Tíminn - 25.10.1980, Qupperneq 8

Tíminn - 25.10.1980, Qupperneq 8
8 Laugardagur 25. október 1980. Minning; Hermann Guðmundsson bóndi á Blesastöðum Fæddur 23. ágúst 1913 — Dáinn 18. október 1980 Himininn blikaBi heiBur nótt- ina, sem Hermann GuBmundsson dó. Okkur sem nærri stóBum fannst eins og ský syrti sól á himni. KalliB var komiB, sem okkar allra blBur, og nú var Her- mann kvaddur til annarra starfa. HannlifBi mikiB framfaratima- bil I sögu lands og þjdBar. Já, hann naut þess aB lifa af gleBi og ánægju, sem hann miBlaBi út frá sér. Éghef þaB á tilfinningunni aÐ hann hafi veriB forsjóninni þakk- látur fyrir aB fá aB lifa. Allt lífs- starf einkenndist af þessu, hann var þeirrar skoBunar aB hver stund í lífi manns væri sú dýr- mætasta og ánægjulegasta. Hermann var meBalmaBur á hæB, þrekvaxinn en grannholda og spengilegur fram til hinstu stundar. Hann var frlBur sýnum og svipsterkur mjög. HáriB var dökkt og þykkt, enniB hátt og augun frán og snör. Munnsvipur hans var sterkur og fagur og sýndi oft mestu svipbrigöi hans. BrosiB var einlægt og hlýtt, geisl- andi af hjartahlýju og gleBi. baB var öBru fremur lifsgleBin og ánægjan, sem móta&i fas hans og framkomu I flestu. Samt var hann öruggur og ákveBinn i fram- komu og háttum og viljasterkur mjög. Ávallt leit hann fyrst og fremst á jákvæBri hliBar mála i mati slnu á mönnum og málefn- um og var afar raunsær og rétt- sýnn I dómum sinum. Einlægni var honum I blóB borin og allt, sem hét fals og yfirdrepsskapur var honum ekki. aö skapi. Færi einhver sveitungi eöa kunnugur halloka I lifinu var Her- mann fyrsti maöur til aöstoöar og mörgum hefur hann reynst granni góöur. öllum, sem til hans leituBu meö vandamál reyndist hann ráöhollur og úrræöagóöur. ÞaB var sammerkt meö honum og hans góBu konu aö vart máttu þau til þess hugsa aö geta ekki glatt smælingjans hjarta. Þau skipta tugum börnin, sem dvöld- ust um lengri eBa skemmri tima á heimili þeirra og oftast voru þetta börn, sem áttu fáa aö. öllum þessum börnum komu þau til nokkurs þroska og sýndu þeim sömu umhyggju sem eigin börn væru. Ahugamál Hermanns voru mörg. Hann bar hag landbúnaö- arins og bóndans fyrir brjósti og unni landi slnu mjög. Samspii gróöurs og jarBar og ræktun lands voru honum hugfólgin. En ræktun eigin huga iBkaöi Her- mann einnig. Ljóöalestur var honum mikil ánægja og vitnaöi hann oft i'ljóö í tali slnu. Fáa hef ég heyrt lesa betur upp ljóö en hann, hrynjandinn og tilfinningin voru honum eölislæg. GóBan skáldskap mat hann mikils og gerBi sér far um aB skilja til hlýtar þann boöskap, sem aö baki lá. RæBumaBur var Hermann af- buröa góöur, hann var rökfastur mjög og flutti mál sitt meö skýrum og háum rómi. ByggBi hann mál sitt oft upp meB samlik- ingum og dæmum úr mannllfinu áBur en aö kjarna málsins var komiö. Ein ræöa öörum fremur er mérminnisstæB, en þaöerræöan, sem henn hélt i brúBkaupi þriggja dætra sinna áriö 1973. Gaf hann þar okkur brúöhjónunum heil- ræöi, sem hann taldi hollust ung- um hjónum. Efnislega voru þau þessi: AB sýna hvoru ööru trú- mennsku og öllum einlægni, aö liösinna þeim, sem minna máttu sin á alla lund aö trúa á land sitt og þjóö og vera jákvæöur til orös og æöis. Þessi heilræöi hans sýna vel lifsviöhorf og skoBanir Her- manns. Þaö fór ckki hjá þvl a& ótal trúnaBarstörf kæmu i hlut Her- manns I þágu félagssamtaka, sveitar sinnar og bændasamtak- anna. Hann var ekki einhamur til verka á þeim vettvangi og mála- fylgjumaöur mikill. Hann átti auBvelt meö aö einbeita sér aö verkum líöandi stundar og var hugurinn ávallt bundinn viö þau verk, sem hann vann aö á hverj- um tíma. Þaö verk, sem heillaBi hann mest aB vinna aö siBustu árin var aö stjórna uppbyggingu á jörö sunnlenskra bænda aö Stóra-Ár- móti. Auönaöist honum ekki aö sjá þar hugsjónir slnar rætast, en þaB starf sem þar verBur unniö mun ávallt tengjast minningu hans. I dag veröur þessi mannkosta- maöur borinn til moldar. FerBin langa er hafin og meB lifsstarfi slnu er hann vel undir hana búinn. Viö tengdabörn hans þökkum honum af alhug fyrir allt þaB sem hann gaf okkur I lifi sinu. Þaö var gæfa okkar aö fá aö vera I hans nánd. Athvarfsleysi og örbirgö engum betur treysti, vanmáttugum vinur, vandamálin leysti. Fylgdist hönd og hjarta hjálparfús I raunum. Góövild hans og göfgi Guös þökk fá aö launum. Höfuösmanni horfnum hjartans þakkir innast. Guös á vegum gekk hann, gott er þess aö minnast. Mannkostanna maöur mestur rls viB dauöa. Seint aö fullu fyllist fremdarsætiö auöa (Stefán frá Hvltadal). Helgi Bjarnason. 1 dag veröur gerö frá Ólafs- vallakirkju útför Hermanns GuB- mundssonar bónda á BlesastöB- um á Skeiöum. Hann andaBist 18. október s.l. I Borgarspitalanum I Reykjavik eftir skamma legu. Hermann var fæddur á Blesa- stöBum 23. ágúst 1913. Foreldrar hans voru Kristln Jónsdóttir frá Vorsabæ og Guömundur Magnús- sonfrá Votumýri. Þau áttu margt bama, fjórtán náöu fulloröins- aldri, þar af ein hálfsystir og var Hermann sá þriBji I rööinni aö aldri. Allt er þetta merkisfólk og erhannsáfyrstisem fellurfrá.af þeim er upp komust. 1 þessum stóra hópi ólst Hermann upp og má nærri geta, aö oft hefur reynt á kjark og dugnaö þessara barna, ekki slst hinna eldri. Þannig voru fyrstu árin I skóla llfsins. Hann lærBi aö vera ábyrgur oröa sinna og gerBa og veröur þess trausts, sem foreldrar og aörir báru til hans. Þessi lærdómur fylgdi hon- um til hinstu stundar. Þaö mátti segja um hann eins og sagt var foröum, aB af honum mátti gera marga menn. Hann var bæöi greindur og vlösýnn og hvar sem hann heföi ráBist til starfa, myndi hann hafa orBiö sómi sinnar stéttar. Sveitin kall- aöihann til starfa og hann geröist bóndi. Veturinn 1939-1940 voru þeir bræöur, hann og Magnús á Bændaskólanum á Hólum og geröust sIBan bændur á föBurleifö sinni. Þann 13. júnl 1941 gekk Hermann aB eiga Ingibjörgu Jó- hannsdóttur ættaöa Ur Fljótum I SkagafirBi og sama ár byrjuöu þaubúskap á Blesastööum. Ungu hjónin voru stórhuga og þaB kom I þeirra hlut aö byggja nýbýliö Blesastaöi II og bjuggu þau þar siöan. Þau eignuöust fimm börn, einn son og fjórar dætur og komu þeim ölium mjög vel til manns. Eins og áöur er aB vikiö, var Hermann til margs hæfur, enda hló&ust á hann trúnaöarstörf, fyrir stétt hans og sveitarfélag. Hann var athugull, framsækinn og reiöubúinn til aö leggja hverju góöu máli liB. BúiB varö stórt, heimiliö mannmargt og hjónin meöafbrigöumgestrisin. Þaö var gaman aö heimsækja þau og gott aö dvelja hjá þeim. Húsbóndinn var hlýr I geöi, priiBur og athug- ull, húsfreyjan vildi hvers manns vanda leysa, heilsteypt og ákveöin í framkomu. Þannig var umgjöröin um Blesastaöaheimil- iö. „Þar sem er hjartarúm, þar er húsrilm”, segir máltækiö. Hús- rúm var nóg, en hjartarúm hús- ráBenda þó meira. Þeir eru orönir margir unglingarnir og börnin, sem dvaliö hafa þar um lengri eBa skemmri tima, sumir aöeins sumarlangt, aBrir ár eftir ár. Oft voru þetta einstaklingar, sem einhverra hluta vegna uröu aB yfirgefa heimili sln. Þeir sem leysa þurftu vanda þeirra, leituBu æBi ofttilBlesastaöahjóna og fóru ekki erindisleysu. Unglingarnir sem þau tóku aö sér fengu gott veganesti og umhyggja hjónanna fylgdi þeim eftir þaB. Má þar nefna systur, sem voru hjá þeim um árabil4aöra þeirra giftu þau, sem væri hún þeirra eigin dóttir. Þegar viölftum til baka og rifj- um uppmeir en þrjátiu ára gömul kynni, dylst okkur ekki aö Her- mann naut mikillar hamingju. Hann var vinsæll maöur, naut fyllsta trausts og haföi tækifæri til aö sinna félagsmálum og jafn- framt bæta jörö sina og auka bú sitt. Þaövar og gæfa hans aB geta tekiö virkan þátt I störfum sveit- unga sinna og deilt kjörum meö þeim I gleöi og sorg, heill og óskiptur. A mannfundum og i vinahópi var hann manna skemmtilegastur, oröhagur og •vel máli farinn. Hann átti ágæta og duglega konu, sem var starfi sinu vaxin viö stjórn á stóru heimili og bik-n sem eru traust og gott fólk. Aö slöustu gat Her- mann, þrátt fyrir erfiöan sjúk- dóm, dvaliö heima og annast bú- iö, þar til fáum dögum fyrir and- lát sitt. Fyrir sjö árum skeöi merkisat- buröur I lífi Hermanns og Ingi- bjargar. Þá giftu þau þrjár yngstu dætur slnar I kirkjunni á Ólafsvöllum. Þá sást best hve stór og vinmörg f jölskyldan var. 1 þessari kirkju var Hermann fermdur og öll hans börn. Nú er hann kvaddur hinstu kveöju á þessum staö, meö þökk og söknuöi ættingja og vina. Viö þökkum Hermanni af heil- um hug vináttu hans og vottum konu hans, börnum og öörum aö- standendum dýpstu hluttekningu. Ingibjörg Björnsdóttir Jónas Guöjónsson Þaö, aö missa vini sina og sam- starfsmenn um langt árabil er eins og aö missa eitthvaö af sjálf- um áér. Svo var þegar ég frétti aö Hermann á Blesastööum hafi lát- ist aöfaranótt 18. þ.m. Aö visu komu þessi tiöindi ekki á óvart. Hermann haföi I rúmt ár barist viö sjúkdóm, sem læknavisindin ráöa ekki enn viö — en ég haföi vonaö aö mega snjóta samfylgdar hans enn um stund. Sökum frændsemi hófust kynni okkar snemma og var Hermann m.a. viö gegningar hjá fööur min- um á unglingsárum. Siöar lágu leiöir okkar saman I ungmenna- félagi og viö önnur félagsmála- störf. Ég á þvi margs aö minnast og margt aö þakka, aö skilnaöi. Hermann Guðmundsson var fæddurá Blesastööum á Skeiöum 23. ágúst 1913 og þvl rúmlega 67 ára þegar hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Guömundur Magnússon, bóndi þar, og Kristln Jónsdóttir frá Vorsabæ. Hermann ólst upp í stórum systkinahópi og vandist snemma mikilli vinnu og reyndist bæöi kappsamur og dug- legur. Auk starfa á búi fööur slns var hann á togurum á vetrum en þangaö völdust ekki aörir en úr- valsmenn á þeim tlma, eins og kunnugt er. Hann stundaöi nám i héraös- skólanum aö Laugarvatni I tvo vetur og lauk þaöan prófi voriö 1933. Haustiö 1939 settist hann I eldrideildbændaskólansá Hólum og lauk burtfararprófi um voriö. A Hólum kynntist hann Ingi- björgu Jóhannsdóttur frá Háakoti I Fljótum og giftust þau voriö 1941. Foreldrar Hermanns voru þá farin aö reskjast og varð úr aö þau létu bræöurna Hermann og Magnús fá þriöjung jarðarinnar hvorn en héldu sjálf eftir þriðj- ungi. Hermann stofnaöi nýbýli á grundvelli laga frá 1936 um stuðn- ing til nýbýlastofnunar og reisti frá grunni ibúöarhús og penings- hús. Jafnframt hóf hann i félagi við Magnús bróöur sinn stórfellda túnrækt, en ræktunarskilyrði voru góö á Blesastöðum. A skömmum tima voru þar komin vlölend tún, þau stærstu á einni jörð I sveitinni. Jafnframt stækk- aði bústofninn og rak Hermann lengi eitt stærsta bú sveitarinnar. Ingibjörg, kona Hermanns, er hinn mesti skörungur. Eftir aö þau hófu búskap læröi hún ljós- móöurfræöi og stundaöi þau störf ásamt umsvifamiklu húsmóöur- starfi og bústörfum. Heimili þeirra var viö brugöiö fyrir gest- risni og rausn en þar aö auki tóku þau til dvalar um lengri og skemmri tlma börn og unglinga sem næöingar lífsins höföu mætt á. Var hjálpsemi þeirra viö brugöið I þessu efni eins og ööru. Þau eignuöust 5 börn: Siguröur, trésmiöur, nú starfs- maöur Rannsóknarstofnunar byggingariönaöarins á Keldum, giftur Báru Oddsteinsdóttur. Kristin, gift Vilmundi Jónssyni, bónda í Skeiöháholti. Guðrún, gift Hjalta Arnasyni, bónda Galtafelli. Sigrlöur Margrét, röntgen- tæknir, gift Helga Bjarnasyni verkfræðing á Selfossi. Hildur, sjúkraliöi, gift Kristjáni Guömundssyni skipasmiö og búa þau i' Reykjavik Þrátt fyrir umsvifamikinn búskap sinnti Hermann fjölmörg- um trúnaðarstörfum fyrir sveit sina og héraö og til þess virtist hann alltaf hafa tlma. Veröur þeirra nú getiö, þótt ekki veröi allt taliö. A uppvaxtarárum Hermanns á Blesastööum, voru erfiöir tlmar ogungafólkiöáttifárra kosta völ, en I ungmennafélögunum fann þaö leiö til þjálfunar huga og handar og til aö vinna aö frelsi landsins og öörum hugöarefnum. Störfin i ungmennafélögunum uröu mörgum ómetanlegur skóli, sem þeir bjuggu aö alla ævi — og þaö er eftirtektarvert, aö flestir forystumenn þjóöarinnar fram undir þetta eru gamlir ung- mennafélagar. Hermann gekk snemma I Umf. Skeiöamanna og áriö 1932 var hann kosinn formaöur þess, 19 ára aö aldri. Gegndi hann þvi starfi I samfellt 11 ár, eöa til árs- ins 1943 aö hann dró sig i hlé. Margt ungt fólk var þá heima I sveitinni og starfsemi félagsins meö blóma. Nýtt skóla- og sam- komuhús var byggt 1933 og opn- uöust þá möguleikar til aukinna félagsstarfa. Félagiö átti góöan hlut aö byggingu hins nýja húss og árið 1938 réöst þaö I aö byggja sundlaug, en þá haföi fengist heitt vatn við skólann. Hinn ungi for- maður hvatti unga fólkiö til dáöa og sjálfur var hann alltaf I farar- broddi. Sérstaklega lagöi hann sig fram viö sundlaugarbygging- una og lagöi fram mikla sjálf- boöavinnu. lþróttir voru stundaö- ar af kappi, leikfimi og sund og frjálsar iþróttir og var Hermann þar vel hlutgengur, m.a. tók hann þátt I mörgum kappglimum meö góöumárangri. En mesta áherslu lagði hann á fundina og benti á, aö þeir væru sú beinagrind sem bæru félagsstarfiö uppi. Hann var snemma mælskur og hvatti félaga mjög til þess aö tjá sig I ræöu og riti. Þegar Hermann var kominn á miöjan aldur, eöa áriö 1961, kvöddu ungmennafélagar hann aftur til forystu og var hann þá forma&ur I 6 ár samfellt. Hann var því formaöur Ungmenna- félags Skeiöamanna I 17 ár. Þá fól Héraössambandiö Skarphéöinn honum fjölmörg trúnaöarstörf fyrir æskulý&inn. En fleiri vildu njóta starfs- krafta Hermanns á Blesastööum. Hann átti sæti i hreppsnefnd 1946-1950 og aftur 1970 til dauöa dags. Hann sat lengi 1 skólanefnd, var foröagæslumaöur I þrjá ára- tugi, formaöur nautgriparæktar- félagsins og deildarstjóri Skeiöa- deildar M.B.F. Hann var einn aö- al forgöngumaöur þess, aö lögö var vatnsveita úr Vörðufelli um suöur-Skeiö og I ólafsvaliahverfi og formaður og gjaldkeri vatns- veitufélagsins. Hann var fjall- kóngur I austurleit á afrétti Skeiöa- og Flóahreppa frá 1968 og þar til á s.l. hausti aö hann baöst undan þvi sökum heilsubrests, og hefur um árabil séö um áburöar- dreifingu á afréttinn. Þá voru honum falin trúnaöarstörf fyrir bændasamtökin sat i jaröanefnd Amessýslu var formaöur Naut- griparæktarsambands Arnessýslu, átti sæti i stjórn Búnaöarsambands Suðurlands og i fulltrúaráöi Stéttasambands bænda, — en þau störf veröa ekki rakin hér. A siöastliönu vori var hann kosinn i stjórn Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi. Hermann var mikill félags- hyggjumaöur, trúði á samtaka- mátt fólksins og taldi þaö bestu leiðina til aukinna framfara. Hann var góður fundarmaöur, snjall ræöumaöur og einaröur en kurteis og flutti mál sitt drengi- lega. Á gleöistundum haföi hann oftast orð fyrir mönnum og flutti góöar tækifærisræöur. Hann var bókhneigður og vel lesinn og kunni heilu kvæöin utan að. Mest hélthannupp á Stephan G. Step- hansson og er mér ógleymanlegt að heyra hann flytja Illugadrápu á samkomu án þess að vera með blað. Ég tel fullvist aö Hermann hafi veriö hamingjusamur maöur. Hann fékk aö starfa á fööurleifö sinni sem hann unni svo mjög I náinni snertingu viö búféö og gróöur jaröar og kom miklu i verk. Sveitungar hans og héraös- menn aörir veittu honum mikinn trúnaö, þeim skyldum var honum ljúft aö sinna og gat sinnt þeim allt til hins siöasta. Viö fráfall Hermanns á Blesa- stööum er skarö fyrir skildi hér I sveit og vlöar. Þaö skarö veröur vandfyllt — en minningin lifir um góöan dreng. Mestur er þó miss- irinn fyrir konu hans og böm og votta ég þeim innilega samúö Jón Eikriksson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.