Tíminn - 08.11.1980, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.11.1980, Blaðsíða 3
Laugardagur 8. nóvember 1980 3 með samkomulagið AB — Þjónar og veitingamenn komust aö samkomulagi seint i fyrri nótt. Samkomulagið var þó háö þvl skilyröi af hálfu þjóna aö fjármála- og félagsmála- ráöuneytin féllust á niöurfeli- ingu svokaliaörar tvisköttunar þjóna, sem þeir hafa mátt þola undanfarin ár. Allt viröist þvi benda til þess aö samkomulag náist, þvi trúnaöarmannaráöi fram- reiöslumanna barst bréf frá fjármálaráöuneytinu i eftirmið- daginn i gær, þar sem ráðuneyt- iö vlsar til viöræðna sem voru I fyrradag um álagningu launa- skatts, lifeyris og slysatrygg- ingariögjalda vegna vinnu nema og aðstoöarfólks á veit- ingahúsum, sem sagt þeirra liöa sem i dag eru tviskattlagöir. I bréfi þessu lýsir ráöuneytiö þvi yfir aö i samráöi viö heilbrigöis- og tryggingaráöuneytiö muni þaö beita sér fyrir breytingum á núgildandi reglum um þetta efni, þannig aö gjöld framvegis veröi einungis lögö á heildar- upphæð. Aö sögn Hólmfriöar Arnadótt- ur framkvæmdastjóra Sam- bands veitinga- og gistihúsaeig- enda þá eru veitingamenn ekk- ert tiltakanlega ánægöir meö þessa samninga enda hafi verið samiö undir þrýstingi verkfalls- hótunar. Aöalbreytingu frá nú- gildandi samningum sagöi Hólmfrföur vera þáj aö kaup- tryggingin skal nú vera nettó, en ekki brúttó eins og verið hef- ur. Þaö þýöir þaö I raun aö tryggingin er miöuö viö þaö aö þjónustulaunin eru gerö upp eins og þau standa eftir aö framreiöslumenn hafa greitt þann kostnaö sem þeir hafa af nemum og aðstoöarfólki, en ekki af brúttótekjum þjóna eins og áöur var. Sveinbjörn Þorkelsson for- maöur Félags framreiöslu- manna sagöi I viötali viö Tim- ann i gær aö fulltrúar fram- reiöslumanna i samninganefnd væru til þess aö gera ánægöir meö samkomulagiö. Sveinbjörn sagöi jafnframt aö ánægja framreiöslumanna væri mikil meö liö þann sem kveöur á um aukna kauptryggingu á laun fyrir vinnu sem fer fram úr 40 stunda vinnuviku. Vegna þess aö kauptrygging þessi er nettó en ekki brúttó, þá sáu fram- reiðslumenn sér fært að ganga aö þessu, og þar réö þaö sjónar- miö aö fá þennan liö inn i samninga. Sveinbjörn lagöi fram á trúnaöarráösfundi I gær tillögu þess efnis aö boöuöu sólarhringsverkfalli yröi aflýst og var tillagan samþykkt. Félagsfundur mun siöan taka afstööu til samkomulagsins strax eftir helgi. Börnin á barnaheimili St. Franciskusystra I Stykkishólmi ásamt fóstrum slnum. Fjóröi bekkur grunnskólans I Stykkishóimi ásamt Páima Frlmannssyni, héraöslækni og formanni Rauöa kross deildarinnar, kennara sinum Helgu Mariu ólafsdóttur og Róbert W. Jörgensen, yfirkennara. SAFNAÐ TIL AFRIKUHJALPAR I STYKKISHÓLMI KL— Börn I Stykkishólmi láta ekki sitt eftir liggja I fjársöfnun til Afrikuhjálpar. Börn á barna- heimili St. Franciskussystra komu upp söfnunarbauki á heim- ilinu og fengust I hann 52 þúsund 1 krónur. 4. bekkur grunnskólans notaöi sömu aöferö og aö auki gengust þau fyrir stórri hluta- veltu. Afraksturinn varö 270.000 krónur. Flugleiðir: Sparn- aður erlendis KL — Sem einn liöur i aö- haldssemi Fiugleiöa hefur húsnæöi þaö, þar sem vöru- afgreiðsla félagsins á Kennedyflugvelii hefur veriö undanfarin ár, veriö ieigt fyrirtækinu Serveair, sem tekur aö sér afgreiöslu á frakt fyrir Flugleiöir og hef- ur jafnframt ráöiö hluta starfsfólksins, segir I frétt frá Fiugieiöum. Seld veröa tæki sem notuö voru viö svokallaö linuviö- hald og bilaverkstæöi félags- ins á Kennedyflugvelli hefur veriö lagt niöur. Fyrir- hugaöar eru breytingar á fyrirkomulagi farþegaaf greiöslu, sem miöa aö lægri tilkostnaöi og sparnaöi i rekstri. Þá hyggst félagiö minnka umsvif sin I New York, Chicago, Washington og Miami. Allar eru þessar ráöstafanir geröar meö hliösjón af minnkandi sæta- framboöi félagsins á Noröur- Atlantshafi. Eins og þegar hefur komiö fram I fréttum, standa nú yfir breytingar á skrifstofu- húsnæöi Flugleiöa á Reykja- vikurflugvelli þar sem starfsfólki hefur fækkaö svo mjög aö ekki er þörf alls fyrra húsnæðis. I Luxemborg standa yfir flutningar i eigið húsnæöi félagsins af sömu ástæöu. Allar eru þessar ráöstafanir sem fyrr segir liður i endurskipulagningu Flugleiöa, sem miöa aö auk- inni hagkvæmni og sparnaöi i rekstri. Fleiri valkostir i helgisiðum og kirkjutónlist Grallarasöngur inn- leiddur á nýjan leik EKJ— Kirkjuþing samþykkti samhljóöa frumvarp um nýja handbók kirkjunnar. Þingiö hnikaöi oröalagi á stöku staö og mælti meö minni háttar breyt- ingum, sem allar voru I sam- hljóm viö frumvarpið i heild. Lagöi þingiö til aö handbókin yröi gefin út til reynslu, fyrst I staö. Afdrif þessa frumvarps hafa verið óvenjuleg. Hin fjölmenna handbókarnefnd skilaöi þvi frá sér einhuga, prestastefnan 1980 samþykkti samhljóma og nú siö- ast næst um þaö samstaða á Kirkjuþingi. Hlýtur þetta að vera fátitt um svo viökvæmt og vand- meðfarið mál sem helgisiöir kirkjunnar eru, þvi aö „hið heil- aga sem menn umgangast verður hluti af þeirra lifi”, svo sagði biskup er hann þakkaöi Kirkju- þingi meðferð þess á frum- varpinu. Taldi biskup aö engin handbók á Islandi heföi hlotið jafnvandanðan undirbúning, verið jafn hugsuð af slikri yfirsýn og þekkingu sem þessi. 1 máli ræöumanna kom fram aö mikil þörf er á ýtarlegri kynningu væntanlegrar handbókar I söfn- uöum landsins. Hér væri um ýmsa valkosti aö ræöa viö helgi- hald't kikrkjunnar, og langt frá þvi að væri verið að reyra þaö i viöjar, eða neinu neytt upp á fólk. Gert er ráö fyrir fjölbreytni um notkun tónlistar, tónsöngvar ’þeir sem kenndir eru við Bjarna Þor- steinsson, Sigfús Einarsson halda fullu gildi, svo er og um hinn klassiska kirkjusöng sem stundum er nefndur grallara- söngur. Vonandi bætast viö tón- söngvar samdir af nútima is- lenskum tónskáldum. „Þetta er gleöistund fyrir is- lenska kirkju aö viö höfum ' staöiö saman um frumvarpiö og fáum nú langþráöa handbók,”, sagöi sr. Pétur Ingjaldsson pró- fastur sem situr Kirkjuþing fyrir | Norölendinga. Biskup tók i sama streng og taldi aö „harpa kirkjunnar heföi rikari og auöugri hljóm en áöur” viö tilkomu væntanlegrar hand- bókar. Utanrikisráðherrar íslands og Búlgariu: FJÖLLUÐU UM MIKILVÆGI SLÖKUNARSTEFNUNNAR HEI— ólafur Jóhannesson, utanrlkisráöherra er nýkominn heim úr opinberri heimsókn til Búlgarlu, dagana 3. til 5. nóvember, I boöi Petar Mladenov, utanrikisráöherra. Meö I förinni var Höröur Helga- son, ráöuneytisstjóri. Forseti rikisráösins, Todor Zhivkov og formaöur ráöherra- nefndarinnar, Stanko Todorov, tóku á móti Ólafi. Fjölluöu ráö- herrarnir um mikilvægi þess aö slökunarstefnan næöi fram aö ganga. Draga yröi úr vigbún- aðarkapphlaupinu og vinna markvisst að afvopnun. Þeir töldu að meö raunhæfum aö- geröum gæti Madrid-fundurinn stuölaö aö friöi og samvinnu rikja I Evrópu á jafnréttis- grundvelli. Ólafur Jóhannesson bauö Petar Mladenov aö koma I opin- bera heimsókn til Islands. Boöiö var þegiö meö þökkum en ekki hefur verið afráöiö hvenær af þeirri heimsókn veröur. Höfum fengið enn eina sendingu af sænsku SKEPPSHULT gæðahjólunum frá: Vönduö og sterk hjól kjörin fyrir islenskar aöstæöur. HAGVÍS P.O. Box 85, Garðabæ slmi 4 10 68 kl. 9-12 og 5-7 Sendum I póstkröfu hvert á land sem er fRafmagns- verkfæri Borvélar- Heflar Slípirokkar Stingsagir Hjólsagir Beltavélar Hristarar K.F. Árnesinga Selfossi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.