Fréttablaðið - 09.05.2007, Side 20

Fréttablaðið - 09.05.2007, Side 20
MARKAÐURINN 9. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR12 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Andri Ottesen hefur tekið við framkvæmdastjórastöðu Klaks nýsköpunarmiðstöðvar af Jóni Helga Egilssyni, sem tók við framkvæmdastjórn Seed Forum í Bandaríkjunum á dögunum. Andri hefur kennt við Háskól- ann á Bifröst, Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri og Háskóla Íslands. Hann var deildarstjóri fjárlagagerðar til atvinnumála í fjármálaráðuneytinu í sex ár, markaðsstjóri Hugrúnar ehf. og stjórnarformaður fjölda fyrir- tækja. Andri er með doktorsmennt- un í rekstrarhagfræði frá Inter- national School of Management í París, MA-gráðu frá Otaru- viðskiptaskólanum í Japan, MBA-gráðu frá California State University og BA-gráðu í alþjóða- viðskiptum og erlendum málum frá sama skóla. - jab Nýr yfir Klakinu Íslenskum fyrirtækjum býðst nú að sækja þekkingu í fræða- samfélag MIT-háskólans í gegnum samstarfssamning sem Háskólinn í Reykjavík hefur umsjón með í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Við- skiptaráð. Samstarfinu verður hleypt formlega af stokkunum með ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík eftir helgi. Með samstarfinu er sagt að opnist aðgangur fyrir íslensk fyrir- tæki að víðtæku samstarfi, auk þess sem aðgengilegar verði upplýsingar um nýjung- ar, rannsóknir og verkefni sem verið sé að vinna að. „Fulltrúar fyrirtækja sem ganga inn í samstarfið við HR fá einnig aðgang að sérfræðingum og geta sótt ráðstefnur, málþing og aðra viðburði sem skipu- lagðir eru innan ramma sam- starfsins,“ segir í tilkynningu HR. Samstarfið fer fram á vett- vangi svokallaðs ILP samstarfs innan MIT en Stjórnendaskóli HR er tengiliður samstarfsins hér. - óká Samstarf hafið við MIT Nýverið sótti sendinefnd frá samskiptaráðuneyti Kína, CTTC, Þekkingu heim. Til- gangur sendinefndarinnar var að kynna sér ýmsar íslenskar lausnir í málaflokkum stofn- unar sinnar. Kínversku gestirnir höfðu sérstakan áhuga á nýrri af- ritunarlausn, fyrir borð- og ferðavélar, sem Þekking er að setja á markað. Lausnin ber nafnið Reperio, sem er lat- ína og stendur fyrir að „finna aftur“. Í för með gestunum var Jó- hann Pétur Malmquist, próf- essor við Háskóla Íslands og samstarfsaðili ráðgjafarfyr- irtækisins Key West Techno- logies. Í fréttatilkynningu frá Þekkingu er haft eftir honum að sérstakan áhuga Kínverj- anna hafi vakið hversu fram- arlega Ísland er statt í tækni á mörgum sviðum. Það var samstarf CTTC við Key West Technologies sem leiddi sendinefndina hingað til lands. Þekking starfar einnig með því fyrirtæki. - hhs Kínverjar kynna sér íslenskar lausnir Sendinefnd skoðar meðal annars Reperio-afritunarlausn fyrir tölvur. Í haust verður ný námsleið tekin upp í Háskóla Íslands. Um er að ræða þjónustustjórnun á vegum Viðskipta- og hagfræðideildar í samvinnu við Endurmennt- un Háskóla Íslands. „Fjallað er um þjónustu fyrirtækja í mörg- un námskeiðum innan viðskipta- fræðinnar. Núna erum við búin að taka allt það efni og safna því saman í sérhæfð námskeið,“ segir Þórhallur Guðlaugsson, dósent við Háskóla Íslands. „Við teljum að mikil þörf sé á námi á borð við þetta. Styttri námskeið sem við höfum haldið í þjónustu- stjórnun hafa iðulega verið vel sótt. Ekki síst af einstaklingum sem eru að taka við þjónustu- stjórnun hjá fyrirtækjum.“ Námsleiðinni er einmitt sér- staklega beint að stjórnendum sem bera ábyrgð á þjónustu í fyrir- tækjum og stofnunum, sérfræð- ingum sem skipuleggja þjónust- una og einstaklingum sem vilja búa sig undir stjórnunarstörf á sviði þjónustu. Námið miðast við að nemendur geti stundað það samhliða vinnu. Nemendur sækja sex sérhæfð námskeið á sviði þjónustustjórnunar á tveim- ur misserum. Eitt námskeið verð- ur kennt í einu og það klárað áður en það næsta tekur við. Fleiri nýjungar eru væntan- legar í Háskóla Íslands í haust. Meðal annars mun nýtt nám í gæðastjórnun hefja göngu sína. Endurmenntun og verkfræði- deild HÍ standa fyrir því í sam- einingu. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á lengra námi í gæðastjórnun, bæði hjá fyrir- tækjum og einstaklingum. Nám- skeiðin okkar á sviði gæðastjórn- unar hafa alltaf verið yfirfull og endurtekin á hverri önn,“ segir Hans Júlíus Þórðarson, kynn- ingarstjóri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. „Nám í gæða- stjórnun hefur líka víða skírskot- un og getur nýst fólki með mjög ólíkan bakgrunn.“ - hhs Nýjar námsleiðir við Háskóla Íslands Ráðstefna verður haldin 11. maí 2007 á vegum Stjórnendaskólans og MBA náms Háskólans í Reykjavík um þau tækifæri sem íslensk fyrirtæki hafa til að hasla sér völl í ört vaxandi hagkerfum Kína og Indlands. Aðalfyrirlesari verður Dr. Pedro Videla, prófessor við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona, en hann er einn fremsti sérfræðingur heims í vaxandi markaðssvæðum, sérstaklega Asíu. Ráðstefnan fer fram á ensku. Dagskrá 13:30 – 13:40 Ávarp Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson 13:40 – 15:00 Growing Importance of China and India in the World Economy Dr. Pedro Videla, IESE Business School 15:00 – 15:25 Kaffihlé 15:25 – 15:50 Actavis in India and China Jónas Tryggvason, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs í Asíu og mið- og austur Evrópu 15:50 – 16:15 Trade Facilitation for Icelandic Businesses in China and India Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins 16:15 – 16:50 Implications for Icelandic Businesses Pallborðsumræður með fyrirlesurum og Ásgeiri Jónssyni, forstöðumanni greiningar- deildar Kaupþings 16:50 – 17:30 Léttar veitingar og ráðstefnulok Ráðstefnustjóri verður Aðalsteinn Leifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík Ráðstefnan verður haldin 11. maí í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, stofu 131 Ráðstefnugjald er 23.900 krónur Félagsmenn FVH og ÍMARK fá 20% afslátt Skráning fer fram á www.stjornendaskoli.is, í netfangi elisabetth@ru.is eða í síma 599 6296 Indland og Kína – nýr markaður – ný sóknarfæri

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.