Tíminn - 12.04.1980, Blaðsíða 3

Tíminn - 12.04.1980, Blaðsíða 3
Laugardagur 12. april 1980 3 Lista- og menningarsjóöur Kópavogs sýnir Verk frægustu mál- ara 20. aldarinnar KL — Á morgun kl. 5 verður opnuö i Norræna hiisinu mál- verkasýning, sem er einstæð i sinni röð hérlendis. Er hér um aö ræöa málverk úr safni skautadrottningarinnar frægu Sonju Henie og manns hennar, útgerðarmannsins Niels Onstad, en i safni þeirra í Osló er að finna verk frægustu og mestu meistara 20. aldarinnar. Má þar nefna Picasso, Matisse, Klee, Miró, Léger, Munch, Jorn og svona mætti lengi telja. Er þvi um einstæðan listviðburð aö ræöa á íslandi að fá myndir þessara frægu manna hingað á sýningu. Það er Lista- og menningar- sjóður Kópavogs, sem stendur fyrir þessari sýningu og hefur með henni i huga að styrkja byggingu Listasafns Kópavogs, sem nú er undirbúin. Aðal- hvatamaðurinn aö sýningunni er Frank Ponzi, ráðunautur um listasafnsbygginguna. Er það raunar fyrir hans tilstilli, að sá einstæði atburöur hefur gerst, að erlent safn hefur veriö til- leiðanlegt til að lána svo merk verk til sýningar á íslandi, og eru engar likur til, að sá at- burður endurtaki sig I bráð. Gefst þvi Islendingum nú ein- stakt tækifæri til að viröa fyrir sér verk meistaranna. Kópavogskaupstaður á nú þegar þó nokkuð af listaverk- um, en engan einn samastað fyrir þau. Málverk i eigu kaup- staðarins munu nú vera um 200 talsins, en stærsta heildarsafn listaverka i eigu bæjarins er 200- 300 skúlptúrar listakonunnar Gerðar Helgadóttur, sem syst- kini hennar gáfu Kópavogs- kaupstað að listakonunni lát- inni. Sú stórgjöf hefur ýtt á eftir með byggingu listasafns á staðnum, enda fylgdu þeir skil- málar gjöfinni. Hefur húsinu verið valinn staður vestan gjár. Er ætlunin að byggingin verði 1500fm að stærð, i'henni veröi 3 salir, einn þar sem málverk i rigu safnsins verði sýnd, annar, þar sem verk Gerðar verða til sýnis, og sá þriðji, þar sem haldnar verði einstakar sýn- ingar. Er gert ráð fyrir, að ört verði skipt um sýningarmuni i tveim fyrrnefndu sölunum. A milli salanna veröa laus skil- rúm, þannig, að gera má úr þeim öllum einn stóran sal, þegar þurfa þykir. Sýningin i Norræna húsinu stendur yfir 13.-27. april og er fólk hvatt til að missa ekki af þessu tækifæri til að komast i snertingu við heimslistina, það er ekki víst, að annaö tækifæri gefist á næstunni. 1 sjónvarpi i kvöld veröur 45 minútna löng kvikmynd um safn Sonju Henie og Niels Onstad. Er hún i lit. 1 þeirri mynd bregður fyrir mörgum þeirra mynda, sem eru á sýn- ingunni i Norræna húsinu og viðtöl við suma listamannanna. 1 safninu fer fram margvisleg starfsemi á hinum ýmsu lista- sviðum og er þar aldrei deyfð og doði. Aflinn í mars 616 þús. lestir AM — Alls veiddust hér við land 92860 lestir af þorski i siðasta mánuði, samkvæmt yfirliti Fiski- félags Islands. 1 fyrra veiddust af þorski 71947 lestir i mars. Þorsk- aflinn i mánuðinum skiptist þannig á landshluta: Suöurland 17834, Suðumes 20547, Hafnarfj. 6876, Vesturland 18027, Vestfirðir 8155, Norðurland 12080, Austfirðir 8808. Erlendis var landað 573 lest- um af þorski. Heildaraflinn i mánuðinum var 616436 lestir. Þar af var loðna 391204 lestir, rækja 3001 lestir og hörpuskel 2117 lestir. Sjómannafélagiö Jötunn: Vill samninga um helgarfri sjómanna — sendir vestfirskum sjómönnum baráttukveöjur HEI — „Aöalfundur Sjómanna* félagsins Jötuns i Vestmannaeyj- um lýsir furðu sinni og vanþókn- un á þvi ófremdarástandi sem rikir i samningamálum islenskra sjómanna. Nú er að hefjast þriðja áriö frá þvi að samningaviðræður hefjist á næstunni”, segir i ný- legri samþykkt félagsins. Skoraði þvi fundurinn á sam- bandsstjóm Sjómannasambands Islands og öll stéttarfélög I land- inu, og taka nú þegar ákvörðun um næsta skref i kjarabaráttu sjómanna. Fundurinn lýsti yfir stuðningi við kröfur Sjómannafélags Isa- fjarðarog sendir vestfirskum sjó- mönnum baráttukveðjur vegna vinnudeilu þeirra. Jafnframt var harölega átalinn sá dráttur sem alltaf verður á ákvörðun um fiskverð. Einnig urðu miklar umræður um fritima sjómanna og var sam- þykkt að formaður félagsins færi fram á samningaumleitanir viö Útvegsbændafélag Vestmanna- eyja um helgarfri sjómanna. Lánsfjáráætlun verð- ur að ná niður — segir Guömundur G. Þórarinsson JSG — ,,Þaö er alveg ljóst að ekki er vilji fyrir þvi innan þingflokks Framsóknarflokksins að sam- þykkja lánsfjáráætlun að upphæð 94 milljarða króna. Það verður að ná henni niður, þó það reynist vafalaust erfitt,” sagði Guð- mundur G. Þórarinsson i viðtali við Timann I gær, en Guðmundur er einn þriggja manna sem þing- fiokkur Framsóknarflokksins hefur falið að yfirfara þau drög að iánsfjáráætlun sem fjármáiaráð- herra hefur kynnt þingflokkun- um. Aðeins hluti Iánsfjáráætlunar hefur formlega veriðlögð fram, i tengslum við fjárlög, en siðari hluti hennar er nú til meðferðar hjá stjórnarflokkunum og hafa þingmenn Framsóknarflokksins lýst óánægju með þau drög sem liggja fyrir og vilja gæta meira aðhalds i lántökum en f drögunum felst. Guðmundur G. Þórarinsson minnti á að i stjórnarsáttmálan- um væru nokkur ákvæöi er snertu lánsfjáráætlunina. Þar væri fyrst kveðið á um að greiðslubyröi af erlendum lánum yrði ekki meiri en 15% af útflutningstekjum. Þetta ákvæði var byggt á athugun Þjóðhagsstofnunar frá þvi um áramót, um að greiðslubyröin af eldrilánum yröi 14.1% I ár, siðan þessi athugun var gerð hafa að- stæður á erlendum fjármagns- mörkuðum breyst svo að greiðslubyrðin er nú talin verða um 15.9%, og það án þess að nokkur ný lán verði tekin. Þetta ákvæði stjórnarsáttmálans gæti þvl ekki gilt bókstaflega lendur, en á móti kæmi að I ákvæðinu hefði upphaflega falist að lántök- ur í ár yrðu milli 70 og 80 mill- jarða, og við þetta vildu fram- sóknarmenn nú standa. „Vandinn viö að skera lánsfjár- ætlun niður núna, til þess aö hún fari ekki fram yfir 80 milljaröa, er að I seinni hluta hennar er fatt hægtaðhreyfa. Þareru t.d. lán til Hrauneyjafossvirkjunar og lán til flugvélakaupa sem þegar er búið aö ganga frá. Viö gerðum ráö fyrir meira svigrúmi i sinni hlutanum og ég er viss um að þann fyrri hefðum við aldrei sam- þykkt ef okkur hefði veriö ljóst hvaö i restinni fólst,” sagði Guö- mundur ennfremur. „Við veröum þviaðdraga úr áætluninni i heild, en einnig kemur til greina aö fresta einhverjum af fyrirhuguð- um framkvæmdum fram yfir áramót.” „A næstu dögum verður að taka á þessu máli, og finna launs sem stjórnarflokkarnir geta sætt sig við. Af hálfu Framsóknarflokks- ins eru, auk min, þeir Halldór As- grimsson og Ingólfur Guönason, að yfirfara áætlunina. Lánsfjár- ætlunina verður að afgreiða fyrir mánaðarmót,” sagði Guðmundur að lokum. Barnaleiktæki íþróttatæki Þvottasnúrugrindur Vélaverkstæði BERNHARÐS HANNESSONAR Suðurlandsbraut 12. Slmi 35810 .V.V.V.V.V.V.’.V.W.V.V^ RAFSTÖÐVAH jj allar stærðir i • grunnafl • varaafl • flytjanlegar • verktakastöðvar , Garðastræti 6 .* Símar 1-54-01 & 1-63-41 BÆNDUR — VIÐGERÐARMENN Mjög ódýrar rafsuðuvélar — 1 fasa 1. Margar stærðir 2. Mjög kraftmiklar 3. Truflunar- og hljóðlausar 4. Þola lága spennu Baldursson h.f. Ármúla 7 — Sími 8-17-11 Lausar stöður Tvær fulltrúastöður við embætti ríkis- skattstjóra eru lausar til umsóknar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið em- bættisprófi i viðskiptafræði, lögfræði eða endurskoðun. Víðtæk þekking á skatta- málum, þjálfun og starfsreynsla á sviði þeirra, sem umsækjandi án embættisprófs í áðurnefndum greinum hefur öðlast, getur þó komið til álita við mat á umsókn- um og ráðningu. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, skaí senda rikis- skattstjóra,Skúlagötu 57, Reykjavík, fyrir 20. mai nk. RÍKISSKATTSTJÓRI 11. apríl 1980.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.