Tíminn - 12.04.1980, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.04.1980, Blaðsíða 7
Laugardagur 12. april 1980 7 Sannleikurinn hassið um Ég sá grein meö þessu nafni i Det bedste fra Readers Digest, febrúarhefti þ.á. Þar sem hér á landi eru nýlega stofnuð samtök til að berjast fyrir frjálsri sölu kannabisefna þykir mér vel við hæfi að koma útdrætti úr þeirri grein á framfæri við islenska lesendur. Raunar er rétt að menn viti það"að slfk félagsstofnun er ekki einsdæmi. Til eru samtök sem kalla sig alþjóðleg og berjast fyrir frjálsri sölu kannabisefna um allan heim. Hér er raunar um að ræða tvær ritgerðir eftir ameriska visindamenn, þó að birtar væru, og séu nú, undir einni fyrirsögn. Varnaðarorð vísindanna Viðs vegar að hafa komið frá visindamönnum varnaðarorð til þeirra milljóna manna sem Alvarlegar heilaskemmdir eru sannaðar Doktor Robert Gilkeson er geðlæknir. Arið 1976 kom til hans ungur og myndarlegur maður sem Steven hét. Hann kvartaði um að sér væri farið að ganga illa i skólanum, eftirtekt og minni brygðist sér. Allt sem hefði áður vakið áhuga hans fyndist honum nú leiðinlegt, stúlkurnar lika. Hann væri þrúgaður einhverjum deyfðar- dróma. Steven skýrði svo frá að hann reykti hass næstum daglega. Geðlæknirinn bað hann að láta það ógert i tvo mánuði til reynslu. Steven var svo skelkaður að hann féllst strax á það. Heilarit sýndi það þegar Steven leitaði læknisins fyrst að starfsemi heilans var mjög van- voru úr hinum svo kallaöa limbiska hluta heilans. Hann stjórnar kynhvöt, matarlyst og tilfinningalifi. Þessi heilahluti er mjög áþekkur i mönnum og þessari apategund. Aparnir höfðu daglega meðtekið hass- reyk sem svaraði til þess að maður reykti 2-3 marihuana sigarettur. Dr. Heath sýndi með þessum myndum að heilafrumurnar höfðu beðið verulegt tjón af hassinu. Hann vakti sérstaklega athygli á þvi að hass þarf miklu styttri tima til að skemma heila en áfengi yfirleitt. Oft lagast minnisgáfa ung- linga sem hafa skert hana með hassi þegar nokkur timi er lið- inn frá þvi að neyslu er hætt, en læknar leggja samt áherslu á að það sé alls ekki alltaf. Stundum finnst enginn bati þó að hætt sé aö reykja. Þá eru skemmdirnar ólæknandi, tjónið óbætanlegt. HALLDÓR KRISTJÁNSSON ———J Tilraunadýr í ógurlegri hættu Dr. Robert Petersen i rann- sóknarstofnun Bandarikjanna I vimuefnaneyslu segir þetta: Bitt hinna ungu fórnarlamba eiturefnaneyslu i Vesturlöndum. reykja hass. Fleiri og fleiri at- huganir benda til þess að fávisir hassneytendur séu að skemma heila sinn og skerða möguleika sina til að eignast heilbrigð börn. Þessar aðvaranir eru byggðar á visindalegum rannsóknum. A alþjóðlegum fundi I Reims i Frakklandi 1978 birtu meira en 50 visindamenn frá 14 löndum niðurstöður sinar um skaðleg áhrif hass á frjóvgunarfæri og lungu og frumuefnaskipti i héilanum. A vimulyfjafundi i Virginiu i mars 1979 komu sér- fræðingar fram meö fleiri sann- anir um skaðleg áhrif hassins. Og enn lengdist þessi skemmdarverkalisti á lækna- þingi New York rikis þremur mánuðum seinna. Alvarlegustu skemmdir af hassreykingum koma fram á heila og kynfærum. Kannabis- efnin leysast upp I fitu og það ræður þvi hvar þau setjast eink- um að i likamanum. Þar geym- ast þau lengi eftir að viman er liðin hjá. Sannast hefur að þessi efni eru ekki nema að hálfu hreinsuð úr likamanum viku eftir að þeirra er neytt. þroskuð og likust þvi sem er hjá 6-8 ára börnum. Eftir tvo mánuði var orðin veruleg bót á þvi en skólastarfið gekk samt litlu betur. Gilkeson hvatti Steven til að halda hass- bindindið tvo mánuöi til. Þá varð heilaritið eðlilegt eftir aldri. Þessi veiklun Stevens varð til þess að Gilkeson hélt áfram rannsóknum á unglingum sem reyktu hass. Hann hefur rann- sakað 43 unglinga sem höfðu reykt hass tvisvar i viku eða oft- ar fjögra mánaða skeið, og skipti þá ekki máli hvort þeir hefðu neytt þess siðustu tvo dagana fyrir athugun. Undan- tekningarlaust sýndu linuritin greinilega heilalömun. Stundum verður ekki úr þessu bætt A ráðstefnunni i Reims sýndi virtur sérfræðingur I tauga- og geðsjúkdómum, Robert Heath, stækkaðar myndir af heila- frumum úr rhesusöpum. Þær Glæfraspil gagnvart þeim ófæddu Margt bendir til þess að karl- menn sem reykt hafa hass jafni sig kynferðislega þegar frá liður ef þeir hætta neyslu þess. Hins vegar virðist fullsannað að kvenmenn biði þess aldrei bæt- ur. Tilraunir á öpum benda til þess að fóstrið verði fyrir heila- skemmdum vegna hassneyslu móðurinnar, jafnvel þó sú neysla eigi sér staö löngu fyrir meðgöngutimann. Hætta á að fóstrið deyi margfaldast. Þó er ef til vill alvarlegast að enginn veit með hvaða erfðaeiginleika þaö kann að fæðast ef það lifir. Þvi er samhljóða niðurstaða af rannsóknum dr. Gabriel Nahas og 12 alþjóðlegra rannsóknar- hópa annarra á þessa leiö: „Hassreykjandinn skaðar sennilega ekkiaðeins sjálfan sig andlega og likamlega, heldur er nautn hans glæfraspil sem varpar dimmum skugga á ófædd börn og barnabörn”. „Enda þótt menn hafi neytt áfengis i þúsundir ára er það fyrst nýlega aö mönnum er ljóst að ekki þarf mjög mikla neyslu þess til þess að það valdi sjúk- legu ástandi hinna ófæddu. Þvi ættu væntanlegar mæður að taka til greina aðvaranir um hassið, enda þótt ekki liggi enn- þá fyrir niöurstöður allra rann- sókna”. Og stjórnandi þessarar rann- sóknarstofu bætir við: „Aldrei fyrr i sögunni hafa jafnmargir og nú neytt hass að staöaldri. Þar meö gera þeir sjálfa sig að tilraunadýrum i mjög hættulegri tilraun. Allar rannsóknir okkar benda til þess að áhrifin séu ægilegri en hass- reykjendur geta hugsað sér eins og sakir standa”. Walter Lehman læknir segir frá Segðu mér ekki að hass sé meinlaust. Það hefur ekki verið óskaðlegt neinum þeirra 3000 ungra manna sem ég hef haft til meðferðar. Svo að segja allir þeir sem orðið hafa háðir sterk- ari eiturefnum hafa byrjað á hassi. Þaö ruglaði dómgreind þeirra og gerði þá háða eitrinu. En það er önnur saga. Hér ætla ég að benda á það að hass er i sjálfu sér hættulegt enda þótt áhrifin leyni sér i fyrstu. Varan- legu skemmdirnar eru óút- reiknanlegar. Fjölda ungra hassreykjenda gengur vel i skóla og þeir eru sannfærðir um að ekkert sé að óttast. En haldi þeir áfram með hassið mun mörgum þeirra fara að ganga ver — og það á öllum sviðum. Þeir falla á prófum, hætta að sinna áhugamálum sinum, komast i ósátt viö fjöl- skyldu sina samfara deyfð og sinnuleysi almennt. Móti hverjum einum hass- reykjanda sem tekst að hætta eru nokkrir sem ekki gera það. Þeir vita ekki hvar og hvernig þeir geta fengið hjálp og flestir þeirra óska ekki hjálpar. Þeir vilja losna við skólann og mann- félagið. Hægt og sigandi ánetj- ast þeir þeim sljóleika sem hassið veldur. Langar ekki til neins nema- Ég minnist 15 ára drengs. Hann var duglegur i skólanum, bjó yfir glæsilegum hæfileikum og virtist liklegur til að verða áhrifamaður. Einhverjir félag- ar hans fengu hann til að reyna hass. Honum féllu áhrifin vel og þess var skammt að biða að hann reykti hass að staðaldri. Honum var sama. Hann langaði ekki til neins nema að reykja hass. Þegar foreldrar hans reyndu að skipta sér af þessu hvarf hann i nokkra mánuði. Loks fann faðir hans hann og kom honum á hæli i von um bata. En hann lagaðist ekki. Eftir sex mánuði var hann útskrifaður. Nú eru 10 ár siðan. Hann gerir ekkert, væntir sér einskis. Ég hef þekkt alltof marga unga menn sem hafa búið sér sömu örlög og aldrei sigrast á þvi böli sem þeir hafa kallað yfir sig. Það er örvæntingarfull lifsreynsla. Enda þótt hass sé viða bannað svo að neysla þess varöar við lög eru neytendur þess ekki meiri brotamenn en gengur og gerist. Umferðalög eru illa haldin. En þrátt fyrir það að við förum ekki alltaf nákvæmlega eftir umferðareglunum viður- kennum við að þær eru nauðsyn og án þeirra lenti allt I ósköpum. Viö þá sem vilja gefa hassið frjálst segi ég að þær mannlegu þjáningar sem yrðu afleiðing þess hlytu að knýja okkur til að banna það aftur. Þangað til yrði tjónið svo viðtækt aö við réöum ekki við að hjálpa þeim sem fórnað yrði vegna skammsýni okkar. Hvað gerum við? Þetta er litill útdráttur úr þeim vitnisburöi visindanna sem nú liggur fyrir og margir ágætir menn viða um heim hafa unnið að svo að leiddur yrði i ljós. Ég tel að það sé skylda að láta hvern og einn islenskan ungling vita þetta. Það er skylda skólanna aö veita þá fræðslu. Rikisvaldiö ætti að gæta þess að þeir ræki Jþá skyldu. Og þaðætti jafnframYað efla til starfa' þann félagsskap sem varar við þessum voða og vekur til hugsunar. Þvi hefur verið haldið fram i blöðum hér á landi að hass væri meinlaust. Dagblaöið hefur birt margar áróðursgreinar fyrir hassneyslu. Ég man eftir langri grein af þvi tagi i Morgun- blaðinu. Ég hef lesið þennan áróður i menntaskólablaði sem virtur kennari var ábyrgðar- maður að. Þeir timar ættu að vera liðnir að svo glæpsamlegur áróður sé rekinn á tslandi. Útvarpið okkar er mikið menningartæki. Þaö þegir ekki um stórtiðindi eins og stofnun félags til að berjast fyrir frjálsri hasssölu. Ég ætlast til þess að það segi lika satt og rétt frá þvi sem menn vita nú mest um áhrif hassneyslu. Okkur er engu minni þörf aö vita það en um þessa félagsstofnun. Er ekki sjónvarpið með fasta þætti um nýjustu vlsindi?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.