Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 22
MARKAÐURINN F Ó L K Á F E R L I 9. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR14 F Y R S T O G S Í Ð A S T Hinn 20. júní næstkomandi verður formlega sett á stofn finnsk- íslenskt viðskiptaráð í Helsinki. Markmið þess verður að stuðla að enn öflugri viðskiptum ríkj- anna. Viðskiptaráðið mun halda utan um skipulagningu viðburða og hlutlausa upplýsingamiðlun um viðskiptaumhverfi Íslands og Finnlands og ný viðskiptatæki- færi. Kristjana Aðalgeirsdóttir arkitekt, sem búið hefur í Finn- landi í mörg ár, mun halda utan um starfsemi ráðsins. Viðskiptaráðið er stofnað að frumkvæði sendiráðsins og í sam- ráði við íslenska hagsmunaaðila á finnska markaðnum. „Menn hafa talað um þetta um hríð. Nú er ein- mitt rétti tíminn,“ segir Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Finnlandi. „Við höfum orðið vör við gríðarlega eftirspurn eftir upplýsingum. Það er mikilvægt að koma á fót sjálfstæðum og óháð- um vettvangi á borð við þennan. Staðreyndin er sú að margir vita ekki allt of mikið um Ísland. Þeir þekkja ekki þær breytingar sem hafa orðið á íslensku viðskipta- umhverfi og efnahagsmálum á síðustu tíu til fimmtán árum. Við höfum því allt að vinna og engu að tapa í því að bæta upplýsinga- gjöfina.“ Meðal íslenskra fyrirtækja sem þegar hafa öfluga starf- semi í Finnlandi má nefna Kaup- þing, Glitni og Eimskipafélagið. Þá hafa beinar fjárfestingar ís- lenskra félaga í finnskum fyrir- tækjum einnig aukist verulega. Hæst ber hlutdeild Exista í fjár- málafyrirtækinu Sampo sem vakið hefur gríðarmikla athygli í Finnlandi. - hhs Viðskiptaráð í Helsinki Yfirtökutilboð til hluthafa í Vinnslustöðinni hf. Eyjamenn ehf. bjóða hluthöfum Vinnslustöðvarinnar hf. að kaupa hlutabréf þeirra í félaginu Tilboðið er sett fram vegna samkomulags Seilar ehf., Öxnafells ehf., Leifs Ársælssonar, Kristínar Elínar Gísladóttur, Gunnars Jónssonar, Haraldar Gíslasonar, Guðrúnar Svövu Gunnlaugsdóttur, Ólafar Elínar Gunnlaugsdótt- ur, Ellýjar Rannveigar Gunnlaugsdóttur, Sölva- hamars ehf., Lendingar ehf. og Sigurgeirs B. Kristgeirssonar (hér eftir saman nefnd „samstarfsaðilarnir”) frá 15. apríl 2007 um stjórnun og rekstur Vinnslustöðvarinnar hf. Samstarfsaðilarnir eiga samanlagt 50,04% af heildarhlutafé í Vinnslustöðinni hf. og ráða yfir samsvarandi hlutfalli af atkvæðisrétti í félaginu. Samkvæmt 37. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefur framangreint samkomu- lag í för með sér að samstarfsaðilunum er skylt að gera öðrum hluthöfum Vinnslustöðvarinnar hf. yfirtökutilboð. Tilboðið er sett fram í samræmi við VI. og VII. kafla laganna af Eyjamönnum ehf., kt. 480307-0700, Brimhóla- braut 34, Vestmannaeyjum, (hér eftir nefnt „tilboðsgjafinn") sem er einkahlutafélag í eigu samstarfsaðilanna. Tilboðshafar Tilboðið tekur til allra hluta í Vinnslustöðinni hf. sem ekki eru í eigu samstarfsaðilanna á þeim degi sem tilboðið er sett fram. Hluthafar sem skráðir eru í hlutaskrá Vinnslustöðvarinnar hf. við lokun markaða þriðjudaginn 8. maí 2007 munu fá sent tilboðsyfirlit, framsalseyðublað og svarsendingarumslag. Framangreind gögn er einnig hægt að nálgast hjá fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík. Tilboðsyfirlitið er auk þess hægt að nálgast á vefsíðu bankans (http://www.kaupthing.is) og í fréttakerfi OMX/ Kauphallar Íslands hf. (http://www.omxgroup.com/ nordicexchange/Markadsfrettir/Fyrirtaekja- tilkynningar/). Umsjónaraðili Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf. hefur umsjón með yfirtökutilboðinu fyrir hönd tilboðs- gjafans. Nánari upplýsingar veita verðbréfa- ráðgjafar bankans í síma 444-7000. Tilboðsverð Verð samkvæmt tilboðinu er 4,60 krónur fyrir hvern hlut, sem er sama gengi og var í síðustu viðskiptum í OMX/Kauphöll Íslands hf. fyrir undirritun samkomulags samstarfsaðilanna þann 15. apríl 2007 um stjórnun og rekstur Vinnslustöðvarinnar hf. Frá því að tilkynnt var um fyrirhugað tilboð í fréttakerfi OMX/Kauphöll Íslands hf. 16. apríl 2007 hefur Vinnslustöðin hf. greitt út 30% arð til hluthafa fyrir rekstrarárið 2006 og samsvarar tilboð þetta því 4,90 krónum á hlut fyrir arðgreiðslu. Tilboðsgjafinn og samstarfsaðilarnir hafa ekki greitt hærra verð fyrir hlutafé í Vinnslustöðinni hf. á síðustu 6 mánuðum áður en tilboðið er sett fram. Gildistími tilboðs Tilboð þetta gildir frá kl. 9:00 sunnudaginn 13. maí 2007 til kl. 16:00 mánudaginn 11. júní 2007. Verður samþykki að hafa borist umsjónaraðila fyrir lok gildistímans. Bera hluthafarnir sjálfir ábyrgð á því að samþykki þeirra berist. Tilboðsgjafinn áskilur sér rétt til að ákveða hvort samþykki, sem berast eftir að gildistími tilboðsins er liðinn, verði tekin gild. Afskráning Í kjölfar yfirtökutilboðsins munu tilboðsgjafinn og samstarfsaðilarnir fara fram á það við stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. að hlutabréf félagsins verði afskráð úr OMX/Kauphöll Íslands hf. Breska fréttastofan Reuters staðfesti í gær að hún ætti í viðræðum við kanadíska upp- lýsingatæknifyrirtækið Thoms- on Corporation, sem íhugar að leggja fram 17,6 milljarða dala, 1.117 milljarða króna, yfirtökutil- boð í fyrirtækið. Gangi það eftir mun sameinað fyrirtæki fá nýtt nafn, Thomson-Reuters. Thomson rekur meðal annars fréttaveituna AFX en hefur á prjónunum að stækka við sig. Segir breska ríkisútvarpið að fréttastofa Reuters falli vel inn í starfsemina. Thomson sé efni- legur kaupandi. Það búi yfir góðri lausafjárstöðu og geti félögin í sameiningu orðið sterkt mótvægi við keppinaut þeirra, bandarísku fréttaveituna Bloomberg. Orðrómur um hugsanlega yfir- töku á Reuters kom upp á föstu- dag og skaust gengi fyrirtæk- isins upp um 25 prósent í kaup- höllinni í Lundúnum í Bretlandi. Af þessum sökum afréðu stjórn- ir beggja fyrirtækja að greina hluthöfum frá stöðu mála til að koma í veg fyrir óvissuástand. Fréttin varð til þess að hækka gengið enn frekar í dag en þá fór það upp um 6,7 prósent í kaup- höllinni. Tilboð Thomson hljóðar upp á 352,5 pens á hlut auk hlutabréfa í fyrirtækinu. Reuters metur bréf- in hins vegar á 697 til 705 pens á hlut. Til samanburðar stóð það í 642 pensum á hlut í gær. - jab Sameining fréttastofa í vændum? ERIK DAVIDEK er nýr ritstjóri vefsvæðis Iceland Express á ensku, www.iceland-express.com. Hann hefur BA-gráðu í sögu og félagsfræði frá Eastern Michigan University auk kennsluréttinda. Hann starfaði við kennslu í fimm ár, einnig hefur hann unnið hjá Car and Driver magazine við reynsluakstur og blaðamennsku og sem ritstjóri hjá Nordic eMarketing. Í starfi vefritstjórans felst m.a. ritstjórn fréttabréfs fyrir erlenda netklúbbinn, umsjón með ensku bloggi Iceland Express og ritstjórn efnis á www.icelandexpress.com. ÞORVARÐUR GOÐI VALDIMARSSON er nýr verkefnastjóri Express-ferða, ferðaskrif- stofu Iceland Express. Hann stundaði nám í Háskólanum í Óðinsvéum þaðan sem hann lauk BA-prófi í viðskiptafræði árið 2000 og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum 2005. Þorvarður Goði vann við markaðs- og sölustýringu hjá Come2Scandinavia í Kaupmannahöfn 2005-2006 og hjá Lífís 2006-2007. Í starfi verkefnastjórans felst m.a. skipulag og umsjón með fótbolta- ferðum, formúluferðum, tónleikaferðum, golfferðum og öðrum sérferðum á vegum ferðaskrifstofunnar. Express-ferðir er nýleg ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ferðum á viðburði á áfangastöðum Iceland Express. Mikil spenna var á árlegum hlut- hafafundi bandaríska fjárfest- ingarfélagsins Berkshire Hatha- way í Nebraska-ríki í Bandaríkj- unum á laugardag en búist er við að forstjórinn aldni Warren Buff- ett sem í mörg ár hefur verið annar ríkasti maður heims, til- nefni eftirmann sinn á næstunni. Fundurinn byrjaði á léttum nótum en söngvarinn Jimmy Buffett opnaði fundinn með söng. Buffett sagðist fjarskyld- ur ættingi milljarðamæringsins og sagði að vegna skyldleikans hefði verið ákveðið að halda for- stjórastólnum innan fjölskyld- unnar og því myndi hann taka við af frænda sínum. Að því loknu tók hann lag um fjárfestingar- félagið og þau fyrirtæki sem heyra undir það. Að söngnum loknum steig hinn 76 ára Warren Buffett á svið. Vísaði hann skyldleikanum á bug og sagðist ekki vera á förum í bráð. Buffett gerði því næst grein fyrir afkomu sjóðsins sem skilaði 2,6 milljarða dala, 165 milljarða króna, hagnaði á fyrsta ársfjórðungi, sem er tólf pró- sentum meira en á sama tíma í fyrra. Að þessu loknu kom Buff- ett að vali á forstjóra sjóðsins en hann er talinn ætla að ráða þrjá til starfans. Buffett er um þessar mundir að fara yfir umsóknir um stöðu eftirmanns síns en á milli 600 til 700 umsóknir hafa borist í hús. - jab Styttist í val á eftir- manni Buffetts

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.