Tíminn - 01.10.1980, Blaðsíða 13
17
Miövikudagur 1. október íssn
Bob Magnusson
AB —Bassaleikur Bob Magnús-
son á Hótel Sögu s.l. föstudags-
kvöld vakti geysimikla hrifn-
ingu gesta.
Bob Magnússon kom hingaö i
boöi Jazzvakningar og lék hér á
þrennum tónleikum ásamt
félögum i Kvartet Guðmundar
Ingólfssonar.
Fyrrgreindir tónleikar hófust
meb nokkurs konar upphitun,
þar sem hver og einn tók sitt
sóló og mesta athygli þar vakti
sérlega skemmtilegt og sam-
stillt samspil Bob Magnússon og
Guðmundar Ingólfssonar.
Rúnar Georgsson blés af
snilld i laginu „Medication”
sem er i bossanóva stil og var
sérlega skemmtilegt aö fylgjast
með samspili hans og Magnús-
son i þvi lagi.
Gegnumgangandi alla tón-
leikana var snilldarlegur bassa-
leikurBobMagnússon og óx hon-
um stööugt ásmegin eftir þvi
sem á leið. Spilamennska hans
er afar örugg, afslöppuð og yfir-
veguö. Fingrafimi hans og
fingrastyrkleiki eru með ólik-
indum. Þegar hann tók sóló i
laginu „The Gentle Rain” varð
einum kunnum bassaleikara
hér i bæ á orði „Þetta er
meistaralega spilað”.
Gunnar Reynir Sveinsson
hafði i tilefni hingaðkomu Bob
Magnússon útsett nokkur
islensk þjóðlög og vakti flutn-
ingurinn á „Móðir min i kvi,
kvi” sérlega hrifningu.
I hléi hitti blaðamaður Tim-
ans Bob Magnússon og sagðist
Magnússon vera einstaklega
ánægður með heimsóknina
hingað og það væru kona hans
og tvö börn einnig. Magnússon
sagöi að ísland væri alveg til-
valið land til þess að heimsækja
með fjölskyldunni, þvi náttúru-
fegurð og fámenni sameinuðu
það tvennt sem hans fjölskyldu
dreymdi hvað mest um.
Aðspurður um það hvernig
honum þætti að leika fyrir
islenska áheyrendur svaraði
Magnússon þvi til að islenskir
áheyrendur væru þakklátir og
prúðir, en að sinu mati helst til
feimnir.
Magnússon sagðist vera mjög
ánægður með meðspilara sina,
Bob Magnússon ásamt félögum slnum Guðmundi Ingólfssyni og Viöari Alfreössyni á æfingu.
en ef hann þyrfti að tilgreina
einn sérstakan þá hefði honum
likað leikur Viðars Alfreðssonar
hvaö best og það verður að
segjast að Viðar var hreint frá-
bær þetta kvöld og sóló hans á
fliigelhorn i „Móðir min i kvi,
kvi” var með þvi besta sem
maður heyrði þetta kvöld.
# Bókapósturinn
Viltu vlnna tii
verðlauna?
Hér sést þegar dregiöer úr hinum 6789 réttu lausnum.
Dregið úr réttum
lausnum hjá Erni og Örlygi
AB — í tilefni væntanlegrar út-
gáfu fyrsta bindis bókarinnar
„Landið þitt — ísland”, sem
kemur út i haust hjá Bókaútgáf-
unni örn & örlygur hf., efndi
bókaútgáfan til verðlaunaget-
raunar á sýningunni Heimiliö 80.
I getrauninni reyndi m.a. á hvort
þátttakendur þekktu fjallstindinn
Hraundranga i öxnadal, sem er i
merki bókaútgáfunnar.
Alls tóku 7763 þátt i getrauninni
og þar af skiluðu 6789 réttum
svörum.
Dregið var úr réttum lausnum
miövikudaginn 24. þ.m. að við-
stöddum fulltrúa borgarfógeta.
Veitt voru 10 vegleg bókaverð-
laun, en I fyrstu þremur sætunum
voru: Inga Rós Eiriksdóttir,
Sæviöarsundi 4, Reykjavik og
hlaut hún „Landið þitt — Island”,
öll fjögur bindin, önnur verðlaun
komu i hlut Gústafs Guðmunds-
sonar, Safamýri 50, Reykjavik,
og kom i hans hlut „Ferðabók
Eggerts og Bjarna”, og þriöju
verðlaun hlaut Asta Þ. Guðjóns-
dóttir, Hraunbæ 76, Reykjavik, en
hún fékk „Feröabók Stanleys”.
öðrum verölaunahöfum hefur
nú þegar verið tilkynnt um verð-
laun sin.
Syrpuskápar
staólaóar einingar—færanlegar innréttingar
Með færanlegum innréttingum
bjóða Syrpuskóparnir þér enda-
lausa möguleika á hagkvæmri
nýtingu. Þú færir til hillur,
skúffur, slár og bakka eftir þörf-
um hverju sinni, bætir við fleiri
skápum, skrifborðum, snyrti-
borðum, o.fl. þegar það þykir
henta o.s.frv.
Syrpuskápar eru framleiddir í
stöðluðum einingum sem lækkar
verð og styttir afgreiðslutíma
verulega. Þeir eru auðveldir í
flutningi og til uppsetningar þarf
fátt annað en skrúfjárn, hamar og
ofuriitla handlagni.
Syrpuskápar eru heimilisprýði í
svefnherbergi sem baðherbergi,
barnaherbergi eða forstofu. Einn
skápur, tveir skápar eða tíu skáp-
ar...það er þitt að velja.
Nú eru Syrpuskáparnir meö hljófilausum
smellum i sérstökum innfelldum lömum, sem
færa þér áferöarfallega og heilsteypta skápa-
samstæöu.
1/3 út - eftirstöövar á 6mánuóum
AXEL EYJÓLFSSON
HÚSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI9 KÓPAVOGI SÍMI43577
Vinsamlegast sendiö mér nánari upplýsingar um Syrpuskápa.
Nafn
Heimili.
Sendum um allt land