Tíminn - 26.10.1980, Blaðsíða 12

Tíminn - 26.10.1980, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 26. október 1980. Greinargerð Flugfreyjufélagsins vegna fjöldauppsagna: Sjálfsögð háttvísi atvinnurekenda að virða starfsaldurslistann Svo sem kunnugt er sögbu Fluglei&ir upp öllu flugfólki sfnu hinn 1. september s.l. Uppsagn- irnar miBast viö 1. desember. Flugleiöir lýstu þvi yfir, aB þeir vonuBust, aö til endurráBninga sem flestra flugfreyja gæti komiö og yröi stefnt aö ákvaröanatöku þar um fyrir 1. nóvember. Flug- freyjufélagiö lýsti þá þegar yfir vanþóknun sinni á þessari aöferö og taldi óþarft aö segja upp öllum flugfreyjum og flugþjónum, þar sem Flugleiöir ætluöu aö halda áfram flugrekstri og myndu þurfa á umtalsveröum hluta þessa starfshóps aö halda. Enn- fremur hefur Flugfreyjufélagiö itrekaö þá kröfu sina, aö endur- ráöiö veröi i þessi störf sam- kvæmt starfsaldri, eins og jafnan hefur tiökast með fast- ráöiö starfsfólk. Starfsmanna- hald Flugleiöa geröi einn lista yfir starfsaldur fastráöinna flug- freyja i samráöi viö Flugfreyju- félagiö og hefur siðan veriö fariö eftir þeim lista i öllum þeim til- fellum, sem sagt hefur veriö upp eöa endurráöiö i umrædd störf hjá fyrirtækinu. Flugfreyjufélagiö er hiö eina af flugliöafélögunum, er uröu fyrir hópuppáögnum 1. september, sem er fullkomlega sameinaö. Félagiö telur sig hafa sýnt stjórn Flugleiða fulla þolinmæöi og samstarfsvilja vegna samein- ingar félaganna sem og i þeim þrengingum, er fyrirtækið hefur átt i. Félagar stéttarfélagsins hafa hlotið þjálfun á allar flug- vélageröir Flugleiöa og fljiiga jöfnum höndum innanlands og utan, vinna sömu vinnuna. Þessir starfsmenn sitja þvi allir viö sama borö og Flugfreyjufélag Is- lands telur þaö réttlætismál aö starfsldur ráöi, þegar velja á fólk i störf þeirra. Þar sem stjórn Flugleiöa virö- istekki ætla aö sinna þessari rétt- lætiskröfu, heldur velja, sam- kvæmt áöur óþekktum reglum, 68 úr þeim hópi 131 starfsmanns, sem sagt var upp 1. september, neyöistFlugfreyjufélagiö til þess, aö kynna stööu sina. Hér er um aö ræöa fólk, sem gert hefur flugfreyjustarfið aö ævistarfi, og hefur 7—25 ára starf aö baki. Flugfélögin hafa valiö þetta fólk af kostgæfni úr hópi hundruða umsækjanda, sem siöan þurfa árlega aö taka þátt i námskeiöum og standast próf, sem varða öryggi flugsins og hugsanleg neyöartilfelli. Þar að auki hafa Flugleiöir haft starf- andi fimm eftirlitsmenn, sem hafa haft þaö hlutverk aö lita eftir og sjá til þess, aö allt þetta fólk sinnti starfinu sómasamlega. Sú staöreynd, aö starfsmanna- hald fyrirtækisins, hefur ekki séö ástæöu til aö segja upp fólki, sem starfaö hefur þetta lengi, hlýtur aö skiljast sem svo, aö þaö hafi talist fullkomlega hæft. Þegar um er að ræöa jafn viöurhlutamikiö mál og slikar fjöldauppsagnir, álitur Flug- freyjufélagiö þaö sjálfsagöa hátt- visi af hálfu atvinnurekenda, aö viðhafa þá reglu, sem ein getur talist réttlát, og hefur verið við- höfö, en þaö er starfsaldursregl- an. Þaö gefur auga leiö, aö það fólk, sem missir starf sitt á þeim forsendum, aö þaö sé minna hæft en hinir sem eftir sitja, á, af skiljanlegum ástæöum ekki auö- velda leiö út á vinnumarkaöinn. Þarf þar ekki aö nefna annaö en þá y tortryggni, sem Flugleiðir hljota óhjákvæmilega aö vekja gagnvart þessum einstaklingum. Flugfreyjufélag tslands hefur viljaö sýna Flugleiöum fullan samstarfsvilja viö þær erfiöu aö- stæöur, sem fyrirtækiö á i. Flug- freyjufélagiö óskar eftir mann- legum og eöiilegum samskiptum starfsfólks og stjórnar fyrirtækis- ins. Svo sem stjórnendur Flug- leiða hafa bent á, hljóta þau sam- skipti aö veröa viökvæmari en ella, þegar jafn miklir erfiöleikar steöja aö rekstrinum og raun hefur á oröiö. En slikar aöferöir, sem stjórn Flugleiöa hyggst nú beita flugfreyjur, eru sist til þess fallnar aö bæta þann samstarfs- anda, sem flestar eru sammála um aö þurfi að ríkja innan fyrir- tækisins, svo takast megi að bæta hag þess og tryggja viðgang þess. Þvert á móti má búast viö öryggisleysi meöal þeirra, sem halda vinnu sinni, ef af þessum uppsagnaraðferöum veröur, þvi stjórnendur fyrirtækisins gætu þá beitt þeim aftur, hvenær sem þeim þætti ástæða til. Flugfreyjufélag Islands er ekki aö berjast fyrir stundarhagsmun um, heldur almennu réttlæti er varðar viröingu fyrir einstak - lingnum og tilveru heils stéttar- félags. Með þökk fyrir birtinguna, Stjórn og trúnaöarmannaráö Flugfreyjufélags íslands. Er öryggi þitt ekki hjólbarða virði? UMFEROAR 1 RÁÐ VEIABCCG Sundaborg 10 — Simar 8-66-55 & 8-66-80 DRÁTTARVÉLAR Mjög fullkominn útbúnaður svo sem: • Finnskt,,De Luxe" hljóðeinangrað ökumannshús með sléttu gólfi, miðstöð, sænsku „Bostrom" ökumannssæti. • Fislétt „Hydrastatic" stýring. • Framh jóladrif handvirkt eða sjálfvirkt við aukið álag á afturöxli. • Tvívirkt dráttarbeisli. #,,Pick up' dráttarkrókur. • Stillanleg sporvídd á hjóíum. Fullkominn varahlutalager í verksmiðju í Englandi tryggir skjóta og örugga afgreiðslu varahluta. Fáum nokkrar vélar á mjög hagstæðu verði fyrir áramótin Guðbjörn Guðjónsson heildverslun Kornagarði 5 — simi 85677. \

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.