Fréttablaðið - 09.05.2007, Side 24
Þeir eru orðnir fáir hér á landi
sem þora að lesa búlgörsku dag-
blöðin án þess að setja upp fyrir-
varalesgleraugun. Ástæðan eru
þær misvísandi og oft á tíðum
beinlínis röngu fregnir sem
blöðin fluttu af sölu Novators,
fjárfestingafélags Björgólfs
Thors Björgólfssonar, á 65 pró-
senta hlut í búlgarska símafyrir-
tækinu (BTC), sem gekk í gegn í
síðustu viku. Í fyrsta lagi römb-
uðu blöðin ekki fyrr en rétt undir
lok undirskriftar á kaupsamningi
hver hugsanlegur kaupandi var
auk þess sem fjárhæðirnar ruku
til og frá eins og lauf í vindi.
Fréttaflutningur sem þessi er
náttúrlega óhæfa enda setur það
mikla pressu á upplýsingafull-
trúa fyrirtækja, sem þurfa að
hringja trekk í trekk í fjölmiðla
víða um heim og leiðrétta, oft að
því er virðist skáldaðar fréttir,
sem farið hafa óhindrað fram.
Varhugaverð
Búlgaríublöð
55-60 150 13,8
Gutenberg
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 545 4400
Fax 545 4401
www.gutenberg.is
Gutenberg er leiðandi prentfyrirtæki á Íslandi. Við höfum yfir 100 ára
reynslu í prentiðnaði og allan þann tíma höfum við lagt áherslu á að
vera fremst á okkar sviði. Hver viðskiptavinur fær þá þjónustu sem
hann þarfnast hjá Gutenberg. Þarfir hvers og eins eru mismunandi en
þú getur verið viss um að fá úrlausn þinna mála hjá okkur.
Sköpun þín verður áþreifanleg hjá Gutenberg
Gerum það rétt,
og gott betur
Hversu hátt stefnir þú?
Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA
–
9
0
7
0
3
5
4
HEFÐBUNDNA SAFNIÐ
20,8% ávöxtun
50%
50%
Nýfallinn dómur yfir forsvars-
mönnum Baugs hefur vakið held-
ur minni athygli í erlendum fjöl-
miðlum en einhver kynni að hafa
vænt. Þannig er töluvert meira
fjallað um yfirtökutilboð Baugs
í hlutabréf Mosaic Fashions og
mögulega afskráningu af mark-
aði. Berlingske Tidende gerði þó
dóminn að umfjöllunarefni og
titlaði Jón Ásgeir Jóhannesson
forstjóra Baugs „viðskiptamann
og glaumgosa“ í fyrstu máls-
grein og minnti á að í Danaveldi
væri hann helst þekktur fyrir
kaupin á Magasin, Illum, Merlin
og Keops. Þá er í niðurlaginu
áréttað að Jón Ásgeir sé stór-
tækur víðar, í Bretlandi hafi
hann fest kaup á margfalt stærri
verslanakeðjum en Magasin
hinu danska, „á líkan máta og
meðalmaðurinn keypti sér ís“.
Spurning hvort þar sé fjárfest-
ingarstefna vænleg til árangurs,
eða hvort skrifin kunni að vera
lituð af einhverjum fordómum?
Skrifað um
glaumgosann
B A N K A H Ó L F I Ð
Hinn heimskunni fræðimaður
Geert Hofstede er væntanlegur
til landsins. Áralangar rannsóknir
hans sýna að stjórnunarstíll
er afar misjafn eftir uppruna
stjórnenda. Viðskipta- og hag-
fræðideild HÍ stendur fyrir ráð-
stefnu á fimmtudaginn þar sem
Hofstede verður heiðursgestur.
Forvitnilegt verður að sjá hvort
hann muni taka undir þær raddir
að einstakri frumkvöðlamenn-
ingu Íslendinga sé að þakka að
útrásarvíkingum vorum gengur
jafn vel og raun ber vitni.
Gúrú að koma