Tíminn - 18.03.1980, Síða 11
Þriðjudagur 18. mars 1980
ÍÞRÓTTIR
ÍÞROTTIR
15
Valsmenn tryggöu sér islandsmeistaratítilinn i körfuknattíeik
Þetta var eins og i
amla daga”
— sagði Þórir
Magnússon —
,Rocket-man”, sem
hélt sannkallaða
flugeldasýningu
og skoraði 32 stig
— Þetta var stórkostlegt, enda
var kominn tfmi til að maður
fengi að hampa islandsmeistara-
bikarnum, eftir 19 ára baráttu,
sagði Þórir Magnússon — Vals-
maðurinn eldhressi, eftir aö Vals-
menn höfðu unniö góðan sigur
100:93 yfir KR-ingum i Laugar-
dalshöllinni i gærkvöldi og
þar með varð íslandsmeistara-
•titillinn þeirra — i fyrsta skipti.
Aö öörum ólöstuöum var Þórir
Magnússon, maðurinn á bak við
sigur Valsmanna — Þórir, eða
„Rocket-man” eins og hann hefur
svo oft verið kallaður undanfarin
ár, var hreint óstöðvandi. Hann
skoraði margar glæsilegar körfur
— i öllum regnbogans litum og
um tima var eins og hann væri aö
halda eldflaugasýningu — hvert
langskotið frá honum á fætur
öðru, hafnaði i körfu KR-inga. —
„Það var gaman að sjá á eftir
knettinum, þegar hann hafnaði i
körfunni. Það vaknaði upp gömul
og góð tilfinning — þetta var
og i gamla daga”, sagði Þórir,
eftir leikinn.
Þórir skoraöi 32 stig i leiknum
og var hreint óstöðvandi —hann
skoraði 8 stig i röð, þegar Vals-
menn náðu góðu forskoti 43:34 i
fyrri hálfleiknum, en Valsmenn
höfðu yfir 57:46 i leikhléi. Um
miðjan seinni hálfleikinn voru
þeir búnir aö ná 13 stiga
85:72 og virtist sigur þeirra i
öruggri höfn. En pressan var
mikil á þeim og söxuöu KR-ingar
smáttog smátt á forskot þeirra —
munurinn var oröinn aðeins 4 stig
rétt fyrir leikslok — 91:87, en þá
tók Tim Dwyer af skarið og Vals-
menn voru sterkari á lokasprett-
inum. Það var Torfi Magnússon
sem innsiglaði öruggan sigur
þeirra rétt fyrir leikslok, þegar
hann skoraði 100. stigiö úr vlta-
kasti — 100:93.
TORFI MAGNÚSSON... fyrir-
liði Vals, sést hér taka við
bikarnum úr hendi Krist-
björns Albertssonar, núver-
andi formanns K.K.t. — frá
Njarövik.
(Timamyndir Tryggvi)
Þórir var besti maður Valsliös-
ins og þá átti Tim Dwyer ágætan
leik — einnig Kristján Agústsson,
Torfi Magnússon og Jón Stein-
grlmsson.
Keith Yow var besti leikmaður
KR-liðsins, sem var með daufara
móti — hann skoraöi 45 stig og var
hreint óstöðvandi. Jón Sigurðsson
var frekar daufur, en hann átti
ágæta spretti — skoraði 24 stig.
Þá var Garöar Jóhannsson einnig
góður.
Þeir sem skoruöu stigin I leikn-
um — voru:
VALUR:— Þórir 32, Dwyer 28,
Kristján 15, Torfi 11, Jón S. 6, Jó-
hannes 4 og Rlkharður 4.
KR: — Yow 45, Jón S. 24,
Garðar 12, Geir 6, Birgir 4 og Arni
2.
MAÐUR LEIKSINS: Þórir
Magnússon.
—SOS
Glæsiskot frá
Trent Smock
— tryggöi Stúdentum sigur
yfir 5t og Njarövik lagöi Fram
PRENT SMOCK — körfuknatt-
eiksmaðurinn snjalli hjá
itúdentum, tryggði Stúdentum
igur 106:104 yfir IR-ingum á
•ftirminnilegan hátt I Hagaskól-
inum. — Hann skoraði sigurkörf-
ina rét fyrir leikslok með góðu
angskoti.
Smock lék mjög vel og skoraði
2 stig fyrir Stúdenta, en Jón Héð-
nsson skoraði 19 stig og Ingi
ítefánsson 16.
Mark Christensen skoraði flest
stig IR-inga, eða 36, en Kristinn
Jörundsson skoraði 31 stig.
NJARÐVIKINGAR.. unnu sig-
ur 79:76 yfir Framliðinu, sem lék
einn sinn besta leik I vetur. Ted
Bee var stigahæstur hjá Njarð-
vikingum — 19 stig, en Gunnar
Þorvarðarson skoraöi 19. Simon
Ólafsson lék mjög vel hjá Fram —
skoraði 32 stig, en Þorvaldur
Geirsson 16.
Undirskriftasöfnun um helgina:
Skorað á Stefán
að halda áfram
sem formaður Körfuknattleiks-
sambandsins
Fyrir helgina fór fram undir-
skriftasöfnun á meðal körfu-
knattleiksmanna, þar sem
þeir skrifuöu undir áskorun til
Stefáns Ingólfssonar, sem
sagði af sér formennsku
K.K.t. fyrir helgina, að hann
tæki aftur við stjórnini hjá
sambandinu. Þá fór fram for-
mannafundur, þar sem for-
ráöamenn allra körfuknatt-
leiksliða mættu, og skrifuöu
undir áskorun til Stefáns.
Stefánivar afhent þessiáskor-
un í gær og mun hann gefa
svar viö henni I dag.
• GUÐMUNDUR
Guðmundur
skoraði 3
— þegar Valsmenn
urðu íslandsmeistarar
Valsmenn tryggðu sér
tslandsmeistaratitilinn I
innanhússknattspyrnu á
sunnudaginn i Laugardals-
höllinni, þegar þeir unnu
Skagamenn 5:2 I úrslitaleik.
— Staðan var 2:2 rétt fyrir
leikslok en þá settu Valsmenn
á fulla ferð og tryggðu sér
öruggan sigur. Guömundur
Þorbjörnsson skoraði 3 mörk
fyrir Val, en þeir Jón Einars-
son og Albert Guðmundsson,
eitt hvor. Árni Sveinsson og
Guðjón Þóröarson skoruöu
mörk Skagamanna.
Breiðablik varð meistari I
kvennaflokki — lagði Val að
velli 7:5 I úrslitum.
Stefán var
hetja
Valsmanna
skoraði jöfnunarmarkið
26:26 á eileftu stundu
i Hafnarfirði
Stefán Gunnarsson, fyrirliði
Valsmanna, tryggði Val jafn-
tefli 26:26 yfir FH-ingum i 1.
deildarkeppninni i handknatt-
leik I Hafnarfirði á sunnu-
dagskvöldið. Stefán skoraði
jöfnunarmarkið rétt fyrir
leikslok.
Eins og sést á tölunum, þá
var háð mikil stórskotahrið i
leiknum — Valsmenn voru yfir
17:16 I leikhléi, en rétt fyrir
leikslok voru FH-ingar komnir
yfir 23:19 og 26:24 — allt benti
til að þeir myndu vinna góðan
sigur. Þá skoraöi Stefán
Halldórsson og siðan Stefán
Gunnarsson, eins og fyrr seg-
ir. __________
KR-ingar
unnu uppí
á Skaga
Valur og FH mætast
I kvöld
KR-ingar unnu góðan sigur
28:22 yfir Skagamönnum upp
á Akranesi, þar sem þeir
mættust í 8-liöa úrslitum
bikarkeppninnar I handknatt-
leik. Þeir eru þar með búnir aö
tryggja sér sæti I undanúrslit-
um ásamt Haukum. Björn
Pétursson skoraði flest mörk
KR-inga — 8, en Simon 7.
Valsmenn og FH-ingar
mætast I 8-liða úrslitum
keppninnar í kvöld og verður
leikurinn I Laugardalshöllinni
kl. 7.