Tíminn - 23.04.1980, Blaðsíða 3
Miövikudagur 23. april 1980
3
BSRB:
Allsherjarverkfall
— ef samningar nást ekki bráðlega
JSS — „Ef samningar takast'ekki
á næstunni, verður fyrsta tæki-
færi sem hentar félagsmönnum
notað tilaö knýja á um samnings-
gerð með boðun allsherjarverk-
falls”.
Svo segir m.a. i ályktun sem
samþykkt var á sameiginlegum
fundi stjórnar og samninganefnd-
ar BSRB. Var fundurinn haldinn i
gær og stóð hann i rvímar þrjár
klukkustundir.
Að sögn Baldurs Kristjánsson-
ar blaöafulltnia sátu 60-70 manns
fundinn. Þar var rætt um ýmis
atriði i kröfugerð samtakanna og
fluttar skýrslur um störf undir-
nefnda, sem hafa verið i viðræð-
um við rikisvaldið undanfarnar
vikur. Kom þar m.a. fram að i
samningsréttar- og félagsmálum
hefur miðað nokkuð, I viðræðum,
en öllu minna varðandi kröfu-
gerðina.
Þá var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt: „Sameiginlegur fundur
stjórnar og samninganefndar
BSRB átelur stjórnvöld harðlega
fyrir þann drátt sem oröinn er á
samningaviðræðum aö þeirra
hálfu. Fundurinn leggur rika
áherslu á kröfur samtakanna,
jafnt kjarakröfur og kröfur um
félagslegar umbætur.
Ef samningar takast ekki á
næstunni, verður fyrsta tækifæri
sem hentar félagsmönnum notað
til að knýja á um ssamningsgerð
með boöun allsherjarverkfalls.
Jafnframt ákveöur stjórn og
samninganefnd bandalagsins að
efnt skuli til vfðtækra fundahalda
til þess aö skýra málin og fá fram
sem gleggstar upplýsingar um
afstöðu félagsmanna.
Stjórn BSRB er faliö að skipu-
leggja fundim i samráöi við
bandalagsfélögin”.
Samvinnuferöir/Landsýn h.f.:
38,5 milljóna
hagnaður 79
HEI — Afkoma ferðaskrifstof-
unnar Samvinnuferða-Landsýnar
hf. fer stöðugt batnandi og varð
38,5 milljón kr. hagnaður á
rekstrarreikningi ársins 1979, að
þvi er segir I nýjustu Sambands
fréttum.
Hluthöfum i Samvinnuferðum
hefur fjölgaö nokkuö undanfarið,
en þar er fyrst og fremst um aö
ræða margs konar fjöldasamtök.
Meðal núverandi hluthafa eru
SÍS, ASl, BSRB, Stéttarsamband
bænda, Lamdssamb. isl. sam-
vinnustarfsmanna, Oliufélagið
hf. og Samvinnutryggingar auk
ýmissa Sambands-kaupfélaga,
verkalýðsfélaga og starfsmanna-
félaga. Af 100 millj. kr. viðbótar-
hlutabréfum sem siðasti aðal-
fundur ákvað að seld yrðu, hafa
um 2/3 þegar veriö seld.
öllum félagsmönnum i aöildar-
samböndum Samvinnuferða-
Landsýnar býöst i sumar 30 þús.
kr. afsláttur af nokkrum á-
kveðnum sólarlandaferðum og 12
þús. kr. afsláttur af feröum til
Karlslunde i Danmörku.
Þótt skipulagðar hópferðir til
útlanda sé stærsti þátturinn i
ferðaskrifstofurekstrinum, þá er
móttaka erlendra feröamanna
hingað til lands sifellt vaxandi
þáttur i starfseminni og gert er
ráð fyrir að rúmlega 3000 útlend-
ingar dveljist hér á landi i sumar
á vegum skrifstofunnar.
Tillagan urn kaupin á
3—5 Ikarusvögnum:
,Aðeins sam-
þykkt um
viðræður’
— segir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
borgarfulltrúi
Kás — Ég lft svo á, að i tillög-
unni felist aðeins samþykkt um
aö teknar veröi upp viðræður
við fyrirsvarsmenn Ikarusverk-
smiöjanna um hugsanleg kaup
SVR á 3-5 vögnum, sem siöan
verði að koma til borgarstjórn-
ar til endanlegrar afgreiðslu”,
sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
borgarfulltnii á siðasta fundi
borgarstjórnar.
Fyrrnefnd tillaga var flutt af
borgarráðsfulltrúum meirihlut-
ans og er á þessa leiö: „1 ljósi
þess að fyrirhugaö er að kaupa
20 strætisvagna til viöbótar
þeim 20, sem keyptir verða nú,
samþykkir borgarráð, að þegar
i stað veröi teknar upp viðræður
viö fyrirsvarsmenn Ikarusverk-
smiðjunnar I Ungverjalandi um
kaup á 3-5 vögnum frá verk-
smiöjunni til reynslu”.
Sjöfn bætti þvl við, að ef
Reykjavik ákvæði að fara út I
einhverja tilraunastarfsemi um
rekstur strætisvagna, þá væri
sjálfsagt að reyna fleiri tegund-
ir en Ikarusvagnana eina.
Davið Oddsson, borgarfull-
trúi var á öndveröri skoðun við
Sjöfn og sagðist lita svo á, að i
tillögunni fælist ákvöröun um
kaup á 3-5 vögnum, og i sama
streng tók Sigurjón Pétursson,
forseti borgarstjórnar.
Aö endingu var tillagan borin
upp til atkvæða og samþykkt
með átta atkvæöum gegn sjö, að
viðhöfðu nafnakalli, og léöi
Sjöfn henni atkvæði sitt eins og
aðrir borgarfulltrúar meirihlut-
ans I borgarstjórn.
SÁÁ vill afnot af Sil-
ungapolli 2 ár í viðbót
Kás — Stjórn SÁA, Samtaka
áhugafólks um áfengisvanda-
máiið, hefur farið þess á leit við
borgarráð, að afnotatlmi þeirra
að Silungapolli verði framlengdur
um tvö ár, eða fram til haustsins
1982.
Þaö var I mars I fyrra sem
borgarráð heimilaöi SAA afnot af
Silungapoili til starfrækslu
sjúkrastöövar fyrir áfengissjúk-
linga, fram til haustsins 1980.
A þeim tima sem liðinn er siöan
hafa samtökin lagt I tölvverðan
kostnað við endurbætur á staön-
um, eða u.þ.b. 15 millj. kr. auk
þess sem lögö hefur verið raf-
hitun i húsið I stað oliukyndingar.
Verður Silungapollur rafhitaöur
frá og meö 1. mai nk.
í bréfi sem stjórn SAA sendi
borgarráði fyrir skemm'stu segir
að samtökin hafi i hyggju að
byggja sina eigin sjúkrastöð i
landi Reykjavikur, ef lóö fáist
undir slika byggingu, en
jafnframt er minnt á lóöarum-
sókn frá samtökunum þar að lút-
andi sem ekki hefur fengist svar
viö enn. Byggingartimi nýrrar
sjúkrastöövar er áætlaöur um tvö
ár.
VSÍ sendir bréf til ríkisstjórnarinnar:
ítrekaöar óskir um
þríhliöa viöræöur
HEI — Vinnuveitendasamband-
ið getur heils hugar tekiö undir
þá ályktun er Verkamannasam-
bandiö sendi frá sér i gær, þar
sem lögð er áhersla á, að
skattaiækkanir séu raunhæfari
kjarabætur til verkafóiks en
krónutöiuhækkanir kaups, sem
étist jafn óðum upp i verölags-
og skattahækkunum, segir I
bréfi er VSl semdi rikisstjórn-
inni i gær.
Jafnframt segir, að ályktun
þessi styðji þá skoöun VSl, að
viö rikjandi aðstæður I efna-
hagsmálum séu það sameigin-
legir hagsmunir atvinnufyrir-
tækjanna og starfsmanna
þeirra, að yfirstandandi kjara-
deilur veröi leystar meö skatta-
lækkunum á grundvelli þrlhliða
viðræöna stjórnvalda, launþega
og vinnuveitenda. Ennfremur
segir, aö VSI telji aö einvörö-
ungu með samstarfi þessara
þriggja aðila megi finna leiö til
þess aö endurnýja kjarasamn-
inga án nýrrar veröbólguhol-
skeflu.
Bréf þetta ritaði Vinnuveit-
endasambandið rfkisstjórninni
til aö Itreka enn einu sinni ósk
sambandsins um slíkar þrið-
hliða viöræður, þar eð rlkis-
stjórnin hafi ekki enn tekið af-
stööu til þessa máls þrátt fyrir
yfirlýsingu forsætisráðherra
fyrir nær mánuöi um að þessi
ósk VSI yrði tekin til umfjöllun-
ar I rlkisstjórninni. I lok bréfs-
ins er tekið fram, aö VSl vænti
svars rikisstjórnarinnar
Útvarpsumræðum
enn frestað
JSG — Eins og skýrt var frá I
blaðinu i gær, þá var nær fullfrá-
gengið að útvarpsumræður um
skattstigafrumvarp rlkisstjórn-
arinnar færu fram i dag, en slð-
degis i gærdag kom i Ijós að
stjórnarandstaöan hafði sitthvaö
við þá fyrirætlan að athuga. Var
þvi enn brugöið á það ráö að
fresta umræöunni, og i þetta sinn
allt til mánudagskvölds 28. aprfl.
Fjármálaráðherra lagði 1 gær
fram nýju breytingatillögurnar
við skattstigafrumvarp stjórnar-
innar, sem ætlað er aö leiðrétta
álagningu á tekjulága einstak-
linga og einstæða foreldra. Tillög-
urnar fela I sér aö lágmarksfrá-
dráttur einstaklinga verði 550.000,
kr. persónuafsláttur verði 505.000
kr, og aö barnabætur með börn-
um einstæðra foreldra verði
auknar þannig aö þær verði 280
þúsund krónur meö hverju bami,
en einnig 65 þúsund krónur með
hverju barni yngra en sjö ára.
Samkomulag hefur náðst milli
stjórnar og stórnarandstöðu um
að skattstiga frumvarpið hljóti
fullnaöarafgreiöslu frá Alþingi i
næstu viku, og veröi útvarpsum-
ræða, sem jafnframt er siðasta
umræða I efri deild, á mánudag,
veröa aðeins tveir þingdagar tií
að afgreiöa það frá neðri deild, ur, þvi engir bingfundir veröa á
þ.e. þriðjudagur og miðvikudag- fimmtudaginn 1. mai.
Vinnumálasamband samvinnufélaganna:
Ríkisstjórnin ræði
við samtök vinnu-
markaðarins
Rikisstjórnin hefur markaö Vinnumálasamband samvinnu-
stefnu I efnahagsmálum, sem félaganna nauðsynlegt að rikis-
hefurþaö markmið aö draga úr stjórnin hafi nú þegar frum-
verðbólgu 1 áföngum, og þar kvæði um viöræöur við samtök
með er gert ráð fyrir að verð- vinnumarkaöarins um áform
lagshækkunum veröi sett rikisstjórnarinnar um leiöir til
ákveðin efri mörk, stiglækk- þess aö ná fram þessum mark-
andi. miðum og hvernig kjarasamn-
Meö þessu eru atvinnurekstr- ingar verða gerðir viö þau skil-
inum settar skorður um kostn- yröi.
aðarhækkanir. Verkalýðshreyf- Ef ekki kemur til sliks frum-
inginhefurnú sett fram körfur i kvæðis af hálfu stjórnvalda nú
kjaramálum, sem ekki sám- er mikil hætta á stórátökum á
rýmast þessum áformum rikis- vinnumarkaöinum, sem ekki
stjórnarlnnar. geta leitt til annars en skaða
Af þessum sökum álitur fyrir þjóðfélagið I heild. í