Tíminn - 03.10.1980, Blaðsíða 1
Föstudagur 3. október 1980.
218. tölublað 64. árgangur
Eflum
Tímann
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Einn af tafaleikjum VSI
— segir Benedikt Davíösson um afstöðu ASÍ til áframhaldandi viðræðna um sérkröfurnar
HEI— Við erum mjög harðir á
þvi, að eftir sé að ræða mörg at-
riði varðandi sérkröfur, bæði
hinar sameiginlegu sérkröfur
og einnig hjá Verkamannasam-
bandinu, hjá okkur bygginga-
mönnum svo og i sambandi við
málefni farandverkafólks”,
sagði Benedikt Daviðsson i gær,
er rætt var við hann vegna um-
mæla Þorsteins Pálssonar að
viðræðum um sérkröfursé lokið
af hálfu VSl.
Benedikt taldi þessa afstöðu
VSÍ sennilega einn af tafaleikj-
um þeirra. Þeir hafi alltaf verið
að setja allskonar skilyrði fyrir
áframhaldandi viðræðum. Und-
anfarna daga hafi það verið
prentaramálin og nú komi skil-
yrði um hreint borð varðandi
sérkröfur, áður en farið verði að
ræða um laun, visitölu og þess
háttar.
Þá sagði Benedikt þá hjá VSI
marg oft hafa lýst þvi yfir, að
engar sérkröfur komi til greina
sem kosti einhverja peninga.
Margar af þessum kröfum séu
þó þannig, t.d. varðandi
öryggismál og vinnutilhögun, að
það sé dálitið langsótt að þær
kosti einhverja peninga. T.d.
nefndi hann eina kröfu sem
byggingamenn stæðu mjög stift
á, sem er að sett verði ákveðin
mörk við þvi við hve mikinn
vindstyrk megi nota hina stóru
byggingakrana sem nú tiðkast,
þ.e. að miða við 6 vindstig.
Helsta málið varðandi farand-
verkamennina er hins vegar um
að sett verði hámark á fæðis-
kostnað þeirra, sem verið hefur
ákaflega mismunandi á milli
staða og fyrirtækja.
En ef VSi neitar að ræða þessi
mál frekar?
Þá yrði annað hvort aö gera —
eins og venjulega þegar upp úr
slitnaði — að sáttasemjari komi
með nýja tillögu um málsmeð-
ferð, eða þá að láta mætast stál-
in stinn og takast á um málin.
gráar
fundustí
Skeiðsfossi
I gær fundu tollverðir 383
flöskur af smygluðu áfengi
um borð i m/s Skeiðsfossi er
skipið lá i Hofsóshöfn. Var
áfengið af ýmsum tegund-
um,romm, whisky, vodka en
þó mest af spiritus. Áfengið
var falið i loftstokk i vélar-
rúmi og i skutþró. Matsveinn
og vélstjóri hafa viðurkennt
að vera eigendur smygl-
varningsins.
Skipið kom til Rifshafnar i
fyrrinótt frá ýmsum
Miðjarðarhafshöfnum og var
Hofsós önnur höfn þess hér á
landi.
Þarna eru stórvirkar vinnuvélar að vinna að nýrri tengingu af Stekkjarbakka niður á Reykjanesbraut,
sem kemur til með að greiða fyrir umferð úr Stekkjahverfi og Hólahverfi niður á Reykjanesbrautina i
framtiðinni.
ASI verður
að sætta
síg við lok í
sérkröfum
— eins og þau mál standa í dag,
segir Þorsteinn Pálsson
Blaðamannafélagið:
Kynnir sár
tæknihlið
prentara-
deilunnar
HEI— „Ekki vil ég nú meina að
viðræöur hafi siglt i strand, en
hins vegar hefur afskaplega lit-
ið gerst alla þessa viku. Að okk-
ar mati stafar þessi töf af þvi,
að ASl hefur ekki verið reiðubú-
ið til þess að sætta sig við lok
viðræðna um sérkröfurnar”
sagöi Þorsteinn Pálsson i gær.
Spurður um hvernig
ágreiningur gæti verið um það,
hvort einhverjum samningum
væri lokið eða ekki lokiö svaraði
Þorsteinn, að auðvitað væri
endalaust hægt að halda fram
kröfum. En að mati þeirra hjá
VSl hafi nú þegar verið gengið
frá þvi í þessum sérkröfum,
sem VSÍ teldi sig geta gert i
þessum samningum. ASl verði
þvi að sætta sig viö lok i sér-
kröfuviðræðunum eins og þau
mál standi i dag. Auk þessa
stæöi siöan tæknideila prentara
ennþá i vegi fyrir áframhald-
andi samningaviðræðum.
HEI— 1 deilu prentara og prent-
iðnaðarins er að nokkru verið að
fjalla um mál sem snerta blaða-
menn, þ.e. varðandi tækniatriðin.
Timinn spurði Kára Jónasson,
formann Blaðamannafélagsins
hvort félagið hafi tekið einhverja
afstöðu til þeirra mála. Hann
sagði launamálanefnd, stjórn og
trúnaðarmannaráð Blaðamanna-
félagsins hafa fjallað um þetta
mál á fundi, ásamt þvi að fjalla
um önnur kjaramái félagsins.
Fulltrúar félagsins hafi siðan
gengið á fund sáttasemjara og
fulltrúa prentara og prent-
iðnaðarins, vegna þessa máls.
Fyrst og fremst þó til þess að
kynna sér stöðu málanna.
Kári tók fram, að samkvæmt
samningi frá árinu 1977 hafi
blaöamenn leyfi til að skrifa eigin
hugverk inn á tölvuskerma og -
gera það nú þegar.
Nýr
kjara-
samn-
ingur
HEI— Bankamenn undirrita
i dag nýjan kjarasamning er
gilda á frá 1. ágúst 1980 til 31.
ágúst 1981, að þvi er kemur
fram i frétt frá Sambandi is-
lenskra bankamanna.
Samkomulagið er sagt um
margt hliðstætt nýlegum
kjarasamningi BSRB, en
nokkur atriði snerti þó
bankamenn sérstaklega.
Grunnkaupshækkanir eru
þær sömu og hjá BSRB, svo
og ákvæði um verðbætur.
Einnig kveður samkomu-
lagið á um atvinnuleysis-
tryggingar, 95 ára lifeyris-
reglu, lagfæringar á
ákvæðum um slysatrygging-
ar, vaktavinnu og hollustu-
hætti. Auk þess er i
samningnum tekiö aukið til-
lit til þeirrar tölvu- og tækni-
væðingar sem hafin er i is-
lenskum bönkum.