Tíminn - 08.03.1980, Page 2
2
mim
Laugardagur 8. mars 1980
Keppendurnir á 9. Reykjavikurskákmótinu
Bandarikjunum.
Fæddur 12.10.1946.
AlþjóOIeg ELO-stig: 2540.
Browne er fæddur i Astraliu,
en fluttist á unga aldri til
Bandarikjanna. Framáji' af
stundaði hann teningaspil, pók-
er og skák jöfnum höndum,
tefldi á daginn i mótum, en næt-
urnar voru helgaöar spila-
mennskunni. Slikt háttalag er
þó öllum ofviöa, jafnvel járn-
karli eins og Browne, enda varö
hann fljótlega aö velja á milli.
Skákin varö ofan á, skákunn-
endum til léttis og ánægju. Ung-
ur setti Browne sér þaö mark-
miö aö veröa oröinn stórmeist-
ari 21 árs gamall. Þessu tak-
marki náöi hann reyndar ári
fyrr, og stóö þvi á tvitugu er
honum hlotnaöist titillinn.
Eftir aö Fischer dró sig ilt úr
skarkala umheimsins, hefur
Browne veriö atkvæöamestur
bandariskra skákmanna. Þris-
var i röð árin 1975, ’76 og ’77
varö hann skákmeistari Banda-
rikjanna, en hætti viö þátttöku
Walter Shawn Browne
Walter Shawn Browne
áriö 1978, á slöustu stundu.
Browne var ekki sáttur viö
keppnisaöstæður og var ekkert
aö tvinóna viö hlutina.
Ariö 1978 gafst Islenskum
skákunnendum kostur á aö
kynnast Browne af eigin raun,
er hann tefldi hér á Reykjavík-
urmótinu. Þar sigraöi hann með
9 vinninga af 13 mögulegum,
fyrir ofan Miles, Hort, Friörik,
Larsen og PolugaevSky, svo
nokkrir séu nefndir.
Hvarvetna sem Browne fer og
teflir vekur hann eftirtekt. Hann
teflir af lifi og sál, leggur alla
sina orku I hverja einustu skák.
Baráttugleðin gneistar af hon-
um, jafnvel svo aö andstæöing-
unum finnst stundum nóg um.
En Browne er þeirri skoöun
sinni trúr, aö skák sé barátta,
barátta upp á llf og dauöa.
Hingaö kemur Browne rak-
leitt frá sigursælu móti I Hol-
landi, þarsem hann deildi 1.-2.
ætinu með landa sinum, Seira-
wan. Fyrir slöustu umferö var
Browne 1/2 vinningi á eftir
Seirawan, og varö aö sigra and-
stæöing sinn til aö eiga mögu-
leika á 1. sæti. Þetta tókst, og
var andstæðingurinn þó enginn
annar en sjálfur Kortsnoj, sem
varö aö sætta sig viö tap i jafn-
teflislegu endatafli, en á þeim
vettvangi þykir Kortsnoj einn sá
allra snjallasti I heimi.
Auk þess aö tefla á Reykja-
vikurskákmótinu hyggst
Browne tefla hér fjöltefli viös
vegar. Þar er hann flestum
fremri, máske sá besti I heimi,
eins og sést á þvi að i 17 fjöltefl-
um sem hann tefldi áriö 1978 I
Bandarlkjunum, tapaöi hann
aöeins 2 skákum og geröi 6 jafn-
tefli.
Galvaniseraðar plötur
wZáfM
AíSS'iáívft w. |
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmr^jmHSHm
» - _____________
BHSéhbhrhbbbhbbhhhhhhsbbhhp^^'
BLIKKVER
Margar
stæróir og
geróir
BLIKKVER
SELFOSSI
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Símar: 44040 - 44100 Hrismyri 2A Selfoss Simi. 99-2040
d * líúseigendur - Húsfélög |
Höfum körfubil með
11 m. lyftigetu ^
Önnumst
sprunguviðgerðir, ^
þakrennuviðgerðir
At/æ/æj
og allskonar múrviðgerðir. f
Upplýsingar I jf
slmum
__ 51715 og 'á
ettine 27684. 5
V.
/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆJ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/A
RUGGUHESTAR
5 gerðir
Fisherprise leikföng
Grát dúkkur — Barbie brúður
Sindy brúður — Ævintýramaðurinn
Playmobil leikföng
Stignir bflar — Þrihjól
Hoppuboltar
Tonkaleikföng
Traktorár stignir
Bflabrautir
Póstsendum
Leikfanga
húsið Sími 14806
SkólavörðustíglO
Barnaieiktæki
íþróttatæki
Þvottasnúrugrindur
Vélaverkstæði
BERNHARÐS HANNESSONAR
Suöurlandsbraut 12. Slmi 35810
Baráttu-
dagur
kvenna
8 mars Alþjóðlegur baráttudagur kvenna. I til-
efni dagsins gangast Rauðsokkar fyrir göngu
og fundi. Gangan: Mæting kl. 13.15 í Sokkholti
Skólavörðustíg 12 efstu hæð. Gengið verður að
Félagsstofnun stúdenta þar sem haldinn
verður baráttufundur. A dagskrá meðal ann-
ars: Ávörp — Söngur — Alþýðuleikhúsið — og
sýningin „Verk kvenna'. Mætum öll hress og
kát. Rauðsokkahreyfingin.
Jörð í Rangárvallasýslu
óskast til kaups eða leigu. Æskiieg skipti á
húsi i þéttbýli i sýslunni.
Þeir, sem vildu sinna þessu, vinsamlega
sendi tilboð til afgreiðslu blaðsins merkt
,,Jörð í Rangárvallasýslu”.