Tíminn - 03.10.1980, Qupperneq 5

Tíminn - 03.10.1980, Qupperneq 5
5 Föstudagur 3. október 1980. lí''!■!<'l* Haust- sýning FÍM AB — Glæsileg og afar f jölbreyti- leg sýning FIM stendur nú yfir að Kjarvalsstöðum. Sýnd eru 140 verk eftir 40 höfunda. Fimm listamenn, sem sýna þarna sem gestir sýningarinnar, mynda þó nokkurs konar kjarna hennar. Það eru þau Ásgerður Búadóttir, Guðmundur Bene- diktsson, Leifur Breiðfjörð, Val- týr Pétursson og Þórður Hali.' Verk þessara listamanna eru afar ólik aö sniðum. Asgerður sem sýnir þarna listvefnað á afar falleg verk á sýningunni. Eitt þeirra er stórt veggteppi sem hún óf fyrir þessa sýningu og nefnir það ,,Sjö lifsfleti”, en verk þetta sagðist Ásgerður hafa gert til heiðurs minningu sjö listakvenna sem allar voru annaðhvort félagar meö henni í FÍM, eða Hér má sjá eitt spegilverka Leifs Breiöfjörð, fremst á myndinni, og á veggnum fyrir aftan sjást verk Asgerðar ................ ~ “ Búadóttur, það stærsta er ,,Sjö llfsfletir fíll ílllK ky Frá félagsstarfi eldri borgara að Lönguhiið 3. Þetta eru þau sem nefnd eru kjarni sýningarinnar. Þau standa hjá einum koparskúlptúr Guðmundar Benediktssonar. Þau eru frá vinstri: Leifur Breiðfjörð, Þórður Hall, Asgerður Búadóttir, Guðmundur Benediktsson og Valtýr Pétursson. Tlmamynd — Róbert. Fjölbreytt félagsstarf eldrí borgara í Rvk BSt — í vetur verður á fjórum stöðum i Reykjavik félagsstarf- semi eldri borgara, þ.e. að Norðurbrún 1, Furugeröi 1, Lönguhlið 3 og til áramóta að Hallveigarstööum við TUngötu. A þessum stöðum er veitt til- sögn I alls konar handavinnu, svo sem útprjóni, rya, smyrna, hnýt- ingu, vefnaði o.fl. Einnig i smiða- föndri og útskurði i bein og tré, leirmunagerö, smeltvinnu, leður- vinnu, enskukennslu o.s.frv. og einnig léttri leikfimi. Spiluö er oft félagsvist, — dagblöð, vikublöð spil og töfl eru einnig gestum til afnota. Bókaútlán á vegum Borgarbókasafns Reykjavikur er vikulega á þessum stöðum, og dansaðir eru gömlu dansarnir einu sinni i mánuði. Hársnyrting og fótaaðgerða- þjónusta er þáttur félagsstarfs- ins, einnig veröa væntanlega hóp- ferðir i leikhús, en skemmtiatriði verða auglýst hverju sinni með fyrirvara. Selt er föndurefni, þeim er þess óska og strætisvagnafarkort Framhald á bls 19 samtimis henni i listnámi. Guðmundur Benediktsson sýnir þarna skúlptúr úr kopar og eir. ,,Ég hef undanfarið unnið mikið úrkopar. Verk mín hér, sem eru öll að einu undanskildu frá þessu ári, eru abstrakt, en þó gætir alltaf vissra áhrifa frá náttúr- unni,” sagði Guömundur. Leifur Breiöfjörð sýnir spegil- verk og steindar glermyndir, ,,í verkum minum reyni ég að spegla umhverfið eða láta þau tengjast umhverfinu. Ég leita að nýjum möguleikum með steind gler. Það eru svo miklu fleiri möguleikar fyrir hendi en fólk vill vera láta. Glermyndir og reyndar einnig spegilmyndir geta verið fristandandi, hangið i lofti, verið sem nokkrus konar milliveggir o.s.frv.” sagði Leifur. Valtýr Pétursson sýnir átta málverk á sýningunni. Valtýr sagði ,,Ég hef vinnuaðstöðu I Vesturbænum og bý þar einnig, þvi er Vesturbærinn mér afar hjartfólginn og þangað sæki ég mikið af upphafshugmyndum minum að mótifum, en pær breytast svo og þróast þegar ég fer að vinna verkin. Höfnin er mér lika hugleikin og þangað saki ég marga hugmyndina.” EinmyndValtýs nefnist „Farið á miðin”, en hún var á sýningu i Paris og vakti þar mikla athygli og hrifningu. Valtýr lýsir mynd þessari svo: „Hún fellur vel inn i modernismann i dag. Þetta er svona nokkurs konar natur-ex- pressionismi.” Myndlistarverk Þórðar Hall eru sáldþrykkmyndir og teikn- ingar. Þórður sagði um eigin verk, „Ég vinn yfirleitt úr náttúr- umótifum. Ég reyni að túlka samskipti mannsins viö náttúr- una.” Af þessum pistli ætti aö vera ljóst að hér er um geysimarg- þætta og fjölbreytilega sýningu og ættu þvi allir myndlistarunn- endur að geta fundið eitthvað þar sem gleöur auga þeirra. David T. Haisiip afhenti Siguröi Þorkelssyni, forstjóra tæknideildar Pósts og sima viöurkenningu frá baudarisku strandgæslunni. Frú Elsa Þorkelsson aöstoöar mann sinn viö aö festa heiöursmerkiö i barm hans. íslendingum afhentar viðurkenningar — I bandariska sendiráöinu BSt — Við athöfn á skrifstofu sendiherra Bandarikjanna á Islandi voru íslenskum aöilum af- hentar þrennar viðurkenningar tvennar frá AMVER og etna frá bandarisku strandgæslunni. AMVER viðurkenningarnar voru veittar fulltrúum tveggja islenskra farskipa, Bakkafoss og Skaftafells, og fulltrúum út- gerðarfélaga þeirra, fyrir þátt- töku i AMVER kerfinu. Viöstaddir fyrir hönd skipafél- aganna voru:Guðni Langer, skip- stjóri á Skaftafelli, og óskar Einarsson, yfirmaður starfs- mannadeildar skipadeildar Sam- bandsins, og Þór Elísson, skipstjóri á Bakkafossi, og Jón M. Magnússon, yfirmaður áhafnadeildar Eimskipafélags Islands. AMVER viðurkenningarnar voru afhentar af MR. Anthony S. Kochanek, Jr„ sem nú gegnir störfum sendiherra i fjarveru hans. Þriðja viðurkenningin var af- hending U.S. Coast Guard Dist- inguished Public Service Award. Framhald á bls 19

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.