Tíminn - 03.10.1980, Side 8
B
PÖstu'dagur 3. október 1980.
Gunnar M. Magnilss sá um hand-
rit aö leikþáttunum eftir sögu
Jóns Trausta, Leysing.
,4,eysing”
eftír Jón
Trausta
— flutt í 6
þáttum sem
framhaldsleikrit
BSt— A sunnudaginn 5. okt. hefst
i útvarpi flutningur á framhalds-
leikriti i 6 þáttum, sem byggt er á
sögu Jóns Trausta, „Leysing”.
Gunnar M. Magnúss hefur skrifað
handrit að útvarpsþáttunum.
Leikstjóri er Benedikt Arnason
og meö stór hlutverk i framhalds-
leikritinu fara Róbert Arnfinns-
son, Rúrik Haraldsson, Baldvin
Halldórsson, Steindór Hjörleifs-
son og Klemenz Jónsson. Hver
þáttur tekur um þrjú korter i
flutningi.
Leikurinn gerist í kauptúninu
Vogabúðum á árunum 1890-1910.
Þorgeir ólafsson er verslunar-
stjóri hinnar dönsku Jespersens-
verslunar. En nýr timi er aö
ganga i garð og hefur óhjákvæmi-
lega áhrif d stöðu Þorgeirs i sam-
félaginu.
Jón Trausti eða Guðmundur
Magnússon eins og hann hét réttu
nafni, fæddist aö Rifi á Melrakka-
sléttu árið 1873 og dó i Reykjavik
1918. Hann stundaöi nám i prent-
iðn á Seyðisfirði um tima, en
dvaldi i Kaupmannahöfn 1896-98
og kynnti sér leiksviösbúnað.
„Halla” (1906) og „Heiðarbýlið”
(1908-11) eru sennilega þekktustu
bækur hans en hann samdi margt
annarra verka af ýmsu tagi, bæði
i bundnu og óbundnu máli.
Gunnar M. Magnúss er fæddur
á Flateyri i Onundarfirði 1898.
Tók kennarapróf 1927 og stundaði
framhaldsnám við Kennarahá-
skólann i Kaupmannahöfn.
Fyrsta bók hans var smásagna-
safn en siðar komu unglingabæk-
ur, sem uröu mjög vinsælar, t.d.
„Suður heiðar”. Frásagnir og
þjóölegur fróöleikur ýmis konar
hefur veriö meginuppistaða
verka hans siðasta aldarfjórðung.
Hann hefur skrifað allmörg leik-
rit, þ.á.m. þrjú framhaldsleikrit
fyrir útvarp.
Þátturinn sem fluttur verður
nk. sunnudag, heitir „Milli
kauptiðanna”.
Benedikt Arnason er leikstjóri
fram haldsleikritsins.
Skólamál Reykjavikurborgar
43% nemenda grunnskóla
í Breiðholtshverfunum
AB — Formaður fræðsluráðs og
fræðslustjóri kynntu nú nýveriö
væntanlegt vetrarstarf grunn-
skóla Reykjavikurborgar.
Afundinum kom m.a. fram að
fækkun nemenda grunnskól-
anna hefur fariö minnkandi á
s.l. árum, sem bent gæti til að
fjöldinn i aldursárgöngum
grunnskdlanna væri að leita
jafnvægis. Fólksflutningar inn-
an borgarhverfa halda áfram og
er nú svo komið að 43% nem-
enda grunnskólanna eru bú-
settir í Breiðholtshverfunum.
Þvi hafa margir skólar i eldri
hverfum borgarinnar verið
nýttir undir aðra starfsemi en
kennslu fyrir grunnskólanem-
endur og nægir i þvi sambandi
að nefna skóla eins og Mið-
bæjarskólann, Vogaskólann,
Ármúlaskólann, og Kvenna-
skólann. 1 öörum skólum hefur
fækkunin leitt það af sér að
kennsluhúsnæöinu hefur að
hluta til veriö breytt, þannig að
nú geta skólarnir boöiö
nemendum upp á betri þjónustu
s.s. bókasöfn, tækjasöfn og sér-
kennslustofur. Eins hefur fækk-
unin orðið til þess að þrisetningu
hefur veriö útrýmt og allmiklu
minna er nú um tvisetningu en
áður.
Hin öra nemendafjölgun i
Breiðholti hefur oröið til þess að
byggingarframkvæmdum þar
var flýtt verulega og komið var
upp talsvert mörgum lausum
kennslustofum.
Starfið i skólunum i vetur
verður meö svipuðu móti og
verið hefur en þó verður eitt-
hvað um nýjungar eins og list-
kynningu i skólum i samvinnu
við Höfundamiðstöð Rithöf-
undasambands íslands, Sin-
fóniuhljdmsveit Islands og
Leikfélag Reykjavikur. Þá er
einnig ætlunin að auka verulega
náms- og starfskynningu fyrir
nemendur 9. bekkjar grunnskól-
ans. Á vegum Fræðsluskrif-
stofu Reykjavikur mun nú sem
undanfarin ár fara fram kynn-
ing á minja- og listasöfnum
borgarinnar.
Margt fleira mætti hér segja
að fyrirhuguðu starfi skólanna á
vetri komanda, en hér verður
látið nægja að lokum að drepa
aðeins á ráðgjafar- og sálfræði-
þjónustu skóla i Reykjavik sem
hefur aðalaðsetur i þremur
hverfisskrifstofum, en þær eru
Tjarnargata 20, sem þjónar
vesturbænum, gamla miðbæn-
um og gamla austurbænum,
Réttarholtsskólinn sem þjónar
skólum á nýja austurbæjar-
svæðinu og Hólabrekkuskóli,
sem þjónar Breiðholtshverfum
að mestu leyti. Starf þjónust-
unnar beinist aðallega að þvi að
leysa vandamál einstakra nem-
enda er upp kunna að koma i
skólum eða vanda á heimilum,
sem áhrif hafa á liðan og starf
barnsins i skóla.
Eins og sjá má hefur ekki gefist timi til þess að ganga frá leiksvæði barnanna iSeljaskóla, en þaöstendur vonandi tilbóta. Tímamynd GE.
Fyrsta áfanga Seljaskóla lokið
AB — A ofangreindum fundi
var 1. áfangi Seljaskóla kynnt-
ur, en byggingu hans er nú svo
til lokið.
Indriði Þorláksson sem er for-
maöur byggingarnefndarinnar,
greindi frá þvi að bygging 1. á-
fangans, sem er 3600 fermetrar,
hefði aðeins tekið 18 mánuöi.
Hann benti á að hægt heföi verið
að hraða framkvæmdum svo
mjög sökum þess aö fé það er
rikið leggur i byggingu skólans
hefði nú borist jafnóðum á með-
an á framkvæmdum stóö, en
ekki eftir á eins og tiðkast hefur.
Þarna heföi verið um tilraun aö
ræða þar sem riki og bær hefðu
viljað fá samanburðarmat á
kostnaði, byggingartima og
byggingarháttum. Indriðisagði
aðekkiyrði annað séö en tilraun
þessi heföi heppnast vel, þvi
bygging þessi yröi að öllum lik-
indum sist dýrari en aðrar
skólabyggingar, jafnvel ódýr-
ari.
öll byggingin er framleidd i
verksmiðjum i einingum og þær
siðanfluttará staðinnog reistar
þar.
Allir innveggir eru flytjanleg-
ir, allar leiðslur og lagnir utaná-
liggjandi og þær siðan hólfaðar
af meö flekum sem lagðir eru
neöan i loft og þjóna jafnframt
hlutverki i hljóðburðarkerfi
hússins. Endanlegur kostnaður
liggur ekki fyrir, en búast má
við að kostnaður við þennan á-
fanga verði um einn milljarður.
1 fyrsta áfanga eru fjorar
samtengdar einingar, og eru i
þeim samtals 19 kennslustofur.
Hönnun skólans var f höndum
teiknistofunnar Arkhönn s.f.,
sem sá um arkitektateikningar,
og verkfræðistofunnar Itak h.f.,
sem annaðist verkfræði-
teikningar. Allt húsið er
hannað með sérstöku tilliti til
fatlaðra og er það einkar á-
nægjuleg nýbreytni i skólamál
um okkar ísler.dinga. önnur
skemmtileg nýjung er sú að
hver eining skólans hefur sinn
einkennislit (á loftflekum og
ofnum) en það er gert til þess
að auðvelda börnunum að rata
um skólann sinn.
Mynd þessi var tekin er Har-
aldur Kröyer afhenti triinaðar-
bréf sitt sem sendiherra islands
i Sovétríkjunum 18. júni s.l. Sitj-
andi eru M.P. Georgadze ritari
forsætisnefndar æðstaráðsins.
Haraldur Kröyer, V.V. Kuzent-
sov fyrsti varaforseti Æðsta
ráösins og I.M. Zemskov vara-
utanrikisráðherra. Standandi
eru Sigrföur Snævarr sendiráös-
ritari, hægra megin viö hana
stendur G.F. Farafonov yfir-
maður Norðurlandadeildar
utanrikisráðuneytisins og
vinstra megin við Sigriöi
stendur D.S. Nikiforov siða-
meistari utanrikisráðuneytis-
ins.