Fréttablaðið - 09.05.2007, Side 6

Fréttablaðið - 09.05.2007, Side 6
MARKAÐURINN 9. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A S K Ý R I N G iðskiptabankar og fjárfest- ingafélög voru ekki ein um að skila methagnaði á síðasta ári. Rekstur stórra sem smárra sparisjóða gekk glimrandi vel og nutu þeir hagstæðra markaðsaðstæðna og lágra vanskila. Fimm stærstu sparisjóðirnir, sem eru SPRON, Byr sparisjóður, Sparisjóðurinn í Keflavík (SpKef), Sparisjóður Mýra- sýslu (SPM) og Sparisjóður Kópavogs (SPK), högnuðust alls um 18,3 milljarða króna í fyrra samanborið við átta millj- arða króna árið 2006 og 3,4 milljarða árið 2005. Samanlagður hagnaður eykst því um 130 prósent á milli ára og ríflega fimm- faldast frá árinu 2005. Fjórir sparisjóðir högnuðust yfir einn milljarð króna á síð- asta ári: SPRON (9,0 milljarðar), SpKef (4,7 milljarðar), Byr (2,7) og SPM (1,5), en hagnaður SPK nam ríflega hálfum millj- arði króna. Arðsemi eigin fjár var yfir 50 prósent hjá öllum sparisjóðunum nema Byr þar sem hún var 23 prósent. Hæstu arðsemi sýndi SpKef, um 125 prósent. Þessir fimm sparisjóðir bera höfuð og herðar yfir aðra hvað efnahag varðar en þess ber þó líka að geta að mikill stærðar- munur er á milli stærstu sparisjóðanna. Þannig er SPRON hátt í níu sinnum stærri en SPK. Reyndar er það vafamál hvort bera eigi aðra sparisjóði við SPRON sem hefur stækkað gríðarlega á síðustu tveimur árum og skilaði til dæmis á síð- asta ári þrefalt meiri hagnaði en Lands- bankinn árið 2003. GENGISHAGNAÐUR VEGUR ÞUNGT Þegar almennt er litið yfir afkomu spari- sjóðanna á síðasta ári er ljóst að hefð- bundinn bankarekstur bar ekki hagnað- inn uppi heldur gengishagnaður og tekjur af hlutabréfum og eignarhlutum í öðrum fjármálafyrirtækjum. Þetta er athyglis- vert þegar haft er í huga að styrkur og sérkenni sparisjóðanna hefur legið í hefð- bundinni bankaþjónustu fyrir einstaklinga og lítil og meðalstór fyrirtæki. Sparisjóða- hópurinn, sem kenndur er við Existu, sker sig verulega frá hinum þegar reksturinn er gerður upp. Við skráningu Exista í Kaup- höllina í fyrra leystist gríðarlegur gengis- hagnaður úr læðingi sem þessi hópur naut með beinum hætti í aukningu tekna. Af stærstu sparisjóðunum eru SPRON, SpKef og SPM í þessum hópi. Hreinar rekstrartekjur voru alls um 32 milljarðar króna og hækkuðu um tæp 79 prósent á milli ára. Aðrar tekjur en vaxta- og þóknunartekjur svöruðu til 74 prósenta af hreinum rekstrartekjum fimm stærstu sparisjóðanna og voru alls 23,8 milljarðar króna. Þegar horft er til einstakra spari- sjóða liggur hlutfallið á bilinu 55-87 pró- sent, lægst hjá Byr en hæst hjá SpKef. Til samanburðar nam hlutfallið tæpum þriðjungi hjá viðskiptabönkunum þrem- ur í fyrra. Helstu félög sem eru í eigu sparisjóð- anna eru Icebank, Exista, Kista fjárfest- ingafélag í eigu Exista-sparisjóða, SP Fjár- mögnun (Byr, SpKef, SPM), VBS Fjárfest- ingarbanki (Byr, SpKef, SPM og SPK) og Allianz (Byr og SPK). SPRON á Frjálsa Fjárfestingarbankann og Byr á stóran hlut í MP Fjárfestingarbanka og þá hafa spari- sjóðir verið iðnir við að fjárfesta í hver öðrum. Af þessum félögum skiluðu Exista og Icebank mjög góðri ávöxtun til spari- sjóðanna. Ef fjármunir í þessum félög- um yrðu settir inn á bók myndu þeir einn- ig skila drjúgum tekjum. „Í þessu sam- bandi er nauðsynlegt að hafa í huga að fjárfestingar okkar í hlutabréfum nema um 30 milljörðum í lok síðasta árs og að þær skila ekki vaxtatekjum. Ef við seldum þessi hlutabréf og settum andvirði þeirra inn á reikning í Seðlabanka fengjum við liðlega fjóra milljarða í vaxtatekjur á ári miðað við núverandi vaxtastig,“ sagði Guðmundur Hauksson, sparissjóðsstjóri SPRON, á aðalfundi sparisjóðsins í mars. Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs, tók í sams konar streng á aðalfundi félagsins og sagði að sparisjóðurinn hefði fengið einn milljarð í vaxtatekjur við það að losa um hluti í hlutdeildarfélögum. VAXTATEKJUR DRAGAST SAMAN Hreinar vaxtatekjur voru alls 5,9 millj- arðar króna og drógust saman um rúm átta prósent á milli ára. Vaxta- munur, þ.e. vaxtatekjur að frádregn- um vaxtagjöldum í hlutfalli af meðal- stöðu heildarfjármagns, dróst saman eins og víðast hvar í bankakerfinu samfara stækkandi efnahag og breyttri samsetn- ingu útlána. Þóknunartekjur eru ekki stór partur af heildartekjum stærstu spari- sjóðanna, um 2,3 milljarðar, en jukust þó um 43 prósent á milli ára. Sökum methagnaðar lækkar kostnaðar- hlutfall stærstu sparisjóðanna í öllum til- vikum nema einu. Það er óvíst að menn sjái aftur önnur eins hlutföll og í Spari- sjóðnum í Keflavík þar sem kostnaðar- hlutfall nam aðeins 17,3 prósentum og um 26,4 prósentum í SPRON. Hæsta kostnað- arhlutfallið var hjá Byr, um 40,2 prósent. Annar rekstrarkostnaður var um 8,9 milljarðar króna og jókst um 18,5 prósent. Byr, sem varð til með sameiningu SPV og SPH, var eini sparisjóðurinn sem tókst að minnka rekstrarkostnað á milli ára. Vanskil voru í sögulegu lágmarki. Fram- lög til afskriftarreikninga (virðisrýrnun útlána) voru 1,1 milljarður og drógust saman um átján prósent. Efnahagsreikningar stærstu sparisjóð- anna héldu áfram að tútna út á síðasta ári eins og árin á undan. Við lok síðasta árs stóðu eignir í 391 milljarði króna og höfðu vaxið um 120 milljarða á árinu eða um 45 prósent. Þetta er tvöföldun frá árslok- um 2004. SPRON er eftir sem áður lang- stærsti sparisjóðurinn með heildareignir upp á 185 milljarða króna sem er um áttatíu milljörðum meira en heildareignir Byrs, næststærsta sparisjóðsins. Auk þess sem efnahagur sjóðanna stækkaði þá jókst eigið fé þeirra verulega. Það stóð í tæpum 63 milljörðum króna sem er ríflega tvö- földun á milli ára. Vaxandi hagnaður og aukning stofnfjár hefur styrkt stóru spari- sjóðina og miðað við nýlegar og fyrir- hugaðar stofnfjáraukningar á árinu eykst slagkraftur sparisjóðanna áfram. ÁFRAM KÁTT Í KOTINU Það er viðbúið að sparisjóðirnir muni hagn- ast verulega á árinu, einkum þeir sem eru í bandalagi í Existu. Frá áramótum hefur Exista hækkað um rúm fjörutíu prósent án þess að 100 prósenta arðgreiðsla nafn- verðs er tekin með í reikninginn. Exista- sparisjóðirnir áttu 12,3 prósent af heildar- hlutafé við skráningu félagsins og eru enn meðal stærstu hluthafa. Hópurinn hagn- aðist samanlagt um 17,7 milljarða króna samanborið við 6,7 milljarða árið 2005. Auk fyrrnefndra sparisjóða eru Sparisjóð- ur Vestfirðinga, Sparisjóður Húnaþings og Stranda og Sparisjóður Svarfdæla í hópn- unum en þessir þrír sjóðir skiluðu allir um 800-900 milljóna króna hagnaði. Sparisjóð- irnir hafa sett hluta bréfa sinna inn í Kistu fjárfestingarfélag, annan stærsta hluthaf- ann í Existu með sex prósenta hlut sem metinn er á yfir 21 milljarð króna. Ljóst er að töluverður gengishagnaður hefur orðið hjá Kistu. Og ekki verður árið 2008 síðra ef áform sparisjóðanna ganga eftir um skráningu Icebank á hlutabréfamark- að. Sparisjóðirnir hafa hagnast veru- lega á miklum vexti Icebank á síðustu árum, einkum vegna hækkunar á eignar- hlut bankans í Existu. Þannig hafa allir sparisjóðir hagnast með óbeinum hætti á ævintýralegum vexti stærsta hluthafans í Kaupþingi og Sampo Group. Icebank var með eigið fé upp á tólf milljarða um ára- mót og gæti staðið í fjórtán milljörðum í dag. Við skráningu Icebank eru töluverð- ar líkur að markaðsverð verði umtals- vert hærra en bókfært eigið fé, eins og gengur og gerist hjá fjármálafyrirtækj- um. Stærstu eigendur Icebank eru ein- mitt fimm stærstu sparisjóðirnir, þar af er hlutur Byrs og SPRON samanlagt um 53,2 prósent hlutafjár. Hagnaður af fjárfestingastarfsemi mun þannig keyra afkomu sparisjóðanna áfram. Sparisjóðir í sjöunda himni Hagnaður fimm stærstu sparisjóðanna nam 18,3 milljörðum króna í fyrra og hefur fimmfaldast frá árinu 2005. Gengishagnaður og tekjur af eignarhlutum vógu þungt í heildartekjum og halda áfram að gera svo, þökk sé Existu og Icebank. Eggert Þór Aðalsteinsson leit yfir rekstur stærstu sparisjóðanna í fyrra. S A M A N B U R Ð U R Á S P A R I S J Ó Ð U N U M ( Í M I L L J Ó N U M K R Ó N A ) Hagnaður 2006 Hagnaður 2005 Breyting Arðsemi eigin fjár Hreinar rekstrartekjur Aðrar rekstrartekjur Eignir Eigið fé Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON 9.010 4.092 +120% 58,7% 15.196 11.806 184.500 34.774 20,2% Byr 2.676 1.830 +46% 23,0% 5.502 3.036 104.188 13.948 14,3% SpKef 4.687 1.150 +308% 124,5% 7.259 6.325 47.969 9.272 14,2% SPM 1.458 616 +137% 69,9% 2.942 1.942 33.749 3.544 11,7% SPK 511 333 +53% 55,2% 1.173 711 21.050 1.418 11,3% Alls 18.342 8.021 +129% 32.072 23.820 391.456 62.956 AFKOMA ANNARRA SPARISJÓÐA 2006 Hagnaður Heildar- eignir Sparisjóður Svarfdæla 902 3.542* Sparisjóður Húnaþings og Stranda 819 5.568 Sparisjóður Vestfirðinga 801 9.657 Sparisjóður Vestmannaeyja 321 10.114 Sparisjóður Norðlendinga 186 12.586 Sparisjóður Bolungarvíkur 185 6.571 * Eignir sjóðsins í árslok 2005 Allar tölur í milljónum króna G ra fik a

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.