Tíminn - 03.10.1980, Síða 5
5
Föstudagur 3. október 1980.
lí''!■!<'l*
Haust-
sýning
FÍM
AB — Glæsileg og afar f jölbreyti-
leg sýning FIM stendur nú yfir að
Kjarvalsstöðum. Sýnd eru 140
verk eftir 40 höfunda.
Fimm listamenn, sem sýna
þarna sem gestir sýningarinnar,
mynda þó nokkurs konar kjarna
hennar. Það eru þau Ásgerður
Búadóttir, Guðmundur Bene-
diktsson, Leifur Breiðfjörð, Val-
týr Pétursson og Þórður Hali.'
Verk þessara listamanna eru
afar ólik aö sniðum. Asgerður
sem sýnir þarna listvefnað á afar
falleg verk á sýningunni. Eitt
þeirra er stórt veggteppi sem hún
óf fyrir þessa sýningu og nefnir
það ,,Sjö lifsfleti”, en verk þetta
sagðist Ásgerður hafa gert til
heiðurs minningu sjö listakvenna
sem allar voru annaðhvort
félagar meö henni í FÍM, eða
Hér má sjá eitt spegilverka Leifs Breiöfjörð, fremst á myndinni, og á veggnum fyrir aftan sjást verk
Asgerðar ................ ~ “
Búadóttur, það stærsta er ,,Sjö llfsfletir
fíll
ílllK
ky
Frá félagsstarfi eldri borgara að Lönguhiið 3.
Þetta eru þau sem nefnd eru kjarni sýningarinnar. Þau standa hjá einum koparskúlptúr Guðmundar
Benediktssonar. Þau eru frá vinstri: Leifur Breiðfjörð, Þórður Hall, Asgerður Búadóttir, Guðmundur
Benediktsson og Valtýr Pétursson. Tlmamynd — Róbert.
Fjölbreytt félagsstarf
eldrí borgara í Rvk
BSt — í vetur verður á fjórum
stöðum i Reykjavik félagsstarf-
semi eldri borgara, þ.e. að
Norðurbrún 1, Furugeröi 1,
Lönguhlið 3 og til áramóta að
Hallveigarstööum við TUngötu.
A þessum stöðum er veitt til-
sögn I alls konar handavinnu, svo
sem útprjóni, rya, smyrna, hnýt-
ingu, vefnaði o.fl. Einnig i smiða-
föndri og útskurði i bein og tré,
leirmunagerö, smeltvinnu, leður-
vinnu, enskukennslu o.s.frv. og
einnig léttri leikfimi. Spiluö er oft
félagsvist, — dagblöð, vikublöð
spil og töfl eru einnig gestum til
afnota. Bókaútlán á vegum
Borgarbókasafns Reykjavikur er
vikulega á þessum stöðum, og
dansaðir eru gömlu dansarnir
einu sinni i mánuði.
Hársnyrting og fótaaðgerða-
þjónusta er þáttur félagsstarfs-
ins, einnig veröa væntanlega hóp-
ferðir i leikhús, en skemmtiatriði
verða auglýst hverju sinni með
fyrirvara.
Selt er föndurefni, þeim er þess
óska og strætisvagnafarkort
Framhald á bls 19
samtimis henni i listnámi.
Guðmundur Benediktsson sýnir
þarna skúlptúr úr kopar og eir.
,,Ég hef undanfarið unnið mikið
úrkopar. Verk mín hér, sem eru
öll að einu undanskildu frá þessu
ári, eru abstrakt, en þó gætir
alltaf vissra áhrifa frá náttúr-
unni,” sagði Guömundur.
Leifur Breiöfjörð sýnir spegil-
verk og steindar glermyndir, ,,í
verkum minum reyni ég að
spegla umhverfið eða láta þau
tengjast umhverfinu. Ég leita að
nýjum möguleikum með steind
gler. Það eru svo miklu fleiri
möguleikar fyrir hendi en fólk vill
vera láta. Glermyndir og reyndar
einnig spegilmyndir geta verið
fristandandi, hangið i lofti, verið
sem nokkrus konar milliveggir
o.s.frv.” sagði Leifur.
Valtýr Pétursson sýnir átta
málverk á sýningunni. Valtýr
sagði ,,Ég hef vinnuaðstöðu I
Vesturbænum og bý þar einnig,
þvi er Vesturbærinn mér afar
hjartfólginn og þangað sæki ég
mikið af upphafshugmyndum
minum að mótifum, en pær
breytast svo og þróast þegar ég
fer að vinna verkin. Höfnin er
mér lika hugleikin og þangað
saki ég marga hugmyndina.”
EinmyndValtýs nefnist „Farið
á miðin”, en hún var á sýningu i
Paris og vakti þar mikla athygli
og hrifningu. Valtýr lýsir mynd
þessari svo: „Hún fellur vel inn i
modernismann i dag. Þetta er
svona nokkurs konar natur-ex-
pressionismi.”
Myndlistarverk Þórðar Hall
eru sáldþrykkmyndir og teikn-
ingar. Þórður sagði um eigin
verk, „Ég vinn yfirleitt úr náttúr-
umótifum. Ég reyni að túlka
samskipti mannsins viö náttúr-
una.”
Af þessum pistli ætti aö vera
ljóst að hér er um geysimarg-
þætta og fjölbreytilega sýningu
og ættu þvi allir myndlistarunn-
endur að geta fundið eitthvað þar
sem gleöur auga þeirra.
David T. Haisiip afhenti Siguröi Þorkelssyni, forstjóra tæknideildar
Pósts og sima viöurkenningu frá baudarisku strandgæslunni. Frú
Elsa Þorkelsson aöstoöar mann sinn viö aö festa heiöursmerkiö i
barm hans.
íslendingum
afhentar
viðurkenningar
— I bandariska sendiráöinu
BSt — Við athöfn á skrifstofu
sendiherra Bandarikjanna á
Islandi voru íslenskum aöilum af-
hentar þrennar viðurkenningar
tvennar frá AMVER og etna
frá bandarisku strandgæslunni.
AMVER viðurkenningarnar
voru veittar fulltrúum tveggja
islenskra farskipa, Bakkafoss og
Skaftafells, og fulltrúum út-
gerðarfélaga þeirra, fyrir þátt-
töku i AMVER kerfinu.
Viöstaddir fyrir hönd skipafél-
aganna voru:Guðni Langer, skip-
stjóri á Skaftafelli, og óskar
Einarsson, yfirmaður starfs-
mannadeildar skipadeildar Sam-
bandsins, og Þór Elísson,
skipstjóri á Bakkafossi, og Jón
M. Magnússon, yfirmaður
áhafnadeildar Eimskipafélags
Islands.
AMVER viðurkenningarnar
voru afhentar af MR. Anthony S.
Kochanek, Jr„ sem nú gegnir
störfum sendiherra i fjarveru
hans.
Þriðja viðurkenningin var af-
hending U.S. Coast Guard Dist-
inguished Public Service Award.
Framhald á bls 19