Tíminn - 14.08.1980, Page 6

Tíminn - 14.08.1980, Page 6
6 Fimmtudagur 14. ágúst 1980 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurósson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eiriksson. Aug- lýsingastjóri: Stelngrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar Sfóumúla 1S. Slmi 86300. — Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir ki. 20.00: 86387. Verö I lausasöiu kr. 250 Askriftargjald kr. 5000 á mánuöi. Blaöaprent. Má ekki dragast lengur Fyrir nokkru gerði Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður Eeykvikinga, grein fyrir þvi i blaða- grein hvilikt ranglæti er i þvi falið, að svo er látið heita i opinberri skýrslugerð og ákvörðunum að „visitölufjölskyldan”svo nefnda„búi” i Reykjavik. Sem öllum er kunnugt byggjast fjölskrúðugustu efnahags- og kjaramálaákvarðanir á þvi sem út- reikningar lærðra manna segja um liðan og hag þessarar merkilegu „fjölskyldu”. Fyrir höfuðborgina og reyndar einnig nágrenni hennar hafa afleiðingarnar, -i óðaverðbólgu liðinna ára og á liðandi stund, orðið vægast sagt hörmuleg- ar. Þær birtast i taprekstri þjónustustofnana og opinberra fyrirtækja, i mikilli skuldasöfnun vegna nauðsynlegs rekstrar, svo að heldur við stöðvun nauðsynlegra framkvæmda og þjónustu, en i heild hefur þetta útreikningskerfi leitt til þess að spenni- treyja er lögð á margvislega starfsemi. Sú mynd sem blasir við höfuðborginni og næsta nágrenni er skýr, og hún er ófögur. En enginn skyldi ætla að með þessu ófremdarkerfi sé verið að bæta hag annarra landsmanna sem búa fjær mið- stöðvum valdsins. Þeir útreikningar, sem hafa hina „reykvisku visitölufjölskyldu” að forsendu, koma ekki hætishót betur við fólkið úti um land. Fólkinu úti um land er vitaskuld enginn greiði gerður með þvi að vera á dularfullan hagviskuhátt spyrt aftan eða framan við gjaldskrá Hitaveitu Reykjavikur, svo að aug- ljóst dæmi sé nefnt. Með núverandi útreikningskúnstum er ekkert til- lit tekið til lifskjara eða aðstöðu fólksins úti um landið. Svo sem öllum er kunnugt eru aðstæður mismunandi, kostnaður við ýmsa aðdráttu og nauð- synlega þjónustu mishár af ýmsum ástæðum um landið og lifskjör og lifshættir að sama skapi. Með þvi að tengja ákvarðanir um kjaramál og önnur efnahagsmál einhliða við þessa dularfullu „visi- tölufjölskyldu” er gersamlega litið fram hjá mis- munandi eða jafnvel ólikum forsendum efnahags- starfsemi og þjóðlifs i héruðum landsins. Það er þannig sameiginlegt hagsmunamál lands- manna, um land allt, að núverandi kerfi verði breytt. Núverandi útreikningsaðferðir eru beinlinis til þess fallnar að ala á tortryggni og úlfúð milli landshluta, eins og best hefur komið fram i upp- hitunarmálunum, þegar tillit er til þess tekið hvernig farið hefur um hag Hitaveitu Reykjavikur. Og á þeirri tortryggni og þeim misskilningi getur enginn hagnast, en allir tapa. Hér er um að ræða mikilsvert sameiginlegt hags- munamál allra landsmanna. Hér er um að ræða eitt mikilvægasta skilyrði þess að unnt verði að auka fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaganna og sam- taka þeirra. Og þetta er þjóðfélagslegt réttlætis- mál. Það má þvi ekki dragast lengur að visitala verði reiknuð samkvæmt skynsamlegum forsend- um i landshlutunum hverjum fyrir sig. í þvi sam- andi skiptir það ekki máli út af fyrir sig að niður- staða kann að verða svipuð á einhverjum tima. Sú reynd hlýtur þvert á móti að vera stjórnmálalegt markmið þeirra sem vinna vilja að jöfnuði i sam- félaginu. Kjartan Jónasson: Erlent yfirlit Enn aukast vangaveltur um veðurfarsbreytingar — einnar gráöu kólnun mundi þýða að jörðin framfleytti ekki öllum ábúendum sínum Island er ekki eina landið þar sem veöurfar hefur siöustu árin verið meö eindæmum afbrigöi- legt svo áratuga gömul met i hitastigi hafa fallið hvert á fæt- ur ööru. Þessu er raunar eins háttaö út um alla heimsbyggö- ina, og hefur enn ýtt undir vangaveltur og ágreining veöurfræöinga um hvert stefni i veðurfari. Tvær meginkenning- ar eru uppi og gerir önnur ráö fyrir hlýnandi veðurfari en hin kuldaskeiöi, jafnvel „smáls- öld”. Eining rlkir aöeins um þaö atriði aö einhverra hluta vegna séu hæöir óvenjulega aösóps- miklar og stööugar svo veöurfar hvort heldur þurrkar, hitar, kuldar eöa rigningar helst óbreytt langtimum saman. 1 Evrópu hafa rigningar þannig gert mikinn óskunda I sumar en þurrkar i Bandarikjunum. Veðurfræöin er vissulega mikilsverö okkur nútlmamönn- um, en sem vlsindi er hún ófull- komin að þvi leyti að hún hefur svör á reiöum höndum um hvernig veöurfræðileg fyrirbæri gerast en ekki hversvegna. Fjölmargar og ósamhljóða kenningar eru og uppi um þátt mismunandi áhrifavalda á veðurfarið, hvort heldur sólar, mengunar, heimskautaisa eða hita sjávar. Samtimis hefur það komiö átakanlega i ljós, aö heimurinn i dag má varla við neinum skakkaföllum i veður- fari. En litum nú nánar á veöur- fariö siöustu árin og kenn- ingarnar tvær um annarsvegar kólnandi og hinsvegar hlýnandi veðurfar. Ef viö byrjum i Bandarikjun- um hefur hitabylgja, þurrkar og fellibyljir stuölaö að uppskeru- bresti og dauösföllum. 1 Suöur- Afriku hafa verið óvenjulegir kuldar. Óvenjumiklar rigningar viöast I Evrópu og flóö i Austur- Evrópu og gróöurskemmdir, sem þjóöir þar máttu sist viö, þvi tveir siðastliönir vetur hafa veriö svo kaldir og snjósamir, aö mikill orkukostnaður hefur hlotist af og skepnufall (sem á mestan þátt i kjötskorti þeirra auk þess sem veöurfarsáföllin eiga ekki litinn þátt I ólgunni i Póllandi þessa dagana). Þurrk- ar hafa hins vegar skemmt upp- skeru i Mexikó, Brasiliu, Afrlku og viöar. Þegar komið er austur I Siberiu er það að segja um siðastliðinn vetur að hann var svo mildur að hveitiakrar nutu ekki verndar snjóanna og uröu illa úti. I Afganistan aftur á móti stuölaöi haröur vetur aö ógöngum Sovétmanna I viöur- eigninni viö skæruliöa. Á sama tíma héldu Bandarlkjamenn olympluleika, en þar snjóaöi lengi vel ekki neitt og svo fór aö þeir uröu aö framleiöa snjóinn sjálfir. Siðan tóku viö mestu rigningar I 30 ár I Kaliforníu, þar sem 38 manns létu llfiö og tjón var áætlað rúmar 300 milljónir dollara. En I kjölfariö fylgdu eins og áöur sagði hita- bylgja I mörgum rlkjum Banda- rlkjanna, sem stuölaöi aö láti 1.200 manna og glfurlegu tjóni. Og þá erum viö komin hringinn. Þetta er raunar ekki I fyrsta skipti sem veðurfar er óstýrlátt, hegöar sér ööru vlsi en vandi er til. Veöurfræöingar eru heldur ekki I neinum vafa um hvernig þetta gerist og þátt hæöanna þar i. Spurningin er hins vegar hvort þetta viti á eitthvað annað og meira, og þar verður auösær sá vandi veðurfræöinnar aö vita ekki hvers vegna. Margir mikilsvirtir veðurfræöingar halda þvi blákalt fram, að veöurfar sé hvorki að breytast til hins verra eða betra, i mesta lagi sé hægt að tala um örlitla óreglu, sem raunar sé ekki ýkja sjaldgæft i veðurfarssögunni. Aðrir veðurfræðingar staö- hæfa hins vegar, aö við megum eiga von á veöurbreytingum sem gætu orðið afdrifarlkar, þar sem viökvæmt framleiöslu- ferli okkar þoli ekki miklar sveiflur, og allur sá fjöldi sem nú byggir heiminn eigi allt sitt undir óskeikulu gengi þessa framleiðsluferlis. Um þetta geta flestir veöur- fræöingar orðið sammála, og allir viöurkenna þeir að maöur- inn geti verið aö breyta veður- fari jarðarinnar meö margvis- legu atferli sinu, svo sem meng- un, skógarhöggi og fleiru. Þá er bent á gosið i St. Helens og gosin á Galapagoseyjum og að ösku- mengun frá þeim ásamt meng- un mannsins muni stuðla aö minnkandi geislun frá sólinni til jarðar. A þessum rökum eru reistar kenningar um aö veður- far fari kólnandi og sé það rétt gætu afleiðingarnar oröið hörmulegar. Eöa eins og einn formælandi þessara veðurfræö- inga, Reid A. Bryson prófessor, segir: „Ef til dæmis hitastig lækkar um þó ekki sé nema eina gráðu að meðaltali mundu mikl- ir þurrkar herja á Indland á fjögurra ára fresti og landið gæti aöeins framfleytt þremur fjóröu af ibúatölu sinni.” Hann segir ennfremur aö slik lækkun meöalhitastigs mundi leiöa til þess aö lönd Efnahagsbanda- lagsins gætu ekki framleitt mat- vöru nema til eigin afnota. Sovétríkin yrðu af miklum ræktarlöndum og I Kina mundi rikja hungursneyð á fimm ára fresti. Hungursneyö mundi og rikja viös vegar annars staöar I vanþróuöum löndum. Viö slikar aöstæöur, hvaö þá verri, gæti jöröin einfaldlega ekki fram- fleytt öllum sinum fjölda. Póli- tiskar afleiöingar sllkrar hita- breytingar eru svo geigvænleg- ar, aö best er aö tala sem minnst þar um, minnast aðeins varnaöaroröa Willys Brandt, aö ekkert er eins hættulegt heims- friönum eins og hungur og skortur. Þá veitti hinn kaldi vet- ur 1978 iðnaðarlöndum norður- Evrópu, Bandarlkjunum og Sovétrikjunum nokkurn for- smekk á þvl hvað kuldinn „kost- ar” óskaplega i orkusóun, snjó- mokstri, skepnufelli o.s.frv. En visindamennirnir sem spá kuldaskeiði ei:u ekki einir um hituna, aörir spá nefnilega hlý- skeiði og byggja þá spá á af- leiðingum aukins kolvetnis i andrúmsloftinu sem mundu auka sólargeislun til jarðarinn- ar. Afleiðingar þess yrðu is- bráðnun á skautum jaröarinnar og mikiö land færi undir vatn. Hversu mikiö mundi hitna skæri hins vegar alfarið úr um hvort mannkyn kæmist verr eöa betur af á jörðinni. Þriöji visindamannahópurinn fer sér hins vegar hægt I spá- dómum og veltir fyrir sér aö hve miklu leyti þessir þættir vegi hvern annan upp. Þeir fullyröa aö enn séu engar ótvíræöar vis- bendingar um meiriháttar breytingar enda þótt þeir viður- kenni áhrif áöurnefndra þátta á veðurfar. Ennfremur benda þeir á hversu miklu aðstæöur á sjálfri sólinni ráða hér ferðinni, taka undir meö starfsbræörum sinum um nauösyn aukinna rannsókna en vara viö of mikilli svartsýni. Mannllf, tækni, vlsindi og veöurfar er svo samslungiö ab viö gerum okkur litia grein fyrir hversu mikiö jafnvægiö má raskast ef ekki á ína aö fara. Orkuskorturinn er nægur fyrir — en hvaö gerist ef geislun sólar til jaröarinnar minnkar — eöa eykst? JS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.