Tíminn - 23.10.1980, Page 5

Tíminn - 23.10.1980, Page 5
Fimmtudagur 23. október 1980. 5 Söngskólinn í Reykjavík heldur kvöldskemmtun: HVAD ER SVO GLATT KL — Nk. föstudagskvöld kl. 23.15 heldur Söngskólinn i Reykjavik miðnæturtónleika i Háskólabiói undir nafninu „HVAÐ ER SVO GLATT SEM GÓÐRA VINA FUNDUR”. Söngskólinn i Reykjavik lætur skammt liöa stórra högga á milli. Ekki voru aðstandendur hans fyrr farnir að sjá fram Ur húsakaupunum á Hverfisgötu 39; en þeir festu kaup á öðru húsi i nágrenninu, enda þegar full þörf fyrir aukið húsnæði. Þessi nýju húsakaup áttu sér stað i sumar og fyrir valinu varð Hverfisgata 44, en þar eru rúm- góð salarkynni, þar sem koma má fyrir hópkennslu og tón- leikahaldi. En þessar framkvæmdir kosta auðvitað sitt. Gripur Söngskólinn þvi til sömu úrræða og fyrr og hyggst slá tvær flugur i einu höggi, afla fjár og skemmta almenningi. Þeir sem fram koma, eru nemendur og kennarar skólans. Má þar nefna gamalreyndar kempur eins og Guðrúnu A. Simonar, Guðmund Jónsson, Þuriði Pálsdðttur, Magnús Jónsson, Sigurveigu Hjaltested o.s.frv. Hljómsveit undir stjórn Björns R. Einarssonar kemur einnig fram. En i þeim atriðum, sem hún er ekki þátttakandi, eru undirleikarar og eru þeir lika úr kennaraliðinu, þær Lára Rafnsdóttir, Kolbrún Sæ- mundsdóttir, Jónina Gisladótt- ir og Debra Gold. Auk þeirra æfði með hópnum Katrin Sigurðardóttir, en hún er nem- andi i Söngskólanum og kemur fram með kórnum á skemmtun- inni. Aðstoð viö sviðsetningu hefur Sigriður Þorvaldsdóttir veitt og kynnir er Guðmundur Jónsson. Kór Söngskólans kemur mikið við sögu á skemmtuninni. Segja má, að hann aðstoði i flestum atriðunum með einsöngvurunum á einn eða annan hátt, auk þess sem hann er með eigin kórsyrpu og -lag. Hér styður hann viðbakið á ólöfu K. Harðardóttur oe GarðariCortes. (Timamvnd GE.) jr-tfck. Guðmundur Jónsson verður kynnir á skemmtuninni. En hann lætur ekki þar við sitja, heldur bregður sér i fleiri Hki. t einu atriöi bregður hann á leik i hlutverki ballettdansmeyjar. Lagið vinsæia Nína og Geiri gaf þeim Söng- skólamönnum tilefni til nýstárlegrar útgáfu. Hér bregður Þuríður Páls- dóttir sér í gervi Nínu. Hún þarf að rifja upp gamla fimi sína í sippi og greinilegt er, að Birni R. Einarssyni er um og ó Þuriður Pálsdóttir fer á kostum i hlutverki sinu i Annie get your gun. Hér hefur hún sannaö skot- fimi sina með talsverðum til- þrifuin. (Timamynd GE). (Tímamynd GE) Anna Júliana Sveinsdóttir syngur brot úr Carmen. Ekki mun þó vera um alveg hefðbundna uppfærslu að ræða, þó að söngurinn sé fyrsta flokks. (TimamyndGE) Endurskmsmerki fyrir vegfarendur. Fást á bensínstöðvum Shell Heildsölubirgöir: Skeljungur hf. Smávörudeild-Laugavegi 180 sími 81722 Islenskt föður kiarnfóöur FÓÐURSÖLJ OG BÆTIEFNI Stewartsalt Vifoskal Cocura KÖGGLAÐ MAGNÍUMSALT GÓÐ VÖRN GEGN GRASDOÐA MJOLKURFELAG REYKJAVIKUR Algteiðsla Lauga>egi 1b4 Simi llt/Suq Foðurvo-ualgteiðila SunOaholn Simi H222S Stálull, með og án sápu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.