Tíminn - 26.10.1980, Síða 9

Tíminn - 26.10.1980, Síða 9
Sunnudagur 26. október 1980. ;.Vs Tortryggilegt kálfakjöt veldur deilum 1 Frakklandi Eitt stærsta neytendasam- band Frakklands hefur varaö fólk stranglega viö þvi aö neyta káifakjöts, sem á boöstólum er f frönskum matvörubúöum. Til- efniö er, aö samtök landbúnaö- arverkamanna hafa nýlega gert heyrinkunnugt, aö kálfar f Frakklandi séu mataöir á óleyfilegum vaxtarhormónum, sem valdi þvi, aö kjötiö af þeim sé ekki mannamatur. Fullyröa foringjar landbúnaöarverka- manna, aö svo mikii brögö séu aö þvi, aö franskir bændur gangi á svig viö lög og eftirlit, aö fjörir af hverjum fimm kálf- um, er til slátrunar komi séu mengaöir vegna hormónagjaf- ar. Viövörun neytendasamtak- anna hefur valdiö miklu fjaöra- foki, og hefur hún jafnvel veriö dregin inn I deilur manna og áróöur vegna forsetakosning- anna i Frakklandi. Annars er þaö ekki nýtilkom- iö, aö mönnum hafi veriö tor- tryggni á kálfakjöti þvi, sem á boöstólum er i Frakklandi. En aldrei hefur þetta veriö sem I sumar, er ekki hefur linnt blaöaskrifum dýralækna, lækna og lögfræöinga um þessa kjöt- tegund, sem sögö er i senn hin dýrasta og versta þar i landi. Slátrari i Paris hefur lýst þvi, hvernig kálfakjötinu hafi sifellt hrakaö siöasta áratug, og sé nú svo komiö, aö kjötið sé oröið að hálfgeröu vatnsglundri, sem rýrni um fimmtán prósent viö suöu. Fyrirmæli þau um hormóna- gjöf, sem fylgja á, eru frá árinu 1976, og er þar lagt bann viö ýmsum vaxtahormónum. Aö hinu leytinu er sitthvað I þess- um lögum harla ógreinilegt og þau til þess fallin, að fariö sé i kring um þau. Þegar fyrir sjö árum byrjuöu neytendasamtökin aö vara viö kálfakjötinu franska og vekja athygli á, aö það kynni aö vera óheilnæmt. Nú er svo komið, aö þaö er háskaspil aö neyta þess, segja þau. Þar er höföaö til þess, aö neyzla þess geti leitt til krabbameins og æðasjúkdóma, auk þess sem þaö sé snautt af eggjahvituefnum og nálega ekkert járn 1 þvi. Gripabændum list ekki á blik- una, því aö sum stórfyrirtæki hafa þegar dregiö saman kaup sin á kálfakjöti, auk þess sem almenningur kann aö gera. Samt eiga þeir hauka i horni. Blöö Gaullista, og enda sjálfur foringi þeirra og keppinautur Giscards forseta, Jacques Chirac, hafa tekiö upp hanzkann fyrir þá (vegna kosninganna) og fariö höröum oröum um til- tæki neytendasamtakanna, er stefni afkomu átta hundruö þús- und fjölskyldna i hættu. Blaöið Figaro hefur fullyrt, aö ógerlegt sé aö ala kálfa á mjólk einni, þvl aö þá yröi kálfakjötiö aö kosta hundruö franka kilógrammiö. Franski landbúnaöarráöherr- ann hefur aftur á móti sagt, aö auövitaö sé bannaö aö selja matvöru, sem geti veriö viösjárverö. Ein af samtökum bænda hafa heimtaö réttarrannsókn á þvi, hvernig gripaeigendur geti komizt yfir óleyfilega vaxta- hormóna handa kálfum sinum og dýralæknar halda áfram aö sprauta i dýr lyfjum meö hormónum, er ekki má nota. Frá einum Svedbergskáp í heila innréttingu Með Svedbergskápum geturðu raðað upp einingurv um eftir því sem þörfin vex. Yfir 100 mismunandi einingar. Hurðir sléttar, rimla og reyr. i f uru, eik og hvítlakkaðar. Litið við og takið litmyndabækling. SVEDBERGS Nýborg(®) BYGGINGAVÖRUR ÁRMULA 23 SÍMI 86755 Innlent lán ríkissjóðs íslands VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Fjármálaráðherra hefur f. h, ríkissjóðs ákveðið að bjóða út til sölu innanlands verðtryggð spariskírteini að fjárhæð allt að 3000 milljónir kr. Kjör skírteinanna eru í aðalatriðum þessi: Skírteinin eru lengst til 20 ára, bundin fyrstu 5 árin. Þau bera vexti frá 25. þ. m., meðalvextir eru 3,5% á ári. Verðtrygging miðast við breytingar á lánskjaravísitölu, sem tekur gildi 1. nóvember 1980. Skírteinin eru framtalsskyld, en um skattskyldu eða skattfrelsi skírteina fer eftir ákvæðum tekju- og eignarskattslaga eins og þau eru á hverjum tíma. Nú eru gjaldfallnar vaxtatekjur, þ. m. t. verðbætur bæði taldar til tekna og jafnframt að fullu frádráttarbærar frá tekjum manna, og þar með skattfrjálsar, enda séu tekjur þessar ekki tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, sbr. lög nr. 40/1978 og nr. 7/1980. Skírteinin eru gefin út í fjórum stærðum, 10, 50, 100 og 500 þúsund krónum, og skulu þau skráð á nafn. Sala hefst 28. þ. m. og eru sölustaðir hjá bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum um land allt, svo og nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík. Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja frammi hjá þessum aðilum. Október 1980 'VasV'” SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.