Tíminn - 22.06.1980, Page 17
Sunnudagur 22. júni 1980
25
liiÍIÍJL!
Skákþáttur
Arftaki Karpovs?
1 skákþætti hér i blabinu á næst-
liðnum vetri var íjallað um lir-
slitakeppni Evrópukeppninnar i
skák, sem fram fór i Skara i Svi-
þjóö i janiíarmánuði siðastliðn-
um. Eins og fram kom i þeim
þætti sigruðu Sovétmenn meö
töluverðum yfirburðum í keppn-
inni. A 10. borði I Sovésku sveit-
inni tefldi sá skákmeistari, sem
almennt mun talinn efnilegasti
skákmaður heimsins i dag. Hann
heitir Garri Kasparow og er
aöeins 17 ára gamall. Og árangur
hans I Skara var frábær. Þótt
hann væri I raun annar varamaö-
ur sovésku sveitarinnar tefldi
hann i sex umferðum af sjö og
hlaut 5,5 vinninga, sem var besti
árangur einstaklings i keppninni,
en annar kornungur meistari L.
Ftacnik, frá Tékkóslóvakiu náði
einnig ágætum árangri, eöa 6 v.
úr sjö skákum á 6. boröi.
Ekki er ótrúlegt að þar sem
Kasparow fer fari einn af heims-
meisturum framtiðarinnar og nú
skulum við lita á eina skák sem
hann tefldi i keppninni i Skara.
Hvitt: G. Kasparow (Sovétrikin)
Svart: J. Pribyl (Tékkóslóvakia).
Griinfeldsvörn
1. d4 Rf6
2. c4 g6
3. Rc3 d5
4. cxd5 Rxd5
5. e4 Rxc3
6. bxc3 Bg7
7. Rf3 b6?!
(Betra var að hróka fyrst. 1 skák
þeirra Tals og Ribli i sama móti
lék svartur hér 7. — c5, og áfram-
haldiðvarð: 8. Be3 —0-0, 9. Be2 —
b6 og svartur náði að jafna tafl-
iö).
8. Bb5+ c6
9. Bc4 0-0
10. 0-0 Ba6
11. Bxa6 Rxa6
(Svörtum hefur tekist aö ná upp-
skiptum á hinum öfluga kóngs-
biskup hvits en gallinn er sá aö
svarti riddarinn stendur illa og
kemst aldrei I gagnið).
12. Da4 Dc8
13. Bg5 Db7
(Betra var liklega 13. — Hfe8).
14. Hfel e6
15. Habl c5
(Nú fær hvitur færi á laglegri
peðsfórn, sem færir honum sterkt
frumkvæði).
16. d5! Bxc3
(Svarturá I rauninni ekkert betra
en að þiggja fórnina).
17. Hedl exd5
18. exd5 Bg7
(EBa 18. — Rc7, 19. Dc4 og hvitur
hótar m.a. Dxc5).
19. d6 f6
20. d7!!
(Gullfalleg mannsfórn, sem
byggist á þvi að svarta drottmng-
in og riddarinn á a6 lokast nú úti
frá kóngsvængnum og þar af leið-
ir að sókn hvits andi). veröur óstööv-
20. — fxg5
21. Dc4 + Kh8
22. Rxg5 Bf6
23. Re6 Rc7
24. Rxf8 Hxf8
25. Hd6 26. d8D! Be7
(Hvitur fórnar hinum glæsta
frelsingja til þess að koma hrókn-
um á 7. linuna).
26. — Bxd8
(Eöa 26. — Hxd8, 27. Hxd8+ —
Bxd8, 28. Df7 — Dd5, 29. Dxd5 —
Rxd5, 30. Hdl og vinnur).
27. Dc3+ Kg8
28. Hd7 Bf6
29. Dc4+ Kh8
30. Df4! Da6(?)
31. Dh6! og svartur gafst upp.
Jón Þ. Þór.
Fræðslustarf
Krabbameinsfélags
Reykjavíkur
Hundrað
skólar
heimsóttir
Siðast liðið skólaár varð enn
aukning á fræðslustarfi Krabba-
meinsfélags Reykjavlkur I skól-
um landsins. ABalþættir þess eru
heimsóknir i skólana, oftast
hverja bekkjardeild fyrir sig, út-
gáfa blaðsins Takmarks sem
dreift er I skólunum og útgáfa
fræðsluefnis handa skólunum.
Hundrað skólar voru heimsóttir
á skólaárinu. Flestir þeirra eru á
grunnskólastiginu en einnig var
fariö I nokkra framhaldsskóla.
Samanlagt náðu heimsóknirnar
til um 17500 nemenda i vetur.
Mest áhersla var lögö á að heim-
sækja 5.-9. bekki grunnskólanna
og náðist að meðaltali til nærri
75% nemenda I þessum fimm
aldursflokkum miðað við landið
allt. Kynnt eru störf og markmið
krabbameinssamtakanna en þó
einkum frætt i máli og myndum
um áhrif og afleiðingar reykinga,
þar á meðal samband reykinga
og krabbameina.
1 vetur tók félagið i notkun
nýjan flokk litskyggna um áhrif
reykinga, með skýringum Snorra
Ólafesonar læknis. Flutti hann
þetta efni sjálfur I mörgum skól-
um fyrri hluta vetrar en eftir ára-
mót hélt hópur læknanema áfram
þvi starfi en það náöi einkum til
8.-9. bekkjar og framhaldsskóla.
AB ööru leyti voru þaö fræðslu-
fulltrúi félagsins, Sigurður
Ragnarsson, og framkvæmda-
stjórinn, Þorvarður örnólfsson,
sem heimsóttu skólana.
Blaðið Takmark kom að venju
út fjórum sinnum á skólaárinu.
Rúmlega 23 þúsund eintök fara
hverju sinni til dreifingar I grunn-
skólum um allt land. Blaöiö er
einkum helgað reykingavörnum.
Af annarri útgáfu handa skól-
unum má einkum nefna „Verk-
efni fyrir hópvinnu um áhrif og
afleiðingar reykinga”, heimilda-
safn með mörgum skýringar-
myndum.
1 tilefni alþjóðlega heilbrigöis-
dagsins I vor efndi Krabbameins-
félag Reykjavikur til ritgerða-
samkeppni i 8. bekk grunnskóla
um land allt. Attu ritgerðimar að
fjalla um reykingavandamálið.
Að loknu forvali i skólunum bár-
ust félaginu alls 96 ritgeröir
hvaðanæva að landinu. ABalverð-
laun, skólaritvélar, hlutu þessir
fimm höfundar: Alda Berglind
Sverrisdóttir, Reykjaskóla, V-
Hún., Harpa Arnadóttir, Grunn-
skólanum I ólafsvik, Hildur
Svavarsdóttir, Kvennaskólanum I
Reykjavik, Sesselja Jóhanns-
dóttir, ölduselsskóla, Reykjavik
og Trausti Þórisson, Gagnfræða-
skólanum ólafsfirði. Sérstök
viðurkenning var auk þess veitt
fyrir tiu aðrar ritgerðir.
EV.IAFLUG
Brekkugötu 1 — Slmi 98-1534
A flugvelli 98-1464
V/,
V//„. W/y,
ÉSS
ii
ZTR 165
SLÁTTUÞYRLAN
þeysir inn á íslenska markaðinn á
ótrúlegu verði c.a. kr. 670.000.—
★ Sterkbyggð.
★ Fullkominn öryggisbúnaður.
★ Driföryggi á reimskífu.
★ Útsláttaröryggi.
★ Auðveld i flutningsstöðu.
★ Einföld hnifaskipting.
★ Þrir hnifar á tromlu.
★ Vinnslubreidd 1,65 m.
★ Orkuþörf 40-60 ha.
Flutningsstaða
búnaði.
tryggö með öryggis- Öryggiskúpling.
Staðsetning sláttuhnifa.
Umsögn Kristjáns Finnssonar, Grjóteyri, Kjós.
„Ég fékk ZTR sláttuþyrlu sumarið
1976 og hef slegið með henni um 50
ha. á ári s.l. 4 ár og hefur hún
reynst slá mjög vel bæði fyrri slátt
og há. Sláttuskifur eru efnismiklar
og sér ekkert á þeim, þrátt fyrir að
mikið grjót er i túnum hjámér.
Engar bilanir hafa átt sér stað á
vélinni utan eðlilegt hnifaslit”.
Velin veröur til sýnis hjá
okkur og einnig hjá Ágústi
Ólafssyni Stóra-Moshvoli,
Hvolhreppi í næstu viku
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
í/a