Tíminn - 30.07.1980, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.07.1980, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 30. júli 1980 3 Kengúruhjónin með afkvæmi sitt tveggja og háls mánaðar gamalt og voru þau eftirlæti gesta Sædýra- safnsins I gær. Þangað lögðu á annað hundrað manns leið slna i bliðviðrinu, ekki slst börn, enda nóg af öðru ungviði til þess að heilsa upp á Isafninu, kiðlingar, gæsarungar ogfleira. (Timamynd Tryggvi) Leyfi til reksturs leiktækjasala: Jóker fékk en Vegas ekki Kás — Tekin voru fyrir á borgar- ráðsfundi i gær erindi frá leik- tækjasölunum Jóker, Banka- stræti 9 og Vegas, Laugavegi 92, um starfsleyfi til handa sölunum, I samræmi við nýlega breytingu á lögreglusamþykkt Reykjavikur. Báðir þessara staða höfðu áður sótt um leyfi, en fengið neikvætt svar, þar sem skilyrðum heil- breigðis- og brunaeftirlits var ekki framfylgt. Nú höfðu báðir staðirnir, Jóker og Vegas, bætt nokkuð úr, og lágu fyrir jákvæöar umsagnir frá eld- varnareftirliti. Borgarráð mælti með starfsleyfi til Jókers, en itrekaði fyrri afstöðu sina til Veg- as, þar sem ekki var mælt meö starfsleyfi. Þaö er lögreglustjóri sem endanlega gefur út starfs- leyfi til leiktækjasala, en það ger- ir hann ekki, nema fyrir liggi já- kvæö umsögn frá borgarráöi. Bankastjóm Seðlabankans og yiðstóptaráðherra: Ræða kreditkortaviðskipti í dag Ekki lögbrot, þar eð engin lög eru um slík viðskipti HEI — í framhaldi af nokkrum umræðum sem urðu á Alþingi i vetur um fyrirhugaða útgáfu kreditkorta hérlendis, óskaði ég eftir þvl við Seðlabankann að hann fylgdist meö þvi sem gerð- ist i þessu máli og léti viðskipta- ráðuneytið vita um framvindu mála, þannig að við höfum fylgst meö þvl sem hefur verið að gerast i þessu máli, sagði viöskip taráðherra, Tómas Arnason I samtalið við Tlmann i gær. Um þetta giltu sem kunnugt er engin lög og þvi væri senni- lega heimilt að gera þetta, þ.e. að það væri ekki lögbrot, sagði Tómas. Hinsvegar hefðu ýinsir dregiöf efa að þetta sé æskilegt eða heppilegt hér á landi, sem Tómas sagðist þó ekki leggja neinn fullnaðar dóm á. Hann sagðist hafa talið koma til greina að setja löggjöf um svona mál og slikt væri I athug- un i ráðuneytinu. Þá sagðist hann verða á fundi meö bankastjórn Seðlabankans á morgun, (þ.e. I dag), þar sem þessi mál verði rædd nánar. Niöurstaðan kynni aö verða sú, aö hann undirbyggi frumvarp um slik viöskipti. Búvörur lækka i kringum 10% í ágúst 11,4% verðlækk- un á tóndatóötl HEI — Lækkun er orð sem bvi fljótu bragði. HEI — Lækkun er orð sem þvi miður kemur sjaldan fyrir þegar sagt er frá vöruverði hérlendis, þar til nú, aö hinar auknu niöur- greiðslur á landbúnaðarvörum koma til með aö lækka verð flestra búvara i kringum 10% nú i ágústmánuði að þvi' er viröist I fljótu bragði Mesta lækkunin er á heilum nema um 2,4%,Þá lækkar smjor- dilkaskrokkum, eða 11,4%. Súpu- kilóiðum 10,8% og kostar þá 3.240 kjötiö og lærilækka siðan I kring- kr. Þá lækkar nautakjöt i heilum um 10% og sagað i sneiöar nálægt og hálfum skrokkum um 6,2% og 8%. Mjólkin lækkar um 30 kr. lítr- veröur þá 2.389 kr. kilóið. Skorið i inn i 329 sem nemur 8,4% en buff og aörar finar steikur er rjóminn lækkar hins vegar ekki lækkunin miklu minni. Borgarráð ákveður að setja reglur um staðsetningu og opnunartíma matsölubifreiða: Stríð milli Péturs og veitinga- manna í miðbænum um staðsetningu hamborgarabflsins Kás —Um miðjan siðasta mánuð var Pétri Sveinbjörnssyni veitt leyfi til reksturs matsölubifreiðar til bráðabirgða i sex mánuði. Sið- an þá, hafa lögreglu- og skrifstofu borgarstjóra, itrekað borist kvartanir vegna reksturs hans. Kvartanirnar varða bæði staö- setningu bilsins, svo sem á Lækjartorgi og á Hallærisplani, og jafnframt um opnunartimann, en sala hefur átt sér stað úr biln- um fram yfir miðnætti. A fundi borgarráðs i gær var lagt fram bréf frá þrettán veit- ingamönnum hér I borginni, þar sem kvartað er yfir staðsetningu matsölubifreiðarinnar. „Virðist okkur nauðsyn, að þjónustubil- unum séu settar starfsreglur, sem öðrum atvinnurekstri. Um leið verði starfsemi þeirra settar þær skorður að hún skaði ekki staöbundin veitingahús, m.a. með þvi að óheimilt verði að selja úr bilunum innan viö 400 metra f-rá viöurkenndum veitingastað”, segir i bréfi þrettánmenning- anna. Einnig var lagt fram á fund- inum bréf frá Ásgeiri Hannesi Ei- rikssyni, pylsusala á Lækjar- torgi, þar sem óskað er eftir rýmkun á sölutima. Hefur hann áðurfariðfram á það en þvi verið hafnað. „Þetta erindi er itrekaö núna þar sem hæstvirt borgarráð hefur veitt sölubilnum leyfi til að versla eftir að Pylsuvagninum er gert aö loka á kvöldin”, segir i bréfi Asgeirs Hannesar. „Ekki verður hjá þvi komist að skoða málefni matsölubifreiöar- innar”, sagöi Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, i samtali viö Timann i gær. Sagöi Gunnar, að upphaflega hefði hug- myndin verið sú, að af liönum reynslutimanum skyldi formlega gengið frá rekstrarleyfi með tilheyrandi umsögn lögreglu- stjóra. „Nú er hins vegar ljóst, að ráðstafanir þarf að gera fyrr”, sagði Gunnar. „Eðlilegast er að um máliö verði fariö á sama hátt og um leyfi rekstrar pylsuvagns og nánari ákvæði þarf að setja varöandi staðsetningu bilsins”. Borgarráð samþykkti i gær að settar veröi nánari reglur i sam- ráöi við lögreglustjóra um staö- setningu bilsins og opnunartima hans. Fyrirhugaður veitingastaður á Hagamel 67: íbúar mótmæla staðsetningu Kás — Fyrirhugað er að opna nyj- an veitingastað að Hagamel 67 i Reykjavik. Borgarráði hefur bor- ist mótmæli frá fulltrúum húsfé- laganna að Kaplaskjólsvegi 27-31, þar sem staðsetningu hans er mótmælt. Borgarráð samþykkti fyrir sitt leyti á fundi sinum i gær að gera ekki að svo stöddu at- hugasemd við staðsetningu um- rædds veitingastaðar. Kaífivagnlnum neitað um vínveitingaleyfi Kás— A fundi borgarráös i gær var tekiö fyrir erindi frá Kaffi- vagninum, sem er veitingastaöur út á Grandagaröi, þar sem sótt er um leyfi til aö fá að bera fram vinveitingar á staönum, en ný- lega hafa verið gerðar miklar endurbætur á Kaffivagninum, og er nú m.a. boðið upp á vandaöa sjávarrétti á kvöldin. Borgarráö mælti ekki meö erindinu, sem i raun þýðir neitun, þvi dómsmála- ráðuneytið veitir ekki slik leyfi, nema fyrir liggi jákvæð umsögn viðkomandi sveitarstjórnar. Oformlegar upplýsingar munu hafa legiö frammi á fundinum frá matsnefnd vinveitingahúsa, þar sem kemur fram að Kaffivagninn uppfyllir ekki skilyröi laga um leyfi til vinveitingahúsareksturs. BLIKKVER Skeijabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sími: 44040. BIIKKVER SELFOSSt Hrlsmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.