Tíminn - 01.10.1980, Síða 10

Tíminn - 01.10.1980, Síða 10
60 ára Miðvikudagur 1. október 1980. 10 FLUGLEIDIR ^0 Hluthafafundur Boðað er til almenns hluthafafundar i Flugleiðum hf miðvikudaginn 8. október n.k. kl. 14:30 í Kristalsal Hótels Loftleiða i Reykjavik. Dagskrá: 1. Umræður og ákvörðun um framhald Norður-Atlantshafsflugs Flugleiða hf. milli Luxemborgar og Bandarikjanna. 2. Tillaga til breytingar á 4. gr. sam- þykkta félagsins um heimild til aukningar hlutafjár félagsins. Aögöngumiöar og atkvæðaseölar veröa afhentir hluthöf- um á aöalskrifstofu félagsins Reykjavíkurflugvelli frá og meö 1. október n.k. og lýkur afhendingu þriöjudaginn 7. október Þeir hluthafar sem hafa i hyggju aö láta umboösmann sækja fundinn fyrir sina hönd, skulu leggja fram skrifleg og dagsett umboö. Fyrri umboö gilda ekki. Stjórn Flugleiða hf. Verkakvennafélagið Framsókn Félagsfundur fimmtudagskvöld 2. október i Alþýöuhúsinu viö Hverfisgötu kl. 20.00. Fundarefni: 1. Rætt um samningana 2. Heimiid fyrir verkfailsboöun. 3. önnur mál. Félagar fjölmennið, sýnið skirteini við innganginn. Stjórnin. Tilboö óskast i eftirfarandi bifreiöar og tæki fyrir Véla- miöstöö Reykjavikurborgar. Vörubifreiöar: 3stk. Mercedes Benz 1513árg. '69og '70 án palls. 1 stk. vörubifreið Scania Vabis árg. '69 meö sex manna húsi. 1 stk. vörubifreiö Voivo árg. ’66meðsex manna húsi. 1 stk. Volkswagen 1300 árg. '73 1 stk. Simca 1100 árg. '77. 1 stk. vökvagrafa JCB. SC Ofangreindar bifreiöar og tæki veröa til sýnis i porti Véla- miöstöövar aö Skúlatúni 1 i dag og á morgun fimmtudag- inn 2. okt. Tilboðin veröa opnuð á skrifstofu vorri aö Frikirkjuvegi 3, föstudaginn 3. okt. kl. 14 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvtgi 3 — Sími 2S800 Akureyringar — Bœjargestir Hótel KEA býður: Gistiherbergi, veitingasal, matstofu, bar Minnum sérstaklega á: VEITINGASALINN II. hæö Góöur matur á vægu veröi. Hinn landskunni Ingimar Eydal skemmtir matargestum öll kvöld i StlLNABERG, matstofa. Heitir og kaldir réttir allan daginn. Opiö 08-23. Glæsileg matstofa ‘sumar. Dansieikir laugardagskvöld. VI KU) Vl:LK()MI\' Hótel KEA Akureyri Hafnarstræti 89 Simi (96) 22200 Aðalgeir Sigurgeirsson t dag, 1. október 1980 er góövin- ur minn, Aðalgeir Sigurgeirsson, forstjóri á Húsavik, 60 ára. Hann hefir lagt gjörva hönd við margt á lifsleiðinni. Alls staöar hefir hann staðið vel fyrir sinu, hvort sem það hefir verið til sjós eða lands. Alli Geira, en hann er vel þekktur undir þvi nafni i sinu heimahéraði og viðar, er fæddur að Bangastöðum á Tjörnesi. Það- an fluttu foreldrar hans til Húsa- vikur og um 6 ára að aldri var honum komið að Fagranesi I Aðaldal og átti að vera þar smá- tima, en honum dvaldist þar til hann var 16 ára, eða i 10 ár. Var þetta myndarheimili, fékk hann þar gott uppeldi og atlæti. „Lengi býr aö fyrstu gerö”, segir máltækið. Er þar fyrst aö nefna foreldrana og svo dvöl hans á þvi góða heimili, meðan hann var ennþá ungur. Ber hann merki þessa enn i dag. Ekki kann ég að rekja ættir Alla vinar mins, enda ekki vel ættfróð- ur, en get mér svona til, að annar hvor maður i hans umhverfi séu frændur hans og vinir um leið, á- samt óskyldum, þvi Alli Geira hefur verið traustur og ábyggi- legur félagi, sem og lika á við- skiptasviðinu. Ekki var hann nema rétt orðinn myndugur eöa 22 ára þegar hann „festi ráð sitt” og gekk að eiga hina ágætu konu sina Bergþóru Bjarnadóttur, ætt- aða frá Norðfirði. Það var stórt gæfuspor i lifi hans. Eftir að þau byrjuöu sinn hjú- skap urðu þau fyrir þvi óláni aö veikjast og dvelja á sjúkrahúsi æöitima. Virtist þá ekki bjart framundan. En með harðfengi og dugnaði komust þau yfir öll sin veikindi og erfiðleika, og hafa verið við góða heilsu siðan. Þau hafa komið upp myndarlegum barnahópi, eða 7 talsins, 4 synir og' 3 dætur. Bjarni er bæjarstjóri á Húsa- vik, Sieuröur skólastjóri að Hrafnagilsskóla i Eyjafirði. Sigurgeir er kennari á Húsavik.og einnig aðstoðarmaður fööur sins við hans fyrirtæki. Sveinn er yngstur i föðurhúsum. Þetta voru synirnir. Dæturnar eru: Guðrún Björg, búsett i Sviss, Sigrún bóndakona á Hnjúki og Sigriður búsett á Húsavik. Oll eru börnin vel gefin, myndarleg og gegnir borgarar. Eiga þau ekki langt að sækja það. Aðalstarf Aðalgeirs nú til fjölda ára, hefir verið bifreiöa- akstur. Fyrst ók hann venjuleg- um vörubfl i almennri vinnu, sem þeim tilheyra. Siðar fékk hann sér Mercedes Benz og byggði á hann skýli og hóf aö aka vörum milli Húsavikur og Reykjavikur. A þeim tima, sérstaklega að vetri til, lenti hann oft i mannraunum á þessari leið, þvi oft var mjög snjóasamt og vegaþjónusta ófull- komin. Siðar bætti hann farkost- inn með stærri og fullkomnari bil- um, ásamt tengivögnum. Þessa atvinnugrein rekur hann enn i dag með myndarskap. Hin siðari ár hefir hann ekki ek- ið að staðaldri sjálfur heldur er mikiö við afgreiöslustörf heima fyrir i nýlegu húsi, sem hann reisti vegna vöruflutninganna. Þar er i ýmsu aö snúast. Sjálfur leysir Aðalgeir bilstjóra sina af i sumarfrium, og kippir sér þá ekki upp við að renna svo sem 2 ferðir i viku hverri, ef svo ber undir, á- samt lestun i Reykjavik. 1 gegnum árin hefur Aðalgeir verið mikill félagsmálamaöur. Við, sem stöndum að rekstri Vöruflutningamiðstöðvarinnar hf. i Reykjavik höfum notið þess, og einnig landssamtök vöruflytj- enda með bifreiðum i félaginu Landvara. 1 þessum félögum báð- um er Aöalgeir stjórnarformað- ur. 1 Landvara hefir hann verið stjórnarformaður frá byrjun eða i 10 ár. Aðalgeir er góður fundarmaður og á létt með að tjá sig. Margar ræöur sinar flytur hann næstum blaðalaust. Þessi félagsstörf hafa kostab hann mikinn tima, án þess aö mikið gjald komi I staðinn. Margthefuráunnistogá Aðalgeir sinn mikla þátt þar i. Aðalgeir er hress i bragði og kemur vel fram. Minnist ég margra ánægjustunda i návist hans, þvi oft höfum við starfað saman á undanförnum árum, á- samt félögum okkar. Hann kann vel að segja frá, snjallyrtur er hann og hnyttinn, sem margir kunna vel að meta. Mér finnst alltaf hressandi að hitta hann. Ég vil þakka Alla vini minum samfylgdina hingað til, sem ég vona að verði lengri og óska hon- um gæfu og gengis við þessi tima- mót. Pétur Jónsson, Akureyri. S.l. laugardag opnaöi Guðrún Tryggvadóttir ijósmyndasýningu i DJCPINU og stendur hún til 8. okt. nk. Hér að ofan er eitt verka listakonunnar. Þjóðdansafélag Reykjavíkur 30 ára á næsta ári AB — Aðalfundur Þjóðdansa- félags Reykjavikur var haldinn 18. september s.l. Starf félagsins var meö nokkr- um blóma á siðasta ári, en helstu þættir starfseminnar voru nám- skeiö i barnadönsum, gömlu dðnsunum, og þjóðdönsum frá ýmsum löndum. Sýningarflokkur félagsins tók þátt i KQarvikunni s.l. sumar og dvaldi auk þess i boði F.V.S. á Lúneborgarheiði. Sölvi Sigurösson sem verið hef- ur formaður félagsins s.l. 14 ár lætur nú af störfum sem slikur, en i hans stað var Ingibjörg Braga- dóttir kosin formaður. Þjóðdansafélag Reykjavikur var stofnað 17. júni 1951, og verð- ur þvi 30 ára á næsta ári. Vetrarstarf félagsins, sem nú er að hefjast, verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Gömlu dansarnir og barnadansar verða kenndir á mánudögum i Alþýðu- húsinu við Hverfisgötu. Innritun stendur nú yfir i sima 76420, en kennsla hefst mánudag- inn 29. september.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.