Tíminn - 25.10.1980, Side 1
Laugardagur 25. október1980
237. tölublað 64. árgangur
Eflum
Tímann
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Samningar á borðinu, en
HEI —1 fyrrinótt ákváðu ASÍ og
VSÍ að ganga til samninga af al-
vöru, að þvi er ætla má. VSÍ
samþykkti launastigann eins og
hann var I sáttatillögunni og ASl
gaf á móti eftir sérkröfur, sem
VSÍtaldi þýðingarmikið að fá út
úr samningunum. Aðeins
strandaði á einu atriði, þe. svo-
kallaðri reiknitölu i ákvæðis-
vinnu byggingamanna, sem i
sáttatillögunni hafði verið áætl-
að að hækkaði um 6%, en bygg-
ingamenn vildu hafa um það
fyrirvara. Þetta atriði túlka
ASl- og VSÍ-menn hins vegar
mjög hvor á sinn hátt.
„Byggingamenn fá eðlilega
kauphækkun og þar að auki
hluta af láglaunabótum, sem
settar voru inn i launastigann.
En þeir sættu sig ekki við það og
vilja halda þvi opnu að fá meira,
þótt þeir hafi áður verið búnir
að samþykkja þetta atriði i yfir-
lýsingu 43ja manna nefndar
ASt. Við sögðum á hinn bóginn,
að annaöhvort væri gert sam-
komulag eða ekki. Ekki væri
hægt að skilja einn þátt eftir op-
inn”. Þetta sagði Þorsteinn
Pálsson, sem telur að með þess-
ari afstöðu ætli byggingamenn
að halda opinni leið til að þvinga
fram meiri kauphækkanir en
aðrir fá.
Björn Þórhallsson sagði SVI
snúa dæminu við eins og vant
er. Þeir túlkuðu málin svo, að
ASt vildi ekki ganga til samn-
inga af þvi að það væri að berj-
ast fyrir byggingamenn. Þetta
væri auðvitað alrangt. ASI hafði
verið tilbúið að ganga að samn-
ingunum þrátt fyrir þennan
fyrirvara byggingamanna.
Hann benti auk þess á það, að nú
ætlaði VSt allt i einu að kross-
festa byggingamennina, sem
hafi þó tekið þátt i gerð þessara
kjarasamninga, en minnist
hins vegar ekkert á alla hina
iðnaðarmennina sem væru fyrir
utan, t.d. múrara, pipulagning-
armenn, málara, dúklagninga-
menn og rafiðnaðarmenn.
Björn sagði að túlkun VSI nú
nánast vera þá, að það sé hlut-
verk ASlaðleggjast á einhverja
meðlimi sina til aðgæta þess, að
þeirnái ekki einhverju tilteknu,
sem auðvitað gæti aldrei stað-
ist. ASl hefði heldur engan rétt
til að pina neitt félag til samn-
inga. Auðvitað sé það hlutverk
VSl, að halda þessu i jafnvægi,
og hleypa ekki einum lengra en
öðrum.
Þar sem nánast öll iðnaðar-
mannafélögin, nema trésmiðir,
eru utan þessara samninga var
Björn spurður hvort álita mætti
ástæðuna þá, að þeir ætluðu að
reyna að komast upp fyrir al-
mennu félögin á eftir. „Ég býst
alveg eins við að þeir muni
reyna það. Enda veit ég ekk'i
hverjir hafa ekki reynt aö koma
sér eins langt upp fyrir aðra
eins og þeir lifandi hafa getað.
Þar er auðvitað nærtækasta
dæmið með opinbera starfs-
menn, sem komnir eru fram úr
okkur á flestum sviðum” sagöi
Björn.
Sáttafundi með samninga-
ncfndum ASÍ og VSl lauk á
ellefta timanum i gærkveldi.
Boðað hefur veriö til nýs sátta-
fundar kl. 10 árdegis I dag.
Vöruskiptajöfnuður landsmanna fyrstu
niu mánuði ársins:
Óhagstæður
Kás — A fyrstu niu mánuðum þessa árs varð vöruskiptajöfnuöur lands-
manna óhagstæöur um rúma 35 milljarða króna. Ekki er þó öil nótt úti
enn, þvi samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar sem kemur fram i riti
stofnunarinnar „Þjóðhagsáætlun fyrir áriö 1981”, er gert ráö fyrir aö
vöruskiptajöfnuðurinn á öllu þessu ári veröi óhagstæður um sex
milljarða. Þjóöhagsstofnun gerir þvi ráð fyrir að vöruskiptajöfnuöur-
inn batni um 29 milljaröa á siöustu fjórum mánuðum ársins. Þjóðhags-
stofnun spáir þvi að vöruskiptajöfnuðurinn á næsta ári, þ.e. 1981 verði
hagstæður uin 16 milljarða kr.
En svo við vfkjum okkur aftur að yfirlitinu fyrir fyrstu niu mánuði
þessa árs þá varðútflutningur á þessu timabili rúmir 305 milljarðar kr.
á meðan að innflutningur nam 340.5 milljörðum kr.
Stærstu liðirnir I útflutningnum eru ál og álmelmi upp á 43.5
milljaröa og kisiljárn upp á rúma 4,2 milljarða. 1 innflutningnum eru
stærstu liðirnir flugvélakaup upp á 11.5 milljaröa kr. og skipainnflutn-
ingur upp á rúma 6 milljarða kr. Innflutningur til tslenska járnblendi-
félagsins er upp á 5,6 milljarða kr. og til Landsvirkjunar upp á 3,7
milljarða. Langstærsti liðurinn i innflutningnum er þó til tslenska ál-
félagsins eöa upp á 26 milljarða kr.
Útimarkaðurinn á Lækjartorgi er löngu orðinn fastur liöur í bæjar-
lifi föstudagsins. Þar fæst allt milli himins og jarðar og öllum er
frjálst að selja þar vörur sinar með tilskildu leyfi. Stúlkan á mynd-
inni hefur fundið þetta forláta gamla vesti og list bersýnilega vel á.
Tfmamynd-Róbert.
----Loðnustofninn miklu minni en-
fiskifræðingar töldu:
VERULEGA DREGIÐ
ÚR LOÐNUVEIDUM?
KL — Að undanförnu hafa
islenskir og norskir fiskifræð-
ingar stundaö sameiginlegar
rannsóknir á stærö loönustofns-
ins og hafa komist að þeirri
uggvænlegu niðurstöðu, að
loðnustofninn mælist u.þ.b.
helmingi minni nú en við sam-
bærilegar rannsóknir i vor.
Þegar Norðmenn og tslend-
ingar sömdu um skiptingu
loönuaflans, studdust þeir við
upplýsingar fiskifræðinga eftir
rannsóknir þeirra i vor. Sam-
kvæmt þeim var heildarkvóti
ákveðinn 775 þús. tonn, sem var
nokkru hærri tala en fiskifræð-
ingar höfðu lagt til. Þar féllu i
hlut Norömanna 120 þús. tonn og
hafa þeir þegar fullnýtt sinn
kvóta. Af þeim 655 tonnum, sem
tslendingum voru eftirlátin,
hafa þegar veiðst yfir 130.000
tonn. Nýju rannsóknir fiski-
fræðinganna sýna 675.000 tn. af
botnloðnu og 500.000 tonn af
hrygningarloðnu. Segja þeir
magnið af hrygningarloðnu
heföi þurft aö vera heimingi
meira, ef kvótinn ætti að halda
sér.
Samkvæmt samkomulaginu
viö Norðmenn á að endurskoöa
kvótaskiptinguna i janúar. Enn
sem komið er hafa tslendingar
veitt það litið af sinum hluta, aö
loönustofninum ætti ekki að
vera hætta búin, en það kann aö
vera að endurskoöa verði veiði-
magnið. Sá böggull fylgir þvi
skammrifi, að þegar er búið að
úthluta kvóta á hvern bát. Sum-
ir hafa þegar hafið veiðar, en
aðrir ekki. Það væri þvi ekki lit-
ið vandaverk að endurskoða þá
skiptingu.
— Ég hef boöað á minn fund á
mánudagsmorgun hagsmuna-
aðila I þessum málum. Þetta
mál er sérstaklega alvarlegt
gagnvartloðnuflotanum, sem er
ekki of sæll af þvi, sem hann
hefur. Ég vil þvi heyra sjónar-
miö loðnuskipstjóra, sem sumir
hverjir eru búnir að vera á mið-
unum núna nokkuð lengi. Ég
mun skoða þetta mál mjög
vandlega frá báðum hliöum áð-
ur en ég tek endanlega ákvörö-
un, segir Steingrimur HeT-
mannsson sjávarútvegsráð-
herra.
Baráttan stendur um varaformanninn á flokksþingi Alþýðuflokksins:
Vilmundur og Magnús H.
vilja báðir fá embættið
Nú er fyrir fram bdiö að ganga
frá mikilvægustu „kosningun-
um” á flokksþingi Alþýðuflokks-
ins, sem hefst um mánaðamótin.
Yfirlýsing Bencdikts Gröndal um
að hann gefi ekki kost á sér I for-
mannskjöri var ekki gefin fyrr en
búiö var aö ganga frá málunum.
Þaö er taliö næstum því öruggt,
að engínn muni gefa kost á sér
gegn Kjartani Jóhannssyni f
kosningu flokksformanns. Er þvi
taliö, að Kjartan verði sjálfkjör-
inn.
Þá er álitið að búið sé að semja
um þaö aö Magnús H. Magnús-
son, fyrrum ráöherra, verði vara-
formaður Alþýöuflokksins.
Sá samningur stóð þó ekki
nema hálfan dag, þvi siðdegis I
gær gaf Vilmundur Gylfason út
þá yfirlýsingu, að hann myndi
gefa kost á sér sem varaformaöur
flokksins. Ljóst er þvi, að barátta
sú sem álitiö var að yröi um for-
manninn færist nú niöur I embætti
varaformanns. Magnús H. nýtur
aðallega stuönings eldri kynslóö-
arinnar i Alþýöuflokknum og
stuðningsmanna Benedikts Grön-
dals, en Vilmundur rær aðailega
á mið „róttæku deildarinnar”.
Miklar bollaleggingar eru hafn-
ar um það hvað veröa kann um
skipan mála i Reykjavik, kjör-
dæmi Benedikts Gröndal, ef hann
hefur í hyggju að fara að draga
sig i hlé af stjórnmálasviðinu inn-
an tiðar.
Vitað er, að þau Jóhanna Sig-
uröardóttir og Vilmundur Gylfa-
son, þingmenn bæöi, munu ekki
hafa i hyggju aö láta neinn ganga
fram hjá sér þegar og ef að þvi
kemur að nýr leiðtogi fyrir
Alþýðuflokkinn I höfuöborginni
veröur valinn.
Næstur þeim var á framboðs-
lista flokksins i siðustu kosning-
um Jón Baldvin Hannibalsson,
ritstjóri Alþýðublaösins, en hann
hefur mjög látiö flokksstarfið til
sin taka að undanförnu. Það er
hins vegar talið hamla framgangi
Jóns Baldvins, aö ýmsir aðilar
innan flokksins hafa á honum
illan bifur, bæöi vegna pólitískrar
fortiðar og ættemis, og nýlega
var reynt að koma þvi á kreik, að
Jón Baldvin stæöi fyrir þvi að
Benedikt yröi rutt úr vegi. Jón er
einmitt næsti varaþingmaöur Al-
þýöufiokksins i Reykjavik. And-
stæðingar Jóns benda á menn
eins og t.d. Sigurö E. Guðmunds-
son hjá Húsnæöismálastofnun
sem frambjóðanda sinn.