Tíminn - 25.10.1980, Page 16

Tíminn - 25.10.1980, Page 16
1 Slmi: 33700 A NÖTTU OG DEGI ER VAKA A VEGI Gagnkvæmt tryggingafélag WSIGNODE Sjálfvirkar bindivélar | Sjávarafurðadeild j Sambandsins Simi 28200 j ■WMUIMiiiÆUM Benedikt ákveður að vflqa ,,Til að forðast flokkadrætti, sundrungu og deilur hef ég ákveð- ið að gefa ekki kost á mér tii endurkjörs sem formaður Al- þýðuflokksins”, segir i yfirlýs- ingu sem Benedikt Gröndal, nú- verandi formaður flokksins og fyrrum forsætisráðherra, gaf út i gær. Tilefni yfirlýsingarinnar er sú ákvörðun Kjartans Jóhanns- sonar, varaformanns flokksins, að etja kappi við Benedikt um formennsku fyrir Alþýöuflokkn- um á flokksþingi, sem hvatt hefur verið saman um nk. mánaðamót. Ekki verður sagt að þessi yfir- lýsing komi i sjálfu sér á óvart. Kunnugir menn töldu að Kjartan hefði alla möguleika á þvi að sigra Benedikt á flokksþinginu, en á hinn bóginn höfðu miklar sögur gengið um það, einkum I fyrra vetur, að Benedikt Gröndal sjálfur væri afhuga þvi að sækjast eftir að halda áfram sem flokks- foringi, hvað þá að hann vildi berjast fyrir þvi gegn öðrum frambjóðanda. 1 yfirlýsingu Benedikts Gröndal segir enn fremur: „Það er nú ljóst, að flokksþing Alþýðuflokksins, sem kemur saman eftir viku, verði að kjósa milli núverandi formanns og varaformanns i stöðu formanns fyrir næsta tveggja ára kjörtima- bil. Alþýðuflokkurinn hefur langa reynslu af innri átökum i forustu- liöi, sem ávallt leiöa til sundrung- ar. Hefur þetta valdið flokknum óbætanlegu tjóni og haldið fylgi hans og starfi niðri. Hvernig sem kosning formanns færi nú, mundi hún draga á eftir sér slóða sund- urþykkni og vandræða og veikja flokkinn. Eftir kosningar siðustu þrjú ár er Alþýðuflokkurinn fjöldahreyf- ing og sterkt afl i þjóðmálum. Flokksþing og flokksforusta bera þá skyldu gagnvart kjósendum að Frá útifundinum á Lækjartorgi igær. Tlmamynd: Róbert. Hress útífundur farandverkafólks hJKJ — Baráttuhópur farand- verkafólks hélt útifund á Lækjar- torgi I gær, til að mótmæla þeim kjaraskeröingum sem VSl er svo iðiö við að leggja á verkafólk. Fimm manns fluttu ræður á fund- inum og milli ræðuhalda spiluðu og sungu þeir Þorlákur Kristins- son og Tómas J. Sigurösson. Fundarstjóri var Rúnar Guö- brandsson. Fundurinn var allvel sóttur og að honum loknum var gengið aö húsi Vinnuveitenda- sambands tslands til að afhenda mótmæli um samningamálin, og tillögur sem samþykktar voru á fundinum. Þar komu farand- : verkamenn aö lokuðum dyrum en ’ plöggunum var stungið inn um bréfalúguna, þannig að vonandi komast þau til skila. 1 bréfi baráttuhóps farand- verkafólks, til ASl segir svo: Blindaöur á ofstæki sinu vilja þeir (VSl) þannig neyða rikisvaldiö til aö gripa inn i gang samninganna meö lögboði, firra sig þannig af þeim allri ábyrgö til að geta siðan i framhaldi af þvi orgað I sifellu á frekari kjaraskerðingar ailt næsta samningstimabil og sprengt sfðan það pólitfska bandalag sem núverandi rikis- stjórn er fulltrúi fyrir þegar þeim þykir best henta. Um leið sjá þeir sér þann leik á borði, að takist þeim að fá verkalýðsforystuna til aö knékrjúpa rikisvaldinu i bón um kaupogkjör, veröi þeim eftir- leikurinn einn”. Samtök farandverkafólks leggja á það mikla áherslu að verulegra úrbóta er þörf hvað varðar fæðis- og ferðapeninga, svo og betri verbúðir. Baráttu- hópur Farandverkafólks vill mót- mæla harðlega að gengiö verði til samninga um fæðismál á þann hátt sem umræðugrundvöllur sáttasemjara gerir ráö fyrir. Og i áðurnefndu bréfi segir: ,,Með þvi að binda niðurgreiðslur á fæði viö mötuneyti atvinnurekenda stuðl- ar tillagan að þvi að fyrirtæki leggi mötuneyti sin niður, farand- verkafólk þurfi að kaupa fæði sitt af sérstökum fyrirtækjum og einkaaðilum á sina ábyrgð. Bar- áttuhópur farandverkafólks gengst aldrei undir slika samn- inga og mun standa i stööugu striði við atvinnurekendur allt þetta samningstimabil verði þetta samþykkt”. Fundurinn var hinn hressasti og bárust honum mörg skeyti viðs vegar að af landinu. Tæknimál prentara leystust i fyrrakvöld: Aðeins 5 af 8 skrifuðu undir HEI — Þaö fór eins og lá I loft- inu I fyrrakvöld, að samkomu- lag náðist um tæknimál prent- ara. Reyndar skrifuðu aðeins 5 af 8 samninganefndarmönnum HÍP undir samkomulagiö. „Þannig að þaö er engin himin- lifandi ánægja yfir þessu” eins og Magnús E. Sigurösson hjá Prentarafélaginu sagði I sam- tali I gær. „Þótt búið sé að ná þessu samkomulagi, þá á félagsfólkið eftir aö segja sitt álit á þvi” bættiMagnús við. Efnisinnihald samninganna sagði hann þá prentara ekki reiðubúna að ræða i fjölmiölum fyrr en það heföi verið kynnt félagsfólkinu, en það stendur til að gert verði á félagsfundi i Prentarafélaginu n.k. mánudag. Magnús sagði enga áfram- haldandi samningafundi hafa verið boðaða ennþá. En prent- ararnir eru ekki inni i þeim samningum, sem væntanlega eru að nást i gegn milli VSÍ og ASl þegar þetta er skrifaö. standa saman og láta heill flokks- ins og jafnaðarstefnunnar ganga fyrir öllu”. Við þessi tiðindi hafa umræður þegar orðið um það hvort Bene- dikt hyggist hverfa af vettvangi stjórnmálanna með öllu eða halda áfram sem þingmaður. 1 þvi sambandi hefur bæði verið minnst á embætti sendiherra eða útvarpsstjóra, en allt mun það þó taka sinn tima. Amerísk HRÍSORJÓN (Kviana) RIVER hrisgrjón þekkir húsmóóirin og veit hve hagkvæm þau eru, sérstaklega í grauta. RIVIANA býöur nú einnig: AUNT CAROLINE hrísgrjón, sem eru vítamínrík, drjúg, laus í sér, einnig eftir suöu og sérstaklega falleg á boröi. SUCCESS hrísgrjón koma hálfsoðin í poka, tilbúin í pottinn. RIVER brún hýðishrisgrjón holl og góö. \ I V V Rjyer Enrtched Rlce ToBetain Vitamins no Not Rinse Before 0r Drain After Cooking. __Fleiri og fleiri fá sér TIMEX mest selda úrið

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.