Tíminn - 01.10.1980, Blaðsíða 8
s
Miövikudagur 1. október 1980.
Enzo Pifferi viö lestina, sem flutti hann eftir Siberlujárnbrautinni.
Hin leynda Síbería
Enzo Pifferi: Det Forbjundna
Sibcrien. Med Dold Kamera
Langs Transsibiriska Jarnvág-
en.
Bonniers 1980.
239 bls.
Feröaglaöa menn hefur löng-.
um dreymt um aö taka sér far
meö Siberiujárnbrautinni svo-
nefndu frá Moskvu til Wladi-
vostock viö Kyrrahaf. Þessi
lengsta járnbrautarlina verald-
ar er um 9.500 km. aö lengd var
að mestu lögö á árunum 1891-
1906 og er sögö hafa kostað um
þaö bil 385 milljónir rúblna.
Ferö með Siberiujárnbrautinni
tekur ærinn tima en flestum
þykir hún timans viröi. Hún
opnar mönnum sýn til ólikra
Af bókum
menningarheima og viöa liggur
leiöin um undurfögur svæði.
Einn þeirra, sem hefur látið
drauminn um feröalag meö Si-
beriujárnbrautinni rætast er
italski ljósmyndarinn Enzo
Pifferi. Og hann fór ekki eina
ferö heldur margar og ávallt
var myndavélin með i för. Til-
gangur Pifferis var sá aö taka
myndirog segja þeim, sem ekki
ættu þess kost aö taka sér slika
.ferö á hendur, feröasöguna I
myndum. Þetta var þó hægara
sagt en gert: auk þess aö vera
ein mikilvægasta samgönguæö
Sovétrikjanna er Siberiujárn-
brautin mikilvæg herflutninga-
leiö og myndatökur þvi viöa
bannaöar. Af þeim sökum varö
Pifferi tiöum aö fela myndavél-
ina og laumast til aö taka mynd-
irþegarhann taldi verðina ekki
sjá til.
Arangur þessa feluleiks er
vægast sagt afbragösgóöur.
Lesandinn getur fylgst meö
feröinni austur aö Kyrrahafi
eins og best verður á kosiö.
Myndavélín nær aö visu aldrei
aö sýna allt þaö sem mannsaug-
að skynjar á slikri för en samt
sem áöur hefur Pifferi tekist aö
sýna svo vel sem framast verö-
ur kosiö hina undurfögru leiö,
Nýlegt samyrkjubú I Siberiu.
Fyrir kirkjuhliöi I Irkutsk.
hina óliku þjóöflokka sem landiö
byggja, gamlar borgir og nýjar,
og siöasten ekki sist hina óliku
menningarheima. Texti bókar-
innar er ekki langur en allt það
er þetta ein hin fróölegasta
feröabók sem undirritaður
hefur bariö augum. Þar að auki
eru myndir Pifferis undan-
tekningarlaust afbragösvel
geröar. Til liös viö sig hefur höf-
undurinn fengið tvo samlanda
sina, sem báöir eru sagöir menn
fróöir um Siberiu og rita þeir
stuttar greinar um þetta mikla
landsvæði i fortiö og nútiö og
feista þess að skyggnast eilitið
undir tjald framtiöarinnar. Viö
látum fylgja meö örfá sýnishorn
af myndum Pifferis.
Jón Þ. Þór
Feröaapótek viö járnbrautarstööina i Novosibrisk.
Framkvæmdanefnd hefur veriö skipuð i tilefni...
Alþjóðaárs fadaðra 1981
AB —■ Svavar Gestsson, félags-
málaráöherra hefur nýlega skip-
að sérstaka framkvæmdanefnd i
tilefni alþjóöaárs fatlaöra 1981.
Jafnframt hefur hann leyst frá
störfum þriggja manna undir-
búningsnefnd, sem skipuö var
haustiö 1979.
Meö stofnun framkvæmda-
nefndarinnar hafa veriö tryggð
tengsl viö stjórnsýsiu, sveitar-
stjórnir og samtök fatlaöra á
íslandi, en i framkvæmdanefnd-
ina hafa eftirtaldir einstaklingar
veriö skipaöir:
Margrét Margeirsdóttir,
deildarstjóri, fulltrúi félagsmála-
ráðuneytisins og er hún jafnframt
formaöur nefndarinnar, Guðni
Þorsteinsson, yfirlæknir, fulltrúi
heilbrigöis- og tryggingamála-
ráöuneytisins, Magnús Magnús-
son, sérkennslufulltrúi, tilnefndur
af menntamálaráðuneytinu,
Alexander Stefánsson, alþingis-
maður, tilnefndur af Samb Isl.
sveitarfélaga og Unnar Stefáns-
son, ritstjóri til vara, Ólöf
Rikarösdóttir, fulltrúi, tilnefnd af
Endurhæfingarráði, Sigriður
Ingimarsdóttir, tilnefnd af
Oryrkjabandalagi tslands,
Friörik Sigurösson, þroskaþjálfi,
tilnefndur af Landssamtökunum
Þroskahjálp ■ og Theódór A. Jóns-
son, forstöðumaöur, tilnefndur af
Sjálfsbjörgulandssambandi
fatlaöra.
Ritari nefndarinnar er Þóröur
Ingvi Guðmundsson, stjórnmála-
fræöingur.
Framkvæmdanefnd alþjóðaárs
fatlaöra mun starfa til ársloka
1981, en helstu verkefni hennar
verða einkum tviþætt: 1 fyrsta
lagi aö gera tillögur um heildar-
stefnu i málefnum fatlaðra, m.a.
meö samræmingu gildandi laga
og reglugerða sem snerta málefni
þessara þjóöfélagshópa og meö
tillögugerö um átak iatvinnumál-
um, umhverfismálum, kennslu-
málum o.s.frv. Grundvöllur
stefnumótunarinnar er aö f atlaöir
öölist jafnrétti á viö aðra þjóð-
félagsþegna. 1 öðru lagi er megin-
verkefni nefndarinnar aö beita
sér fyrir kynningu á málefnum
fatlaöra i skólum landsins og fjöl-
miölum.
Göngum
ávallt vinstra
megin
á móti akandi
umferö..