álrisinn Alcoa ætlar í fjandsamlega yfirtöku á kanadíska ál- fyrirtækimu Alcan, sem meðal annars rekur ál- verið í Straumsvík. Óformlegt yfirtökutilboð hljóðar upp á 33 milljarða banda- ríkjadali, rétt tæpa 2.100 millj- arða íslenskra króna. Alcoa metur bréf í Alcan á 73,25 dali á hlut, sem er 20 prósentum yfir lokagengi bréfanna í lok síð- ustu viku. Gengi bréfa í Alcan þaut upp um 34,5 prósent í 82,11 dali á hlut við lokun markaða í fyrradag í kjölfarið. Bank of America hefur uppfært verðmat sitt á félaginu úr 62 dölum á hlut í 82 dali og mælir með kaup- um á bréfum álfyrirtæk- isins. Telja greinendur ekki ólíklegt að fleiri ál- fyrirtæki blandi sér í baráttuna. Alcoa og Alcan hafa átt í sam- starfsviðræðum í tæp tvö ár. Þær skiluðu engum árangri og afréð Alcoa því að fara út í yfirtökuna. Samkvæmt upplýsingum frá Alcan á Íslandi kom yfirtökutil- boðið á mánudag á óvart og mun móðurfélagið tjá sig um það þegar formlegt tilboð liggur fyrir. - jab Alcoa býður í Alcan Gengi bréfa í breska útgáfufélag- inu EMI hækkaði um 10 prósent skömmu eftir opnun hlutabréfa- markaða í Bretlandi á föstudag eftir að félagið greindi frá því að það ætti í viðræðum um sölu á félaginu. Ekkert hefur verið gefið upp um hverjir hafi hug á að kaupa EMI. Fyrirtækið hefur glímt við rekstrarvanda og sendi frá sér tvær neikvæðar afkomuviðvar- anir á árinu auk þess sem ákveðið var að greiða hluthöfum ekki arð. Munu þeir vera langþreyttir á slöku gengi fyrirtækisins. - jab EMI kann að verða selt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.